Innlent

Persónuverndarsjónarmið komi ekki í veg fyrir nafnlausar ábendingar

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að persónuverndarsjónarmið eigi ekki að koma í veg fyrir að opinberar stofnanir geti tekið við nafnlausum ábendingum.

Ýmsar opinberar stofnanir hafa tekið upp á því að bjóða fólki að senda sér ábendinga í skjóli nafnleyndar. Þetta eru til að mynda Vinnumálastofnun og Tryggingastofnun ríkisins. Báðar stofnanir eru með form á vefsíðum sínum, þar sem fólk getur sent stofnunum ábendingar um bótasvik, en án þess að láta nafns síns getið.

Fram hefur komið í fréttum Stöðvar tvö að dæmi séu um tilhæfulausar ábendingar um bótasvik. Opinberar stofnanir hafi rannsakað fólk, sem ekkert hefur til saka unnið, á grundvelli slíkra ábendinga.

Persónuvernd segir í nýlegu bréfi til opinberrar stofnunar, sem langaði til að bjóða upp á nafnlausar ábendingar á vefsíðu sinni, að eðlilegt sé að svonalagað heyri til algerra undantekninga. Vafasamt sé að taka upp almenna framkvæmt um nafnleysi nema það styðjist við sérstaka lagaheimild. Vitnað er til einkalífsréttar, gagnsæis, sanngirni og vandaðrar stjórnsýslu.

Árni Páll Árnason, félagsmálaráðherra, segir að persónuvernd hafi ekki gert athugasemdir við framgöngu stofnana sem heyri undir sig og rökstuðningi hennar hafi ekki verið beint til félagsmálaráðuneytisins. Bréf Persónuverndar er raunar opinbert og felur í sér almenn sjónarmið stofnunarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×