Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stoltenberg heilsaði upp á samlanda sinn í Seðlabankanum Samlandarnir Svein Harald Öygard, bankastjóri Seðlabanka Íslands og Jens Stoltenberg forsætisráðherra Noregs, hittust í Seðlabankanum í morgun í kjölfar blaðamannafundar þar sem Svein Harald var kynntur til leiks sem nýr seðlabankastjóri. Stoltenberg er staddur hér á landi á árlegum fundi Norrænna forsætisráðherra. 27.2.2009 12:22
Davíð ekki fram á Suðurlandi „Hann gaf okkur afsvar í morgun,“ segir Þorgils Torfi Jónsson spurður hvort Davíð Oddsson ætli fram í Suðurkjördæmi. Eftir að ljóst var að frumvarp um Seðlabanka Íslands yrði samþykkt var byrjað að undirbúa hugsanlegt framboð Davíðs í Suðurkjördæmi. 27.2.2009 12:07
Þrefalt fleiri vilja Jóhönnu frekar en Ingibjörgu Rúmlega þrefalt fleiri vilja að að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra leiði Samfylkinguna í næstu Alþingiskosningum, en að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir formaður flokksins geri það, samkvæmt nýrri könnun Stöðvar tvö og Fréttablaðsins. 27.2.2009 11:58
Lúðvík ætlar að bjóða sig fram til Alþingis Lúðvík Geirsson ætlar að bjóða sig fram til Alþingis fyrir Samfylkinguna í Suðvesturkjördæmi samkvæmt áreiðanlegum heimildum Vísis. Lúðvík er bæjarstjóri Hafnarfjarðar en Samfylkingin hefur haldið hreinum meirihluta í bænum í tvö kjörtimabil. 27.2.2009 11:41
Íslandshreyfingin gengur í Samfylkinguna Stjórn Íslandshreyfingarinnar hefur samþykkt að hreyfingin óski eftir því að gerast aðili að Samfylkingunni sem eitt af aðildarfélögum hennar og heiti henni fullum stuðningi í komandi kosningum. Stjórnin skorar á fylgismenn Íslandshreyfingarinnar að ljá þessu máli stuðning sinn og verður málið lagt fyrir aðalfund hreyfingarinnar sem fyrst. 27.2.2009 11:31
Ellefu vilja á þing fyrir Samfylkinguna í Norðvesturkjördæmi Ellefu hafa gefið kost á sér í prófkjör Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi fyrir þingkosningarnar vorið 2009. Prófkjörið verður rafrænt og hefst á hádegi föstudaginn 6. mars og líkur sunnudaginn 8. mars. Niðurstöður liggja líklega fyrir klukkan 18 sama dag. 27.2.2009 11:10
Borgarahreyfingin kynnir helstu stefnumál sín Borgarahreyfingin, nýstofnaður stjórnmálaflokkur, hyggst kynna framboð hreyfingarinnar og helstu stefnumál á fundi með blaðamönnum í dag. Fram kemur í tilkynningu að framboðið sé nýtt stjórnmálaafl fólks sem hafi það að megin markmiði að knýja fram breytingar á lýðræðis- og stjórnskipan hér landi. 27.2.2009 11:00
Ómar og Margrét funduðu með Samfylkingunni um bandalag Forystumenn Íslandshreyfingarinnar funduðu í gær með framkvæmdastjóra og gjaldkera Samfylkingarinnar um hugsanlegt samstarf. ,,Fimm prósent þröskuldurinn hefur gríðarleg áhrif á landslag minni flokkanna og við höfum verið að kanna hvort það sé flötur að við verðum í kosningabandalagi við eitthvað að öðrum framboðum," segir Ómar Ragnarsson formaður Íslandshreyfingarinnar. 27.2.2009 10:50
Sumarbústaðamorð tekið fyrir í dag Mál fjögurra Litháa sem hafa verið ákærðir fyrir að verða manni að bana í sumarbústaðahverfi í Grímsnesi í október á síðasta ári, verður tekið fyrir í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Hinir ákærður, ákváðu að bíða með að taka afstöðu til sakarefnisins þangað til í dag en málið var þingfest í síðustu viku. 27.2.2009 10:23
Lést úr sjaldgæfu heilameini Læknar hafa fundið út að dánarorsök hinnar 24 ára gömlu Geraldine Atkinson var sjaldgæf tegund heilameins. Um er að ræða æxli sem dregur tíu manns til dauða á ári í Bretlandi. 27.2.2009 09:54
Tíu milljónum úthlutað til sextán verkefna Afhending styrkja leikskólaráðs Reykjavíkur fór fram við hátíðlega athöfn í Tjarnarbúð Ráðhúss Reykjavíkur fyrr í vikunni. Alls var úthlutað 10 milljónum króna til 16 verkefna. 27.2.2009 09:33
Katrín sækist eftir endurkjöri - vill 2. sætið Katrín Júlíusdóttir, alþingismaður, hefur ákveðið að sækjast eftir endurkjöri og býður sig fram í prófkjöri Samfylkingarinnar í Suðvesturkjördæmi sem fram fer dagana 12.-14. mars. 27.2.2009 09:22
Jeppa stolið og sennilega laumað úr landi Flest bendir til þess að Grand Cherokee-jeppa hafi verið stolið nýverið og komið úr landi með bellibrögðum. Þegar átti að vitja hans á bílasölu í Reykjavík í gær kom í ljós að hann var horfinn. 27.2.2009 08:07
Jón Kjartansson með 65 tonn á tímann Fjölveiðiskipið Jón Kjartansson frá Eskifirði fékk um það bil 65 tonn af kolmunna á klukkustund á miðunum vestur af Írlandi nú í vikunni. Farmurinn, sem er 2.370 tonn, fékkst í aðeins sex hölum og segir á bloggsíðu skipverja að samtals hafi veiðarfærin verið í aðeins 36 klukkustundir í sjó. Löng sigling er hins vegar af miðunum og er Jón Kjartansson væntanlegur til Eskifjarðar á morgun. 27.2.2009 07:15
Staðinn að meintum ólöglegum veiðum Löndun hefst með morgninum úr litlum línubáti, sem áhöfn Fokkervélar Landhelgisgæslunnar stóð að meintum ólöglegum veiðum í skyndilokunarhólfi á Húnaflóa í gær. Skipstjórinn fékk fyrirmæli um að klára að draga veiðarfærin inn og halda rakleiðis til næstu hafnar, sem var Skagaströnd, og verður málið rannsakað þar. 27.2.2009 07:13
Slasaðist í fjórhjólaslysi Karlmaður slasaðist og missti meðvitund í fjórhjólaslysi í Skorradal í gærkvöldi. Þar sem erfitt var að komast að slysstaðnum landleiðina var óskað eftir þyrlu Landhelgisgæslunnar, sem sótti manninn og lenti með hann við Landspítalann í Fossvogi á áttunda tímanum í gærkvöldi. Fréttastofu er á þessari stundu hvorki kunnugt um tildrög slyssins né líðan mannsins. 27.2.2009 07:09
Aldísar Westergren leitað Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu leitar að Aldísi Westergren, sem sást síðast í Reykjavík 24. þessa mánaðar. Hún er 37 ára, 165 til 170 sentímetrar á hæð, með axlarsítt skollitað hár. Þeir sem geta veitt upplýsingar um Aldísi eru beðnir að hringja í lögregluna í síma 444-1000. 27.2.2009 07:07
Hörð aftanákeyrsla á Sæbraut Enginn slasaðist alvarlega í harðri aftanákeyrslu á Sæbraut í Reykjavík í nótt. Fólkið úr báðum bílunum ætlaði þó á slysadeild til rannsókna. Hins vegar stórskemmdust bílarnir og þurfti að fjarlægja þá með kranabílum. 27.2.2009 07:04
Jóhanna er í sérflokki Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði, segir að Jóhanna Sigurðardóttir, forsætisráðherra, sé í sérflokki hvað vinsældir og traust á meðal almennings varðar. 27.2.2009 03:00
Hætti við eftir tilhugalíf með Össuri Kristinn H. Gunnarsson alþingismaður ræddi um mögulegt framboð sitt fyrir Samfylkinguna við forystumenn Samfylkingarinnar. Þegar á reyndi hafði hann hins vegar sannfæringu fyrir öð 26.2.2009 23:19
Margar tilkynningar um eld á Keflavíkurflugvelli Þó nokkuð margar tilkynningar bárust til Neyðarlínu og lögreglu í dag vegna elds á Keflavíkurflugvelli. Engin hætta var á ferðum því um var að ræða æfingu slökkviliðsmanna. 26.2.2009 21:53
Seðlabankinn verður stjórnlaus um stund Gera má ráð fyrir að Jóhanna Sigurðardóttir tilkynni það eftir ríkisstjórnarfund á morgun hver verður settur tímabundið í embætti seðlabankastjóra. 26.2.2009 21:29
Jón Trausti Lúthersson: Hundaníðingur rekinn úr Fáfni „Honum var vikið úr klúbbnum fyrir um ellefu mánuðum síðan," segir Jón Trausti Lúthersson, forsvarmaður Fáfnis og Vítisengill um Ólaf Vilberg Sveinsson sem var dæmdur í dag fyrir að keyra öxlina í bringu tollvarða og gefa hundi hnéspark í kviðinn. 26.2.2009 17:00
Framtíð Ingibjargar skýrist á morgun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir greinir væntanlega frá því á morgun hvort hún býður sig fram til Alþingis í kosningunum í apríl. Jafnvel þótt hún bjóði sig fram útilokar hún ekki að Jóhanna Sigurðardóttir verði forsætisráðherraefni flokksins. 26.2.2009 20:21
Þyrlan kölluð út vegna fjórhjólaslyss Þyrla Landhelgisgæslunnar TF-EIR var kölluð út um klukkan tuttugu mínútur yfir sex í kvöld vegna fjórhjólaslyss sem varð í Skorradal. 26.2.2009 19:35
Telja myntsamstarf milli Íslands og Noregs vera óraunhæft Formaður Samfylkingarinnar og formaður norska Verkamannaflokksins telja báðir að horfast verði í augu við þá staðreynd að gjaldmiðlasamstarf Íslands og Noregs sé óraunhæft. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Samfylkingunni vegna fundar sem þau Ingibjörg Sólrún Gísladóttir og Jens Stoltenberg áttu við Bláa Lónið í dag. 26.2.2009 19:22
Skattrannsóknarstjóri rannsakar dótakassa FL Group Dótakassi FL Group er á meðal þess sem Skattrannsóknarstjóri hefur til athugunar í rannsókn sinni á félaginu. Í dótakassanum er meðal annars 400 hestafla BMW bifreið, snjósleðar og fjórhjól. 26.2.2009 19:03
Stóðu Háborgu að meintum ólöglegum veiðum Fokker flugvél Landhelgisgæslunnar, TF-SYN, stóð línubátinn Háborgu HU 10 að meintum ólöglegum veiðum innan skyndilokunarhólfs á Húnaflóa um eittleytið í dag. 26.2.2009 18:25
Seðlabankastjórar reknir Frumvarp um breytingar á stjórnskipulagi Seðlabanka Íslands varð að lögum nú á sjötta tímanum. Með frumvarpinu eru stöður seðlabankastjóranna Davíðs Oddssonar og Eiríks Guðnasonar lagðar niður og hætta þeir því 26.2.2009 17:45
Rósa Guðbjartsdóttir gefur kost á sér í prófkjöri Rósa Guðbjartsdóttir bæjarfulltrúi í Hafnarfirði gefur kost á sér í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Suðvesturkjördæmi sem fram fer 14. mars næstkomandi. 26.2.2009 17:08
Héraðsdómur ávaxtaði skuldina Héraðsdómur Reykjaness dæmdi Opale Seafood SAS til þess að greiða Vigni G. Jónssyni rétt tæpar hundrað og fimmtíu þúsund evrur vegna grásleppukavíarsviðskipta við Vigni. 26.2.2009 16:50
Forystumenn fjölmiðla saman á morgunverðarfundi Félag kvenna í atvinnurekstri(FKA) heldur morgunverðarfund á Hótel Loftleiðum,á morgun, föstudaginn 27. febrúar frá kl. 8.00 til 9.45. Yfirskrift fundarins er: ,,Er ekkert gott að frétta?" og í pallborði verða nokkrir þekktir fjölmiðlamenn. 26.2.2009 16:41
Ástráður kjörinn formaður landskjörstjórnar Ástráður Haraldsson, hæstaréttarlögmaður, var kjörinn formaður landskjörstjórnar á fundi stjórnarinnar í dag. Gísli Baldur Garðarsson sagði af sér sem formaður eftir að ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur var mynduð í byrjun mánaðarins. 26.2.2009 16:41
Hefur miklar áhyggjur af landflótta íslenskra lækna Gunnar Ármannsson framkvæmdarstjóri Læknafélags Íslands hefur miklar áhyggjur af landflótta íslenskra lækna. Hann segir mikinn áhuga vera á íslenskum læknum á norðulöndunum og nú síðast hafi komið fyrirspurnir frá Manitoba í Kanada. Hann segir að heilbrigðisráðherra verði að passa sig á því að tala ekki lækna frá landinu. 26.2.2009 16:06
Framsóknarmenn fagna siðareglum fyrir borgarfulltrúa Borgarstjórnarflokkur Framsóknarflokksins fagnar tillögum að siðareglum kjörinnna fulltrúa hjá Reykjavíkurborg en bendir jafnframt á nauðsyn þess að þær verði endurskoðaðar eftir tvö ár. Þá telur flokkurinn að hafa bera nokkur atriði í huga við lokaafgreiðslu reglnanna. Þetta kemur fram í bréfi sem Óskar Bergsson, borgarfulltrúi flokksins, lagði fram á fundi borgarráðs í dag. 26.2.2009 15:35
Magnús Þór vill sæti Kristins Magnús Þór Hafsteinsson, fyrrverandi þingmaður, hefur ákveðið að gefa kost á sér í annað sæti á lista Frjálslynda flokksins í Norðvesturkjördæmi. Við síðustu alþingiskosningar sat Kristinn H. Gunnarsson í sætinu en hann tilkynnti í Alþingi í dag að hann hefði sagt sig úr þingflokki flokksins líkt og Jón Magnússon gerði nýverið. 26.2.2009 15:28
Borgin fær milljarð að láni Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að taka einn milljarð að láni hjá Lánasjóði sveitarfélaga og er lánið er til 10 ára. Til tryggingar láninu standa tekjur borgarinnar. 26.2.2009 14:58
Heilbrigðisstofnun Austurlands hefur ítrekað farið fram úr fjárlögum Ríkisendurskoðun hefur framkvæmt stjórnsýsluúttekt á Heilbrigðisstofnun Austurlands, en kostnaður við stofnunina hefur ítrekað farið fram úr heimildum fjárlaga undanfarin ár. 26.2.2009 14:48
Sálfræðingur vill þingsæti Kolbrún Baldursdóttir, sálfræðingur og varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins býður sig fram í 4.-5. sæti í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Kolbrún hefur verið löggildur sálfræðingur frá 1992 og hlaut sérfræðileyfi Landlæknisembættisins í klínískri sálfræði 2008. 26.2.2009 14:37
Gaf hundi hnéspark og réðist á tollvörð Vítisengilinn og Fáfnismaðurinn Ólafur Vilberg Sveinsson var dæmdur fyrir að keyra öxl sína í bringu tollvarðar þegar leitað var að fíkniefnum í farangri hans á Leifsstöð í febrúar á síðasta ári. Áður rak hann hné sitt í kvið fíkniefnahunds sem stökk á hann og gaf til kynna að hann væri hugsanlega með fíkniefni í fórum sínum. 26.2.2009 14:12
Þingvallastjórnin þegir Vísir leitaði svara við ummælum Davíðs Oddsonar í frægu viðtali í Kastljósi Sjónvarpsins í vikunni. Tölvupóstur var sendur á alla ráðherra hinnar svokölluðu Þingvallastjórnar. Ekki hefur borist svar frá neinum meðlimum fyrrverandi ríkisstjórnar. Geir H. Haarde hefur reyndar tjáð sig í fjölmiðlum um ummæli Davíðs og það hefur Össur Skarphéðinsson einnig gert. 26.2.2009 13:44
Kanna stöðu Ingibjargar - þingmenn vilja að hún hætti Nánir samstarfsmenn Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, kanna nú stöðu hennar innan flokksins. Þingmenn eru meðal þeirra sem telja eðlilegt að hún stígi til hliðar. 26.2.2009 13:37
Frjálshyggjumenn tapa skaðabótamáli Frjálshyggjumaðurinn Hlynur Jónsson tapaði skaðabótamáli gegn ríkinu vegna meintrar ólögmætrar handtöku. Hlynur var handtekinn árið 2006 þegar hann, ásamt öðrum meðlimum Ungra Frjálshyggjumanna, hugðust mótmæla ríkiseinkasölu á áfengi. 26.2.2009 13:07
Vill opinbera rannsókn á hagsmunatengslum Óskars Ólafur F. Magnússon, borgarfulltrúi F-lista, hyggst leggja fram á næsta borgarstjórnarfundi tillögu um að fram fari opinber rannsókn á hagsmunatengslum Óskars Bergssonar, formanns borgarráðs, við byggingarverktaka í borginni. 26.2.2009 12:46
Áhyggjur af námsmönnum Menntamálaráðherra segir eðlilegt að hafa áhyggjur af því þegar tugir þúsunda námsmanna koma á vinnumarkaðinn í vor, í því mikla atvinnuleysi sem nú er í þjóðfélaginu. 26.2.2009 12:45
Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Innlent