Fleiri fréttir

Segir leitun að spilltari stjórnmálamanni

Sverrir Hermannsson, fyrrverandi bankastjóri Landsbankans, segir leitun að spilltari stjórnmálamanni en Finni Ingólfssyni fyrrverandi viðskipta- og iðnaðarráðherra, en Finnur gagnrýndi Sverri harkalega í þættinum Mannamál á Stöð 2 í gær.

39 Suðurnesjamenn kærðir fyrir hraðakstur í dag

Lögreglan á Suðurnesjum hélt í dag úti öflugu eftirliti við skóla á svæðinu með þeim afleiðingum að 39 ökumenn voru kærðir fyrir of hraðan akstur. Þrír ökumenn voru sviptir ökuleyfi fyrir að aka of hratt í grennd við skóla og óku þeir á 64 til 66 kílómetra hraða á klukkustund þar sem hámarkshraði er 30.

Farið fram á gæsluvarðhald í hnífstungumáli

Lögreglustjórinn á Selfossi óskaði eftir því við Héraðsdóm Suðurlands að maður sem grunaður er um að hafa stungið annan mann með hníf við Hellisheiðarvirkjun um helgina verði úrskurðaður í gæsluvarðhald til næstkomandi mánudags.

Ástarævintýrinu lauk eftir landsleik á Ásláki

Það var magnþrungið andrúmsloftið í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun. Flugmaður hjá Icelandair var þar mættur ásamt fyrrum unnustu sinni frá Venesúela. Flugmaðurinn er sakaður um heimilisofbeldi gegn stúlkunni en hún hefur mikið látið fyrir sér fara síðan hún kom hingað til lands í september á síðasta ári.

Heimild Skipta skapar ekki óeðlileg fordæmi

Geir H. Haarde forsætisráðherra segir þá ákvörðun fjármálaráðherra að veita fyrirtækinu Skiptum heimild til að fresta skráningu í Kauphöll Íslands ekki skapa óeðlileg fordæmi fyrir aðra samninga ríkisins. Hann segir að verið sé að bregðast við ófyrirséðum og óvenjulegum aðstæðum.

Verður að loka torrent.is

Sýslumaðurinn í Hafnarfirði hefur fallist á lögbannsbeiðni á starfsemi skráardeilingarsíðunnar torrent.is sem nokkur höfundarréttarsamtök lögðu fram fyrr í dag.

Prúðustu ungmennin búa á Álftanesi

Álftanes er með einna lægstu tíðni afbrota miðað við íbúafjölda og eru afbrot, svo sem innbrot og þjófnaðir, afar fátíð þar miðað við önnur svæði í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þetta kom fram á fundi sem lögreglan átti með lykilfólki frá Áfltanesi síðastliðinn miðvikudag.

Óheimilt að fara í fermingafræðsluferðir á skólatíma

Grunnskólar geta ekki skipulagt ferðir í tengslum við fermingarfræðslu á skólatíma. „Slíkt samræmist ekki aðalnámskrá eða grunnskólalögum," segir Arnór Guðmundsson, skrifstofustjóri í menntamálaráðuneytinu.

Þóttist vera eldri Pólverji

Lögreglustjórinn á Eskifirði hefur höfðað opinbert mál á hendur Pavel Janas fyrir að þykjast vera annar en hann er.

Hvetur OR og Ölfus til að endurskoða áform um Bitruvirkjun

Bæjarstjórn Hveragerðisbæjar leggst alfarið gegn áformum Orkuveitunnar um að reisa Bitruvirkjun og hvetur fyrirtækið og nágrannasveitarfélagið Ölfus til þess að endurskoða áform sín um framkvæmdir á og við Ölkelduháls og Bitru.

Söfnuðu 400 þúsund krónum í zumba-dansi

Fjögur hundruð þúsund krónur söfnuðust í hópdansi Hreyfingar í Valsheimilinu fyrir um tveimur vikum en þar dönsuðu gestir zumba til styrktar UNIFEM á Íslandi.

Offita að verða stórt heilbrigðisvandamál

„Offita er að verða eitt stærsta heilbrigðisvandamál á næstu árum, " segir Ásta Ragnheiður Jóhannesdóttir. Hún hefur lagt fram þingsályktunartillögu um að heilbrigðisráðherra beiti sér fyrir því að þeir sem eru á auglýsingamarkaði beini ekki auglýsingum um óholla matvöru að börnum. Ásta Ragnheiður var í hádegisviðtalinu hjá Lillý Valgerði Pétursdóttur á Stöð 2 í dag.

Fara fram á lögbann á torrent.is

Samtök myndréttarhafa á Íslandi, Samtök tónlistarrétthafa og Samtök íslenskra kvikmyndaframleiðenda hafa farið fram á tímabundið lögbann á starfsemi skráardeilningarsíðunnar torrent.is vegna gruns um höfundarréttarbrot.

Vilja fresta flutningi ferðamála til iðnaðarráðuneytisins

Ferðamálasamtök Íslands vilja að Alþingi fresti því um ár að flytja málefni ferðamála frá samgönguráðuneytinu til iðnaðarráðuneytisins. Þetta kemur fram í ályktun sem samþykkt var á aðalfundi samtakanna í síðustu viku.

Fimm í haldi vegna hnífstunguárásar

Fimm manns eru nú í haldi lögreglunnar á Selfossi í tengslum við rannsókn lögreglunnar á hnífstunguárás við Hellisheiðarvirkjun á laugardagskvöld.

Forsprakki torrent.is færður til yfirheyrslu til lögreglu

Rétt í þessu var Svavar Lúthersson, eigandi torrent.is, færður til yfirheyrslu hjá lögreglunni í Hafnarfirði. Hann var vakinn upp í morgun af fulltrúum Sýslumanns í Hafnarfirði, lögreglumönnum og Hróbjarti Jónatanssyni, lögmanni SMÁÍS, samtaka myndrétthafa.

Svandísarmáli formlega lokið

Gengið var frá sátt í máli Svandísar Svavarsdóttur, borgarfulltrúa Vinstri - grænna, á hendur Orkuveitu Reykjavíkur í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun.

Braust inn í Ferstiklu í Hvalfirði

Lögreglan í Borgarnesi handtók í nótt karlmann sem braust inn í veitingastaðinn að Ferstiklu í Hvalfirði upp úr miðnætti.

Boeing þjónusti ekki Loftleiðir vegna Kúbuflugs

Bandarísk stjórnvöld hafa óskað eftir því við Boeing-flugvélaverksmiðjurnar að þær þjónusti ekki þær Boeing-vélar sem Loftleiðir, dótturfélag Icelandair Group, nota til Kúbuflugs vegna viðskiptabanns Bandaríkjanna á Kúbu.

Fundu snák á Egilsstöðum

Við húsleit lögreglunnar í íbúð á Egilsstöðum um helgina fannst m.a. svokallaður Cornsnákur. Snákurinn, sem var í glerbúri í opnu rými í íbúiðinni, var haldlagður og færður í trygga geymslu á varðstofu lögreglunnar. Var snákurinn síðan aflífaður og mun fulltrúi heilbrigðiseftirlits annast eyðingu á hræinu, segir í dagbók lögreglunnar.

Yfirheyrslur yfir hnífstungumanninum í dag

Yfirheyrslur hefjast í dag á Selfossi yfir erlendum verkamanni, sem veitti vinnufélaga sínum áverka með hnífi í vinnubúðum við Hellisheiðarvirkjun í fyrrinótt.

Fjórir játa stuld á skotvopnum

Fjórir ungir menn á aldrinum 16 til 20 ára játuðu við yfirheyrslur hjá lögreglunni í Borgarnesi í gær, að hafa í fyrrinótt brotist inn í flugskýli við Húsafell og meðal annars stolið þaðan skotvopnum.

Foreldrar sóttu ræningjana til lögreglu

Foreldrar ræningjanna fjögurra, sem frömdu vopnað rán í Sunnubúð við Lönguhlíð í Reykjavík í gærmorgun, sóttu syni sína á lögreglustöðina í Reykjavík í gærkvöldi að loknum yfirheyrslum yfir þeim.

Öryggisverðir náðu þjóf á flótta

Brotist var inn í apótek á Akureyri í nótt og þaðan stolið lyfjum. Öryggisverðir urðu varir við innbortið, hlupu þjófinn uppi og héldu honum þartil lögregla kom á vettvang og handtók hann.

Telur fleiri tengjast hnífsstungumáli

Lögreglan á Selfossi telur að fleiri aðilar en meintur gerandi og þolandi í hnífstungumáli í Hellisheiðarvirkjun í gærkvöld hafi tekið þátt í átökunum sem leiddu til áverkanna

Fjölskyldan í sjokki eftir vopnað rán

"Vonandi lendi ég aldrei aftur í svona," segir Þórður Björnsson, kaupmaður í Sunnubúð, en þrír vopnaðir og grímuklæddir menn rændu verslun hans í morgun.

Tvö hundruð milljóna króna tjón í fjósbruna

200 milljóna króna tjón varð þegar eitt fullkomnasta fjós landsins brann til ösku í gærkvöld ásamt 200 nautgripum. Bruninn er einn sá skelfilegasti sem slökkviðismenn hafa glímt við.

Kjör stjórnarmanna ekki rædd á hluthafafundi REI

Engar breytingar voru gerðar á launakjörum stjórnarmana í REI og nýjir menn voru ekki kosnir í stjórn á hluthafafundi sem lauk í dag. Þessum dagskrárliðum var frestað og verða kláraðir á framhaldshluthafafundi næsta föstudag.

Ræningjarnir í Sunnubúð aðeins 16 ára gamlir

Fjórir voru handteknir um klukkan fjögur í dag grunaðir um að hafa framið rán í Sunnubúð við Mávahlið fyrir hádegi í dag. Þeir eru allir fæddir 1991 og eru því aðeins 16 ára gamlir.

Hnífamaður handtekinn

Karlmaður á þrítugsaldri var handtekinn eftir hádegi í dag grunaður um að hafa lagt til vinnufélaga síns með hnífi í gærkvöld. Maðurinn, sem er af erlendum uppruna, er starfsmaður við Hellisheiðarvirkjun.

Mývetningar felldu sameiningu

Mývetningar felldu sameiningu þriggja dreifbýlissveitarfélaga í Suður-Þingeyjarsýslu í gær. Íbúar Þingeyjarsveitar og Aðaldælahrepps samþykktu hins vegar og geta því sameinast.

Eiginkona og dóttir urðu vitni að slysinu

Maðurinn sem lést í umferðarslysinu á Suðurlandsvegi við Rauðhóla í fyrrakvöld hét Kristinn Guðbjartur Óskarsson, til heimilis að Álfhólsvegi 151 í Kópavogi.

Fórnarlamba umferðarslysa minnst

Í dag, 18. nóvember er minnst fórnarlamba umferðarslysa um allan heim. Af því tilefni sendi biskup Íslands, hr. Karl Sigurbjörnsson, prestum Þjóðkirkjunnar bréf og bað þá að minnast þessa í messum sunnudagsins. Í bréfi biskups segir meðal annars:

Sjá næstu 50 fréttir