Fleiri fréttir

Ljósmæður vilja launaleiðréttingu

Ljósmæðrafélag Íslands krefst þess að ríkisstjórnin gefi samninganefnd ríkisins umboð til þess að semja við ljósmæður um launaleiðréttingu þar sem þær séu með lægri laun en allar aðrar háskólastéttir með sambærilega menntun.

Umferðartafir á Hafnarfjarðarvegi

Vegna framkvæmda á Hafnarfjarðarvegi má gera ráð fyrir umferðartöfum frá Kópavogsleik í Fossvog frá klukkan 9 og fram eftir degi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Vegagerðinni.

Benedikt kominn þrjár sjómílur

Þegar rætt var við aðstoðarmenn Benedikts LaFleur fyrir skömmu fengust þær fréttir að sundið gengi vel og væri Benedikt kominn um þrjár sjómílur frá Dover.

Dregur verulega úr vöruskiptahalla

Vöruskiptahallinn fyrstu fimm mánuði ársins nam 32 milljörðum króna sem er rúmum fimm milljörðum króna minna en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar.

Vilja ekki banna viðskipti með selskinn

Matvælaráðherrar Norðurlandanna lýsa yfir áhyggjum af fyrirhuguðu banni Evrópusambandsins við viðskiptum með selskinn og hvetja til að Evrópusambandið gæti jafnvægis í verndun og nýtingu selastofna.

Ekið á brunahana við Sundlaugarveg

Ekið var á ljósastaur og rafmagnskassa í Hveragerði í nótt og stakk ökumaður af. Að sögn lögreglunnar á Selfossi er þó vitað hver á í hlut og verður haft samband við hann.

Benedikt S. LaFleur lagður af stað

Sundkappinn Benedikt S. LaFleur lagði í morgun af stað frá Dover á Englandi í sundferð sína yfir Ermarsund en sundið tileinkar Benedikt baráttunni gegn mansali.

Akkeri híft upp eftir tæp 130 ár í sjó

Akkerið úr seglskipinu Jamestown var híft upp úr sjó, síðastliðinn þriðjudag, eftir að hafa legið þar í 127 ár. Skipið sökk árið 1881 eftir að hafa rekið mannlaust að landi við Ósabotna.

Þungir bensínfætur á Suðurnesjum

Fimm ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur á Reykjanesbrautinni eftir hádegi í dag. Sá er hraðast ók mældist á 134 kílómetra hraða á klukkustund. þar sem hámarkshraðinn er 90 km/klst.

Land Cruiser bifreið velti við Víkurveg

Land Cruiser bifreið fór tvær veltur á Vesturlandsvegi við Víkurveg upp úr klukkan fjögur í dag. Að sögn lögreglunnar voru sjö stúlkur, á leið úr sumarbústaðarferð, í bílnum. Allar sluppu þær ómeiddar.

Vinnuslys í Njarðvík

Rétt fyrir kl. 11:00 í dag varð vinnuslys í Njarðvík. Þar hafði starfsmaður fallið úr skæralyftu, sem hann var að vinna í og niður á steinsteypt gólf. Fallið var um 4 metrar.

Fundarlaun í boði eftir innbrot í bíl

Brotist var inn í dökkgrænan Ford Fiesta við Austurbæjarskólann í nótt og þaðan stolið töskum með tölvuigögnum. Eigandi bílisins heitir fundarlaunum ef gögnunum verður skilað aftur.

Mikið af rusli, einkum áldósir, eftir stórtónleikana

Svo virðist sem einhverjir af þeim rúmlega 30 þúsund manns sem sóttu stórtónleika Bjarkar og Sigur Rósar í Laugardalnum í gær hafi misskilið boðskap þeirra. Mikið af rusli einkum áldósir lá eftir í brekkunum fyrir ofan Þvottalaugarnar.

Kvartað undan snjósköflum á Öxnadalsheiði

Lögreglunni á Akureyri bárust kvartanir um snjóskafla frá ökumönnum sem leið áttu um Öxnadalsheiðina í nótt. Einn þeirra spurði raunar hvort ekki ætti að hálkuverja heiðina í nótt.

Biðja að heilsa drottningunni

„Skemmtu þér vel í kóngsins Köben. Við biðjum að heilsa drottningunni,“ sagði Kristinn Kristinsson, forseti Kiwanisklúbbsins Höfða í Grafarvogi, þegar hann afhenti Rakel Árnadóttur 100.000 króna styrk í Danmerkursjóð hennar.

Tónleikahald tókst eins og best var á kosið

Talið er að um þrjátíu þúsund manns hafi lagt leið sína í Laugardalinn í dag og í kvöld til þess að hlýða á tónleika Sigur Rósar, Ólafar Arnalds og Bjarkar Guðmundsdóttur.

Háskólamenn semja um 20.300 króna hækkun

Samkomulag náðist í kjaraviðræðum 23 stéttarfélaga háskólamanna við ríkið í kvöld. Háskólamenn fá jafnframt endurskoðun á starfsmenntunarmálum.

Sérsveitin send til Grímseyjar að handtaka vopnaðan afbrotamann

Sérsveit lögreglunnar var send til Grímseyjar nú skömmu fyrir kvöldmatinn til að handtaka afbrotamann þar. Var maðurinn vopnaður hníf og sleggju og ógnaði eyjabúum sem og gestum á árlegu sjóstangaveiðimóti sem þar er haldið um helgina.

Vilhjálmur segir krónuna ónýta og fjöldauppsagnir framundan

Peningastefna Seðlabankans er úr sér gengin og krónan ónothæf fyrir íslensk fyrirtæki að mati Vilhjálms Egilssonar framkvæmdastjóra Samtaka atvinnulífsins. Hann segir ástandið alvarlegt og að það eigi eftir að versna með tilheyrandi fjöldauppsögnum.

Verslun á Selfossi blómstrar í kjölfar jarðskjálftans

Verslun á Selfossi blómstrar sem aldrei fyrr í kjölfar Suðurlandsskjálftanna og hafa flatskjáir notið sérstakra vinsælda. Minnir ástandið á jólavertíðina og rúmlega það, að sögn Orra Smárasonar verslunarstjóra BT á Selfossi.

Augun beinast að Kappa frá Kommu

Hestamenn eru sumir farnir að spá því að Kappi frá Kommu verði næsti Orri frá Þúfu eftir að hann óvænt sló heimsmet í stóðhestadómum á dögunum. Kappi kemur frá hrossaræktarbúi í Skagafirði sem sendir tuttugu hross á landsmót hestamanna í næstu viku.

Esjudagurinn haldinn hátíðlegur í dag

Ferðafélag Íslands og SPRON halda Esjudaginn hátíðlegan í dag. Afar fjölbreytt fjölskyldudagskrá verður í boði í allan dag en hátíð hófst kl. 13.00

Suðurstrandarvegur boðinn út

Vegagerðin hefur boðið út stærsta hluta Suðurstrandarvegar, þess kafla sem liggur milli Þorlákshafnar og Krýsuvíkur, og á verkinu að vera að fullu lokið eftir þrjú ár.

Sammála því að Norðurpólsísinn sé að hverfa

Þór Jakobsson veðurfræðingur er sammála mati bandaríska vísindamannsins Mark Serreze um að heimskautaísinn við Norðurpólinn sé að hverfa og að pólinn verði íslaus innan tíðar.

Hitinn á hálendinu er víða við frostmarkið

Fremur kalt var á landinu í morgunsárið miðað við árstíma en ísköld norðanátt leikur um landið. Hiti á hálendinu var við frostmarkið, allt frá Hveravöllum til Kárahnjúka.

Brotist inn í pylsuvagninn á Akureyri í nótt

Nokkur erill var hjá lögreglunni á Akureyri í nótt vegna ölvunnar fólks í bænum. Þá var tilkynnt um innbrot í pysluvagninn í miðbæ Akureyrar í nótt. Það mál er upplýst og munu ölvaðir unglingar hafa staðið að innbrotinu.

Talsvert tjón í eldsvoða í myndlistarskólanum á Akureyri

Rétt fyrir miðnætti í gærkvöldi barst slökkviliði Akureyrar tilkynning um eld í myndlistarskólanum í Kaupvangsstræti. Allt vakthafandi lið frá aðalstöð og flugvelli var kallað á staðinn, ásamt því að mannskapur af tveimur frívöktum var kallaður til.

Pólstjörnukarl dæmdur aftur

Bjarni Hrafnkelsson, sem í febrúar hlaut átján mánaða fangelsisdóm fyrir aðild sína að Pólstjörnumálinu svokallaða, hefur verið dæmdur fyrir brot á lögum um eftirlit með skipum, lögum um vaktstöð siglinga og lögum um atvinnuréttindi skipstjórnarmanna og áhafnalögum.

800 misst vinnuna í hópuppsögnum

Samtals hafa 800 manns misst vinnuna í hópuppsögnum á árinu. Ellefur tilkynningar um hópuppsagnir hafa borist vinnumálastofnun frá áramótum þar af fimm frá því í byrjun síðasta mánaðar.

Ekki ríkisstjórninni að þakka

Ingibjörg Þórðardóttir, formaður félags fasteignasala, segir tvöföldun þinglýstra kaupsamninga á höfuðborgarsvæðinu miðað við síðustu viku ekki aðgerða ríkisstjórnarinnar að þakka.

Sjá næstu 50 fréttir