Innlent

Sjálfstæðiskonur funda um jafnréttisfrumvarp Jóhönnu

Sjálfstæðiskonur efndu til fundar í Valhöll í morgun um jafnréttisfrumvarp Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra. Jóhanna sagði tíma kominn til að sýna klærnar í jafnréttismálum þegar hún mælti fyrir frumvarpinu í byrjun mánaðarins.

Þegar svipað frumvarp var kynnt í vor sagði Bjarni Benediktsson þingmaður Sjálfstæðismanna það of róttækt og vildi meðal annars ekki afnema launaleynd en ákvæði um það er í nýja frumvarpinu. Það var Landssamband sjálfstæðiskvenna sem stóð fyrir fundinum í morgun.

Ekki náðist í fundarmenn fyrir hádegisfréttir Stöðvar 2.

Samtök atvinnulífsins sendu frá sér yfirlýsingu í gær og segja skaðlegar og íþyngjandi reglur í fyrirliggjandi frumvarpi. Samtökin gera alvarlegar athugasemdir við fjölmörg atriði þess þótt þau séu sammála markmiðinu um að koma á jafnrétti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×