Fleiri fréttir

Bara tryggður fyrir tapi verði forsendubrestur af hálfu OR

Hjörleifur B. Kvaran, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur og Bjarni Ármannsson, stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest hafa sent frá sér sameiginlega yfirlýsingu þar sem því er haldið fram að fullyrðing Moggans á forsíðu blaðsins í dag, um samning Bjarna við OR, sé röng.

Verða að fá hagstæð langtímalán til jarðarkaupa

Bændur verða að hafa aðgang að hagstæðum langtímalánum til jarðakaupa, ef koma á í veg fyrir að stóreignamenn eignist allar bújarðir. Þetta segir helsti kúabóndi Vopnafjarðar sem segir brýnt að skipulagsyfirvöld skilgreini hvaða land megi taka undir aðra starfsemi.

Eddutilnefningar kynntar á morgun

Tilnefningar til Edduverðlaunanna 2007 verða tilkynntar á morgun. Kosið verður í 16 flokkum auk þess sem heiðursverðlaun verða afhent og almenningur kýs vinsælasta sjónvarpsþáttinn á Vísi.

Fjárdráttarkærur velkjast um hjá lögreglu

Kærur Tryggingastofnunar um fjárdrátt upp á eitthvað á annað hundrað milljónir króna velkjast nú hjá lögregluembættum án þess að ákærur séu gefnar út. Forstjóri stofnunarinnar segir þetta vekja spurningar um framgang réttvísinnar.

Utanríkisráðherra óskaði eftir uppsögn Ólafs Arnar

Ólafur Örn Haraldsson, fyrrverandi forstjóri Ratstjárstofnunar, segir ekki það ekki rétt sem fram hafi komið í fréttum að hann hafi gengið á dyr án þess að upplýsa utanríkisráðuneytið um það.

Norðmenn segja Íslendinga falsa aflatölur

Samtök norskra útgerðarmanna hafa í bréfi til norska sjávarútvegsráðuneytisins dregið í efa að aflatölur íslenskra skipa á makrílveiðum í sumar séu réttar. Í það er látið skína að aflatölurnar hafi verið falsaðar til þess að koma Íslendingum að samningsborðinu við skiptingu makrílkvótans á milli strandríkja.

Upplýsingar um leigukostnað utanríkisráðuneytis ekki til reiðu

Í frétt á norska vefmiðlinum E24 kemur fram að húsaleiga fyrir norska sendiherrabústaði er himinhá í sumum tilfellum. Þannig er leigan á sendiherrabústaði Norðmanna í London heilar 18 milljónir íslenskra króna á mánuði. Vísir leitaði upplýsinga hjá utanríkisráðuneytinu um húsaleigukostnað á vegum Íslensku sendiráðanna, og sundurliðun á því hvar húsnæði er leigt og hvar það hefur verið keypt.

Varað við stórauknu framboði á e-töflum

Framboð e-taflna hefur stóraukist hér á landi undanfarnar vikur. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við neyslu þessara taflna og boðaði til blaðamannafundar í morgun vegna málsins.

Steingrímur Njálsson dæmdur fyrir hótanir

Einn alræmdasti barnaníðingur Íslands, Steingrímur Njálsson, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag dæmdur í tvegja mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hótanir í garð Illuga Jökulssonar, fyrrverandi ritstjóra DV.

Þrír sýknaðir í Kompásmáli

Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag þrjá karlmenn af ákærum um tilraun til kynferðisbrota. Ákæran var byggð á tálbeitugögnum frá sjónvarpsþættinum Kompási.

Íslandsmet í að steikja hamborgara

Kokkurinn á Vitabar hefur örugglega sett Íslandsmet í að steikja hamborgara á laugardaginn var en þá afgreiddi hann yfir 200 pantanir frá hádegi og fram til klukkan tíu um kvöldið, það er pöntun á 3 mínútna fresti. Þeir sem pöntuðu voru að mestu gestir á Airwaves-hátíðinni en svipuð örtröð var á staðnum í fyrra er hátíðin stóð yfir.

Hafa mánuð til að meta Jón nauðgara

Tveir matsmenn hafa verið dómkvaddir til að meta hvort Jón Pétursson, sem hefur fengið tvo fimm ára dóma fyrir nauðganir á skömmum tíma, sé í raun ósakhæfur. Þeir hafa rétt rúman mánuð til að meta Jón því seinna mál hans verður tekið fyrir í Hæstarétti 28. nóvember næstkomandi.

Tannlæknir í rannsókn

Lögregla rannsakar nú meint misferli tannlæknis gagnvart Tryggingastofnun. Samkvæmt heimildum fréttastofunnar er upphæðin, sem stofnunin telur að hann hafi dregið sér með ólögmætum hætti, töluvert hærri en sú, sem talið er að svæfingalæknir hafi dregið sér af stofnuninni með fölsuðum reikningum.

Tólk stútar teknir um helgina

Tólf ökumenn voru teknir á höfuðborgarsvæðinu um helgina fyrir ölvunarakstur, samkvæmt helgaruppgjöri lögreglunnar.

Slökkvilið dældi vatni í tveimur húsum

Ýmislegt smálegt fauk, vatnselgur myndaðist víða á götum, og slökkvilið þurfti að dæla vatni út úr tveimur húsum í hvassviðri og mikilli rigningu á höfuðborgarsvæðinu síðdegis í gær.

Einar vill ítarlega umræðu um kýrnar

Einar K. Guðfinnsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, segir mikilvægt að niðurstaða um að flytja inn nýtt kúakyn til Íslands verði ekki tekin í fljótfærni. Hann vill að bændur ræði málið á sínum vettvangi og komist að niðurstöðu sín í milli.

Annríki hjá lögreglu og slökkviliði

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu var kallað að Dalsmára í Kópavogi um sexleytið vegna þess að vatn lak úr læk í nágrenninu og inn í hús.

Fjárfestir í Lúxemborg eignast fjórðung jarða í Vopnafirði

Fjárfestir, búsettur í Lúxemborg, og aðilar honum tengdir, hafa á fáum árum eignast fjórðung allra jarða í Vopnafirði. Einn helsti kúabóndi sveitarinnar vill að stjórnvöld setji lög eða reglur sem takmarki fjöldakaup á jörðum.

SA: Einbeita sér að þeim launalægstu

Samtök atvinnulífsins vilja hækka laun þeirra sem ekki hafa notið launaskriðs og hafa setið eftir á meðan laun annarra hafa hækkað umfram launataxta.

Atlantsolía í skaðabótamál við Olís

Atlantsolía sakar Olís um að hafa með ólögmætum hætti látið fjarlægja auglýsingabifreið félagsins af bílaplani við Skúlagötu. Bíllinn var fluttur upp í höfuðstöðvar Vöku þar sem lögmaður Atlantsolíu leysti hann út í dag. Félagið hyggst fara í skaðabótamál við Olís vegna málsins.

Færeyingar vilja íslenskt rafmagn

Færeyingar telja að þeir geti dregið úr útblæstri gróðurhúsaloftegunda um nærri 30 prósent fái þeir rafmagn frá Íslandi í gegnum sæstreng. Í dag eru flest öll heimil í Færeyjum hituð upp með olíu.

Foreldrar leikskólabarna mótmæla

Foreldrar leikskólabarna í Reykjavík ætla að afhenda formanni leikskólaráðs Reykjavíkur undirskriftalista á morgun. Um 2500 undirskriftum hefur þegar verið safnað að sögn Hildar Vernudóttur, meðstjórnanda í foreldrafélaginu Foldaborg.

Dýratilraunir hjá deCode og víðar

Dýratilraunir fara fram á nokkrum stöðum hér á landi, þar á meðal hjá Íslenskri erfðagreiningu sem notar mýs og rottur til framhaldsrannsókna.

Gómaður þrisvar sama sólarhringinn

Sýslumaðurinn á Akranesi þingfesti í dag mál á hendur tvítugum karlmanni frá Hveragerði sem gómaður var þrisvar sinnum sama sólarhringinn af lögreglunni á írskum dögum á Akranesi í sumar.

Allt á réttri leið, segir Breiðavíkurdrengur

Samvinna þeirra Þórs Jónssonar upplýsingafulltrúa Kópavogsbæjar og Guðmundur Gissurarsonar Breiðavíkurdrengs hófst í dag. Eins og kunnugt er af fréttum Vísi fyrir helgi ákvað Þór að aðstoða Guðmund við að fá í hendur skýrslu barnaverndarnefndar um sig. "Þetta er allt á réttri leið núna," segir Guðmundur.

Ómakleg orðræða um kirkjuna

Tekist var á um það hversu langt ætti að ganga í umræðum um staðfesta samvist á Kirkjuþingi í morgun.

Lögðu hald á fíkniefni og hníf

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók í nótt karlmann á þrítugsaldri vegna gruns um akstur undir áhrifum fíkniefna. Við nánari leit í bifreið mannsins fundust ætluð fíkniefni og hnífur. Lögreglan lagði hald á hvorttveggja.

Stormur í aðsigi

Það er versnandi veður á landinu sunnan- og vestanverðu, þar á meðal í höfuðborginni og eru horfur á vindhraði ná um eða yfir 20 m/s á þessu svæðum og enn meiri á hálendinu.

Ekkert lát á síldveiðinni á Grundarfirði

Ekkert lát er á síldveiðinni á Grundarfirði. Nokkur skip, sem voru þar í gær, náðu að fylla sig og eru á landleið og Hákon liggur úti fyrir Ólafsvík og er áhöfnin að frysta síld um borð. Hin skipin sigla með síldina ferska alla leið til Austfjarðahafna.

Telur rifta eigi samningi REI og GGE

Steingrímur J. Sigfússon, formaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, telur að rifta eigi samrunasamningi REI og Geysis Green Energy. Menn eigi ekki að komast upp með slík vinnubrögð og málið eigi að fara aftur á byrjunarreit.

Hélt áfram að rukka TR þrátt fyrir kæru

Svæfingalæknir, sem uppvís varð að fjárdrætti af Tryggingastofnun með fölsuðum reikningum, hélt áfram að rukka stofnunina þar til gripið var til þess að reka hann af samningi.

Verktaki segir villimenn búa á Hverfisgötu 42

Sigurjón Halldórsson einn eigenda SR-verktaka segir að það séu villimenn sem búi í húsinu að Hverfisgötu 42 og í grennd við það. Þeir hafi rifið á brott girðingu í kringum svæðið sem sé vinnusvæði verktakana, brotið rúður í nærliggjandi húsum og stolið búnaði.

Vildi ekki lána Lucky Day

Logi Freyr Einarsson, sem handtekinn var í Noregi vegna rannsóknar á Fáskrúðsfjarðarmálinu, neitaði að lána bróður sínum, Einari Jökli, skútuna Lucky Day undir fíkniefnasmyglið stórfellda sem upp komst í síðasta mánuði.

Forstöðumaður Fjöliðjunnar segir upp

Forstöðumaður Fjöliðjunnar hefur sagt starfi sínu lausu en unnið er að úttekt á fjárreiðum félagsins. Grunur leikur á um að ekki sé allt með felldu í þeim efnum og hefur Ríkisendurskoðun verið fengin til aðstoðar við að kanna bókhaldsgögn.

Dómur fellur í stóra BMW-málinu á næstunni

Hæstiréttur mun kveða upp úrskurð sinn í stóra BMW-málinu á næstunni. Þrír af fjórum sakborningum í þessu gríðarstóra fíkniefnamáli áfrýjuðu dómum sínum í héraði og tók Hæstiréttur málið fyrir í síðustu viku.

Sjá næstu 50 fréttir