Fleiri fréttir

Magnús Guðmundsson segist saklaus

Magnús Guðmundsson, sem sætti gæsluvarðhaldi í viku og hefur nú verið úrskurðaður í farbann, segir í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér að sakleysi hans verði sannað að lokum.

Bókari dæmdur til þess að greiða 28 milljónir til baka

Fyrrverandi bókari og gjaldkeri húsnæðissamvinnufélagsins Búseta var dæmdur í morgun í Héraðsdómi Reykjavíkur til þess að greiða til baka 28 milljónir til Búseta sem hann dró að sér. Bókarinn, sem heitir Jón Jóhannesson, starfaði í 16 ár hjá félaginu áður en upp komst um fjárdráttinn.

Misþyrmdu fjölskyldu fyrir framan sex vikna barn

Hæstiréttur staðfestir dóm yfir tveimur hrottum sem gengu í skrokk á 64 ára gömlum manni, eiginkonu hans og dóttur við heimili þeirra í Reykjanesbæ þann 3. maí síðastliðinn. Mennirnir þurfa því að sæta áframhaldandi gæsluvarðhaldi til þriðjudagsins 8. júní hið minnsta.

Umbótanefnd Samfylkingarinnar tekur til starfa

Umbótanefnd Samfylkingarinnar sem ákveðið var á flokksstjórnarfundi 17. apríl sl. að stofna til er nú fullskipuð. Hún hefur það verkefni að leiða umræður og skoðanaskipti um störf, stefnu, innri starfshætti og ábyrgð Samfylkingarinnar í aðdraganda bankahrunsins.

Ölvaður á ofsahraða

Karl um þrítugt var stöðvaður í akstri á Vesturlandsvegi á móts við Höfðabakka síðdegis í gær. Bíll hans mældist á 147 km hraða en þarna er 80 km hámarkshraði. Maðurinn reyndist jafnframt vera ölvaður.

Meintur svikahrappur áfram í gæsluvarðhaldi

Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur yfir manni sem er grunaður um að hafa svikið um 300 milljónir króna út úr 90 einstaklingum.

Öskufall í Vestmannaeyjum, „Þetta er ógeðslegt"

Öskufall úr gosinu í Eyjafjallajökli hefur nú náð til Vestmannaeyja og angrar íbúa þar. Óskar Friðriksson ljósmyndari Fréttablaðsins segir að..."þetta sé ógeðslegt". Askan sé fín, ólíkt gjallinu í gosinu í Eyjum 1973, og klínist við föt og í hár fólks.

Mikill samdráttur í verslun

Óvenjumikill samdráttur varð í veltu dagvöruverslunar í síðasta mánuði. Sala á áfengi dróst saman um þriðjung milli ára og sala á raftækjum um rúmlega 13 prósent. Skattahækkanir og ríkjandi óvissa um þróun efnhagsmála hefur breytt neyslumynstri almennings segja verslunarmenn.

Ferðamenn skoða foss með rykgrímur

Erlendir ferðamenn þurftu að bera rykgrímur þegar þeir skoðuðu Seljalandsfoss í dag, svo mikil var gosaskan. Þeir upplifðu þetta þó engu að síður sem mikið ævintýri.

Magnúsi sleppt - tveggja vikna farbann

Magnús Guðmundsson, fyrrverandi forstjóri Kaupþings í Lúxemborg er laus úr gæsluvarðhaldi og hefur verið úrskurðaður í tveggja vikna farbann þess í stað. Héraðsdómur Reykjavíkur ákvað þetta nú fyrir stundu en gæsluvarðhald yfir Magnúsi rann út í dag.

Viðbúnaður vegna elds í togara

Mikill viðbúnaður var eftir hádegið í dag þegar tilkynnt var um eld í vélarrúmi togara sem staddur var um 40 mílur fyrir utan Skagatá.

Tólf mánuðir fyrir að hafa mök við 14 ára stúlku

Tvítugur maður var í dag dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness í tólf mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafa samfarir við 14 ára gamla stúlku. Atvikið gerðist í sumarbústað árið 2008, þegar maðurinn var 18 ára gamall.

Evrópumálin grundvöllur endurreisnarinnar

„Ég dreg enga dul á að ég lít á Evrópumálin sem grundvöll í endurreisn Íslands. Það hefur aldrei verið ríkari ástæða en einmitt nú til að láta reyna á hvað falist getur í aðildarsamningi," sagði Össur Skarphéðinsson, utanríkisráðherra, þegar hann flutti skýrslu um utanríkis- og alþjóðamál á Alþingi í dag.

Dómsgerðirnar sendar til Ríkissaksóknara

Dómsgerðir í máli tveggja ofbeldismanna voru sendar Ríkissaksóknara á miðvikudagsmorgun. Tafir hafa orðið þess valdandi að mál þeirra hefur ekki verið tekið fyrir í Hæstarétti, en þeir sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna annars ofbeldisbrots.

Dýralæknar fylgjast með lambadauða

Farið er að bera á lambadauða í fjárhúsum á öskufallssvæðunum og fylgjast dýralæknar grannt með framvindu mála. Ekkert bendir til að flúoreitrun sé ástæða lambadauðans, heldur sé miklum og vaxandi þrengslum í fjárhúsum um að kenna, því ekki er hægt að hleypa ám og lömbum út úr húsunum, eins og venja er.

Ákvörðun tekin innan skamms

Tekin verður ákvörðun fyrir klukkan fjögur í dag hvort óskað verði eftir áframhaldandi gæsluvarðhaldi yfir Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg. Hann hefur ásamt öðrum fyrrverandi starfsmönnum Kaupþings verið yfirheyrður í morgun.

Eyjafjallajökull: Askan komin til Reykjavíkur

Aska úr eldgosinu í Eyjafjallajökli er farin að falla á höfuðborgarsvæðinu, meðal annars hjá Verðurstofunni í Öskjuhlíð. Þá hefur ösku víðar orðið vart, þar sem hún hefur ekki fallið áður. Íbúar á Hvolsvelli vöknuðu upp við svarta rigningu í morgun.

Tólf þotur fastar á Keflavíkurflugvelli

Icelandair hefur fellt niður allt flug síðdegis í dag vegna lokunar Keflavíkurflugvallar, en ekkert var flogið í morgun vegna þess að vellinum var lokað í nótt. Ekkert innanlandsflug er heldur um Reykjavíkurflugvöll og tólf farþegaþotur eru innilokaðar á Keflavíkurflugvelli.

Eyjafjallajökull: Mýrdælingar óska eftir sjálfboðaliðum

Síðustu daga hafa Mýrdælingar fengið að kenna á öskufalli frá Eyjafjallajökli og er ástandið víða orðið nokkuð þrúgandi, sérstaklega meðal bænda og ferðaþjónustuaðila. Nú auglýsa heimamenn eftir sjálfboðaliðum til þess að aðstoða við hreinsun.

Öllum ferðum Icelandair aflýst í dag

Icelandair hefur fellt niður allt flug félagsins síðdegis í dag vegna lokunar Keflavíkurflugvallar sem orsakast af öskufalli úr gosinu í Eyjafjallajökli.

Alþingi getur ekki stöðvað ákæru gegn nímenningunum

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að þingályktunartillaga þingmanns VG um að fallið verði frá ákæru gegn mótmælendum sem ruddust inn í Alþingi í Búsáhaldabyltingunni sé ótæk. „Við eigum ekki að vera að skipa dómstólum fyrir,“ sagði Siv Friðleifsdóttir, þingmaður Framsóknarflokksins.

Öskurigning á Hvolsvelli - myndskeið

Lögreglan á Hvolsvelli sendi fréttastofu þetta myndband sem sýnir öskurigninguna sem gengið hefur yfir bæinn frá því í nótt. Í myndskeiðinu sést þegar lögreglumaður fer með hvítt pappírsblað út undir bert loft og áður en langt um líður er örkin orðin kolsvört af ösku.

Elti Hrafnhildi til Noregs þrátt fyrir þungan fangelsisdóm

Eftir að Bjarki Már Magnússon, sem beitti sambýliskonu sína hrottalegu ofbeldi um nokkurra ára skeið, áfrýjaði þungum fangelsisdómi til Hæstaréttar elti hana konuna til Noregs og áreitti hana. Allan tímann sem Bjarki dvaldi í landinu vaktaði norska lögreglan heimili konunnar sem heitir Hrafnhildur Stefánsdóttir. Rætt er við hana í DV í dag.

Öskufall á Hvolsvelli og Selfossi - myndir

Öskufallið frá Eyjafjallajökli berst nú í vesturátt og var aska tekin að falla á Hvolsvelli á sjötta tímanum í morgun og um sjöleitið hófst öskufall á Selfossi. Samkvæmt upplýsingum Veðurstofunnar er ekki útilokað að lítilsháttar öskufall geti orðið á höfuðborgarsvæðinu síðar í dag.

Strandaglópar á Keflavíkurflugvelli

Fleiri hundruð manns eru nú strandaglópar á Keflavíkurflugvelli eftir að vellinum var óvænt lokað í nótt vegna öskufalls frá Eyjafjallajökli. Reykjavíkurflugvelli var lokað um leið.

Yfirgáfu heimili sín - mikið öskufall undir Eyjafjöllum

Mikið öskufall var undir Eyjafjöllum í gærkvöldi og fram á nótt. Skyggni fór allt niður í tvo metra þegar verst var, og yfirgáfu nokkrar fjölskyldur heimili sín og gistu annarsstaðar. Undir morgun færðist öskufallið yfir Fljótshlíðina og þar er nú meira öskufall en orðið hefur frá upphafi gossins. Gosmökkurinn nær líka hærra upp en undanfarna daga, eða í rúmlega 30 þúsund feta hæð, sem er u.þ.b. níu kílómetrar. Aska fellur á Hvolsvelli þessa stundina og allt vestur fyrir Hellu, samkvæmt vegfaranda í morgun.

Handtökutilskipun í haust

Frumvarp er væntanlegt í haust um samsvarandi reglur og í evrópsku handtökutilskipuninni. Ísland getur ekki orðið aðili að henni, þar sem það er utan Evrópusambandsins. Hins vegar hafa Ísland og Noregur gert samning við sambandið um einfaldari framsalsmál.

Gömul sannindi í nýrri rannsókn

Hormónagetnaðarvarnir virðast geta haft neikvæð áhrif á kynhvöt kvenna, samkvæmt nýrri rannsókn sem birt var í byrjun mánaðarins í læknaritinu Journal of Sexual Medicine. Netúgáfa Time vitnar til rannsóknarinnar undir yfirskriftinni „Lítil kynhvöt, konur? Pillunni kann að vera um að kenna.“

Tugmilljóna gjöld á flugið

Flugrekendur eru ósáttir við að ekki hafi verið sótt um undanþágu fyrir innanlandsflug vegna kaupa á kolefniskvóta. Frá 1. janúar 2012 þurfa flugfélög að tryggja sér losunarkvóta fyrir kolefnisútblástur.

Kynslóðir saman á veiðum

„Ég er nú hættur að vinna, þetta er bara áhugamál,“ sagði Kristján Pétursson sjómaður sem hafði lokið löndun á Arnarstapa eftir túr dagsins þegar Fréttablaðið hitti hann í vikunni. Kristján er einn fjölmargra sem stunda strandveiðar. Höfnin á Arnarstapa var þétt skipuð bátum á þriðjudag en strandveiðitímabilið hófst á mánudag.

Einu kartöflubændurnir á Vesturlandi

„Þetta er auðvitað viss áhætta, maður veit aldrei hversu mikil uppskeran verður,“ segir Þóra Kristín Magnúsdóttir, bóndi á Hraunsmúla í Staðarsveit á Snæfellsnesi, spurð hvernig standi á því að hún og maður hennar, Helgi Sigurmonsson bóndi, séu einu kartöflubændurnir á öllu Vesturlandi. „Það voru fleiri í þessu hér áður fyrr en svo hættu allir nema við.“ Þóra og Helgi höfðu nýlokið við að setja niður útsæðið þegar Fréttablaðið hitti þau.

Sjúkraflug í öskufalli bíður vottunar

Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja hefur í tvígang kallað til þyrlu Landhelgisgæslunnar til að flytja sjúklinga til lands, fremur en að kalla til Mýflug, sem í síðustu viku tók við sjúkraflutningum þaðan af Flugfélagi Vestmannaeyja.

Umhverfisvottað ekki dýrara

Umhverfisvottaðar hreinlætisvörur eru ekki dýrari í innkaupum en aðrar hreinlætisvörur. Þetta er niðurstaða úr verðkönnun sem Neytendasamtökin gerðu á hreinlætisvörum merktum umhverfisvottun Svansins í lok apríl.

Ársverkunum hefur fækkað um tíu þúsund

Fækkað hefur um nálega tíu þúsund ársverk í mannvirkjagerð frá þriðja ársfjórðungi ársins 2008 til fyrsta ársfjórðungs 2010. Viðlíka samdráttur hefur ekki orðið í neinni annarri grein frá hruni. Efnahags- og

Ráða 100 starfsmenn í sumar

Um 100 starfsmenn verða ráðnir í sumarafleysingar hjá Alcoa Fjarðaáli, að því er fram kemur í tilkynningu. Hjá fyrirtækinu starfa um 480 manns, en auk þess vinna rúmlega 300 starfsmenn verktaka á svæðinu.

Eyjafjallajökull: Gríðarlegt öskufall undir jökli

Mjög mikið öskufall er nú undir Eyjafjöllum. Varðstjóri hjá lögreglunni segir að um klukkan átta hafi nánast verið kolniðamyrkur frá Holtsá og austur fyrir Skóga. Lögreglumenn sem voru á ferð á svæðinu sögðu að skyggni hefði aðeins verið um tveir metrar þegar verst lét. Að sögn lögreglu jafnast öskufallið næstum á við það eins og það var mest á fyrstu dögum gossins og hefur það ekki verið jafn mikið í langan tíma.

Bretar hafa enn ekki orðið við beiðni Íslendinga

Breska lögreglan hefur enn ekki orðið við beiðni sérstaks saksóknara um að Sigurður Einarsson, fyrrverandi stjórnarformaður Kaupþings, verði handtekinn og framseldur til Íslands. Dómsmálaráðherra segir að framsalssamningur milli Íslands og Bretlands sé í fullu gildi.

Útborgunardagur á Hrauninu á morgun

Hreiðar Már Sigurðsson, fyrrverandi bankastjóri Kaupþings, fékk um átján og hálfa milljón í laun á viku árið 2006. Dagpeningar hans á Litla-Hrauni nema 3.150 krónum á viku en útborgunardagur er á Hrauninu morgun.

Fyrrverandi ráðherrar væntanlega kallaðir fyrir í sumarlok

Þeir fyrrverandi ráðherrar sem eru sakaðir um að hafa sýnt af sér vanrækslu í starfi í aðdraganda bankahrunsins verða væntanlega kallaðir fyrir þingmannanefnd í lok sumars. Nefndin mun þá fyrst taka afstöðu til þess hvort ráðherrarnir fyrrverandi verða ákærðir.

U2 messa í Hafnarfirði í kvöld

Messan í Ástjarnarkirkju í kvöld verður með sérstöku sniði því þar verða eingönu sungin lög eftir írsku rokksveitina U2. Þá er predikunin innblásin af textum Bono, söngvara hljómsveitarinnar.

Eyjafjallajökull: Gosmökkurinn heldur hærri í dag en undanfarið

Gosvirknin í Eyjafjallajökli virðist nokkuð stöðug núna en mökkurinn er þó nokkuð hærri í dag en í gær. Í stöðuskýrslu frá Veðurstofunni segir að ekkert bendi til þess að gosinu sé að ljúka. Óróinn er nokkuð stöðugur og hefur verið svipaður síðustu sólarhringa og um klukkan fjögur í dag mældust fjórir skjálftar undir jöklinum. Skjálftarnir voru allir grunnir.

Árekstur í Viðarrima

Harður árekstur varð í Viðarrima í Grafarvogi nú á fimmta tímanum. Dælubíll frá slökkviliðinu var kallaður á vettvang ásamt lögreglu- og sjúkrabíl þar sem óttast var að maður væri fastur í bílnum. Það reyndist þó ekki vera rétt en maðurinn var þó nokkuð slasaður og fluttur á slysadeild. Óljóst er um líðan hans á þessari stundu.

Lögmenn Jóns tóku við kyrrsetningarbeiðninni

Breskir lögmenn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar hafa fengið í hendur kyrrsetningarbeiðni frá slitastjórn Glitnis. Stefnan var afhent lögmönnum Jóns klukkan eitt að íslenskum tíma í London í dag. Steinunn Guðbjartsdóttir formaður slitastjórnar staðfestir að stefnunni hafi verið komið til lögmanna Jóns Ásgeirs og að það sé fullnægjandi.

Sjá næstu 50 fréttir