Fleiri fréttir Segir afstöðu Vinstri grænna það sorglegasta á ferlinum Virkjana á Hengilssvæðinu gætu beðið sömu örlög og virkjana í neðri Þjórsá, en í forystusveit Vinstri grænna er fullyrt að skipulagsferli þeirra sé ólöglegt. Bæjarstjóri Ölfuss segir afstöðu Vinstri grænna það sorglegasta sem hann hafi orðið vitni að á ferlinum. 26.2.2010 18:52 Skýrsla Rannsóknarnefndar frestast um 2 - 3 vikur Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis mun ekki birtast fyrr en eftir tvær til þrjár vikur, samkvæmt tilkynningu sem Rannsóknarnefndin sendi frá sér í dag. 26.2.2010 17:08 Gera heimildarmynd um Ísland Tveir breskir kvikmyndagerðarmenn seldu aleigu sínu, pökkuðu niður öllu sem þeir áttu og fluttu til Íslands til þess að gera heimildarmynd um land og þjóð. 26.2.2010 19:17 Hæstiréttur staðfestir úrskurð vegna Baldurs Guðlaugssonar Hæstiréttur Íslands hafnaði í dag kröfu Baldurs Guðlaugssonar um að ákvörun sýslumanns um að kyrrsetja innistæður hans á bankareikningum yrði felld úr gildi. Hæstiréttur segir að skilyrðum fyrir lögmæti 26.2.2010 16:34 Hátt í 500 útskrifast frá HÍ Það verða 478 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Íslands á morgun. Nemendurnir munu útskrifast af öllum fræðasviðum með 482 próf. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, mun ávarpa kandídata við brautskráninguna en auk þess mun Háskólakórinn flytja lög undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. 26.2.2010 16:30 Hæstiréttur staðfestir úrskurð um brottvísun Ramosar Hæstiréttur Íslands hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Hosmany Ramos, brasilíski fanginn sem verið hefur í varðhaldi hér á landi frá því í sumar, verði framseldur til heimalands síns þar sem hans bíður fangelsisvist. Áður hafði Hæstiréttur vísað málinu aftur til héraðsdóms til meðferðar. 26.2.2010 16:27 Kristín sjálfkjörin rektor HÍ Kristín Ingólfsdóttir er sjálfkjörin í embætti rektors HÍ næstu fimm árin, þar sem enginn sótti um embættið á móti henni. Þetta kemur fram á vefnum Student.is. Umsóknarfrestur um embættið rann út á mánudag. Kristín var skipuð í embættið að undangengnum kosningum fyrir fimm árum síðan. Kristín er fyrsta konan sem gegnir embætti rektors HÍ. 26.2.2010 15:55 Sjónvarpsmaður ársins kynntur til leiks í Reykjavík síðdegis Bylgjan mun tilkynna um það hver varð fyrir valinu á uppáhalds sjónvarpsmanni landsmanna í þættinum Reykjavík síðdegis á eftir. Þátturinn hefst á slaginu fjögur en Reykjavík síðdegis er líka með sína eigin Facebook síðu þar sem hægt er að fylgjast með því sem er efst á döfinni hjá þeim Kristófer, Þorgeiri og Braga. 26.2.2010 15:27 Ölvað fimmtugt par ruddist inn í íbúð í Árbæ Karl og kona á fimmtugsaldri ruddust inn í íbúð í Árbænum eftir hádegi í gær og höfðu þaðan á brott með sér ýmsa muni. 26.2.2010 14:34 Fast skotið á RÚV í nýrri myndaröð Fremstu kvikmyndagerðamenn þjóðarinnar skjóta föstum skotum á Ríkisútvarpið í nýrri myndaröð sem þeir hafa ákveðið að birta á myndasíðunni YouTube. Leikstjóri myndskeiðanna er Grímur Hákonarson og hann skrifaði jafnframt handritið ásamt Hrafnkatli Stefánssyni. Það er Jóhannes Haukur Jóhannesson, Friðrik Þór Friðriksson, Sveppi, Ilmur Kristjánsdóttir og Silja Hauksdóttir eru á meðal þeirra sem fara með aðalhlutverk 26.2.2010 14:10 Hæstiréttur vísar frá kæru á hendur fréttamönnum Hæstiréttur hefur vísað frá máli Ríkissaksóknara gegn fréttamönnunum Andra Ólafssyni og Breka Logasyni. 26.2.2010 12:33 Vonast enn eftir samkomulagi Ríkisstjórnin vonast enn til þess að hægt verði að landa nýju Icesave samkomulagi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu sem fara á fram eftir átta daga. Samninganefnd Íslands fundaði með Bretum og Hollendingum í gær án árangurs. Nefndin kemur til landsins í dag. 26.2.2010 11:51 Hringbrautarbrýr fengu Steinsteypuverðlaunin 2010 Göngubrýrnar yfir Hringbraut í Reykjavík fengu Steinsteypuverðlaunin 2010 fyrir að vera bæði frumlegt og vandað mannvirki. Þetta var tilkynnt á ársfundi Steinsteypufélagsins í liðinni viku. Brýnar eru því mannvirki ársins gert úr steinsteypu. Verðlaunin voru veitt verkkaupa, hönnuði og framkvæmdaaðila sem var Reykjavíkurborg. 26.2.2010 11:12 Búið að opna veginn um Hafnarfjall Búið er opna veginn undir Hafnarfjalli en þar er hálka og skafrenningur. Að sögn Vegagerðarinnar er einnig búið að opna Siglufjarðarveg og veginn um Reynisfjall. 26.2.2010 09:30 Einar K. óskar eftir fundi í sjávarútvegsnefnd Ísland mun þurfa að fella sig við æðsta vald Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum. Íslensk llög, sem takmarka fjárfestingar í sjávarútvegiog aðgang erlendra skipa að íslenskri lögsögu og þjónustu í höfnum, stangast á við lögsögu Evrópusambandsins, segir meðal annars í greiningarskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þar er gerð grein fyrir þeim kröfum, sem Íslendingar verða að uppfylla , sem umsóknarríki að aðild að sambandinu. 26.2.2010 08:04 Blindbylur undir Hafnarfjalli Lögregla og Björgunarsveitamenn hafa þurft að aðstoða marga ökumenn í vandræðum undir Hafnarfjalli og norðan Borgarness en þar hefur verið stórhríð. Vegfarandi sem hafði samband segir að þar sé nú blindbylur og að ekki sjáist á milli stika. Hann segir alls ekkert ferðaveður vera á þessum slóðum og að um fimmtíu bílar séu fastir á veginum. Vegurinn undir fjallinu er nú lokaður. 26.2.2010 07:58 Margir veðurtepptir í Borgarnesi í nótt Fjöldi manns, þeirra á meðal hátt í hundrað unglingar úr Víðistaðaskóla í Hafnarfirði á leið í skíðaferðalag, þurftu að gista í Borgarnesi í nótt vegna illviðris, sem geysaði á Vesturlandi í gærkvöldi. 26.2.2010 07:01 Stofnanir brjóta lög um opinber innkaup Ekki er að finna agaviðurlög í lögum um opinber innkaup. Ríkisendurskoðun leggur til leiðir til úrbóta eftir könnun sem leitt hefur í ljós misbrest í vinnulagi. Könnunin nær til hluta stofnana ríkisins. Til greina kemur að kanna hinar síðar. 26.2.2010 06:00 Flutt af Kleppi eftir áratugi Deild 14 á Kleppi verður lokað á vordögum. Deildin er sérhæfð meðferðar- og endurhæfingargeðdeild fyrir fólk með langvinna geðsjúkdóma og alvarlega atferlistruflun. Tólf dvelja á deildinni og hafa sumir verið þar um áratuga bil. 26.2.2010 05:30 Fær fingurkossa fyrir ljós á göngugrindinni „Ég veit ekki hvað ég hef fengið mörg vink og marga fingurkossa frá kvenfólkinu sem keyrir bílana eftir að ég setti ljósin á göngugrindina,“ segir Helgi Pálmarsson, 76 ára göngugarpur í Reykjavík. 26.2.2010 05:30 Fimm stúlkur tældar á Netinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál fimmtu stúlkunnar sem karlmaður er grunaður um að hafa tælt í gegnum Facebook. Hún var þrettán ára þegar meint kynferðisbrot mannsins gegn henni átti sér stað. 26.2.2010 05:30 Hugsanlegt að einhverjir fundir verði í Reykjavík Ekki er útilokað að einhverjir fundir í væntanlegum viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu fari fram í Reykjavík. Venjan er að samningafundir um aðild ríkja fari fram í Brussel þar sem framkvæmdastjórnin hefur greiðan aðgang að stoðdeildum sínum. 26.2.2010 05:15 Borga ekki vatnsveitu nema fá virkjun á aðalskipulagið Samningar Flóahrepps um að fá vatn frá Árborg eru á lokastigi. Samið hefur verið við Landsvirkjun um að fyrirtækið greiði kostnað við aðveituna, en samkvæmt samningnum fæst ekkert greitt fyrr en virkjanir í neðri hluta Þjórsár eru komnar á staðfest aðalskipulag. 26.2.2010 05:00 Níu þúsund miðar seldust 26.2.2010 05:00 Vill frið um orkugeirann Orkugeirinn er mikilvægari en svo að hann megi vera átakavettvangur áfram næstu árin, nóg er samt komið, sagði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra á opnum fundi um orkustefnu fyrir Ísland sem haldinn var í náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands í gær. 26.2.2010 05:00 Ölvisholt kærir synjun ÁTVR Brugghúsið Ölvisholt lagði á mánudaginn fram stjórnsýslukæru til fjármálaráðherra vegna þeirrar ákvörðunar Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins að hafna því að taka bjórinn Heilagan papa í sölu. Synjun ÁTVR byggðist á því að nafn og flöskumiði bjórsins, sem sýnir papa halda á krossi í greipum sér, væru til þess fallin að brjóta í bága við almennt velsæmi með skírskotun til trúarbragða. 26.2.2010 04:30 Óvissan er óþolandi Stjórnvöld þurfa þegar að móta verklag sem styðjast má við vegna gengistryggðra bílalána að mati Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB. „Það er ekki hægt að bíða eftir dómi Hæstaréttar sem er ekki að vænta fyrr en eftir hálft ár eða jafnvel enn síðar,“ segir hann. 26.2.2010 04:15 Icesave-nefndin tómhent heim Fundi samninganefndar Íslands og fulltrúa Hollendinga og Breta í London í gær lauk án niðurstöðu. Bretar og Hollendingar segjast ekki geta teygt sig lengra til móts við Íslendinga en með tilboði sínu frá því í síðustu viku. 26.2.2010 04:15 Fagna snjónum í Bláfjöllum Færð var þung víða um land í gær, en verst var ástandið undir Hafnarfjalli og í Borgarfirði. Undir Hafnarfjalli lentu bílar í alvarlegum vandræðum í gærkvöld, enda var skyggni þar nánast ekkert. 26.2.2010 04:00 Ísland lúti valdi ESB í sjávarútvegi Íslendingar þurfa að fella sig við æðsta vald Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum. Íslensk lög, sem takmarka fjárfestingar í sjávarútvegi og aðgang erlendra skipa að íslenskri lögsögu og þjónustu í höfnum, stangast á við lögsögu ESB. 26.2.2010 03:30 Fjölmargir veðurtepptir í Borgarnesi Mjög slæmt veður er undir Hafnarfjalli og ekkert ferðaveður, að sögn varðstjóra lögreglunnar í Borgarnesi. Liðsmenn björgunarsveitarinnar Brákar frá bæjarfélaginu hafa aðstoðað ökumenn undir Hafnarfjalli í allan dag en þar hafa fjölmargir lent í erfiðleikum. 25.2.2010 22:05 Valdimar Leó færður niður Valdimar Leó Friðriksson, fyrrverandi þingmaður, sem hafnaði í öðru sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ var færður niður í þriðja sæti framboðslista flokksins sem samþykktur var á félagsfundi í kvöld. 25.2.2010 22:24 Sendinefndin gekk af fundinum í London Íslenska sendinefndin gekk af fundi með Bretum og Hollendingum í London í dag. Þetta er haft eftir ónafngreindum starfsmanni breska fjármálaráðuneytisins á fréttavef Bloomberg í kvöld. Jafnframt er haft eftir honum að bresk og hollensk stjórnvöld séu vonsvikinn með þá ákvörðun Íslendinga að hafna tilboði þeirra frá því í síðustu viku. 25.2.2010 20:50 Ábyrgð ASÍ mikil „ASÍ hefur komist að því að óvissan um lyktir Icesave málsins hafi nú þegar seinkað efnahagsbatanum að minnsta kosti um hálft ár,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar. „Þessi staðreynd er reyndar flestum ljóst, jafnt þeim sem vilja leiða það mál til lykta sem og hinna staðið hafa í vegi fyrir lausn Icesave deilunnar,“ segir þingmaðurinn í pistli á heimasíðu sinni. 25.2.2010 20:46 Ráðherrar hefðu ekki atkvæðarétt á Alþingi Ráðherrar hefðu ekki atkvæðarétt á Alþingi og miðað við núverandi ríkisstjórn væru tíu nýir þingmenn á þingi, samkvæmt frumvarpi þingmanna þriggja flokka. 25.2.2010 20:27 Dæmdar fjórar milljónir í bætur vegna loftmengunar Konu var í dag dæmdar tæplega 4,2 milljónir króna í bætur í Hæstarétti vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir vegna loftmengunar frá Áburðaverksmiðjunni í Gufunesi fyrir 12 árum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður gert verksmiðjunni að gerða konunni tæpar 200 þúsund krónur í bætur. 25.2.2010 20:12 Fimm sveitabæir rýmdir í Mýrdal Snjóflóð féll í Reynishverfi í Mýrdal í dag án þess valda skemmdum. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er mælst til þess að íbúar nokkurra sveitabæja yfirgefi hús sín og dvelji að heiman í nótt en mikið hefur snjóað á svæðinu í dag. Ekki er um skyldurýmingu að ræða, að sögn lögreglu. Íbúar að minnsti kosti fimm bæja ætla að yfirgefa hús sín. 25.2.2010 19:43 Móðir Litháa í mansalsmálinu sannfærð um sakleysi sonar síns Móðir eins af Litháunum sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í fimm mánuði í tengslum við mansalsmálið er sannfærð um sakleysi sonar síns. Hún gangrýnir lögreglu og vonar að sannleikurinn sigri að lokum. 25.2.2010 19:30 Víða ófært Vegna veðurs verður reynt að halda leiðinni frá Borgarnesi að Hvalfjarðargöngum og á Akranes opinni til klukkan 21:30. Eftir það er ekki tali öruggt að vera á ferðin á þessum slóðum. Ófært er nú orðið á nokkrum stöðum á landinu. Meðal annars á Mýrdalssandi og Reynisfjalli við Vík í Mýrdal, einnig er ófært á Siglufjarðarvegi, um Þröskulda og í Reykjólasveit. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 25.2.2010 19:29 Steingrímur: Enn greinir þjóðirnar töluvert á Fundi Íslendinga með Bretum og Hollendingum um Icesave málið lauk í dag án niðurstöðu. Fulltrúar þjóðanna þriggja hafa átt fundi í Lundúnum að undanförnu. 25.2.2010 19:00 Mikið um dekkjaþjófnað á höfuðborgarsvæðinu Mikið hefur verið um dekkjaþjófnað á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum mánuðum og dæmi um að dekkjum hafi verið stolið undan bíl fyrir framan heimili fólks á meðan það var í fastasvefni. 25.2.2010 18:50 Icesave deilan hefur frestað efnahagsbatanum um hálft ár Um 3.500 Íslendingar munu bætast í hóp atvinnulausra á næstu tólf mánuðum samkvæmt hagspá Alþýðusambandsins. Icesave deilan hefur frestað efnahagsbatanum um að minnsta kosti um hálft ár. 25.2.2010 18:37 Formennirnir upplýstir um gang viðræðnanna Samninganefnd Íslands í Icesave deilunni átti rúmlega tveggja klukkustundarfund með fulltrúum Bretlands og Hollands í Lundúnum í dag. Ekkert hefur verið látið uppi um efni fundarins, en samninganefndarmenn kynna ráðherrum og forystufólki stjórnarandstöðuflokkanna gang viðræðnanna nú í kvöld. 25.2.2010 18:25 Einar óskar eftir fundi Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, óskaði í morgun á fundi sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar eftir því að haldinn verði sérstakur fundur nefndarinnar í tilefni af áliti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands. 25.2.2010 18:08 Afklæddi sig og lagðist upp í rúm Hæstiréttur sakfelldi í dag 24 ára gamlan mann fyrir kynferðisbrot. Maðurinn fór óboðinn inn í svefnherbergi konu þar sem hún lá sofandi, afklæddi sig úr öllu nema nærbuxum, lagðist upp í rúm til hennar, kyssti hana á hálsinn og káfaði á brjóstum hennar utanklæða. Atvikið átti sér stað heima hjá stúlkunni í byrjun september 2008. 25.2.2010 18:02 Sjá næstu 50 fréttir
Segir afstöðu Vinstri grænna það sorglegasta á ferlinum Virkjana á Hengilssvæðinu gætu beðið sömu örlög og virkjana í neðri Þjórsá, en í forystusveit Vinstri grænna er fullyrt að skipulagsferli þeirra sé ólöglegt. Bæjarstjóri Ölfuss segir afstöðu Vinstri grænna það sorglegasta sem hann hafi orðið vitni að á ferlinum. 26.2.2010 18:52
Skýrsla Rannsóknarnefndar frestast um 2 - 3 vikur Skýrsla Rannsóknarnefndar Alþingis mun ekki birtast fyrr en eftir tvær til þrjár vikur, samkvæmt tilkynningu sem Rannsóknarnefndin sendi frá sér í dag. 26.2.2010 17:08
Gera heimildarmynd um Ísland Tveir breskir kvikmyndagerðarmenn seldu aleigu sínu, pökkuðu niður öllu sem þeir áttu og fluttu til Íslands til þess að gera heimildarmynd um land og þjóð. 26.2.2010 19:17
Hæstiréttur staðfestir úrskurð vegna Baldurs Guðlaugssonar Hæstiréttur Íslands hafnaði í dag kröfu Baldurs Guðlaugssonar um að ákvörun sýslumanns um að kyrrsetja innistæður hans á bankareikningum yrði felld úr gildi. Hæstiréttur segir að skilyrðum fyrir lögmæti 26.2.2010 16:34
Hátt í 500 útskrifast frá HÍ Það verða 478 kandídatar brautskráðir frá Háskóla Íslands á morgun. Nemendurnir munu útskrifast af öllum fræðasviðum með 482 próf. Kristín Ingólfsdóttir, rektor Háskóla Íslands, mun ávarpa kandídata við brautskráninguna en auk þess mun Háskólakórinn flytja lög undir stjórn Gunnsteins Ólafssonar. 26.2.2010 16:30
Hæstiréttur staðfestir úrskurð um brottvísun Ramosar Hæstiréttur Íslands hefur staðfest dóm Héraðsdóms Reykjavíkur þess efnis að Hosmany Ramos, brasilíski fanginn sem verið hefur í varðhaldi hér á landi frá því í sumar, verði framseldur til heimalands síns þar sem hans bíður fangelsisvist. Áður hafði Hæstiréttur vísað málinu aftur til héraðsdóms til meðferðar. 26.2.2010 16:27
Kristín sjálfkjörin rektor HÍ Kristín Ingólfsdóttir er sjálfkjörin í embætti rektors HÍ næstu fimm árin, þar sem enginn sótti um embættið á móti henni. Þetta kemur fram á vefnum Student.is. Umsóknarfrestur um embættið rann út á mánudag. Kristín var skipuð í embættið að undangengnum kosningum fyrir fimm árum síðan. Kristín er fyrsta konan sem gegnir embætti rektors HÍ. 26.2.2010 15:55
Sjónvarpsmaður ársins kynntur til leiks í Reykjavík síðdegis Bylgjan mun tilkynna um það hver varð fyrir valinu á uppáhalds sjónvarpsmanni landsmanna í þættinum Reykjavík síðdegis á eftir. Þátturinn hefst á slaginu fjögur en Reykjavík síðdegis er líka með sína eigin Facebook síðu þar sem hægt er að fylgjast með því sem er efst á döfinni hjá þeim Kristófer, Þorgeiri og Braga. 26.2.2010 15:27
Ölvað fimmtugt par ruddist inn í íbúð í Árbæ Karl og kona á fimmtugsaldri ruddust inn í íbúð í Árbænum eftir hádegi í gær og höfðu þaðan á brott með sér ýmsa muni. 26.2.2010 14:34
Fast skotið á RÚV í nýrri myndaröð Fremstu kvikmyndagerðamenn þjóðarinnar skjóta föstum skotum á Ríkisútvarpið í nýrri myndaröð sem þeir hafa ákveðið að birta á myndasíðunni YouTube. Leikstjóri myndskeiðanna er Grímur Hákonarson og hann skrifaði jafnframt handritið ásamt Hrafnkatli Stefánssyni. Það er Jóhannes Haukur Jóhannesson, Friðrik Þór Friðriksson, Sveppi, Ilmur Kristjánsdóttir og Silja Hauksdóttir eru á meðal þeirra sem fara með aðalhlutverk 26.2.2010 14:10
Hæstiréttur vísar frá kæru á hendur fréttamönnum Hæstiréttur hefur vísað frá máli Ríkissaksóknara gegn fréttamönnunum Andra Ólafssyni og Breka Logasyni. 26.2.2010 12:33
Vonast enn eftir samkomulagi Ríkisstjórnin vonast enn til þess að hægt verði að landa nýju Icesave samkomulagi fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu sem fara á fram eftir átta daga. Samninganefnd Íslands fundaði með Bretum og Hollendingum í gær án árangurs. Nefndin kemur til landsins í dag. 26.2.2010 11:51
Hringbrautarbrýr fengu Steinsteypuverðlaunin 2010 Göngubrýrnar yfir Hringbraut í Reykjavík fengu Steinsteypuverðlaunin 2010 fyrir að vera bæði frumlegt og vandað mannvirki. Þetta var tilkynnt á ársfundi Steinsteypufélagsins í liðinni viku. Brýnar eru því mannvirki ársins gert úr steinsteypu. Verðlaunin voru veitt verkkaupa, hönnuði og framkvæmdaaðila sem var Reykjavíkurborg. 26.2.2010 11:12
Búið að opna veginn um Hafnarfjall Búið er opna veginn undir Hafnarfjalli en þar er hálka og skafrenningur. Að sögn Vegagerðarinnar er einnig búið að opna Siglufjarðarveg og veginn um Reynisfjall. 26.2.2010 09:30
Einar K. óskar eftir fundi í sjávarútvegsnefnd Ísland mun þurfa að fella sig við æðsta vald Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum. Íslensk llög, sem takmarka fjárfestingar í sjávarútvegiog aðgang erlendra skipa að íslenskri lögsögu og þjónustu í höfnum, stangast á við lögsögu Evrópusambandsins, segir meðal annars í greiningarskýrslu framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Þar er gerð grein fyrir þeim kröfum, sem Íslendingar verða að uppfylla , sem umsóknarríki að aðild að sambandinu. 26.2.2010 08:04
Blindbylur undir Hafnarfjalli Lögregla og Björgunarsveitamenn hafa þurft að aðstoða marga ökumenn í vandræðum undir Hafnarfjalli og norðan Borgarness en þar hefur verið stórhríð. Vegfarandi sem hafði samband segir að þar sé nú blindbylur og að ekki sjáist á milli stika. Hann segir alls ekkert ferðaveður vera á þessum slóðum og að um fimmtíu bílar séu fastir á veginum. Vegurinn undir fjallinu er nú lokaður. 26.2.2010 07:58
Margir veðurtepptir í Borgarnesi í nótt Fjöldi manns, þeirra á meðal hátt í hundrað unglingar úr Víðistaðaskóla í Hafnarfirði á leið í skíðaferðalag, þurftu að gista í Borgarnesi í nótt vegna illviðris, sem geysaði á Vesturlandi í gærkvöldi. 26.2.2010 07:01
Stofnanir brjóta lög um opinber innkaup Ekki er að finna agaviðurlög í lögum um opinber innkaup. Ríkisendurskoðun leggur til leiðir til úrbóta eftir könnun sem leitt hefur í ljós misbrest í vinnulagi. Könnunin nær til hluta stofnana ríkisins. Til greina kemur að kanna hinar síðar. 26.2.2010 06:00
Flutt af Kleppi eftir áratugi Deild 14 á Kleppi verður lokað á vordögum. Deildin er sérhæfð meðferðar- og endurhæfingargeðdeild fyrir fólk með langvinna geðsjúkdóma og alvarlega atferlistruflun. Tólf dvelja á deildinni og hafa sumir verið þar um áratuga bil. 26.2.2010 05:30
Fær fingurkossa fyrir ljós á göngugrindinni „Ég veit ekki hvað ég hef fengið mörg vink og marga fingurkossa frá kvenfólkinu sem keyrir bílana eftir að ég setti ljósin á göngugrindina,“ segir Helgi Pálmarsson, 76 ára göngugarpur í Reykjavík. 26.2.2010 05:30
Fimm stúlkur tældar á Netinu Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú mál fimmtu stúlkunnar sem karlmaður er grunaður um að hafa tælt í gegnum Facebook. Hún var þrettán ára þegar meint kynferðisbrot mannsins gegn henni átti sér stað. 26.2.2010 05:30
Hugsanlegt að einhverjir fundir verði í Reykjavík Ekki er útilokað að einhverjir fundir í væntanlegum viðræðum um aðild Íslands að Evrópusambandinu fari fram í Reykjavík. Venjan er að samningafundir um aðild ríkja fari fram í Brussel þar sem framkvæmdastjórnin hefur greiðan aðgang að stoðdeildum sínum. 26.2.2010 05:15
Borga ekki vatnsveitu nema fá virkjun á aðalskipulagið Samningar Flóahrepps um að fá vatn frá Árborg eru á lokastigi. Samið hefur verið við Landsvirkjun um að fyrirtækið greiði kostnað við aðveituna, en samkvæmt samningnum fæst ekkert greitt fyrr en virkjanir í neðri hluta Þjórsár eru komnar á staðfest aðalskipulag. 26.2.2010 05:00
Vill frið um orkugeirann Orkugeirinn er mikilvægari en svo að hann megi vera átakavettvangur áfram næstu árin, nóg er samt komið, sagði Katrín Júlíusdóttir iðnaðarráðherra á opnum fundi um orkustefnu fyrir Ísland sem haldinn var í náttúrufræðihúsi Háskóla Íslands í gær. 26.2.2010 05:00
Ölvisholt kærir synjun ÁTVR Brugghúsið Ölvisholt lagði á mánudaginn fram stjórnsýslukæru til fjármálaráðherra vegna þeirrar ákvörðunar Áfengis- og tóbaksverslunar ríkisins að hafna því að taka bjórinn Heilagan papa í sölu. Synjun ÁTVR byggðist á því að nafn og flöskumiði bjórsins, sem sýnir papa halda á krossi í greipum sér, væru til þess fallin að brjóta í bága við almennt velsæmi með skírskotun til trúarbragða. 26.2.2010 04:30
Óvissan er óþolandi Stjórnvöld þurfa þegar að móta verklag sem styðjast má við vegna gengistryggðra bílalána að mati Runólfs Ólafssonar, framkvæmdastjóra Félags íslenskra bifreiðaeigenda, FÍB. „Það er ekki hægt að bíða eftir dómi Hæstaréttar sem er ekki að vænta fyrr en eftir hálft ár eða jafnvel enn síðar,“ segir hann. 26.2.2010 04:15
Icesave-nefndin tómhent heim Fundi samninganefndar Íslands og fulltrúa Hollendinga og Breta í London í gær lauk án niðurstöðu. Bretar og Hollendingar segjast ekki geta teygt sig lengra til móts við Íslendinga en með tilboði sínu frá því í síðustu viku. 26.2.2010 04:15
Fagna snjónum í Bláfjöllum Færð var þung víða um land í gær, en verst var ástandið undir Hafnarfjalli og í Borgarfirði. Undir Hafnarfjalli lentu bílar í alvarlegum vandræðum í gærkvöld, enda var skyggni þar nánast ekkert. 26.2.2010 04:00
Ísland lúti valdi ESB í sjávarútvegi Íslendingar þurfa að fella sig við æðsta vald Evrópusambandsins í sjávarútvegsmálum. Íslensk lög, sem takmarka fjárfestingar í sjávarútvegi og aðgang erlendra skipa að íslenskri lögsögu og þjónustu í höfnum, stangast á við lögsögu ESB. 26.2.2010 03:30
Fjölmargir veðurtepptir í Borgarnesi Mjög slæmt veður er undir Hafnarfjalli og ekkert ferðaveður, að sögn varðstjóra lögreglunnar í Borgarnesi. Liðsmenn björgunarsveitarinnar Brákar frá bæjarfélaginu hafa aðstoðað ökumenn undir Hafnarfjalli í allan dag en þar hafa fjölmargir lent í erfiðleikum. 25.2.2010 22:05
Valdimar Leó færður niður Valdimar Leó Friðriksson, fyrrverandi þingmaður, sem hafnaði í öðru sæti í prófkjöri Samfylkingarinnar í Mosfellsbæ var færður niður í þriðja sæti framboðslista flokksins sem samþykktur var á félagsfundi í kvöld. 25.2.2010 22:24
Sendinefndin gekk af fundinum í London Íslenska sendinefndin gekk af fundi með Bretum og Hollendingum í London í dag. Þetta er haft eftir ónafngreindum starfsmanni breska fjármálaráðuneytisins á fréttavef Bloomberg í kvöld. Jafnframt er haft eftir honum að bresk og hollensk stjórnvöld séu vonsvikinn með þá ákvörðun Íslendinga að hafna tilboði þeirra frá því í síðustu viku. 25.2.2010 20:50
Ábyrgð ASÍ mikil „ASÍ hefur komist að því að óvissan um lyktir Icesave málsins hafi nú þegar seinkað efnahagsbatanum að minnsta kosti um hálft ár,“ segir Björn Valur Gíslason, þingmaður VG og varaformaður fjárlaganefndar. „Þessi staðreynd er reyndar flestum ljóst, jafnt þeim sem vilja leiða það mál til lykta sem og hinna staðið hafa í vegi fyrir lausn Icesave deilunnar,“ segir þingmaðurinn í pistli á heimasíðu sinni. 25.2.2010 20:46
Ráðherrar hefðu ekki atkvæðarétt á Alþingi Ráðherrar hefðu ekki atkvæðarétt á Alþingi og miðað við núverandi ríkisstjórn væru tíu nýir þingmenn á þingi, samkvæmt frumvarpi þingmanna þriggja flokka. 25.2.2010 20:27
Dæmdar fjórar milljónir í bætur vegna loftmengunar Konu var í dag dæmdar tæplega 4,2 milljónir króna í bætur í Hæstarétti vegna líkamstjóns sem hún varð fyrir vegna loftmengunar frá Áburðaverksmiðjunni í Gufunesi fyrir 12 árum. Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður gert verksmiðjunni að gerða konunni tæpar 200 þúsund krónur í bætur. 25.2.2010 20:12
Fimm sveitabæir rýmdir í Mýrdal Snjóflóð féll í Reynishverfi í Mýrdal í dag án þess valda skemmdum. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli er mælst til þess að íbúar nokkurra sveitabæja yfirgefi hús sín og dvelji að heiman í nótt en mikið hefur snjóað á svæðinu í dag. Ekki er um skyldurýmingu að ræða, að sögn lögreglu. Íbúar að minnsti kosti fimm bæja ætla að yfirgefa hús sín. 25.2.2010 19:43
Móðir Litháa í mansalsmálinu sannfærð um sakleysi sonar síns Móðir eins af Litháunum sem setið hefur í gæsluvarðhaldi í fimm mánuði í tengslum við mansalsmálið er sannfærð um sakleysi sonar síns. Hún gangrýnir lögreglu og vonar að sannleikurinn sigri að lokum. 25.2.2010 19:30
Víða ófært Vegna veðurs verður reynt að halda leiðinni frá Borgarnesi að Hvalfjarðargöngum og á Akranes opinni til klukkan 21:30. Eftir það er ekki tali öruggt að vera á ferðin á þessum slóðum. Ófært er nú orðið á nokkrum stöðum á landinu. Meðal annars á Mýrdalssandi og Reynisfjalli við Vík í Mýrdal, einnig er ófært á Siglufjarðarvegi, um Þröskulda og í Reykjólasveit. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni. 25.2.2010 19:29
Steingrímur: Enn greinir þjóðirnar töluvert á Fundi Íslendinga með Bretum og Hollendingum um Icesave málið lauk í dag án niðurstöðu. Fulltrúar þjóðanna þriggja hafa átt fundi í Lundúnum að undanförnu. 25.2.2010 19:00
Mikið um dekkjaþjófnað á höfuðborgarsvæðinu Mikið hefur verið um dekkjaþjófnað á höfuðborgarsvæðinu á undanförnum mánuðum og dæmi um að dekkjum hafi verið stolið undan bíl fyrir framan heimili fólks á meðan það var í fastasvefni. 25.2.2010 18:50
Icesave deilan hefur frestað efnahagsbatanum um hálft ár Um 3.500 Íslendingar munu bætast í hóp atvinnulausra á næstu tólf mánuðum samkvæmt hagspá Alþýðusambandsins. Icesave deilan hefur frestað efnahagsbatanum um að minnsta kosti um hálft ár. 25.2.2010 18:37
Formennirnir upplýstir um gang viðræðnanna Samninganefnd Íslands í Icesave deilunni átti rúmlega tveggja klukkustundarfund með fulltrúum Bretlands og Hollands í Lundúnum í dag. Ekkert hefur verið látið uppi um efni fundarins, en samninganefndarmenn kynna ráðherrum og forystufólki stjórnarandstöðuflokkanna gang viðræðnanna nú í kvöld. 25.2.2010 18:25
Einar óskar eftir fundi Einar K. Guðfinnsson, þingmaður Sjálfstæðisflokks, óskaði í morgun á fundi sjávarútvegs og landbúnaðarnefndar eftir því að haldinn verði sérstakur fundur nefndarinnar í tilefni af áliti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins um aðildarumsókn Íslands. 25.2.2010 18:08
Afklæddi sig og lagðist upp í rúm Hæstiréttur sakfelldi í dag 24 ára gamlan mann fyrir kynferðisbrot. Maðurinn fór óboðinn inn í svefnherbergi konu þar sem hún lá sofandi, afklæddi sig úr öllu nema nærbuxum, lagðist upp í rúm til hennar, kyssti hana á hálsinn og káfaði á brjóstum hennar utanklæða. Atvikið átti sér stað heima hjá stúlkunni í byrjun september 2008. 25.2.2010 18:02
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent