Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
1000 börn skráð í sumarbúðir KFUM og -K í dag Opnað var fyrir skráningu í sumarbúðirnar Vatnaskóg, Vindáshlíð, Ölver, Kaldársel og Hólavatn í dag. 20.3.2010 16:18
Annríki vegna sjúkraflutninga Sjúkraflutningamenn á vegum Slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu hafa farið í 40 sjúkraflutninga það sem af er degi. Engin stórslys hafa orðið á fólki, en um hefur útköll vegna smáslysa og veikinda hefur verið að ræða að sögn sjúkraflutningamanna. Þá hafa nokkur útköll verið farin vegna flutninga á milli spítala. 20.3.2010 16:06
Sigurjón nýr formaður Frjálslynda flokksins Sigurjón Þórðarson, fyrrverandi alþingismaður, var kjörinn formaður Frjálslynda flokksins í dag. Í frétt á vef Frjálslynda flokksins segir að Sigurjón hafi þakkað traustið og farið lofsamlegum orðum um fráfarandi formann, Guðjón Arnar Kristjánsson. 20.3.2010 15:55
Bjarni: Möguleikar Íslendinga betri en annarra þjóða Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir að Íslendingar eigi betri möguleika á því að vinna sig út úr kreppunni en önnur lönd. Þetta kom fram í máli Bjarni þegar að hann hélt opnunarávarp á fundi sem rúmlega eitthundrað flokksmenn norska Fremskrittspartiet héldu í Reykjavík í morgun. 20.3.2010 13:27
VG á móti því að einkaflugher fái aðstöðu á Íslandi Stjórn Vinstri grænna tekur undir ályktanir Ungra Vinstri grænna og Vinstri grænna í Reykjavík þar sem því er hafnað að einkaflugher fái aðstöðu á Íslandi. Í ályktun frá stjórninni sem samþykkt var í gær segir að það sé óásættanlegt með öllu að hér fari fram hernaðarstarfsemi undir yfirvarpi atvinnusköpunar og skorar stjórnin á ríkisstjórn VG og Samfylkingar að hafna slíku fortakslaust nú þegar. 20.3.2010 13:05
Dönsuðu tangó fram á morgun Tangóunnendur og tangódansarar skemmtu sér í Iðnó og Ráðhúsi Reykjavíkur í nótt og dönsuðu fram á morgun. Tilefnið var upphaf þriggja daga tangómaraþons sem ætlað er að styrkja og vekja athygli á átakinu Karlmenn og krabbamein. 20.3.2010 12:04
Enn óvissustig vegna Eyjafjallajökuls Almannavarnir vinna enn effir áætlunum um óvissustig á svæðinu við Eyjafjallajökul vegna mögulegs eldgoss og hefur það nú verið í gildi í tæpar þrjár vikur. Í vikunni mældust þúsundir skjálfta við jökulinn. 20.3.2010 10:05
Fimm fluttir á slysadeild eftir bílveltu við Sandskeið Fimm voru fluttir á slysadeild til skoðunar þegar að bíll valt á Suðurlandsvegi við Sandskeið um áttaleytið í morgun. 20.3.2010 09:19
Brotist inn í ljósmyndavöruverslun Brotist var inn í ljósmyndavöruverslun í Brautarholti á fjórða tímanum í nótt. Þrír voru handteknir á staðnum og segir lögreglan að þeir hafi verið undir áhrifum fíkniefna. Þeir gistu fangageymslur lögreglunnar og munu þurfa að gera grein fyrir athæfi sínu þegar líður á daginn. 20.3.2010 09:15
Hálfrænulaus eftir dáleiðslu hjá Sailesh Stúlka á átjánda ári lenti í hremmingum eftir að dávaldurinn Sailesh hafði dáleitt hana í hádegisskemmtun í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ (FG). Hún losnaði ekki úr dáleiðslunni og kalla þurfti til sjúkralið sem ekkert gat gert. 20.3.2010 06:00
Meirihluti vill kjósa um framtíð kvótakerfisins Meirihluti þeirra sem afstöðu tóku í skoðanakönnun Fréttablaðsins vill að þjóðin fái að greiða atkvæði um framtíðarskipulag íslenska fiskveiðistjórnunarkerfisins. 20.3.2010 06:00
Stjórnarfylgið minna en fyrst eftir hrunið Stuðningurinn við ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur er 38,9 prósent, samkvæmt skoðanakönnun Fréttablaðsins á fimmtudag. 20.3.2010 05:15
Dæmi Íslands má ekki endurtaka „Öll erum við sammála um að bankakreppa á við kreppuna á Íslandi megi ekki koma upp aftur,“ sagði Dominique Strauss-Kahn, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS), í ræðu sinni á ráðstefnu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins (ESB), í gær. Ráðstefnan fjallaði um hvernig koma mætti á regluverki áfallastjórnunar á sameiginlegum fjármálamarkaði sambandsins. 20.3.2010 05:00
Tóku 38 fíkniefnasmyglara Lögreglan á Suðurnesjum og tollgæslan á Keflavíkurflugvelli hafa tekið þrjátíu og átta manns með fíkniefni nú frá áramótum og fram að miðjum mars. Samtals hefur verið tekið á fimmta kíló af fíkniefnum á sama tíma. 20.3.2010 04:45
OR vill aprílopnun Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur samþykkti í gær fyrir sitt leyti tillögu Þorleifs Gunnlaugssonar borgarfulltrúa um að veiðitími hefjist framvegis 1. apríl í Elliðavatni í staðinn fyrir 1. maí. Orkuveitan á um tvo þriðju veiðiréttar á Elliðavatni. Þar eiga einnig veiðirétt Reykjavíkurborg, Kópavogur og Mosfellsbær auk einstaklinga sem eiga tæpan fimmtung. 20.3.2010 04:00
Fá enn fjarnám þótt ráðuneyti vilji skera Bæði Fjölbrautaskólinn í Ármúla og Verzlunarskóli Íslands halda áfram að kenna grunnskólanemum í fjarnámi þrátt fyrir ákvörðun menntamálaráðuneytisins um að afnema fjárveitingar til þessa liðar frá síðustu áramótum. 20.3.2010 04:00
Formanni vikið vegna framboðs Formanni umhverfisnefndar Flóahrepps var fyrirvaralaust vikið frá störfum á fundi sveitarstjórnar hreppsins á miðvikudag. Hann segir ákvörðun sveitarstjórnarinnar sýna þá heift og óbilgirni sem virkjanamál í hreppnum hafi kallað fram. 20.3.2010 03:00
Orkuverð hækkar á næsta ári Afar líklegt er að neytendur þurfi að greiða meira fyrir þjónustu Orkuveitu Reykjavíkur á næsta ári en þeir gera nú, að sögn Hjörleifs B. Kvaran, forstjóra Orkuveitunnar. 20.3.2010 03:00
Rætt um að verðtryggja framlögin Fulltrúar stjórnmálaflokkanna hafa rætt um að verðtryggja þær 300.000 krónur sem flokkarnir mega nú fá í hámarksframlög. Upphæðin hækki því í tímans rás í takt við almennt verðlag. 20.3.2010 02:00
Beittu slökkvitæki og níu kílóa sleggju Tveir bræður um fertugt hafa verið ákærðir fyrir hrottalega líkamsárás í Breiðholtinu í nóvember 2008. Er þeim gefið að sök að hafa beitt við árásina níu kílóa sleggju og slökkvitæki. 20.3.2010 01:00
Brotist inn í sjö bíla í nótt Í nótt sem leið var brotist inn í 7 bifreiðar við Leynisbrún, Suðurvör og Staðarhraun í Grindavík. 19.3.2010 19:53
Kristín skipuð forstjóri Útlendingastofnunar Kristín Völundardóttir, sýslumaður á Ísafirði og lögreglustjóri Vestfjarða, hefur verið skipuð í embætti forstjóra Útlendingastofnunar, frá og með 1. apríl næstkomandi. 19.3.2010 16:33
Óku of hratt um Vífilsstaðaveg Brot 38 ökumanna voru mynduð á Vífilsstaðavegi í Garðabæ í gær. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Vífilsstaðaveg í norðurátt, við Löngulínu. Á einni klukkustund, eftir hádegi, fóru 147 ökutæki þessa akstursleið og því ók um fjórðungur ökumanna, eða 26%, of hratt eða yfir afskiptahraða. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. Meðalhraði hinna brotlegu var 69 km/klst en þarna er 50 km hámarkshraði. Tíu óku á 70 km hraða eða meira en sá sem hraðast ók mældist á 78. 19.3.2010 16:01
Skipulögð leit að krabbameini tryggð til næstu ára Þjónustusamningur milli Krabbameinsfélags Íslands og Sjúkratrygginga Íslands um skipulagða leit að krabbameini í leghálsi og brjóstum kvenna var undirritaður í GÆR í aðalstöðvum Krabbameinsfélagsins í Skógarhlíð. Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra var viðstödd undirritunina og staðfesti samninginn. 19.3.2010 15:57
Laugavegur opinn öllum nema bifreiðum um helgina Hluta af Laugavegi og Skólavörðustíg ásamt Bankastræti verður breytt í göngugötur um helgina í tilefni af HönnunarMars 2010. Þetta er þáttur í Grænum skrefum í Reykjavík. Í sumar er ætlunin að nota öll þau tækifæri sem gefast til að gera miðborgina eftirsóknarverða fyrir gangandi, að fram kemur í tilkynningu frá umhverfis og samgöngusviði borgarinnar. 19.3.2010 15:39
Vinsamlegur fundur með samgönguráðherra „Þetta var vinsamlegur fundur. Við ræddum við ráðherrann og upplýstum hann um stöðu mála. Nú ræða fulltrúar Icelandair við hann,“ segir Kristján Kristinsson, formaður samninganefndar flugvirkja, sem fundaði með Kristjáni Möller, samgönguráðherra fyrr í dag um stöðu mála í kjaradeilu flugvirkja sem starfa hjá Icelandair. Verkfall þeirra hefst næstkomandi mánudag hafi samningar ekki tekist. 19.3.2010 15:18
Lýst eftir 15 ára gamalli stúlku Lögreglan á Suðurnesjum lýsir eftir Natalíu Rós Jósepsdóttur. Natalía strauk frá meðferðarheimilinu Stuðlum í gær ásamt tveimur öðrum stúlkum. 19.3.2010 14:47
BSRB: Hótanir stjórnvalda mjög alvarlegar Stjórn BSRB lítur það mjög alvarlegum augum að stjórnvöld skuli hafa haft uppi hótanir um að grípa inn í kjaradeilu flugumferðarstjóra með lagasetningu á löglega boðaðar verkfallsaðgerðir og brjóta þar með á grundvallarréttindum launafólks. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á stjórnarfundi BSRB í dag. 19.3.2010 14:37
Rafmagn komið á í Kópavogi Viðgerð er lokið og rafmagn komið á eftir að bilun varð í háspennukerfi Orkuveitu Reykjavíkur í hádeginu sem olli rafmagnsleysi í hluta Kóra og Þinga í Kópavogi. Svokölluð Lögbergslína var úti og því var rafmagnslaust í Lækjarbotnum og þar um kring. 19.3.2010 14:10
Flugvirkjar funda með samgönguráðherra Samninganefnd Flugvirkjafélags Íslands settist klukkan tvö á fund í samgönguráðuneytinu með Kristjáni Möller, samgönguráðherra, til að fara yfir stöðuna í kjaradeilu félagsmanna sinna er starfa hjá Icelandair. Verkfall þeirra hefst næstkomandi mánudag hafi samningar ekki tekist. 19.3.2010 14:01
Kennir hollenskum hommum um fjöldamorðin í Bosníu Fyrrverandi hershöfðingi í Bandaríkjaher segir að Hollendingum hafi mistekist að koma í veg fyrir fjöldamorðin í Srebrenica á sínum tíma vegna þess að her landsins hafi veikst við það að hommum var hleypt í herinn. John Sheehan, sem meðal annars starfaði hjá NATO í Evrópu, lét þessi orð falla á fundi hjá hernum þar sem rætt var um hvort yfirlýstum hommum verði leyft að ganga í herinn. Ummælin hafa vakið mikla athygli og Hollendingar segja hershöfðingjann rugla. 19.3.2010 13:29
Spara 100 milljónir í lyfjakostnað á tveimur mánuðum Eitt hundrað milljónir króna hafa sparast í lyfjamálum á Landspítala á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2010 miðað við sömu mánuði árið áður. Þetta kemur fram í pistli Björns Zoëga, forstjóra á heimasíðu, spítalans. 19.3.2010 13:23
Steinunn Valdís: Minntist aldrei á Geira í Goldfinger „Líklega þarf nú að nefna fólk á nafn til að það geti kært aðra fyrir meiðyrði,“ segir Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður allsherjarnefndar Alþingis, en Ásgeir Davíðsson, eigandi nektardansstaðarins Goldfinger, íhugar að kæra hana eftir að hún lét þau orð falla að nektardansstaðir hýstu oft mansal og skipulagða glæpastarfsemi. 19.3.2010 13:03
Rafmagnslaust í hluta Kópavogs Fyrir stundu varð bilun í háspennukerfi Orkuveitunnar sem veldur rafmagnsleysi í hluta Kóra og Þinga í Kópavogi. Svokölluð Lögbergslína er úti og því rafmagnslaust í Lækjarbotnum og þar um kring. Viðgerð er hafin og verður lokið svo fljótt sem unnt er, að fram kemur í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. 19.3.2010 12:44
Frosin hindber innkölluð vegna gruns um nóróvírus Aðföng hafa ákveðið að innkalla Euro Shopper hindber í 500 gramma pokum. Ákvörðun um þetta var tekin eftir að nóróvírus greindist í vörunni í Svíþjóð. Varan var í dreifingu í verslunum Bónus, Hagkaupa og 10-11 og hefur verið tekin úr sölu. 19.3.2010 12:08
Líklegt að Jóna fái að afplána heima Góðar líkur eru á því að Jóna Denný Sveinsdóttir, sem hefur verið í haldi lögreglunnar í Perú eftir að hún var tekinn með tvö kíló af kókaíni, geti afplánað refsidóm hér á Íslandi. 19.3.2010 12:03
Tjáir sig ekki um lögbann á verkfall flugvirkja Kristján L. Möller, samgönguráðherra, gefur ekkert uppi um hvort til greina komið að setja lög á verkfall flugvirkja sem hefjast á næst komandi mánudag hafi samningar ekki tekist. En flugvirkjar felldu nýgerðan kjarasamning sinn um mánaðamótin. 19.3.2010 11:56
Ekkert samkomulag um makrílveiðar Ekki náðist samkomulag um skiptingu heildarafla úr markílstofninum, á fundi strandríkja, sem lauk í Noregi í gær. Önnur ríki, sem eiga hagsmuna að gæta, reyna að afneita þeirri staðreynd að makríllinn er farinn að veiðast í stórum stíl við Íslandsstrendur. 19.3.2010 11:53
Stjórnvöld gefa út handbók um kynjaða fjárlagagerð Fjármálaráðuneytið hefur gefið út handbók undir yfirskriftinni „Kynjuð fjárlagagerð: handbók um framkvæmd“ sem ætlað er að varpa ljósi á aðferðafræði kynjaðrar fjárlagagerðar og vera þeim sem að fjárlagagerðinni koma til halds og traust. Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar er lögð rík áhersla á kynjajafnrétti og er kynjuð fjárlagagerð ein leið að því marki, að fram kemur í tilkynningu frá fjármálaráðuneytinu. 19.3.2010 11:42
Óttast að dóphagnaður fari í fyrirtækjakaup Greiningardeild Ríkislögreglustjóra telur að hagnaði af fíkniefnaviðskiptum verði í auknum mæli varið til fjárfestinga þar sem verð áfasteignum, fyrirtækjum og ýmsum lausamunum hafi fallið mikið eftir bankahrunið. 19.3.2010 11:10
Íbúar ánægðir með nýtt fimleikahús í Norðlingaholti Hverfisráð Árbæjar fagnar samþykkt borgarráðs Reykjavíkur frá í gær að gengið verði til samninga um afnot af svokölluðu Mest-húsi í Norðlingaholti til að koma upp aðstöðu fyrir fimleika, aðrar íþróttir og frístundastarf fyrir börn og unglinga í austurhluta borgarinnar. 19.3.2010 10:33
Bjarni vill ríkisstjórnina burt Formaður Sjálfstæðisflokksins vill að ríkisstjórnin fari frá völdum. Hann segir að hún ráði ekki verkefnið sem hún eigi að sinna og þvælist bara fyrir. Nýleg skoðanakönnun sýni það. 19.3.2010 10:21
Enginn handtekinn vegna spellvirkja Engin hefur enn verið handtekinn eða yfirheyrður vegna spellvirkjanna, sem unnin voru á fjarskiptamöstrunum í grennd við Veðurstofuna í fyrrinótt. Lögreglan leggur mikla áherslu á að upplýsa málið og er meðal annars að skoða upptökur úr eftirlitsmyndavélum á bensínstöðvum, en bensín var í flöskunum tveimur, sem fundust ósprungnar á vettvangi. 19.3.2010 08:49
Lokuðust inn í bankahvelfingu B5 Fimm menn lokuðust inni í bankahvelfingu í húsakynnum veitingastaðarins B-5 við Bankastræti í Reykjavík, þar sem Verslunarbankinn sálugi var til húsa á sínum tíma. Það var um þrjú leitið í nótt sem hurðin féll að stöfum og hrökk í lás. Fjórum tímum síðar sluppu þeir úr prísundinni. 19.3.2010 07:06
Fundað í flugvirkjadeilu í dag Flugvirkjar hjá Icelandair hafa verið boðaðir til samningafundar við vinnuveitendur hjá ríkissáttasemjara klukkan hálf ellefu, en ekkert mun hafa þokast í samkomulagsátt á sex klukkustunda löngum fundi deilenda í gær. 19.3.2010 07:04