Fleiri fréttir

Fundið fyrir miklum styrk eftir frétt Stöðvar 2

Útigangsmaðurinn Örvar Geir Geirsson sem gekk berserksgang á skrifstofu félagsþjónustunnar í gær, segir þann mikla hlýhug sem hann hefur fundið fyrir eftir að frétt Stöðvar 2 birtist í gær, hafa veitt ómetanlegan styrk. Rætt verður við Örvar í fréttum Stöðvar 2 klukkan hálf sjö.

Hlé gert á leitinni að Andrési

Leitin að Andrési Tómassyni hefur engan árangur borið. Um þrjátíu hópar gengu slóða í gær og vegi í kringum höfuðborgarsvæðið. Hætt var að leita um níu, þegar byrjaði að dimma.

Héðinsfjarðargöng opnuð í dag

Héðinsfjarðargöng verða formlega opnuð í dag fyrir almennri umferð. Framkvæmdin, sem kostaði 12 milljarða króna af skattfé, felur í sér mikla samgöngubót fyrir íbúa á Ólafsfirði og Siglufirði.

Tíu ára á gjörgæslu eftir umferðarslys

Tíu ára drengur sem ekið var á í Reykjanesbæ í gær liggur á gjörgæsludeild Landspítalans. Læknir á deildinni segir ástand hans stöðugt og honum sé ekki haldið sofandi.

Bandarísk stjórnvöld biðjast afsökunar

Bandarísk stjórnvöld hafa beðið afsökunar á því að hafa smitað 700 manns viljandi af sárasótt og lekanda í Gvatemala fyrir rúmlega sextíu árum.

Orkuveitan aftengdi neysluvatn fjölskyldu

„Nú náum við í vatn eitt hundrað metra leið niður í Leirvogsá," segir Ingibjörg Þorgilsdóttir í Perluhvammi í landi Fitja, þar sem starfsmenn Orkuveitu Reykjavíkur aftengdu kaldavatnslögn inn á land þeirra á fimmtudag.

Reiði almennings skiljanleg

Á þriðja þúsund manns mótmæltu á Austurvelli þegar Alþingi var sett í gær. Nær allir mótmæltu friðsamlega, en nokkrir köstuðu eggjum, brauði, bíllyklum og öðru lauslegu að þingmönnum og Alþingi.

Veikar efnahagsforsendur

„Ég geri ráð fyrir að þetta frumvarp eigi eftir að taka miklum breytingum,“ segir Kristján Þór Júlíusson, fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd.

Ekki sátt um launafrystingu

Kjarasamningar opinberra starfsmanna eru lausir í lok nóvember en Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra lýsti því yfir í gær að ekki stæði til að hækka laun þeirra. Elín Björg Jónsdóttir, formaður BSRB, undrast þessi orð ráðherrans.

Vita ekki hvenær öllu lýkur

Fyrst í stað leggur SP-Fjármögnun áherslu á að ljúka endurútreikningi á þeim samningum þar sem einn og sami lántaki hefur verið skráður frá upphafi. Stefnt er að því að þeirri vinnu verði lokið eigi síðar en fimmtudaginn 7. október næstkomandi.

Stofninn lítill og nýliðun slök

Úthafsrækjustofninn mælist enn lítill og er veiðistofninn svipaður og síðustu fjögur ár. Ólíklegt er talið að rækjustofninn vaxi mikið í bráð. Þetta er niðurstaða árlegrar stofnmælingar Hafrannóknastofnunar á úthafsrækju fyrir norðan og austan land.

Viðskiptavefur opnaður um miðjan mánuð

Stefnt er að því að endurútreikningar einföldustu gengislánasamninga Lýsingar verði aðgengilegir um miðjan mánuðinn. „Aðalmálið er að fólk fái rétta stöðu," segir Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Lýsingar.

Fjallabyggð sameinuð með göngum

Héðinsfjarðargöngin á milli Siglufjarðar og Ólafsfjarðar verða opnuð í dag. Göngin stytta leiðina á milli bæjarfélaganna tveggja úr 62 kílómetrum í um 15 kílómetra og eru um 11 kílómetrar að lengd.

Níu manns sagt upp störfum

Þjóðleikhúsið hefur sagt upp níu fastráðnum starfsmönnum. Lækka þarf launakostnað um 14 prósent milli ára vegna tíu prósent skerðingar á framlögum í fjárlagafrumvarpi ársins, að sögn Ara Matthíassonar, framkvæmdastjóra Þjóðleikhússins.

Hægri hönd í eftirsótt starf

Ögmundur Jónasson, dóms- og mannréttindaráðherra, hafnar því alfarið að ráðning Jóhanns Guðmundssonar í embætti skrifstofustjóra auðlindaskrifstofu landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytisins sé af pólítískum toga.

Velferðarstjórnin sker niður velferðarmál um 10,7 milljarða

Þriðjungur af heildarniðurskurði á útgjöldum ríkisins verður í heilbrigðis- og velferðarkerfinu, samkvæmt fjárlögum næsta árs. Rekstur ríkisins á þessu ári er mun betri en fjárlög ársins gerðu ráð fyrir. Skattar, aðrir en tekjuskattar, verða hækkaðir um ellefu milljarða.

Einsdæmi að ráðist sé á kirkju við guðsþjónustu

Það er einsdæmi í sögunni að friður sé rofinn við guðsþjónustu, eins og gerðist í dag, segir Hjálmar Jónsson dómkirkjuprestur í samtali við Vísi. Alþingi var sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni í dag. Fjölmenn og hávær mótmæli voru á Austurvelli á meðan og tvær rúður í kirkjunni voru brotnar.

Lýst eftir Björtu

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Björtu Karlsdóttur, 24 ára. Hún strauk úr afplánun fangelsisrefsingar í gær en Björt var vistuð á Landspítalanum vegna veikinda.

Töluverðar skattahækkanir í hrunfjárlögum

Gert er ráð fyrir töluverðum skattahækkunum á fjárlögum næsta árs sem Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kynnti fyrir fréttamönnum í morgun. Fjármagnstekjuskattur hækkar úr 18% í 20%, tekjuskattur á fyrirtæki hækkar einnig i 20% og erfðafjárskattur hækkar úr 5 í 10%.

Kveikja bál á Austurvelli - myndir

Nokkrir mótmælendur tóku sig saman og tendruðu lítið bál við Austurvöll fyrir skemmstu. Lögreglulið var enn vel mannað við Alþingishúsið eftir mótmælin og bar lögreglumenn fljótt að bálinu og slökktu það.

Örvar: Ég hef í engin hús að venda

Maður um þrítugt sem býr á götunni gekk berserksgang hjá Félagsmálastofnun í Reykjavík í dag þegar honum var tilkynnt að dragast myndi að greiða honum húsnæðisstyrk.

Voru við hugvekju hjá Siðmennt

Skúli Helgason, þingmaður Samfylkingarinnar, segir að hann, Katrín Jakobsdóttir, Árni Þór Sigurðsson og Mörður Árnason hafi ekki verið á meðal mótmælenda þegar að guðsþjónusta fór fram í Dómkirkjunni í dag.

Björgunarsveitir hefja leit að Andrési

Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu eru nú að hefja leit að Andrési Tómassyni sem saknað hefur verið af heimili sínu í Reykjavík síðan á föstudag í síðustu viku.

Grýtti eggjum í Landsbankann

Mótmælandi tók að grýta eggjum í Landsbankann í Austurstræti eftir að þingsetningu Alþingis lauk í dag. Konan fór inn í bankann til þess að mótmæla viðskiptaháttum hans. Lögreglumenn vísuðu konunni þá út og eftir það stóð hún fyrir utan og ákvað að henda eggjum í hús hans.

Þingmenn fara bakdyramegin inn í þinghúsið

Lögreglumenn á Austurvelli brýna það fyrir mótmælendum að halda sig innan þeirra marka sem þeim hefur verið sett. Geri þeir það ekki muni lögreglumenn beita piparúða.

Rúða brotin í Dómkirkjunni - lögreglan með kylfur

Mótmælendur hafa brotið rúðu í Dómkirkjunni í Reykjavík. Alþingismenn komu saman til guðsþjónustu þar klukkan hálftvö eins og venja er þegar Alþingi er sett. Talið er að á bilinu 500 - 1000 manns séu samankomnir á Austurvelli til að mótmæla. Lögreglan er með kylfur á lofti og öllu viðbúnir.

Bjarni vill að boðað verði til kosninga

Bjarni Benediktsson formaður Sjálfstæðisflokksins vill boða til kosninga sem fyrst. Þetta kom fram á opnum fundi sem Sjálfstæðisflokkurinn hélt í Valhöll í morgun. Áður hafði varaformaður flokksins, Ólöf Nordal, sagst vera þeirrar skoðunnar að boða ætti til kosninga. Á fundinum bætti hún um betur og sagði það verkefni Sjálfstæðisflokksins að koma „þessari ríkisstjórn frá sem fyrst.“

Alþingi sett - bein útsending

Alþingi verður sett með guðsþjónustu í Dómkirkjunni klukkan hálftvö í dag. Bein útsending verður hér á Vísi. Forseti Íslands, biskupinn yfir Íslandi, forseti Alþingis, ráðherrar og flestir alþingismenn ganga fylktu liði til kirkjunnar úr Alþingishúsinu þegar klukkan er 25 mínútur gengin í tvö.

Um þúsund manns á Austurvelli

Um þúsund hundruð manns eru nú samankomnir á Austurvelli, margir með kröfuspjald í hönd þar sem vakin er athygli á bágum kjörum fólksins í landinu.

Vesturport fær virt leiklistarverðlaun

Leikhópurinn Vesturport fær Evrópsku leiklistarverðlaunin þetta árið. Frá þessu er greint á bloggsíðu Will Gompertz, þáttastjórnanda Today, á BBC. Gísli Örn Garðarsson, forvígismaður Vesturports var í viðtali hjá Gompertz í morgun og sagðist Gísli um ótrúlegan heiður að ræða, sérstaklega í ljósi þess ástands sem ríkt hafi á Íslandi síðustu misserin. Allt jákvætt umtal um Ísland erlendis væri því af hinu góða.

Vestfirðir fá evrópsk ferðamálaverðlaun

Vestfirðir fengu EDEN ferðamálaverðlaunin við hátíðlega athöfn í Brussel í vikunni. EDEN stendur fyrir „European Destination of Excellence" en Vestfirðirnir voru meðal þeirra áfangastaða sem hlutu þann heiður að vera útvaldir, fyrstir íslenskra áfangastaða. Verðlaunin leggja áherslu á sjálfbæra ferðaþjónustu en í ár er þemað vatns- og sjávartengd ferðaþjónusta .

Skorið niður um 33 milljarða - fjárlög kynnt í dag

Gert er ráð fyrir þrjátíu og þriggja milljarða króna niðurskurði í fjárlögum næsta árs sem lögð verða fram á Alþingi í dag. Búist er við að að skattahækkanir skili 10 milljörðum í auknar tekjur. Miðað er við að útgjöld til velferðarmála verði lækkuð um sex prósent.

Bein útsending frá Austurvelli

Á Vísi verður bein útsending frá Austurvelli í dag þegar Alþingi verður sett. Þingmenn ganga frá þinghúsinu og yfir í Dómkirkjuna í Reykjavík þar sem fram fer Guðsþjónusta. Síðan ganga þeir aftur frá kirkjunni og yfir í í Alþingishúsið þar sem Alþingi verður sett.

Skólastjóri Hraðbrautar segir eftirlit hafa skort

Ólafur H. Johnson, skólastjóri Menntaskólans Hraðbraut, tekur undir með Ríkisendurskoðun um að lánveitingar skólans til starfsemi sem tengdist ekki skólanum á nokkurn hátt „geti ekki talist æskileg." Í greinargerð Ríkisendurskoðunar eru lánveitingar Hraðbrautar harðlega gagnrýndar. Ólafur hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann fordæmir lánin einnig: „Þessi lánastarfsemi var birtingarmynd hugsunarháttar og hugmynda sem voru áberandi í samfélaginu og heyrir sögunni til."

Sveinn Rúnar kominn inn á Gasa

Sveinn Rúnar Hauksson læknir komst í morgun inn á Gasa svæðið en síðustu daga hefur hann ásamt stoðtækjasérfræðingum frá Össuri reynt að komast inn á svæðið með gerfifætur fyrir nauðstadda Palestínumenn. Þær áætlanir hafa engan árangur borið en Sveinn sendi í tölvuskeyti í dag fregnir af því að honum hefði verið hleypt inn á svæðið í morgun.

Heimspekileg hugvekja fyrir þingmenn

Siðmennt, félag siðrænna húmanista, býður alþingismönnum að eiga samverustund óháð trúarsetningum áður en þeir ganga til þingstarfa í dag.

Óeðlilegar lánveitingar Hraðbrautar

Í nýrri greinargerð Ríkisendurskoðunar kemur fram að á tímabilinu 2003-2009 hafi arðgreiðslur Menntaskólans Hraðbraut til eigenda hans numið samtals 82 milljónum króna. Ríkisendurskoðun telur að skólinn hafi í raun ekki haft fjárhagslegt bolmagn til að greiða þennan arð. Þá kemur fram að lán skólans til aðila tengdra eigendum hans hafi numið samtals 50 milljónum króna í árslok 2009. Að mati Ríkisendurskoðunar eru þessar lánveitingar óeðlilegar enda tengjast þær ekki rekstri skólans. Stofnunin telur óvíst að fjárhagslegar forsendur séu fyrir áframhaldandi rekstri hans.

Sjá næstu 50 fréttir