Fleiri fréttir

Slökkviliðsstjórinn í Skagafirði: Búnir að ná tökum á eldinum

Vernharð Guðnason slökkviliðsstjóri hjá Brunavörnum Skagafjarðar segir að menn séu farnir að sjá fyrir endann á slökkvistarfi við fiskeldisstöðina á Lambanesreykjum í Fljótum. Eldur kom þar upp í hádeginu í dag en slökkvilið var komið á vettvang rétt fyrir klukkan 13:00. Töluverð hætta var á ferðum þar sem mikið er af eiturefnum í húsinu sem er yfir tvö þúsund fermetrar.

Innbrotið í Frostaskjóli: Bíllinn fundinn

Vísir sagði frá innbroti í tvö íbúðarhús við Frostaskjól í vesturbæ Reykjavíkur í gær. Tveimur fartölvum, þremur farsímum og bíllyklum var stolið. Í kjölfarið var bifreið sem stóð við annað húsið tekin og óku ræningjarnir á brott. Lögregla hafði fljótlega upp á innbrotsþjófunum og þýfinu en bíllinn komst ekki í leitirnar fyrr en í morgun.

Yfir 10 þúsund staðfest tilfelli af inflúensu A

Samkvæmt upplýsingum Sóttvarnarstofnunar ESB voru staðfest tilfelli inflúensu A (H1N1) alls 10.215 í morgun í 42 ríkjum í heiminum. Í tilkynningu frá Sóttvarnalækni og Almannavörnum segir að langflest flensutilfellanna séu í Bandaríkjunum eða 5.469 en í þeirri tölu eru einnig líkleg flensutilfelli þar í landi.

Helmingi verri staða en í byrjun árs

Framsóknarmenn gagnrýndu harðlega dagskrá Alþingis og áherslur ríkisstjórnarinnar á þingfundi í dag. Varaformaður flokksins fullyrti að staða heimila og fyrirtækja í landinu væri helmingi verri í dag en hún hafi verið við í byrjun árs. Ótækt væri að þingmenn ræddu um meðhöndlun úrgangs og erfðabreyttar lífverur.

Stjórnarþingmaður vill lægri vexti á AGS-lánið

Lilja Mósesdóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur brýnt að stjórnvöld ræði við sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins um lægri vexti á láni sjóðsins til íslenska ríkisins. Hún sagði í umræðum Alþingi í dag að að vextirnir væru breytilegir og í dag væru þeir hærri en gengur og gerist á fjármálamörkuðum.

Lögguníðingarnir ákærðir fyrir árásina í Árbænum

Ákæra hefur verið gefin út á hendur átta mönnum sem réðust á tvo lögreglumenn við skyldustörf í Hraunbæ í Árbæ í október á síðasta ári. Alls voru tólf handteknir vegna málsins á sínum tíma en árásin var með öllu tilefnislaus.

Búist við að met falli í Sparaksturskeppni

Talið er að gömul met falli í árlegri Sparaksturskeppni Félagi íslenskra bifreiðaeigenda og Atlantsolíu sem hófst í hádeginu í dag. 22 bílar voru skráðir til leiks en keppt er í sjö flokkum. Keppninni er ætlað vekja athygli á því að hægt sé að draga verulega úr eldsneytisnotkun með réttu aksturslagi.

Á annað hundrað flugvirkjar boða verkfall

Flugvirkjar hafa boðað tímabundið þriggja daga verkfall sem hefst 8. júní og allsherjarverkfall 22. júní. Um er að ræða flugvirkja hjá Icelandair og Flugfélagi Íslands, en þeir eru 150 til 200 talsins. Þetta kemur fram á vefsíðu Flugvirkjafélags Íslands.

Undrandi sjálfstæðismenn í Kópavoginum

Sjálfstæðismenn í Kópavogi eru undrandi yfir háum greiðslum bæjarins til handa fyrirtækis í eigu dóttur Gunnars I. Birgissonar bæjarstjóra. Sjálfur segist bæjarstjóri ekki óttast meirihlutaslit við framsóknarmenn, hann hafi ekkert til saka unnið.

Björn Bjarnason nýr formaður

Björn Bjarnason, fyrrum ráðherra og þingmaður, var í gær kjörinn formaður Samtaka um vestræna samvinnu og alþjóðamál. Jafnframt var kona í fyrsta sinn kjörin í stjórn samtakanna en þau voru stofnuð árið 1958. Síðan þá hafa þau verið vettvangur umræðna um öryggis-, varnar- og utanríkismál Norður-Atlantshafsríkja.

Vill leggja niður aðstoðarmannakerfi þingmanna

Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir, forseti Alþingis, telur að leggja eigi niður aðstoðarmannakerfi landsbyggðarþingmanna. Hún hefur beint því til þingmanna að þeir ráði sér ekki aðstoðarmenn. Forsætisnefnd tekur ákvörðun um málið eftir helgi.

Sturla Jónsson: „Ég er búinn að gefast upp“

Sturla Jónsson, vörubílstjóri og einn þekktasti mótmælandi síðustu missera á Íslandi hefur ákveðið að flýja land. Hann heldur til Noregs eftir helgi, kominn með nóg að eigin sögn og segir ekkert framundan á Íslandi.

Fyrsta skemmtiferðaskipið kemur í dag

Fyrsta skemmtiferðaskipið í ár kemur til Reykjavíkur síðdegis og leggst við Skarfabakka við Sundahöfn. Þetta er rúmlega 40 þúsund tonna skip. Alls er búist við 50 skemmtiferðaskipum í 80 heimsóknum til Reykjavíkur í sumar.

Síldveiðin hafin

Fjölveiðiskipin Ásgrímur Halldórsson og Jóna Eðvalds fengu fyrstu síldina í ár úr norsk-íslenska síldarstofninum, djúpt norðaustur af landinu í gær, nokkur hundruð tonn hvort skip.

Eldur í Herdísi SH í morgun

Tveir sjómenn sluppur heilir á húfi og var síðan bjargað yfir í annan bát, eftir að eldur gaus skyndilega upp frammi í lúkar á handfærabátnum Herdísi SH þegar báturinn var staddur um 12 sjómílur út af Blakksnesi, sunnan við Patreksfjörð, á sjötta tímanum í morgun.

Ölvaður öldungur ók gegnum bílskúrshurð

Ölvaður ökumaður á níræðisaldri slapp ómeiddur eftir að hafa ekið á bíl og hús nágranna síns á Selfossi í gærkvöldi og hafnað síðan inni á gafli í eigin bílskúr.

Siv vill ráðast í byggingu nýs Landspítala

Það er afar brýnt að ráðist verði í hönnun og byggingu nýs Landspítala á næstunni, segir Siv Friðleifsdóttir, fulltrúi Framsóknaflokksins í heilbrigðisnefnd Alþingis. Siv lagði fram spurningu til heilbrigðisráðherra á Alþingi í dag um hvort verkefninu verði haldið áfram. Hún bíður nú skriflegs svars frá ráðherra.

Hichem fékk sér súpu

„Ég hef það ágætt núna. Ég byrjaði að borða aftur í gærmorgun," segir Mansri Hichem, flóttamaðurinn sem hefur verið í hungurverkfalli á Suðurnesjum að undanförnu.

Borgin gerir úttekt á viðbragsáætlun gegn einelti

Mannréttindastjóra og mannauðsstjóra Reykjavíkurborgar verður falið að skoða og gera úttekt á viðbragðsáætlun borgarstofnana gegn einelti. Tillaga Oddnýjar Sturludóttur borgarfulltrúa Samfylkingarinnar, þessa efnis var samþykkt á fundi borgarstjórnar í dag. Horft verður til skóla, leikskóla, félagsmiðstöðva, frístundaheimila sem og allra starfstöðva Reykjavíkurborgar í þessu samhengi.

Vísbendingar um að landflótti sé hafinn

Búslóðaflutningum frá Íslandi hefur fjölgað um helming á milli ára og jafngildir því að daglega flytji að minnsta kosti ein fjölskylda til annars lands. Þetta kann að vera vísbending um að landflótti sé skollinn á.

Erill hjá slökkviliðs- og sjúkraflutningamönnum

Töluverður erill hefur verið hjá slökkvi- og sjúkraliðinu á höfuðborgarsvæðinu í dag. Slökkvibílar hafa verið kallaðir út fjórum sinnum. Í einu tilfellinu var um vatnsleka að ræða en í þremur tilfellum hafði komið upp aðstæður þar sem reykræsta þurfti húsnæði.

Staða Árborgar eins og hjá öðrum sveitarfélögum

„Staðan hjá Árborg er með líkum hætti og hjá fjölmörgum öðrum sveitarfélögum á landinu," segir Ragnheiður Hergeirsdóttir bæjarstjóri Árborgar. Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg, sagði í samtali við Sunnlending.is í dag að

Fullyrðir að Árborg stefni í gjaldþrot

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í Árborg, segir fjárhagsstöðu sveitarfélagsins verri en meirihlutinn í bæjarstjórn gerði sér grein fyrir í lok síðasta árs. Að óbreyttu stefni í að Árborg verði gjaldþrota innan tveggja ára. Þetta kemur á fréttavefnum Sunnlendingur.is

Miðstöð fyrir ungt fólk í Austurbæjarbíói

Reykjavíkurborg hyggst leita eftir samstarfi við Lýðheilsustöð, Rauða krossinn og menntamálaráðuneytið með það að markmiði að fá Austurbæ, gamla Austurbæjarbíó, að láni og starfrækja þar mistöð fyrir ungt fólk í atvinnuleit. Þetta var samþykkt samhljóma á fundi borgarstjórnar í dag en Svandís Svavarsdóttir, fráfarandi borgarfulltrúi VG, bar fram tillöguna.

Lögregla leitar stolinna bifhjóla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að þremur bifhjólum sem stolið var á Kjalarnesi um síðustu mánaðamót. Þetta eru tvö Kawasaki KX250F, árgerð 2007, og Yamaha WR 400FK, árgerð 1998, en skráningarnúmer þess er VZ-906.

Fjarðabyggð á móti innköllun aflaheimilda

Bæjarráð Fjarðabyggðar leggst eindregið gegn áformum stjórnvalda um fyrningarleiðina svokölluðu sem felur í sér innköllun aflaheimilda á 20 árum. Umbætur í stjórnkerfi fiskveiða þurfi að vera vel ígrundaðar og bæjarráð Fjarðabyggðar varar við aðgerðum sem veikt geti starfsgrundvöll sjávarútvegsins og stefnt búsetu í óvissu.

Innbrotsþjófar í Vesturbænum: Stálu bíllyklum og bifreið

Brotist var inn í tvö íbúðarhús við Frostaskjól í vesturbæ Reykjavíkur í morgun. Tveimur fartölvum var stolið, þremur farsímum og bíllyklum. Í kjölfarið var bifreið sem stóð við annað húsið tekin og óku ræningjarnir á brott.

Arnarnesræningjar áfram í gæsluvarðhaldi

Tveir karlmenn sem sem réðust inn á heimili aldraðra hjóna á Arnarnesi á kosninganótt og héldu þeim föngum á meðan þeir fóru ránshendi um húsið verða áfram í gæsluvarðhaldi. Lögregla fór fyrr í dag fram á að gæsluvarðahald þeirra þeirra yrði framlengt á grundvelli almannahagsmuna. Þeir verða í gæsluvarðhaldi til 16. júní.

Endurkjörinn formaður Faxaflóahafna

Júlíus Vífill Ingvarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, var endurkjörinn formaður Faxaflóahafna á fundi borgarstjórnar í dag.

Veit ekki hverjir eiga jöklabréfin

Þór Saari þingmaður Borgarahreyfingarinnar spurði Steingím J. Sigfússon fjármálaráðherra hvenær yrði upplýst hverjir raunverulegir eigendur hinna svokölluðu jöklabréfa væru á Alþingi fyrir stundu. Talaði hann um sterkan orðróm sem hefði verið uppi um að innlendir fjárfestar og fjármálastofnanir væru hinir raunverulegu eigendur bréfanna. Steingrímur sagði þann orðróm ekki réttan.

Á annað hundrað reiðhjól á uppboði

Um 150 reiðhjól verða boðin upp hjá óskilamunadeild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu næstkomandi laugardag. Að þessu sinni verða eingöngu boðin upp reiðhjól enda safnast þau upp hjá lögreglunni sem aldrei fyrr, að fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni. Um er að ræða hjól sem hafa fundist í óskilum víða í umdæminu og enginn hefur hirt um að sækja.

500 ára gamalt koparlóð fannst við Þingvallakirkju

Á lokadegi fornleifauppgraftrar vestan við Þingvallakirkju morgun fann Margrét Hallmundsdóttir, fornleifafræðingur, koparlóð í gólflagi við stoðarstein. Talið er að lóðið hafi verið notað í viðskiptum í búð fyrir árið 1500.

Fimm sinnum fleiri makaskiptasamningar

Makaskiptasamingar á fasteignamarkaði eru fimm sinnum fleiri nú en fyrir ári síðan. Íbúðarverð hefur lækkað að meðaltali um 12,2% á síðustu tólf mánuðum.

Telur sykurskatt vera góða hugmynd

Sykurskattur er góð hugmynd verði hann eyrnamerktur forvörnum í tannheilsumálum en hann leysir ekki vandamál dagsins í dag þar sem tugir barnafjölskyldna sjá sér ekki fært að greiða niður tannlæknakostnað. Þetta segir sérfræðingur í barnatannlækningum sem vill sjá afsláttarkort fyrir barnafjölskyldur.

Þurfa ekki að fara í blóðprufu

Jónína Benediktsdóttir, sem er í forsvari fyrir www.detox.is, segist hafa fullan skilning á því að spara þurfi í heilbrigðiskerfinu en Landlæknir hefur beint því til lækna að þeir neiti staðfastlega að taka blóðprufur hjá fólki sem er á leið á Detox námskeið hjá Jónínu. Jónína segir að því hafi verið ákveðið að hætta að mælast til þess að fólk fari í blóðprufu áður en það mætir á námskeiðið.

Rúmlega 200 þreyta íslenskupróf til að fá ríkisborgararétt

Alls munu 205 útlendingar þreyta íslenskupróf fyrir umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt sem haldin verða í fyrsta sinn 8. til 12. júní. Umsækjendur um íslenskan ríkisborgararétt verða að hafa staðist próf í íslensku samkvæmt breytingum sem gerðar voru á reglum um íslenskan ríkisborgararétt um áramótin. Próftökugjaldið er 7000 krónur.

Fjármál stjórnmálamanna rannsökuð tíu ár aftur í tímann

Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, hefur skipað nefnd sem hefur það hlutverk að endurskoða lög um fjármál stjórnmálaflokka. Nefndinni hefur jafnframt verið falið að leiða til lykta hugmyndir Jóhönnu um að Ríkisendurskoðun, í kjölfar lagabreytingar eftir atvikum, verði falið að gera úttekt á fjármálum þeirra stjórnmálaflokka sem átt hafa fulltrúa á Alþingi og frambjóðendum þeirra á árunum 1999 til 2006.

66 sumarhúsalóðir í Grímsnesi á uppboð

Mikill samdráttur hefur orðið í sumarhúsabyggingum í uppsveitum Árnessýslu og eru nú 66 sumarhúsalóðir í grennd við Kerið í Grímsnesi, að fara á uppboð.

Sjá næstu 50 fréttir