Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fíkniefni fundust í söluturni í Reykjavík Allnokkuð af fíkniefnum fannst við eftirlit lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöld. Við húsleit í söluturni í Reykjavík fundust ætluð fíkniefni, ólöglegt tóbak og munir sem taldir eru vera þýfi. Húsleitin var framkvæmd að undangengnum dómsúrskurði en aðgerðin var framkvæmd í samvinnu við tollyfirvöld. 30.10.2008 14:08
Kappakstur og ofsaakstur orsök banaslyss Rannsóknarnefnd umferðarslysa segir að ökumaður bifhjóls sem lést í slysi á Kringlumýrarbraut við Listabraut í mars á þessu ári hafi verið í kappakstri við ökumann bifreiðar og ekið á ofsahraða. 30.10.2008 14:05
Hekla seldi tvo nýja bíla í síðustu viku Mikill samdráttur hefur verið í sölu á nýjum bílum í október. Í síðustu viku var seldur 21 nýr bíll á Íslandi. Jón Trausti Ólafsson markaðsstjóri Heklu staðfestir í samtali við Vísi að einungis tveir nýir bílar hafi selst hjá fyrirtækinu á sama tíma. Hann segir Heklu hinsvegar hafa fengið mikil viðbrögð erlendis frá við nýjum vef sem opnaður var á fimmtudaginn. 30.10.2008 13:44
Miðborgarþjónar áfram í bænum um helgar Borgarráð samþykkti á fundi sínum í dag að hafa áfram starfandi miðborgarþjóna aðfaranætur laugardaga og sunnudaga fram að áramótum. 30.10.2008 13:39
Um fimmtíu féllu í sprengjuárásum í Indlandi Að minnsta kosti fjörutíu og átta týndu lífi og þrjú hundruð særðust í sprengjuárásum í norðausturhluta Indlands í morgun. 30.10.2008 13:17
Greint frá samningi við IMF um leið og samkomulag liggur fyrir Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að greint verði frá samkomulagi stjórnvalda við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn (IMF) um aðgerðir í efnahagsmálum um leið og sjóðurinn hafi lagt blessun sína yfir lán til Íslands. 30.10.2008 13:01
Enn engar upplýsingar um laun eins ríkisbankastjóra Laun eins ríkisbankastjóra af þremur eru enn ekki gefin upp. Illugi Gunnarsson, segir nauðsynlegt að mál þessi séu uppá borðinu og vill að laun embættismanna almennt lækki í samræmi við það sem er að gerast í einkageiranum. 30.10.2008 12:38
Samið við SÁÁ um búsetuúrræði fyrir fyrrverandi fíkla Borgarráð hefur samþykkt tillögu Velferðarráðs um að gengið verði til samninga við SÁÁ um rekstur búsetuúrræðis með félaglegum stuðningi. 30.10.2008 12:33
Vill skýr svör varðandi skilyrði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins Guðjón Arnar Kristjánsson, formaður Frjálslynda flokksins, gagnrýndi ríkisstjórnina harðlega fyrir skort á upplýsingum um ástand efnahagsmála á umræðum á Alþingi í dag. 30.10.2008 12:14
Fjórtán þúsund í alvarlegum fjárhagserfiðleikum Hartnær fjórtán þúsund Íslendingar eru í alvarlegum fjárhagserfiðleikum. Einstæðir feður eru mun líklegri til að lenda í vanskilum en einstæðar mæður en langfjölmennasti hópur þeirrra sem eru á vanskilaskrá eru barnlausir karlmenn. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu frá Creditinfo Ísland. 30.10.2008 12:06
Vaxtahækkun leiði til fjölda gjaldþrota hjá heimilum og fyrirtækjum Guðni Ágústsson, formaður Framsóknarflokksins, sagði í umræðum um stöðu efnahagsmála og samkomulag við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn að hann teldi að vaxtahækkun Seðlabankans í vikunni myndi leiða til fjölda gjaldþrota hjá heimilum og fyrirtækjum. 30.10.2008 11:58
Stjórnvöld bera ábyrgð á umdeildri stýrivaxtahækkun Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hélt ræðu í þinginu fyrir stundu. Fór hún um víðan völl og ræddi meðal annars um umdeilda stýrivaxtahækkun Seðlabankans í vikunni. Deilt hefur verið um hvort hækkunin sé skilyrði frá Alþjóðagjaldeyrissjóðnum eða ekki. Ingibjörg sagði vaxtahækkunina vera á ábyrgð ríkisstjórnarinnar og ekki væri hægt að benda bara á Alþjóðagjaldeyrissjóðinn. 30.10.2008 11:48
Undirrituðu yfirlýsingu um samstarf við strandeftirlit Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, og Thad W. Allen, yfirmaður bandarísku strandgæslunnar, rituðu í gær, 29. október 2008, undir yfirlýsingu um samstarf strandgæslunnar og Landhelgisgæslu Íslands á fundi í Washington. 30.10.2008 11:38
Steingrímur segir stjórnvöld gefa misvísandi upplýsingar Undarlegur skortur á allri heilbrigðri sjálfsgagnrýni er skaðlegur Íslendingum í þeirri aðstæðum sem nú er uppi. Þetta kom fram í máli Steingríms J. Sigfússonar formanns Vinstri grænna á þingi í dag. 30.10.2008 11:28
Seðlabankinn greinir frá einum hluta samkomulagsins við IMF Seðlabankinn hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna umræðunnar undanfarið um hver hafi átt hugmyndina að því að hækka stýrivexti Seðlabankans. Ráðherrar í ríkisstjórninni hafa að mati bankans „undrast“ hækunina og sumir hverjir sagt að hún hafi ekki verið eitt af skilyrðum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Í rökstuðningi sínum á dögunum fyrir hækkuninni sagði bankinn að hækkunin væri hluti af því samkomulagi sem náðst hafi við IMF. 30.10.2008 11:06
Hafró leggur til að veidd verði 500 tonn af rækju í Arnarfirði Rækjustofninn í Arnarfirði virðist hafa náð sér verulega á strik og leggur Hafrannsóknarstofnun til að veiðar verði stundaðar þar í vetur veidd verði 500 tonn. 30.10.2008 10:43
Skuldir þjóðarbúsins verða 100 prósent af landsframleiðslu Skuldir ríkissjóðs munu fara úr 29 prósentum af vergri landsframleiðslu í ár í 100 prósent af vergri landsframleiðslu á næsta ári vegna þeirrar efnahagskreppu sem gengur yfir landið. Það mun jafnframt taka ríkissjóð nokkur ár að vinna sig út úr hallarekstri ríkissjóðs. Þetta kom fram í ræðu Geirs H. Haarde forsætsiráðherra sem flutti skýrslu um stöðu efnahagsmála og aðkomu Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. 30.10.2008 10:43
Skjárinn segir öllum upp Skjárinn, sem sér um rekstur SkjásEins, hefur sagt upp öllum sínum starfsmönnum. „Í ljósi mikils samdráttar á auglýsingamarkaði, ójafnrar samkeppni frá RÚV og óvissu um innkaupsverð á sjónvarpsefni frá útlöndum hefur Skjárinn tilkynnt öllum starfsmönnum sínum að þeim verði sagt upp frá og með 1. nóvember,“ segir í tilkynningu frá fyrirtækinu. Framkvæmdastjórinn segist vonast til að úr rætist þannig að uppsagnirnar þurfi ekki að taka gildi. Hjá Skjánum eru 40 fastráðnir og fimm verktakar. 30.10.2008 10:42
Fá 85 prósent úr Sjóði 9 hjá Glitni - Unnið að lausn annarra sjóða Glitnir mun í dag greiða allar eignir úr Sjóði 9 og leggja þá inn á sparnaðarreikninga í nafni hvers sjóðsfélaga í hlutfalli við eign þeirra. 30.10.2008 09:44
Segja stöðu Samherja sterka þrátt fyrir efnahagsóvissu Forsvarsmenn sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja fullyrða að staða fyrirtækisins sé sterk þrátt fyrir óvissu í efnahagsmálum. 30.10.2008 09:34
Munnlegur málflutningur í Keilufellsmáli Munnlegur málflutningur fer í dag fram í máli Ríkissaksóknara gegn fjórum Pólverjum sem ákærðir eru fyrir að hafa ráðist á sjö samlanda sína í Keilufelli í mars. Árásin var hrottaleg og beittu árásarmenn meðal annars kylfum, exi, slaghömrum og járnröri. Þeir hafa allir neitað sök í málinu. 30.10.2008 09:32
Sígarettusala í fríhöfnum um átta prósent af heildarsölunni Um 1,2 milljónir pakka af sígarettum voru seldar í fríhafnarverslunum á Keflavíkurflugfelli, Reykjavíkurflugvelli og Akureyrarflugvelli í fyrra. Þetta kemur fram í svari Árna Mathiesen fjármálaráðherra við fyrirspurn Ástu Möller, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 30.10.2008 08:57
Síldveiðiskip í Tromsö laus allra mála Síldveiðiskipin Guðmundur VE og Vilhlem Þorsteinsson EA, sem staðin voru að meintum ólöglegum veiðum í norskri lögsögu á laugardag og var beint til Tromsö, eru nú laus allra mála og farin aftur til veiða. 30.10.2008 07:14
Hugsanlega kveikt í bílum Elds varð vart í mannlausum bíl sem stóið fyrir utan fyrirtæki við Krókháls í Reykjavík um klukkan hálfþrjú í nótt. Þegar slökkviliðið kom á staðinn skíðlogaði í bílnum og var lakk farið að sviðna á nálægum bíl. 30.10.2008 07:11
Þrír á slysadeild eftir bruna í Rjúpufelli Allt tiltækt slökkvilið á höfuðborgarsvæðinu var sent að fjölbýlishúsi við Rjúpufell í Reykjavík um klukkan hálftólf í gærkvöldi eftir að tilkynnt var um eld í íbúð þar. 30.10.2008 07:09
Þekkt lögfræðistofa kannar réttarstöðu Íslands Íslenska ríkisstjórnin hefur samið við eina af helstu lögfræðistofum Lundúnar til þess að kanna möguleika á skaðabótakröfu breskra stjórnvalda vegna hruns bankakerfisins. Þetta kemur fram á vef Financial Times. 30.10.2008 00:30
Sakar Sjálftstæðisflokkinn um að halda þjóðinni í gíslingu Skúli Thoroddssen, framkvæmdastjóri Starfsgreinasambandsins, sakar Sjálfstæðisflokkinn um að halda þjóðinni í gíslingu með því að neita að taka til umræðu Evrópumál. 29.10.2008 20:56
Þakkar guði fyrir að börn sín séu á lífi í kjölfar gassprengingar Faðir tveggja barna sem brenndust illa í gassprengingu í fyrrakvöld þakkar guði fyrir að börnin sín séu á lífi. Fjórtán ára dóttir hans er á batavegi en fimmtán ára sonur hans er enn á gjörgæslu. Börnin eru óþekkjanleg vegna brunasára. 29.10.2008 18:41
Skora á stjórnvöld að hækka atvinnuleysisbætur Framsýn- stéttarfélag skorar á stjórnvöld að hækka atvinnuleysisbætur hið fyrsta til þess að koma til móts við þá einstaklinga sem þegar hafa misst vinnuna og þann mikla fjölda sem býr við ótryggt atvinnuöryggi og gætu því staðið uppi atvinnulausir á næstu vikum og mánuðum. 29.10.2008 21:50
Elsti taílenski staður landsins lækkar verð Taílenski matsölustaðurinn Síam í Hafnarfirði hefur ákveðið að lækka verð á öllum sóttum réttum um þrjúhundruð krónur. Vinsælustu réttirnir fara úr 1790 krónum í 1490 krónur. 29.10.2008 21:32
Starfsgreinasambandið og Launanefnd sveitarfélaga hefja viðræður Starfsgreinasambandið hóf í dag formlegar viðræður við Launanefnd sveitarfélaga vegna nýs kjarasamnings. 29.10.2008 20:51
ESB trúðboð í boði ríkisins Þingmaður Framsóknarflokksins segir að ríkisbankinn Nýi Glitnir boði skoðun sem gengur þvert gegn hagsmunum þjóðarinnar. 29.10.2008 20:45
Það ber feigðina í sér spili ráðherrar frítt Ríkisstjórnin þarf að leggja spilin á borðið og kynna stefnu sína og afla henni fylgis og hún verður að standa saman um hana, að mati Kristins H. Gunnarssonar þingmanns Frjálslynda flokksins. ,,Það ber feigðina í sér ef einstakir ráðherrar ætla að spila frítt." 29.10.2008 20:15
Ekki óhugsandi að ráðherrar fjúki vegna fjármálakreppunnar Ekki er óhugsandi að ráðherrar fái að fjúka eftir uppgjör vegna bankahrunsins. Þetta er mat stjórnmálafræðings sem segir það vart óbreytanlega staðreynd að íslenskum ráðamönnum verði ekki haggað vegna gagnrýni. 29.10.2008 19:45
Undrast persónulegt skítkast Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, undrast hve grunnt er á persónulegu skítkasti hjá þeim sem tala eins og aðild að Evrópusambandinu sé eina bjargráð Íslendinga. 29.10.2008 19:15
Segir forystuna samstíga í Evrópumálum Geir Haarde segir forystu Sjálfstæðisflokksins samstíga í afstöðu til Evrópumála, en varaformaður flokksins vill að Evrópusambandsaðild og upptaka Evru verði tekin til alvarlegrar skoðunar. 29.10.2008 19:11
Geir: Óveiðgandi að persónugera vandann Forsætisráðherra segir engin áform um að víkja Davíð Oddssyni seðlabankastjóra þrátt fyrir mótmæli fólks og afgerandi niðurstöðu skoðanakönnunar um að hann njóti lítils trausts. 29.10.2008 18:55
Tilboð Landsbankans til Seðlabankans var örþrifaráð Tilboð Björgólfs Thors og Landsbankamanna til Seðlabankans um sameiningu við Glitni - er fráleitt örþrifaráð manna sem voru í afneitun fram á síðustu stundu, segir Gylfi Magnússon, dósent í viðskiptafræði. Björgólfur hugðist með þessu gefa saman tvo dauðvona sjúklinga, hjónabandið hefði orðið stutt og þeim varla barna auðið, segir þrautreyndur bankamaður. 29.10.2008 18:36
Uppsagnir hjá BYGG: Enn eitt áfallið „Þetta er enn eitt áfallið á byggingamarkaði,“ segir Finnbjörn A. Hermannsson, formaður Samiðnar um uppsagnir hjá byggingafyrirtækinu BYGG. „Þetta er viðbót við hina 400 sem við vissum um þannig að þetta fer að nálgast 600 manns sem hafa misst vinnuna í þessari hrinu,“ segir hann. Hann segir stýrivaxtahækkun hafa endanlega gert út um vonir manna til að halda einhverju atvinnulífi hér gangandi. 29.10.2008 17:50
Sótti fund hinnar Norðlægu víddar ESB í Rússlandi Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra, sótti í gær fyrir hönd Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, utanríkisráðherra, fyrsta utanríkisráðherrafund hinnar Norðlægu víddar Evrópusambandsins, sem haldin var í Sankti Pétursborg í boði Rússlands. 29.10.2008 17:47
Árni vill skoða upptöku færeyskrar krónu Árni Johnsen, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði það til á Alþingi í dag að skoðað yrði að taka upp færeyska krónu í samfloti með Færeyingum. 29.10.2008 17:13
BYGG segir upp 160 - Nánast öllum hefur verið sagt upp Byggingafyrirtækið BYGG sagði í dag um 160 starfsmönnum upp störfum. Þetta var tilkynnt á starfsmannafundi hjá fyrirtækinu fyrr í dag. 29.10.2008 16:43
Fjölmargar fregnir af uppsögnum úti á landi Þær berast ört fréttirnar af uppsögnum víða á landinu þessa dagana. Á vef stéttarfélagsins Bárunnar á Suðurlandi kemur fram að samkvæmt heimildum félagsins hafi tvö fyrirtæki í byggingaiðnaði á Selfossi ákveðið að segja öllu sínu starfsfólki upp störfum. 29.10.2008 16:31
Íslensk stjórnvöld í óformlegum samskiptum við Kínverja um lán Íslensk stjórnvöld hafa verið í óformlegum samskiptum við Kínverja um hugsanlegt lán. Þetta staðfesti Geir H. Haarde forsætisráðhera í samtali við fréttamann Stöðvar 2 í dag. 29.10.2008 16:20
Segir LÍN brjóta jafnræðisreglu Vaka, félag lýðræðissinnaðra stúdenta, sendi á dögunum fyrirspurn til Lánasjóðs íslenskra námsmanna sökum meints brots á jafnræðisreglu. 29.10.2008 15:42