Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skógareldar ógna heimilum í Malibu Skógareldar hafa eyðilagt á annan tug heimila í Malibu í Kaliforníu í dag. Fjöldi íbúa hefur þurft að flýja heimili sín vegna eldanna sem berast hratt um svæðið. Myndir sem sýndar hafa verið á sjónvarpsstöðvum vestanhafs sýna eldtungur gleypa heimili í hlíðum Malibu en ekki er vitað hversu mörg hús hafa orðið eldinum að bráð. 24.11.2007 17:17
Tónleikum Kolbeins Ketilssonar frestað Tónleikum Kolbeins Ketilssonar tenórsöngvara og Gerrit Schuil píanóleikara í Kirkjuhvoli við Vídalínskirkju í Garðabæ klukkan 17 í dag hefur verið frestað. Ástæðan eru forföll Kolbeins. Tónleikarnir verða auglýstir síðar. 24.11.2007 16:44
Varðskip kom vélarbiluðum báti til hjálpar Varðskip Landhelgisgæslunnar fór í morgun að dragnótabátnum Jóni á Hofi sem var vélarvana um 25 sjómílur norðvestur af Garðskaga út af Reykjanesi. Tilkynning barst til gæslunnar klukkan átta í morgun. Ellefu manna áhöfn er um borð í bátnum. Varðskip kom taug í skipið á tólfta tímanum og dregur nú bátinn í land. Búist er við að skipin verði komin til Reykjavíkur um kvöldmatarleitið í kvöld. 24.11.2007 14:17
Líkfundarmaður ferðaðist á eftirnafni konu sinnar Tomas Malakauskas sem fékk dóm í Líkfundarmálinu svokallaða ferðaðist hingað til lands á eftirnafni konu sinnar samkvæmt heimildum Vísis. Jón Bjartmarz yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra segir að greiningardeild embættisins hafi haft grunsemdir um að hann væri kominn hingað til lands og hafið leit að honum á mánudag ásamt sérsveit Ríkislögreglustjóra. 24.11.2007 13:13
Sjálfstæðiskonur funda um jafnréttisfrumvarp Jóhönnu Sjálfstæðiskonur efndu til fundar í Valhöll í morgun um jafnréttisfrumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Jóhanna sagði tíma kominn til að sýna klærnar í jafnréttismálum þegar hún mælti fyrir frumvarpinu í byrjun mánaðarins. 24.11.2007 12:45
Sjálfstæðismenn unnu skemmdarverk á REI Skemmdarverk Sjálfstæðisflokksins á vörumerkinu REI má líklega meta á milljarðatugi, segir Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra á bloggi sínu dag. Hann er harðorður í garð Sjálfstæðismanna og segir harðvítugustu innanflokksátök seinni ára í Sjálfstæðisflokknum hafa nánast ónýtt vörumerki REI og stórskaðað viðskiptavild Orkuveitunnar. 24.11.2007 10:12
Réðust grímuklæddir og vopnaðir inn í verslun Fimm til sex piltar sem réðust vopnaðir inn í verslun Dominons í Spönginni í Grafarvogi á ellefta tímanum í gærkvöldi eru enn ófundnir. Lögreglan hafði mikinn viðbúnað í hverfinu eftir að tilkynning barst um ránstilraun piltanna og stöðvuðu alla bíla á leið út úr Grafarvoginum. 24.11.2007 09:54
Varað við hálku Vegagerðin varar við hálku um allt land, Þá er snjóþekja víða en stórhríð í Mývatnssveit og skafrenningur víða á Austurlandi. 24.11.2007 09:35
Starfsemi hafin á Tæknivöllum Starfsemi er hafin á stærstum hluta iðnaðarsvæðis á svonefndum Tæknivöllum á Miðnesheiði. Að sögn Ríkharðs Ibsen, framkvæmdastjóra Lykil ráðgjafar, hafa 22 skemmur verið leigðar út og eftir standa þrjár skemmur. Meðal fyrirtækja á Tæknivöllum eru, ÍAV þjónusta ehf., Hringrás, Vélsmiðjan Völlur og Bílaleigan Geysir. 24.11.2007 00:01
Vopnuð ránstilraun í Spönginni Lögreglan lokaði Fjallkonuvegi á ellefta tímanum í kvöld vegna vopnaðrar ránstilraunar á pizzastaðnum Dominos í Spönginni. 24.11.2007 00:01
Íbúðaverð mun áfram hækka á næstu árum Íbúðaverð mun halda áfram að hækka á næstu árum þótt hægja muni verulega á hækkunarhraðanum. Framboð á fasteignamarkaði virðist hafa náð hámarki og mun heldur minnka á næstu árum, en háir vextir, erfiðara aðgengi að lánsfé og kólnandi vinnumarkaður munu draga úr eftirspurn á markaði næstu mánuði og ár. 23.11.2007 20:28
Bifreið eyðilagðist í eldi Eldur kviknaði í jeppabifreið sem var undir Eyjafjöllum, á leið vestur Suðurlandsveg, um hádegisbil í dag. Að sögn lögreglunnar á Hvolsvelli stöðvaði ökumaðurinn bifreiðina þegar hann sá rjúka upp með gírstönginni. Hann kallaði á slökkvilið úr Rangárvallarsýslunni sem kom og slökkti eldinn. Bifreiðin er talin mikið skemmd, ef ekki ónýt. 23.11.2007 21:29
Þrjú voru flutt á slysadeild eftir bílveltu á Laugarvatnsvegi Þrjú voru flutt á slysadeild eftir að bifreið valt á Laugarvatnsvegi við bæinn Efra Apavatni rétt fyrir klukkan sjö í kvöld. Bíllinn fór út af veginum og fór tvær veltur. Hálka og slabb er á veginum að sögn lögreglunnar á Selfossi. Fólkið er ekki talið alvarlega slasað að sögn lögreglu en bíllinn er hins vegar ónýtur. 23.11.2007 20:45
Alvarlegt bílslys í Hrútafirði Tveir karlmenn slösuðust, annar alvarlega, þegar bíll valt í Hrútafirði norðan við Borðeyri rétt fyrir klukkan fimm í dag. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð til og flutti þá slösuðu til Reykjavíkur Að sögn lögreglunnar á Blönduósi er mikil hálka á veginum þar sem slysið varð. 23.11.2007 19:26
Eldur af mannavöldum Við rannsókn lögreglunnar í Vestmannaeyjum á bruna í húsnæðinu, þar sem veitingastaðurinn Kaffi Kró er, sem tilkynntur var til lögreglu um miðjan dag í gær kom í ljós að nokkur ungmenni undir 15 ára aldri höfðu verið inni í húsinu að fikta með eld. 23.11.2007 19:04
Davíð kallaði framsóknarmenn veimiltítur Ný útgáfa að fjölmiðlafrumvarpi ríkisstjórnar Davíðs Oddssonar dagaði uppi eftir leynifund Guðna Ágústssonar þáverandi varaformanns Framsóknarflokksins með forseta Íslands, þar sem fram kom að forsetinn myndi óhikað og afdráttarlaust hafna frumvarpinu. Þetta kemur fram í nýrri ævisögu Guðna. 23.11.2007 18:48
Einkaþotur háværari en farþegavélar Einkaþota gefur frá sér meiri hávaða en farþegaflugvél þegar horft er til lendingar. Kvörtunum vegna hávaða frá Reykjavíkurflugvelli fer fjölgandi. 23.11.2007 18:39
Lögregla truflaði sýningu hryllingsmyndar Lögregla fékk tilkynningu í dag frá manni sem hélt að nágrannar sínir væru í neyð staddir inni í íbúð sinni. Lögreglan brást skjótt við en þegar barið var á dyr hjá fólkinu sem óttast var um, kom kona á þrítugsaldri til dyra og furðaði sig mjög á þessari heimsókn lögreglunnar. 23.11.2007 17:21
Háskóli Íslands hyggst stórefla matvælarannsóknir Háskóli Íslands stefnir að því að fjölga verulega nemendum í grunn- og framhaldsnámi í matvælafræðum, matvælaverkfræði, líftækni og matvælaöryggi, samkvæmt samstarfssamningi sem HÍ og Matís hafa undirritað. 23.11.2007 17:12
Starfsmenntaverðlaunin 2007 afhent Icelandair, Miðstöð símenntunar á Suðurnesjum og Þórunn H. Sveinbjörnsdóttir hlutu Starfsmenntaverðlaunin 2007 sem afhent voru í húsi BSRB á fimmta tímanum í dag. 23.11.2007 16:51
Helgi í Góu dæmdur til að greiða 200 þúsund í sekt Helgi Vilhjálmsson athafnamaður, oft kenndur við Góu, var í Héraðsdómi Reykjaness í dag dæmdur til að greiða 200 þúsund krónur í sekt til ríkissjóðs fyrir að hafa ráðið til sín í vinnu þrjár konur sem ekki höfðu tilskilinn atvinnu og dvalarleyfi. 23.11.2007 15:54
Ekki stjórnarfundur hjá OR fyrr en í næstu viku Bryndís Hlöðversdóttir, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, segir að ekki verði boðað til stjórnarfundar í Orkuveitunni fyrr en í næstu viku til þess að ræða málefni REI. 23.11.2007 15:53
Tveir úr Fáskrúðsfjarðarmáli hafa áður siglt skútu til Íslands Vísir hefur fyrir því öruggar heimildir að Guðbjarni Traustason, sem sigldi seglskútu fullri af fíkniefnum til Fáskrúðsfjarðar um miðjan september, hafi siglt seglskútu hingað til lands haustið 2005. 23.11.2007 15:10
Skjárinn segir upp 13 manns Skjárinn, sem rekur meðal annars SkjáEinn, hyggst segja upp 13 fastráðnum starfsmönnum sem starfað hafa við framleiðslu á innlendu efni og hyggst í staðinn semja við framleiðslufyrirtæki um innlenda framleiðslu fyrirtækisins. 23.11.2007 14:48
Kópavogsbær opnar eigin vatnsveitu Kópavogsbær er orðinn sjálfur sér nægur um vatn eftir að vatnsveita bæjarins var opnuð í dag. 23.11.2007 14:36
Tvísköttunarsamningur gerður við Indverja Árni Mathiesen fjármálaráðherra undirritaði í dag ásamt starfsbróður sínum á Indlandi samning milli landanna til þess að koma í veg fyrir tvísköttun. 23.11.2007 14:17
Stal nýjum gallabuxum en skildi gamlar eftir Lögreglan á höfuborgarsvæðinu hafði afskipti af tveimur bíræfnum 14 ára stúlkum sem rænt höfðu gallabuxum og snyrtivörum í Smáralind. 23.11.2007 14:08
Guðmundur í Byrginu kærir þjófnað Guðmundur Jónsson, kenndur við líknarfélagið Byrgið, kærði í byrjun nóvember þjófnað á munum sem hann segir tilheyra Byrginu. Kæran kom í kjölfarið á því að karlmaður fór upp á Efri-Brú, þar sem Byrgið var rekið áður en því var lokað vegna gruns um fjármálamisferli, og fékk afhenta muni og varning sem þar var geymdur í læstri geymslu. 23.11.2007 13:59
Það er dýrt að fyll´ann 25 ára gamall karlmaður var dæmdur í Héraðsdómi í tveggja mánaða fangelsi fyrir að dæla bensíni á bíl sinn og aka á brott án þess að borga. 23.11.2007 12:53
Sala á Íbúðalánasjóði hemur verðbólguvæntingar Sala á Íbúðalánasjóði væri mikilvægt skref til að hemja verðbólguvæntingar og skapa skilyrði fyrir lækkun stýrivaxta, segja forstjóri Askar Capital og stjórnarformaður Milestone. 23.11.2007 12:49
Ungur innbrotsþjófur dæmdur Þrír karlmenn, á aldrinum 17 til 23 ára voru í dag dæmdir fyrir nokkur innbrot sem þeir frömdu fyrr á þessu ári. Mennirnir rændu meðal annars flatskjám, fartölvum og stafrænum myndavél. Einn mannana var aðeins 16 ára gamall þegar brotin voru framin, 23.11.2007 12:49
Mikilvægt að leiða mál REI til lykta sem fyrst „Þetta er niðurstaðan og ég held að það felist í orðanna hljóðan að í samkomulagi geti báðir aðilar unað við sitt,“ segir Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest, um það samkomulag sem Orkuveita Reykjavíkur hefur gert við hann og Jón Diðrik Jónsson. 23.11.2007 12:30
Sköðuðust ekki í eiturefnaleka í Írafossi Öll sex manna áhöfn flutningaskipsins Írafoss var flutt til skoðunar á eiturefnadeild Landsspítalans í gærkvöldi, eftir að eitruð efni bárust inn í vistarverur skipverja. Engin skaðaðist varanlega. 23.11.2007 12:07
Bjarni stjórnarformaður REI til áramóta Orkuveita Reykjavíkur annars vegar og eignarhaldsfélög Bjarna Ármannssonar og Jóns Diðriks Jónssonar hins vegar hafa komist að samkomulagi um að Orkuveitan kaupi aftur það hlutafé í Reykjavik Energy Invest sem þau lögðu inn í félagið í september síðastliðnum. 23.11.2007 11:40
Fjórðungur bíla á nagladekkjum um miðja nóvember Fjórðungur bifreiða í Reykjavík reyndist vera á nagladekkjum samkvæmt talningu sem gerð var um miðjan nóvember. 23.11.2007 11:35
Línubátar með pokabeitu afla tvöfalt meira en aðrir Línubátar sem gera út við Húnaflóann og nota pokabeituna frá Súðavík afla tvöfalt meir en þeir bátar sem nota hefðbundna beitu. Þeir sem nota pokabeituna fá að jafnaði 300 kg á balann en þeir sem nota hefðbundna beitu fá 150 kg að meðaltali. 23.11.2007 11:25
Guðbrandur frá MS til Auðhumlu Guðbrandur Sigurðsson hættir sem forstjóri Mjólkursamsölunnar um næstu áramót en heldur áfram sem forstjóri Auðhumlu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá félögun. Magnús Ólafsson tekur við forstjórastarfu hjá MS í stað Guðbrands. Magnús var um árabil forstjóri Osta- og smjörsölunnar og síðar aðstoðarforstjóri MS. 23.11.2007 11:13
Kveikt í rusli við íþróttamiðstöðina í Austurbergi Hurð við ruslageymslu í íþróttamiðstöðinnni í Austurbergi í Breiðholti eyðilagðist í bruna í nótt. 23.11.2007 10:42
Nýr framkvæmdastjóri Hrafnistuheimilanna Pétur Magnússon hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hrafnistuheimilanna frá og með 31. janúar. Hann tekur við af Sveini Skúlasyni sem gegnt hefur starfi forstjóra í tæp 10 ár en hefur nú ákveðið að hætta. 23.11.2007 10:17
Sjö af hverjum tíu ljúka háskólanámi innan tíu ára Rúmlega 70 prósent þeirra sem skrá sig í háskólanám á Íslandi ljúka því innan tíu ára. Þetta sýna nýjar tölur Hagstofu Íslands um brautskráningarhlutfall. 23.11.2007 10:10
Eiturefni bárust inn í vistarverur skipverja Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var með töluverðan viðbúnað í gærkvöld eftir að eiturefni í lestum flutningaskips í Sundahöfn bárust inn í vistarverur skipverja. 23.11.2007 10:02
Salan á hlut Reykjanesbæjar í HS kærð til Umboðsmanns Alþingis Guðbrandur Einarsson bæjarfulltrúi A-listans í Reykjanesbæ hefur leitað álits umboðsmanns alþingis á vinnubrögðum Árna Sigfússonar bæjarstjóra og meirihluta sjálfstæðismanna við sölu hlutar í Hitaveitu Suðurnesja. 23.11.2007 09:36
Óveður undir Hafnarfjalli og snjókoma á Hellisheiði Vegagerðin varar við óveðri undir Hafnarfjalli og hálku og snjókomu á Hellisheiði. 23.11.2007 08:25
Ferskum fiski frá Kanada dreift um Keflavíkurflugvöll Útvegsfyrirtæki á Nýfundnalandi í Kanada eru að hefja tilraunir með útflutning á ferskum fiski til Evrópu, sem dreift yrði frá Kefalvíkurflugvelli. 23.11.2007 08:01
Hafís óvenju nálægt landinu Gisinn hafís er óvenju nálægt landi norður af Straumnesi. Þetta kom í ljós í ísflugi Landhelgisgæslunnar í gær. 23.11.2007 07:52