Innlent

Vilja herða viðurlög þegar börn eru tæld.

Þverpólitískur vilji virðist vera fyrir því að herða viðurlög við því þegar fullorðnir reyna að tæla börn til fylgilags við sig, á Netinu og víðar.

 

Íslensk lagaákvæði varðandi tilraunir fullorðinna til að tæla börn til kynferðissambands eru víðtæk, ná yfir ýmsa brotaflokka og því getur sönnunarbyrði verið erfið. Norsk lög um þetta eru skýrari. Þverpólitískur vilji virðist vera innan allsherjarnefndar Alþingis að taka á þessum málum og fulltrúi Vinstri grænna er afdráttarlaus.

Ítarlega verður fjallað um þetta mál í fréttaskýringaþættinum Kompási á Stöð 2 í kvöld, klukkan 21:45.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×