Fleiri fréttir

Bændasamtökin neita að lána starfsmenn vegna ESB

Bændasamtök Íslands og Landssamtök sauðfjárbænda hafa hafnað beiðni sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis um að lána starfsfólk sitt til ráðuneytisins í rýnivinnu vegna umsóknar Íslands að ESB.

Farginu létt af eldstöðinni

Áfram er fylgst grannt með Grímsvötnum nú þegar farginu hefur létt af eldstöðinni. Vatnsyfirborðið undir Gígjubrú hefur lækkað um einn og hálfan metra frá því Grímsvatnahlaupið náði hámarki þar síðdegis í gær.

Konurnar ætla að dansa vegna nýja vegarins

Íbúar á norðausturhorni landsins efna til allsherjar héraðshátíðar á sex stöðum um helgina í tilefni þess að nýr vegur yfir Melrakkasléttu verður formlega opnaður, en með honum styttast leiðir til bæði Raufarhafnar og Þórshafnar, auk þess sem samfellt malbik verður komið þangað alla leið úr Reykjavík.

Dæmd í ellefu mánaða fangelsi fyrir að stela bíl

Kona var dæmd í ellefu mánaða fangelsi í dag fyrir að stela bifreið í ágúst síðastliðnum fyrir utan verslun 10-11 á Barónstíg. Konan ók svo bifreiðinni til Eyrarbakka þar sem lögreglan handtók hana.

Siðmennt heiðrar Hörð Torfason

Siðmennt afhendir í dag hin árlegu Húmanistaverðlaun Siðmenntar. Handhafi viðurkenningarinnar þetta árið er Hörður Torfason og er hann heiðraður fyrir mikilvægt og áratugalangt starf í þágu mannréttinda á Íslandi. Þá fær Ari Trausti Guðmundsson jarðvísindamaður og rithöfundur Fræðslu- og vísindaviðurkenningu Siðmenntar í ár.

Fyrsti vetrarsnjórinn fallinn í Reykjavík

Borgarbúar vöknuðu upp við það í morgun að fyrsti vetrarsnjórinn var fallinn. Myndatökumaður Stöðvar 2 fór á stúfana og myndaði fólk á leið til vinnu. Í færð sem þessari gengur allt hægar en venjulega enda flughált víða. Það kom því ekki á óvart að í gærkvöldi var tilkynnt um rúmlega þrjátíu umferðaróhöpp í höfuðborginni einni.

Ný útgáfa af tillögum mannréttindaráðs

Nokkrar breytingar voru gerðar á orðalagi tillögu mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar áður en hún var afgreidd úr ráðinu í gær. Þar segir nú: „Sígildir söngvar, dansar, leikir og handíðir sem teljast hluti af gamalgrónum hátíðumog frídögum þjóðarinnar halda sínum sess í árstíðabundnum skemmtunum og starfi frístundaheimila, leik- og grunnskóla."

Krefjast utanþingsstjórnar við þingsetninguna í dag

Í tilefni þess að þingheimur kemur saman að nýju í dag hefur verið boðað til mótmæla við Alþingishúsið í dag þar sem þess er krafist að Alþingi samþykki utanþingsstjórn. Þingfundur hefst klukkan tvö og mótmælin sömuleiðis.

Misstórir en báðir eru grænir

Töluverður munur var á fararskjótum borgarstjóra Reykjavíkur og forseta Íslands þegar þeir heimsóttu báðir Foldaskóla á þriðjudag. Þar var haldinn kynningarfundur fyrir Forvarnadaginn sem haldinn var í grunnskólum landsins í gær.

Ósamið um fébætur fyrir Hótel Valhöll

Forsætisráðuneytið og tryggingafélagið Vörður hafa ekki lokið samningum um uppgjör vegna bruna Hótels Valhallar á Þingvöllum í júlí 2009. Brunabótamat byggingarinnar var ríflega 270 milljónir króna en óvíst er hver endanleg bótafjárhæð verður. Þingvallanefnd leggur mikla áherslu á að bótaféð skili sér austur í þjóðgarðinn. Bæturnar verða jafnvel aðeins

Leiðir flokk jafnaðarmanna

Helgi Hjörvar, þingmaður og fráfarandi forseti Norðurlandaráðs, hefur verið kjörinn leiðtogi í flokkahópi jafnaðarmanna í Norðurlandaráði.

Lengsta samdráttarskeiðinu að ljúka

Efnahagsbati hér á landi verður drifinn af einkaneyslu og fjárfestingu, ekki af útflutningi. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri þjóðhagsspá Seðlabanka Íslands.

Erum örugglega sammála

Á milli Steinunnar Hlífar Guðmundsdóttur og Ingibjargar Tönsberg er 71 ár. Þær eiga það hins vegar sameiginlegt að vera fulltrúar á Þjóðfundinum sem haldinn verður í Laugardalshöllinni um helgina. Steinunn er yngsti þátttakandinn en Ingibjörg sá elsti. Fréttablaðið hitti stöllurnar á heimili Ingibjargar í gær.

Hrygningarstofninn hruninn

Hafrannsóknastofnunin leggur til að heildaraflamark í íslenskri sumargotssíld fari ekki yfir 40 þúsund tonn á komandi vertíð. Hrygningarstofninn er metinn vera 370 þúsund tonn, sem er um helmingur þess sem stofninn var metinn vera árið 2006. Vísbendingar eru um að sýkingarfaraldurinn sem herjað hefur á stofninn undanfarin tvö ár sé í rénun. Stóran hluta 2007-árgangsins, sem kemur inn í veiðina á næsta ári, var að finna nánast ósýktan í Breiðamerkurdjúpi.

Fá frítt í sund og í íþróttatíma

Staða atvinnulausra á Ströndum er að batna eilítið því sveitarstjórn Strandabyggðar hefur lagt til að atvinnuleitendur í sveitarfélaginu fái frítt í sundlaugina, þreksal og opna íþróttatíma í íþróttahúsinu á Hólmavík.

Telur ívilnun geta verið ríkisaðstoð

Eftirlitsstofnun EFTA, ESA, ákvað í gær að hefja formlega rannsókn á því hvort ríkisstuðningur fælist í fyrirhuguðum undanþágum Verne Holdings frá sköttum og gjöldum til ríkis og sveitarfélaga. Auk þess mun stofnunin skoða orkusölusamning, kaup á fasteignum, lóðaleigu og samning um gagnaflutning til gagnavers Verne Holdings.

Spenntur fyrir nýju stöðunni

Árni Mathiesen, fyrrverandi sjávarútvegs- og fjármálaráðherra, segist í samtali við Fréttablaðið spenntur fyrir nýju starfi sem aðstoðarframkvæmdastjóri hjá FAO, Matvæla- og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna, en hann var skipaður í þá stöðu á þriðjudag.

Verðlaun veitt fyrir ýmis afrek

Norðurlandaráð afhenti í gær verðlaun fyrir afrek á sviðum bókmennta, kvikmyndagerðar og tónlistar og í fyrsta sinn voru Norrænu náttúru- og umhverfisverðlaunin veitt.

Brynjar sakaður um að hafa rofið trúnað

Slitastjórn Glitnis hefur krafist þess að lögfræðiálit Brynjars Níelssonar, formanns Lögmannafélags Íslands, sem nýlega var lagt fyrir dóm í New York, verði metið ógilt. Álit Brynjars er lagt fram af lögmönnum stefndu,

Greip í læri og slökkti ljósin

Ríkissaksóknari hefur ákært rúmlega fertugan mann fyrir ýmis brot, þar á meðal hættubrot í bifreið og tvær líkamsárásir.

1,1 milljón til góðgerðamála

Hanna María Péturs­dóttir, fimm ára, afhenti Fjölskylduhjálp Íslands 1,1 milljón króna í gær. Peningarnir söfnuðust eftir sölu á endurskinsmerkjum sem hún og móðir hennar, Auður Lind Aðalsteinsdóttir, hönnuðu í fyrra.

Tólf umferðaróhöpp á tveimur tímum

Fimmtán umferðaróhöpp hafa orðið á höfuðborgarsvæðinu í dag. Þar af hafa tólf orðið síðan klukkan hálfsex í kvöld. Sem betur fer hafa ekki orðið slys á fólki. Gríðarleg hálka er á götum borgarinnar, ekki síst í úthverfum. Flest umferðaróhöppin hafa orðið í austurhluta borgarinnar en það er full ástæða til að hvetja vegfarendur til þess að fara varlega.

Undrast áhugaleysi stjórnarandstöðunnar á samstarfi

Lítill áhugi stjórnarandstöðunnar á samstarfi í atvinnumálum kemur forsætisráðherra á óvart. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir að ríkisstjórn sem mistakist í mikilvægustu málunum eigi ekki langa lífdaga. Forystumenn ríkisstjórnarinnar boðuðu stjórnarandstöðuna á fund í dag en ríkisstjórnin vill víðtækt samráð um áætlun í atvinnuuppbyggingu.

Enginn ráðherra við mestu atvinnusköpun landsbyggðar

Allt að 170 störf skapast á Reyðarfirði við smíði nýrrar kersmiðju Alcoa Fjarðaáls en fyrsta skóflustunga var tekin í dag. 70 ný störf til frambúðar verða til á Austurlandi þegar rekstur verksmiðjunnar hefst eftir átján mánuði.

Velta fyrir sér 15% hækkun á gjaldskrá

Borgaryfirvöld hafa velt fyrir sér allt að fimmtán prósenta hækkun á öllum þjónustugjaldskrám. Það þýðir verulegar hækkanir í sund, á söfn, í húsdýragarðinn, á byggingaleyfi, heimaþjónustu og í sumum tilvikum á mat og kaffi.

Hlaupið í rénun

Hlaupið í Grímsvötnum náði hámarki í dag og er nú í rénun, segir Gunnar Sigurðsson vatnamælingamaður sem er staddur fyrir austan fjall. Gunnar telur að vatnsflæðið gæti hafa verið nálægt 3000 rúmmetrum þegar hlaupið var sem stærst.

Frambjóðendur kynntir á kosning.is

Dómsmála- og mannréttindaráðuneytið hefur opnað vefsvæði með kynningu á frambjóðendum til stjórnlagaþings á vefnum kosning.is. Þar er líka að finna hjálparkjörseðil þar sem kjósendur geta raðað þeim frambjóðendum sem þeir hafa áhuga á að kjósa, prentað seðilinn út og tekið með sér á kjörstað.

Össur og kollegar biðla til Írana

Utanríkisráðherrar Norðurlandanna lýstu í dag yfir miklum áhyggjum vegna frétta af því að aftaka írönsku konunnar Sakineh Mohammadi-Ashtiani væri yfirvofandi.

Leikskólabörn fái ekki að hitta prest á skólatíma

Leikskólabörn í Reykjavík munu ekki fá að heimsækja kirkjur á skólatíma en grunnskólabörn munu eiga möguleika á slíku verði endurskoðaðar tillögur mannréttindaráðs Reykjavíkurborgar samþykktar.

Vísindamenn í könnunarflugi

Það var um klukkan hálf þrjú í nótt sem vísindamenn tóku eftir breytingum í Grímsvötnum en þá fóru mælar skyndilega að sýna meiri óróa. Því var ákveðið að fljúga yfir vötnin og fór vél Landhelgisgæslunnar, TF-SIF, í loftið rétt fyrir hádegi í dag . Myndatökumaður okkar var um borð og náði þessum myndum.

Upphafskvóti í síld ákveðinn 40.000 tonn

Jón Bjarnason sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra hefur í dag gefið út reglugerð um veiðar á íslenskri sumargotssíld og er upphafskvótinn 40.000 tonn, sem þýðir að 25.000 tonnum verður úthlutað að þessu sinni samkvæmt tilkynningu frá sjávarútvegsráðuneytinu.

Aðskilnaður trúfélaga og skóla ræddur í Hafnarfirði

Lögð var fram tillaga um aðskilnað trúfélaga frá skólastarfsemi hjá fræðsluráði Hafnarfjarðar í dag. Samkvæmt formanni ráðsins, Guðrúnu Ágústu Guðmundsdóttur, oddvita Vinstri grænna, þá er tillagan eingöngu til umræðu.

Nýbökuð móðir með brjóstabarn á Þjóðfundi

Þjóðfundur um stjórnarskrá Íslands verður haldinn næstkomandi laugardag 6. nóvember í Laugardalshöll. Um 1000 þáttakendur eru skráðir á fundinn en þeir voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Hlutverk þeirra er að tjá hugmyndir sínar og skoðanir um stjórnskipan landsins og stjórnarskrá og endurskoðun á henni.

Júlíus Vífill: Samráð algjör nauðsyn

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir ljóst að ekkert samráð eigi að hafa um samstarf skóla borgarinnar við trúar og lífskoðunarfélög. Tillögu sjálfstæðismanna um að koma á sérstökum starfshópi í málinu var hafnað af meirihluta mannréttindaráðs fyrr í dag.

Ný flóðljós sett upp við Háskóla Íslands

Endurbætur standa yfir við byggingu Háskóla Íslands og hafa nýjar hellur verið lagðar á háskólasvæðinu. Nemendur hafa tekið eftir því að flóðljósin sem voru í gangstéttinni við aðalbyggingu Háskólans eru horfin. Sá tími sem byggingin er flóðlýst við hátíðleg tækifæri er þó ekki liðinn því ný fljóðljós eru væntanleg.

ESA rannsakar stuðning ríkisins við Verne Holdings

Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) ákvað í dag að hefja formlega rannsókn á stuðningi íslenska ríkisins og Reykjanesbæjar við fyrirtækið Verne Holdings ehf. í tengslum við byggingu gagnavers á Reykjanesi samkvæmt tilkynningu frá ESA.

Sjá næstu 50 fréttir