Vill stuðla að lægra verði á námsbókum 10. ágúst 2009 02:30 Vefsíðan skiptibokamarkadur.is verður formlega opnuð í dag. Valur Þráinsson, stofnandi síðunnar, segir að vefsíðan sé notendum alfarið að kostnaðarlausu og er hún fjármögnuð með auglýsingatekjum. fréttablaðið/gva
Opnaður verður í dag nýr vefur, skiptibokamarkadur.is, þar sem nemendur á framhalds- og háskólastigi geta keypt og selt bækur milliliða- og kostnaðarlaust. Þar geta þeir sem vilja selja eða óska eftir bók skráð sig inn á síðuna og skráð viðkomandi bók í framhaldinu. Notkun á vefnum er algjörlega gjaldfrjáls en hann er fjármagnaður með auglýsingatekjum. Valur Þráinsson, stofnandi síðunnar, segir að hann hafi fengið hugmyndina í upphafi háskólagöngu sinnar. Valur er að ljúka námi í hagfræði við Háskóla Íslands. „Þegar krónan hrundi í kjölfar bankahrunsins ákvað ég að hrinda þessari hugmynd í framkvæmd þar sem ég sá fram á að verð á nýjum bókum kæmi til með að hækka umtalsvert auk þess sem neytendavitund almennings mundi breytast.“ Valur segir að hann hafi í framhaldinu keypt lénið skiptibokamarkadur.is og ráðist í þetta verkefni. Valur fékk sér til aðstoðar Þórhall Einisson hugbúnaðararkitekt og hafa þeir tveir starfað saman allt frá upphafi og verið í því að búa til síðuna á kvöldin og um helgar undanfarna mánuði meðfram vinnu og skóla. Aðspurður segir Valur líklegt að reynt verði að selja hugmyndina erlendis enda hafi hann ekki séð fullkomnari síðu þrátt fyrir umtalsverða leit. Valur segir að viðbrögð auglýsenda hafi verið mjög góð auk þess sem nokkrir aðilar hafi óskað eftir frekara samstarfi. Hann stefnir á að bjóða þeim bóksölum sem hafa áhuga á því að hafa bækurnar sínar inni á vefnum að gera það. „Þá væri kominn skilvirkur markaður á netið þar sem nemar á Íslandi geta annaðhvort keypt bækurnar notaðar og verslað sín á milli eða keypt bókina af þeim bóksala sem byði upp á bestu kjörin.“ „Ég hef fulla trú á því að vefsíðan verði til hagsbóta fyrir nemendur á Íslandi,“ segir Valur. Hann segir að í dag sé algengt að bókakostnaður háskólanema sé á bilinu 40 til 60 þúsund krónur á önn að því gefnu að bækurnar séu keyptar nýjar. Því getur það munað töluverðum fjármunum að kaupa notaðar bækur auk þess sem seljendurnir fá eitthvað fyrir bækurnar sínar sem hefðu margar hverjar legið ónotaðar uppi í bókahillu.bta@frettabladid.is
Mest lesið Sakamálið sem skekur Bandaríkin Innlent „Þeir báðu um of mikið og buðu of lítið“ Erlent Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Innlent Límmiðar lifðu ekki af nóttina Innlent Skildi sjö ára son sinn eftir á Fuji-fjalli Erlent Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Innlent Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Innlent Tveir hinna látnu lögreglumenn Erlent Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Innlent Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Fleiri fréttir Báðar þyrlur og flugvél gæslunnar á loft samtímis Sakamálið sem skekur Bandaríkin Allt gengið vel og „ekkert að fara að klikka“ Bíllinn fannst skammt frá en þjófarnir eru ófundnir Handalögmál milli öryggisvarðar og þjófs Límmiðar lifðu ekki af nóttina Segir augljóst að lögum hafi ekki verið framfylgt við kyrrsetninguna Segja Morgunblaðið leggja þeim orð í munn Björguðu veikum göngumanni í kílómetrahæð á Fimmvörðuhálsi Skipunartíminn lengdur án auglýsingar Engin þjónusta: „Staðan er náttúrulega grafalvarleg á þessu svæði“ Bændur órólegir vegna skorts á dýralæknum Aftur í skólastjórastólinn Veðrið „ekki eins slæmt og það lítur út fyrir að vera“ Rannsaka líkamsárás miðsvæðis Búist við þungri umferð á fjölförnum gatnamótum „Við lítum á land ykkar sem eðlilegan hluta af evrópsku fjölskyldunni“ Sveitarfélögin séu ekki sökudólgurinn Upphrópanir bæjarráðs séu ótímabærar Viðtal við stækkunarstjóra, umferðartafir og stafræn hvíld Rekstrarformið byggi á sniðgöngu kjarasamninga Réðst á móður sína og hótaði ítrekað: „Ég sting þig, ég ætla að stinga þig“ Gætum þurft að framvísa smáríkjakortinu Afnema byggingarréttargjöld í Reykjanesbæ Nýi Landspítalinn verði tilbúinn í árslok 2029 Baunað á Jónas Má þvert á flokka Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Sjá meira