Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Tugir lóða á uppboð hjá sýslumanni Uppboð hefst hjá sýslumanni á Selfossi á mánudag á 66 eignum, sem allar eru á hendi eins og sama fyrirtækisins, sem heitir Festir ehf. 19.5.2009 07:10
Á 150 á Hellisheiði Ungur ökumaður var stöðvaður á Hellisheiði í nótt eftir að hafa mælst á 150 kílómetra hraða þar sem hámarkshraði er 90 kílómetrar á klukkustund. 19.5.2009 07:06
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna opnaði í Sóltúni Ný starfsstöð Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna var opnuð í Sóltúni 26 í dag. Þar starfa 10 manns. Á vefsíðu félags- og tryggingamálaráðuneytisins kemur fram að töluverður erill hafi verið frá því að opnað var klukkan 9 í morgun og í lok dags hafi rúmlega 30 manns leitað sér ráðgjafar. 19.5.2009 00:23
ESB er hluti af lausn á bráðavanda Aðildarumsókn að Evrópusambandinu er hluti af lausn á þeim bráðavanda sem Íslendingar glíma við um leið og hún leggur grunninn að traustri framtíð og er leiðarljós stöðugleika inn í framtíðina, sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra í stefnuræðu sinni í kvöld. 18.5.2009 20:00
Krefjast aðgerða vegna vanda heimilanna Framsýn- stéttarfélag Þingeyinga tekur heilshugar undir með Hagsmunasamtökum heimilanna um að þegar í stað verði gripið til aðgerða til að forða fjölda heimila í landinu frá gjaldþroti. Þetta segir í ályktun sem Framsýn sendi frá sér í kvöld. 18.5.2009 22:51
Hefði þurft þjóðstjórn í vetur Það hefði átt að mynda þjóðstjórn eftir að upp úr stjórn Samfylkingarinnar og Sjálfstæðisflokksins slitnaði, sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Framsóknarflokksins, í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. Samfylkingin hefði hins vegar ekki tekið það í mál vegna þess að flokkurinn hefði viljað forsætisráðuneytið. 18.5.2009 20:54
ESB engin töfralausn Stjórnarmyndinun var ekki án fórna og málamiðlana," sagði Steingrímur J. Sigfússon í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. 18.5.2009 20:40
Bjarni gagnrýnir fyrirhugaða fyrningu aflaheimilda Hugmyndir ríkisstjórnarinnar um fyrningu aflaheimilda eru hugmyndir um þjóðnýtingu og setur sjávarútveginn í uppnám, sagði Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins í umræðum um stefnuræðu forsætisráðherra. 18.5.2009 20:17
Matvöruverð hefur hækkað um fjórðung á einu ári Matvöruverð hefur hækkað um rúm 25% síðustu 12 mánuði. Þegar skoðuð er breyting á verði vörukörfu ASÍ frá maí í fyrra má sjá að karfan hefur hækkað mest hjá lágvöruverslununum eða frá 20%-31%, í klukkuverslunum er hækkunin 20%-28% og þjónustuverslanir hafa hækkað verðin frá 12%-21%. 18.5.2009 17:19
Dyr opnast að olíuiðnaði Fyrstu olíuborpallarnir gætu verið komnir inn í íslenska lögsögu eftir þrjú til fjögur ár, að mati umsækjenda um Drekasvæðið en þeir reyndust báðir vera norsk olíuleitarfélög. Iðnaðarráðherra segir að í dag hafi dyr opnast að nýjum iðnaði fyrir Íslendinga. 18.5.2009 19:04
Vill afþakka aðstoð Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Ríkisstjórnin er ráðalaus og engin stefna var í stefnuræðu forsætisráðherra, sagði Þór Saari, þingmaður Borgarahreyfingarinnar, við umræður um stefnuræðu forsætisráðherra í kvöld. 18.5.2009 23:13
Vill að ríkið styðji við rekstur Strætó bs. Námsmönnum verður ekki boðið upp á fríar strætóferðir næsta vetur vegna hagræðingar í rekstri. Stjórnarformaður Strætó vill að ríkið styðji við rekstur félagsins, meðal annars með niðurfellingu opinberra gjalda. 18.5.2009 19:15
Flugvöllur kominn á Hólmsheiði Flugvöllur hefur verið tekinn í notkun á Hólmsheiði, á sama stað og margir sjá fyrir sér að innanlandsflugið verði í framtíðinni. Þangað til hafa fisflugmenn svæðið til umráða. 18.5.2009 19:09
Þjóðhagslega hagkvæmt að bólusetja fyrir hlaupabólu Ný rannsókn sem unnin var við hagfræðideild Háskóla Ísland sýnir að upptaka skipulagðrar bólusetningar gegn hlaupabólu á Íslandi væri þjóðhagslega hagkvæm. Þjóðhagslegur sparnaður við bólusetninguna væri 210 milljónir á ári samkvæmt rannsókninni. Í tilkynningu frá Háskólanum segir í rannsókninni hafi verið gerð kostnaðarábatagreining á upptöku bólusetningar gegn hlaupabólu út frá sjónarhorni alls samfélagsins. 18.5.2009 16:28
Fjórum sinnum stöðvaður með amfetamín í blóði eða bíl Þrítugur karlmaður hefur verið ákærður fyrir að keyra bifreið undir áhrifum fíkniefna, eða með fíkniefni í fórum sínum, sviptur ökuréttindum fjórum sinnum á hálfu ári. Lögreglustjórinn á höfuðborgarsvæðinu gefur út ákæruna en málið var þingfest í héraðsdómi Reykjavíkur í dag. 18.5.2009 16:20
Samfylkingin auglýsir eftir framkvæmdastjóra Framkvæmdastjórastaða Samfylkingarinnar verður auglýst laus til umsóknar á næstu dögum. Formaður framkvæmdastjórnar flokksins á síður von á að óflokksbundnir einstaklingar sæki um stöðuna. 18.5.2009 16:19
Landsbjörg óttast niðurskurð Slysavarnafélagið Landsbjörg lýsir þungum áhyggjum af þeim niðurskurði á fjármagni sem ætlað er til reksturs stofnana er sinna öryggis- löggæslu- og björgunarmálum á landinu. „Ætla má að slíkur niðurskurður muni valda því að leitað verði í auknu mæli til aðildareininga félagsins sem reknar eru af sjálfsaflafé og hafa orðið fyrir verulegum samdrætti á tekjum í kjölfar þess efnahagsástands er ríkir,“ segir í ályktun 6. landsþing Slysavarnafélagsins Landsbjargar, sem haldið var nýverið á Akureyri. 18.5.2009 15:28
Sigmundur Ernir talar fyrir Samfylkinguna Sigmundur Ernir Rúnarsson nýr þingmaður Samfylkingarinnar mun vera einn ræðumanna um stefnuræðu forsætisráðherra á Alþingi í kvöld. Umræðurnar skiptast í þrjá umferðir en forsætisráðherra byrjar á tuttugu mínútna framsögu. Í kjölfarið koma fulltrúar frá öllum flokkum og tala að hámarki 12 mínútur í fyrstu umferð, 6 mínútur í annarri umferð og 5 mínútur í þriðju og síðustu umferð. Umræðurnar verða í beinni útsendingu í útvarpi og sjónvarpi klukkan 19:50 í kvöld. 18.5.2009 14:41
Fær ekki að vitna í grófu ofbeldismáli Hæstiréttur meinaði fyrr í mánuðinum barnsmóður og fyrrum sambýliskonu meints ofbeldismanns að vitna í máli gegn honum. Maðurinn er talinn hafa beitt aðra konu sem hann bjó með grófu líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi á fjögurra ára tímabili. 18.5.2009 14:30
Norrænir sérsveitamenn æfðu sig á Íslandi Sérsveit ríkislögreglustjóra stóð fyrir námskeiði í síðustu viku með þátttöku sérsveita frá Noregi, Danmörku og Finnlandi. Í tilkynningu frá lögreglu segir að ýmis atriði varðandi klifur og sig hafi verið æfð og fóru æfingar að mestu fram í klettabeltum Esjunnar og á Suðurnesjum. 18.5.2009 14:23
Norskur skipakóngur vill leita að olíu á Drekasvæðinu Það var norska fyrirtækið Aker Exploration sem átti hitt tilboðið í olíuleit á Drekasvæðinu en tilboðin voru opnuð klukkan 14:00 hjá Orkustofnun. Tvö tilboð bárust en hitt tilboðið á einnig norskt félag, Sagex Petrolium, sem reyndar er að fimmtungi í eigu Íslendinga. Þeir sendu inn tilboð í samtarfi við íslenskt félag, Lindir Petrolium. 18.5.2009 14:11
Heimilin sitja eftir í skuldasúpunni Hagsmunasamtök heimilanna segja sorglegt að ríkið afskrifi milljarða skuldir fyrirtækja en láti heimilin sitja eftir í skuldasúpunni. Samtökin vilja leiðréttingu á bæði gengistryggðum og verðtryggðum lánum. 18.5.2009 12:01
Olíuleitartilboð opnuð klukkan tvö Tilboðin tvö sem bárust í olíuleit á Drekasvæðinu verða opnuð hjá Orkustofnun klukkan tvö í dag. Upplýst hefur verið um annað tilboðið en spenna ríkir um hvaðan hitt tilboðið kom. 18.5.2009 12:00
Fer á tölvuleikjaráðstefnu í Málmey Katrín Jakobsdóttir menntamála- og samstarfsráðherra setur norrænu tölvuleikjaráðstefnuna Nordic Game 2009 í Málmey á morgun. Hún mun jafnframt veita þar styrki að jafnvirði þriggja milljóna danskra króna sem renna munu til sex nýrra tölvuleikjaverkefna. 18.5.2009 11:25
Ákærð fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás Tvítug stúlka hefur verið ákærð fyrir sértaklega hættulega líkamsárás með því að hafa slegið pilt í höfuðið með glerglasi í Árbæ í september í fyrra. Við höggið hlaut pilturinn tvo djúpa skurði vinstra megin á höku, tvo grunna skurði yfir vinstra kinnbeini og grunnan skurð á hálsi vinstra megin. Það er ríkissakskóknari sem gefur út ákæru á hendur stúlkunni en þess er krafist að hún verði dæmd til refsingar og til greiðslu alls sakarskotnaðar. 18.5.2009 11:03
Hætt verði við byggingu Tónlistarhússins í núverandi mynd Þórunn Sveinbjarnardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrum ráðherra, segir að við núverandi aðstæður í efnahagsmálum sé skynsamlegt að leggja núverandi áætlanir Tónlistar- og ráðstefnuhús til hliðar og skoða uppbygginguna upp á nýtt. 18.5.2009 10:53
Vilja stjórnmálasamband við stjórn Hamasliða í Palestínu Félagið Ísland-Palestína skorar á ríkisstjórnina að koma þegar í stað á sambandi við ríkisstjórn Palestínumanna á Gazaströndinni, sem er á yfirráðasvæði Hamassamtakanna, til jafns við bráðabirgðastjórnina sem Mahmoud Abbas, forseti Palestínu, skipaði í Ramallah. 18.5.2009 10:37
Þjófnaðarbrotum fjölgar á milli ára Afbrotatölfræði ríkislögreglustjóri fyrir apríl sýnir að töluverð fjölgun er í þjófnaðarbrotum samanborið við sama mánuð í fyrra. Þannig var tilkynnt um 392 þjófnaðarbrot í apríl í ár en þau voru 268 á sama tíma í fyrra. Hegningarlagabrot almennt hafa einnig aukist en þau eru 20% fleiri á milli ára. 18.5.2009 10:08
Jóhanna flytur stefnuræðu sína í kvöld Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, flytur stefnuræðu sína á Alþingi laust fyrir klukkan átta í kvöld og í framhaldinu fjalla þrír fulltrúar hvers flokks á þingi um ræðuna. Ekki er búið að draga um röð flokkanna. 18.5.2009 09:43
Ræða endurnýjanlega orkugjafa Utanríkisráðherra Sameinuðu arabísku furstadæmanna, Sheikh Abdullah bin Zayed al-Nahyan, er hér á landi í dag. Hann mun funda með Katrínu Júlíusdóttur, iðnaðarráðherra, í fjarveru Össurar Skarphéðinssonar, utanríkisráðherra, en Össur sækir ráðherrafund EES ríkja í Brussel. 18.5.2009 09:09
Verð á kjarnfóðri hækkar Fyrirtækið Lífland hækkar í dag verð á kjarnfóðri til bænda um fimm til sex prósent, en kjarnfóðurshækkanir þrýsta á hækkun landbúnaðarvara til neytenda. 18.5.2009 07:20
Taldi lögreglu hafa hirt bílinn Hann var heldur óhress ungi maðurinn sem kom á lögreglustöðina á Selfossi í gær og kvartaði yfir því að lögreglan skyldi hafa hirt af sér bílinn í heilu lagi, þótt hann hafi ekki sinnt tilmælum lögreglu um að færa hann til skoðunar. 18.5.2009 07:18
Velti bílnum með heila björgunarsveit á eftir sér Hann var lánsamur í óláni sínu, ökumaðurinn sem velti bíl sínum út af þjóðveginum sunnan við Staðarskála í Hrútafirði síðdegis í gær, því næsti bíll á eftir honum var björgunarsveitarbíll, með heila björgunarsveit um borð. 18.5.2009 07:11
Lést í bílslysi Guðlaugur Magni Óðinsson lést í bílslysi skammt sunnan við Dalsá í Fáskrúðsfirði á laugardag. Guðlaugur var sautján ára gamall, til heimilis að Króksholti 6 á Fáskrúðsfirði. 18.5.2009 06:00
Gæti tafist allt fram í ágúst Endanleg niðurstaða ESA, Eftirlitstofnunar EFTA, um fjárfestingarsamning um álver í Helguvík, gæti verið tilbúin í byrjun ágúst. 18.5.2009 06:00
Lífsýni úr 300 þúsund Íslendingum varðveitt Varðveitt eru lífsýni úr um 300.000 Íslendingum í lífsýnasafni sem að stærstum hluta er geymt á Landspítalanum en einnig á Akureyri og í lítilli rannsóknarstofu í einkaeigu á höfuðborgarsvæðinu. 18.5.2009 05:45
Aldraðir og fatlaðir til sveitarfélaganna „Sveitarfélög verði efld með flutningi verkefna frá ríki til sveitarfélaga á sviði málefna fatlaðra, aldraðra og heilbrigðisþjónustu.“ Þannig segir í stjórnarsáttmála nýrrar ríkisstjórnar. Viðræður á milli ríkis og sveitarfélaga hafa lengi staðið yfir og sveitarfélög hafa sent frá sér samþykktir í þá veru að þetta verði að veruleika. Úr því að málið er komið í stjórnarsáttmálann er því ekkert til fyrirstöðu að það verði að veruleika. 18.5.2009 05:30
Fyrsta hlassið í Landeyjahöfn Fyrsta grjótfarminum var sturtað í Landeyjahöfn á laugardaginn. Til stendur að reisa höfn í Bakkafjöru fyrir ferjusiglingar til Vestmannaeyja. 18.5.2009 05:30
Þingið fjalli um tillöguna Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, segir tillögu ríkisstjórnarinnar um aðildarviðræður við Evrópusambandið vera afar ósannfærandi og bera það með sér að lítil sannfæring liggi að baki henni. „Þetta er afar rýrt í roðinu og hvergi í tillögunni, eða greinargerðinni sem henni fylgir, er færður fyrir því rökstuðningur, eða látið að því liggja, að áhugi sé eða vilji fyrir því að ganga í málið hjá ríkisstjórninni. Það er eins og þetta snúist bara um að þjóðin fái færi á að kjósa um málið.“ 18.5.2009 05:00
Langholtsskóli taki ekki nóg á einelti Megn óánægja er meðal hóps foreldra í Langholtsskóla með viðbrögð skólans þegar eineltismál koma upp. Unnur Ragnheiður Hauksdóttir og Tina Maria Johnson eiga báðar börn í skólanum sem hafa orðið fyrir einelti. Þeim þykir skólinn ekki taka nógu hratt og vel á eineltismálum. 18.5.2009 05:00
Arðgreiðslum OR ekki haggað Full samstaða er um það í borgarstjórn að breyta ekki umdeildum arðgreiðslum Orkuveitu Reykjavíkur til eigenda sinna, segir Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarstjóri. 18.5.2009 04:30
Tuttugu sóttu um leyfi til hrefnuveiða Hætt hefur verið við áform um að setja upp vinnslu hvalaafurða á Akranesi. Félag hrefnuveiðimanna gat ekki fylgt eftir hugmyndum sínum um fjárfestingar vegna óvissu um framtíð veiðanna. 18.5.2009 04:15
Fimm milljónir til Srí Lanka Utanríkisráðuneytið mun veita fimm milljónir króna í neyðaraðstoð til flóttafólks á Srí Lanka. Aðstoðin verður veitt með milligöngu Rauða kross Íslands. 18.5.2009 04:00
Hitinn í 20 stig á Þingvöllum Landsmenn nutu margir einmuna veðurblíðu í gær, og fór hitinn í nítján stig í höfuðborginni. Fjölmargir notuðu tækifærið og stunduðu útivist af ýmsu tagi, fóru í sund, hjólatúra og gönguferðir í góða veðrinu. 18.5.2009 03:15
Brúður taka kaupfélagið yfir Hjónin Bernd Ogrodnik og Hildur M. Jónsdóttir sem reka fyrirtækið Fígúra hafa fest kaup á tveimur pakkhúsum og gömlum verslunarhúsum Kaupfélags Borgfirðinga í Englendingavík í Borgarnesi og hyggjast opna þar menningar- og listamiðstöð. Gengið var frá kaupunum fyrir helgi. 18.5.2009 03:00