Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lýsing stöðvar yfirtöku erlendra lána Nýir lánasamningar eða yfirtökur á bílalánasamningum í erlendri mynt voru stöðvaðir hjá fjármögnunarfyrirtækinu Lýsingu eftir dóm Héraðsdóms Reykjavíkur um myntkörfulán fyrir viku. Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Lýsingar, segir ákvörðunina meðal annars hafa verið tekna af ótta við að braskarar sættu lagi eftir dóminn. 20.2.2010 05:00
Komið verði á móts við hópinn Álfheiður Ingadóttir heilbrigðisráðherra hefur falið lögfræðingum ráðuneytisins að leita leiða til þess að börn með skarð í vör og góm njóti sömu réttinda og börn sem fæðast með annars konar fæðingargalla. Það er að segja að allur kostnaður við aðgerðir sem börnin þurfa að fara í, þar með talinn kostnaður við tannréttingar og tannlækningar, verði þeim að kostnaðarlausu. 20.2.2010 05:00
Erfitt að átta sig á stöðunni Eigið fé BM Vallár, sem óskaði eftir greiðslustöðvun í byrjun mánaðar, var neikvætt um þrjá milljarða króna um síðustu áramót. Óskar Sigurðsson, aðstoðarmaður félagsins í greiðslustöðvun, segir ekki útilokað að staðan sé verri. 20.2.2010 04:00
Vilja hjálp frá Byggðastofnun „Bæjarstjórn Ísafjarðarbæjar hvetur stjórnvöld til að tryggja skelrækt það starfsumhverfi sem hún þarf til að geta dafnað." Á fréttavef Bæjarins besta á Ísafirði, bb.is, er frá því greint að tillaga þessa efnis hafi verið lögð fram af Í-listanum á bæjarstjórnarfundi á fimmtudag og verið samþykkt samhljóða. 20.2.2010 03:45
Samkeppni um SMS-lánin Að minnsta kosti tvö fyrirtæki bjóða nú upp á svokölluð SMS-lán hér á landi, og fleiri hyggjast hasla sér völl á þessum markaði. Fyrirtækið Hraðpeningar tók til starfa í vikunni, en fyrir var smálánafyrirtækið Kredia. 20.2.2010 03:00
Brotinn eftir átök á pitsustað Átök brutust út meðal tveggja starfsmanna pitsustaðar í Breiðholti í hádeginu í fyrradag sem leiddu til þess að annar þeirra handleggsbrotnaði. 20.2.2010 02:00
Sóttu tvö lömb Bændur í nágrenni Blönduóss björguðu í vikunni tveimur lömbum úr sjálfheldu úr svonefndu Draugagili. Þeir sigu eftir lömbunum en þau höfðu orðið viðskila við fjárhóp í fyrrasumar. 20.2.2010 01:45
Brátt tilbúin á Japansmarkað Hrognavinnsla úr loðnu hófst á fimmtudag hjá Ísfélagi Vestmannaeyja þegar Álsey, skip Ísfélagsins, landaði um 1.000 tonnum af loðnu, og var vinnslan í fullum gangi í gær þegar ljósmyndari Fréttablaðsins leit við. 20.2.2010 01:00
Geislavarnir og Brunamálastofnun mæla rafmengun Geislavarnir ríkisins og Brunamálastofnun hafa byrjað mælingar á rafsegulsviði af völdum rafmagnstenginga og stendur til að mæla um nokkur hundruð íbúðarhús um land allt. Athugunin er tilkomin vegna fjölda ábendinga fólks um mögulega skaðsemi rafsegulsviðs frá slíkum tengingum. 19.2.2010 19:14
Vill lengri tíma til þess að ná eignum upp í skuldir Formaður efnahags- og skattanefndar, Helgi Hjörvar, ætlar að leggja fram frumvarp um lengingu fyrningar á fjármálagjörningum í líkingu við þá sem margir eignamenn gripu til í kringum hrunið. Það þýðir að stjórnvöld hafa lengri tíma til ógilda þá. 19.2.2010 19:10
Eldri borgari með kókaín var burðadýr Tæplega sjötugur karlmaður situr í gæsluvarðhaldi eftir að hafa verið tekin með tæpt kíló af kókaíni. Maðurinn var handtekinn í Leifsstöð í síðustu viku við komuna frá Kaupmannahöfn. 19.2.2010 19:07
Íslendingum boðið vaxtalækkun á Icesave Bretar og Hollendingar munu bjóða Íslendingum verulega vaxtalækkun á Icesave skuldbindingunum samkvæmt heimildum fréttastofu, en gagntilboð berst íslenskum stjórnvöldum væntanlega á morgun. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir vaxtahugmyndir þeirra hafa verið fáránlegar hingað til. 19.2.2010 18:50
Tekur ekki þátt í skítkasti „Við tökum ekki þátt í svona skítkasti,“ segir Gunnar I. Birgisson, fyrrum bæjarstjóri Kópavogs um bréf sem var stílað á iðkendur íþróttafélagsins í HK í Kópavogi og Vísir greindi frá í gær. 19.2.2010 17:49
Stjórnvöld eyði óvissu vegna úreltra prentlaga Stjórn Blaðamannafélags Íslands skorar á stjórnvöld að eyða réttaróvissu vegna úreltra prentlaga. Stjórnin vekur athygli á að Hæstiréttur Íslands þyngdi í gær dóm yfir Erlu Hlynsdóttur, blaðamanni DV, vegna ummæla sem höfð eru eftir viðmælanda í frétt blaðsins. 19.2.2010 16:12
Óska eftir því að ráðuneytið skoði hæfi Halldórs Bæjarráð Kópavogs samþykkti á fundi sínum í gær að óska álits samgöngur- og sveitastjórnaráðuneytisins á hæfi Halldórs Jónssonar sem skoðunarmanns reikninga Kópavogsbæjar. 19.2.2010 14:52
Flúoró-amfetamínsmyglari úr gæsluvarðhaldi Hæstiréttur hefur fellt úr gildi gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Reykjaness yfir þrítugum íslenskum karlmanni sem flutti með sér flúoró-amfetamín til landsins fyrir tveimur mánuðum. 19.2.2010 16:41
BSRB styrkir íbúa Haítí Stjórn BSRB hefur ákveðið að leggja fram 300 þúsund krónur í söfnun ITUC, Alþjóðasamtaka verkalýðsfélaga, til fórnarlamba jarðskjálftans á Haítí í síðasta mánuði Fjármunum söfnunarinnar verður varið í neyðarhjálp til að byrja með. 19.2.2010 15:42
Framboðslisti sjálfstæðismanna í Mosó samþykktur Framboðslisti Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ var samþykktur á fundi fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna í gærkvöldi. Haraldur Sverrisson, bæjarstjóri leiðir listann. Í næstu sætum eru, Herdís Sigurjónsdóttir, Bryndís Haraldsdóttir, Hafsteinn Pálsson og Kolbrún G. Þorsteinsdóttir. 19.2.2010 15:29
Listi VG á Akureyri skipaður Tillaga uppstillingarnefndar um skipan framboðslista Vinstrihreyfingarinnar-græns framboðs fyrir bæjarstjórnarkosningar á Akureyri var samþykktur einróma á félagsfundi flokksins í gærkvöldi. 19.2.2010 15:16
Barinn á bílastæði Karlmaður á þrítugsaldri varð fyrir líkamsárás á bílastæði í Breiðholti um hádegisbil í gær. Maðurinn var fluttur á slysadeild en hann var bæði handleggsbrotinn og með áverka í andliti. 19.2.2010 14:29
Beðið eftir að loðnan nálgist hrygningu Að minnsta kosti fjórir loðnubátar eru byrjaðir að fylgjast með loðnutorfum út af Vestmannaeyjum. 19.2.2010 14:01
Veskjaþjófur handtekinn í Skeifunni Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn fyrir þjófnað í Skeifunni í hádeginu í gær. Sá stal peningaveski úr verslun og reyndi síðan að komast undan á hlaupum. Maðurinn komst hinsvegar ekki langt og var gripinn skammt frá. Veskinu var komið aftur í réttar hendur en þjófurinn, sem var í annarlegu ástandi, var fluttur í fangageymslu. 19.2.2010 13:58
Nítján óku of hratt í Gullengi Brot 19 ökumanna voru mynduð í Gullengi í Reykjavík á miðvikudag. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Gullengi í vesturátt, við Laufengi. Eftirlit lögreglunnar var tilkomið vegna ábendinga frá íbúum í hverfinu en þeir hafa kvartað undan hraðakstri á þessum stað. 19.2.2010 13:49
Mótmæla lágum fjárveitingum til hjúkrunarfræðideildar Stjórn Félags íslenskra hjúkrunarfræðinga tekur undir áskorun deildarfundar hjúkrunarfræðideildar Háskóla Íslands til menntamálaráðherra. Í áskoruninni var lágum fjárveitingum til deildarinnar harðlega mótmælt. 19.2.2010 13:17
Meintir fíkniefnasalar ákærðir Tveir karlmenn á þrítugsaldri hafa verið ákærðir fyrir vörslu á hassi, amfetamíni og maríhúana sem ætlað var til sölu. 19.2.2010 13:00
Formaður VG á Akureyri segir sig úr flokknum Guðbergur Egill Eyjólfsson hefur ákveðið að segja af sér formennsku í svæðisfélagi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri og nágrenni og um leið að segja sig úr flokknum. Ástæðan er afstaða VG til ýmissa mála, þar á meðal stuðningur þingmanna við aðildarumsókn að ESB, og þeir starfshættir sem tíðkast innan flokksins. Þá gagnrýnir Guðbergur hvernig stillt var upp í fjórða sæti á lista VG fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar á Akureyri. 19.2.2010 12:52
Eldri borgari stöðvaður með kíló af kókaíni Tollgæslan á Keflavíkurflugvelli stöðvaði tæplega sjötugan Íslending við komu frá Kaupmannahöfn í síðustu viku. Við leit í ferðatöskum hans fannst tæpt kíló af kókaíni, að fram kemur á vef lögreglunnar. Lögreglan á Suðurnesjum rannsakar málið. 19.2.2010 12:32
Bretar og Hollendingar tóku fálega í tillögur Íslendinga Bretar og Hollendingar tóku fálega í tillögur Íslendinga í Icesave viðræðunum í vikunni. Búist er við svörum frá þeim við tillögum Íslendinga á næstu dögum. Stjórnarandstaðan er sátt við gang viðræðnanna. 19.2.2010 12:27
Óttaðist um líf ríkisstjórnarinnar Össur Skarphéðinsson utanríkisráðherra segir að hann hafi verið að óska eftir því á fundi með sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi í janúar, að Bandaríkjamenn slægju á puttana á fulltrúum Breta og Hollendinga í stjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Á þeim tíma hafi hann óttast um líf ríkisstjórnarinnar. 19.2.2010 12:22
Bjarni vill taka samskiptin við Bandaríkjamenn til umræðu á Alþingi Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, hefur óskað eftir því að fram fari utandagskrárumræða á Alþingi um samskipti í 19.2.2010 12:15
Braut nálgunarbann gagnvart dóttur sinni Héraðsdómur Suðurlands dæmdi í dag karlmann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir húsbrot að brjóta nálgunarbann gagnvart dóttur sinni. Maðurinn var ákærður fyrir að ryðjast að kvöldi sunnudagsins 28. júní 2009 í heimildarleysi inn í íbúðarhúsnæði barnsmóður hans og slá til hennar þegar hún reyndi að varna því þegar hann reyndi að hafa dóttur þeirra á brott með sér. 19.2.2010 11:34
Lítill þrýstingur á vatni í Laugarneshverfi Vegna viðgerðar á aðflutningsæð verður lítill þrýstingur á heitu vatni í Laugarneshverfi í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Orkuveitu Reykjavíkur. 19.2.2010 11:25
Ögmundur hvetur til sátta „Nú reynir á að við fylkjum liði. Höldum áfram að vinna einsog gert hefur verið,“ segir þingmaðurinn Ögmundur Jónasson um leið og hann hvetur til sátta vegna deilna innan VG sem spruttu upp eftir forval flokksins í Reykjavík í byrjun mánaðarins. 19.2.2010 11:22
Bjarni: Mjög ánægður með samninganefndina „Ég er afar sáttur við störf samninganefndarinnar. Ég tel að við höfum komist að skynsamlegri niðurstöðu hér heima fyrir um þau skilaboð sem átti að færa Bretum og Hollendingum. Nefndin hefur staðið sig sérstaklega vil í því að útskýra okkar málstað,“ segir Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins. 19.2.2010 10:46
Ölvaður maður olli ótta hjá börnum Karlmaður á sextugsaldri var dæmdur í Héraðsdómi Suðurlands í gær fyrir að hafa valdið óspektum og hneyksli á almannafæri með því að angra gesti á tjaldstæði við Gaddstaðaflatir þann 15. ágúst í fyrra. 19.2.2010 10:24
Gönguferðir um Aðalbyggingu Háskóla Íslands í tilefni stórafmælis Boðið verður upp á gönguferðir um upp á gönguferðir um Aðalbyggingu Háskóla Íslands með leiðsögn á morgun í tengslum við námskynningu í skólanum. Tilefnið er að í sumar verða 70 ár liðin frá vígslu byggingarinnar. 19.2.2010 09:55
Skemmdi fyrir hundruð þúsunda til að ná í tvær rauðvínsflöskur Brotist var inn í verslun ÁTVR í Skeifunni i Reykjavík í nótt og þaðan stolið tveimur rauðvínsflöskum. 19.2.2010 09:52
Hraðakstursbrotum fjölgar um 92% Alls óku 3072 of hratt í janúar síðastliðnum, samkvæmt afbrotatölfræði Ríkislögreglustjóra. Þetta er fjölgun um 92% brot ef miðað er við síðustu tvö ár, en þá óku um 1600 of hratt í þessum sama mánuði. Að meðaltali voru 99 hraðakstursbrot á dag í janúar síðastliðnum. 19.2.2010 09:30
Þátttaka aldrei meiri en nú Sjö manna dómnefnd tónlistarsérfræðinga hefur komist að niðurstöðu um tilnefningar til Íslensku tónslistarverðlaunanna 2010. Sérstaka athygli vekur að aldrei hafa fleiri lagt fram hljóðrit til Íslensku tónlistarverðlaunanna en nú í ár, eða í kringum 160 talsins. Það er um hundrað prósent aukning frá því í fyrra. Úrslitin verða kunngjörð í Íslensku óperunni laugardagskvöldið 13. mars. Verða þau í fyrsta sinn sýnd í beinni útsendingu og opinni dagskrá á Stöð 2.- rve/Sjá sérblaðið Hljómgrunnur 19.2.2010 06:00
Óttuðust þjóðargjaldþrot 2011 Þeir Einar Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins, og Kristján Guy Burgess, aðstoðarmaður utanríkisráðherra, funduðu með Sam Watson, sem stýrir sendiráði Bandaríkjanna hér á landi þar sem sendiherra hefur ekki verið skipaður. 19.2.2010 06:00
Mikilvægt að nemendur hafi val Mikilvægt er að nemendur hafi áfram val um skólagerð, milli bekkjarkerfis og fjölbrautakerfis segir Kristrún G. Guðmundsdóttir, skólastjóri Hlíðaskóla. Framhaldsskólarnir séu með misjafnar áherslur og ekki víst að hverfisskólarnir henti endilega öllum nemendum. 19.2.2010 05:00
Milljarða útgreiðsla hangir yfir borginni „Á meðan við erum að forgangsraða í þágu grunnþjónustu og annars sem mestu máli skiptir getum við auðvitað ekki varið það að endurgreiða lóðir nema það sé alveg skýrt að það sé okkar skylda,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri. 19.2.2010 05:00
Minni sala sýklalyfja á Íslandi Sala á sýklalyfjum hérlendis dróst saman um 5,6 prósent í fyrra. Þetta kemur fram í grein Haraldar Briem sóttvarnalæknis í nýju hefti Farsóttafrétta. 19.2.2010 04:30
Stærsta eignin seld úr búi Fons JP Lögmönnum hefur verið falið að annast formlegt ferli á öryggisvörslufyrirtækinu Securitas. Fyrirtækið er helsta eign þrotabús Fons, félags áður í meirihlutaeigu Pálma Haraldssonar. Stefnt er að því að nýir eigendur taki við Securitas í kringum 20. mars næstkomandi. 19.2.2010 04:30
Standa í stað milli mánaða Heildarútlán Íbúðalánasjóðs í janúar námu 2,1 milljarði króna. Þar af voru um 700 milljónir króna vegna almennra lána og um 1,4 milljarðar vegna annarra lána. 19.2.2010 04:00