Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eiga yfir höfði sér fjársektir í Noregi Norskt strandgæsluskip færði fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA til hafnar í Sortland í Norður Noregi í gær og á skipstjórinn yfir höfði sér fjársektir. 25.9.2007 10:43
Saka Alþjóðahús um að niðurgreiða þýðingarþjónustu með styrkjum Þýðingastofan Skjal hefur kvartað til Samkeppniseftirlitsins vegna þátttöku Alþjóðahúss í útboði Ríkiskaupa vegna túlka- og þýðingarþjónustu fyrir opinber fyrirtæki og stofnanir. 25.9.2007 10:35
Verða að fá nægan aðlögunartíma og tungumálakennslu Formaður Félags hjúkrunarfræðinga gerir ekki athugasemdir við að til standi að ráða fleiri hjúkrunarfræðinga erlendis frá á Landspítalann svo framarlega sem hlutfall þeirra verði ekki of hátt og þeir fái nægan tíma til aðlögunar og góða íslenskukennslu. 25.9.2007 10:12
Sameinar tvö af glæsilegustu einbýlishúsum borgarinnar Milljarðamæringurinn Hannes Smárason fékk í síðustu viku samþykkt í skipulagsráði Reykjavíkur að sameina tvær lóðir sem hann er eigandi að við Fjölnisveg í Reykjavík. Hannes á tvö af glæilegustu einbýlishúsunum við götuna og ætlar að tengja þau með sameiginlegum bílskúr og sameiginlegum svölum. Húsin eru númer níu og ellefu við Fjölnisveg í Þingholtunum en fermetraverðið í þeirri götu er eitt það stærsta í allri Reykjavík. 25.9.2007 09:47
Mun fleiri grunnskólanemar í fyrstu bekkjum læra ensku Þeim nemendum í fyrstu þremur bekkjum grunnskólans sem læra ensku fjölgaði um 70 prósent á milli skólaáranna 2005-2006 og 2006-2007 eftir því sem fram kemur í tölum Hagstofunnar. 25.9.2007 09:32
Umferðarlagabrotum fjölgar Umferðarlagabrotum fjölgaði um tuttugu prósent í ágústmánuði miðað við sama mánuð í fyrra, samkvæmt samantekt Ríkislögreglustjóra. Hraðakstursbrotum fjölgaði mest, eða um 35 prósent og var fjölgun þeirra mest í umdæmi lögreglunnar á Snæfellsnesi. 25.9.2007 07:21
Vilhelm Þorsteinsson EA aflahæsta skipið Fjölveiðiskipið Vilhelm Þorsteinsson EA, frá Akureyri var aflahæsta fiskiskip flotans á nýliðnu fiskveiðiári. Heildaraflinn var um 60 þúsund tonn, sem er 12 þúsund tonna meiri afli en næsta skip fékk, sem er Börkur NK frá Neskaupstað. 25.9.2007 07:19
Kæra gróðurskemmdir til lögreglu Ökumenn á fimm torfæruhjólum og einu fjórhjóli ollu nýverið miklum gróðurskemmdum á Arnarvatnsheiði. Skessuhorn greinir frá því að grunur leiki á hvaða menn voru þar á ferð og segir að málið verði kært til lögreglu. 25.9.2007 07:16
Lögreglan lýsir eftir malarflutningabíl Lögreglan á Suðurnesjum leitar malarflutningabíls, sem ók eftir Reykjanesbrautinni í gær með farminn óvarinn, þannig að grjót fauk aftan af vagninum og á akbrautina. Einn bíll skemmdist talsvert eftir að hann ók á stóran stein, sem fallið hafði af vörubílnum. 25.9.2007 07:15
Peð í uppnámi, hætt við sýningar Stjórn leikhópsins Peðið ákvað á fundi sínum fyrr í kvöld að hætta við fyrirhugaðar sýningar sínar á leikritinu Barperan í næsta mánuði. Til stóð að halda 10 sýningar á verkinu á efri hæð menningarbúllunnar Grand Rokk. Hinsvegar mun hafa kastast alvarlega í kekki milli Bergs Thorbergs sem leikur aðalhlutverkið í leikritinu og Þorsteins Þórsteinssonar verts á Grand og endaði það með því að Bergur var settur í straff á barnum. 24.9.2007 22:15
Leifarnar af Bjólfskviðu enn á Kerlingardalsheiði Leikmyndin úr kvikmyndinni Bjólfskviðu er enn á Kerlingardalsheiði, rúmum þremur árum eftir að tökum á myndinni lauk. Bóndinn í Kerlingardal segir þetta til skammar fyrir alla þá sem að myndinni komu. 24.9.2007 21:00
Sala á hlut í Hitaveitunni skoðuð ofan í kjölinn Lúðvík Geirsson bæjarstjóri í Hafnarfirði segir að hugsanleg sala á hlut bæjarins í Hitaveitu Suðurnesja verði skoðuð ofan í kjölinn á næstunni. "Við stefnum að því að ljúka þessu máli eins fljótt og kostur er en ég á ekki von á neinni ákvörðun fyrr en eftir einhverjar vikur," segir Lúðvík. 24.9.2007 19:51
Ódýrara að fá erlenda hjúkrunarfræðinga á Landspítalann Landspítalinn hefur sagt upp samningum við tvö íslensk þjónustufyrirtæki sem hafa séð spítalanum fyrir hjúkrunarfræðingum og ætlar að ráða hjúkrunarfræðinga erlendis frá. Hátt í níutíu hjúkrunarfræðinga vantar á spítalann og segir hjúkrunarforstjóri ódýrara að ráða erlent starfsfólk. 24.9.2007 19:25
Lítill áhugi á að þiggja önnur störf hjá Samherja Samherji hefur ákveðið að hætta allri skreiðarverkun á Hjalteyri. Ákvörðunin kemur illa niður á stærsta vinnustað Arnarneshrepps, segir oddviti. 24.9.2007 19:20
Á fimmta tug fatlaðra barna fá ekki fullt pláss á Vesturhlíð Hátt í fimmtíu fötluð börn fá ekki fullt pláss á frístundaheimilinu Vesturhlíð vegna manneklu. Börnin fá vistun í mesta lagi þrjá daga í viku og þurfa foreldar þeirra að sleppa úr vinnu hina dagana. Foreldrar eru orðnir langþreyttir á ástandinu. 24.9.2007 19:20
Stokkað upp í skipuriti Icelandair Group Miklar skipulagsbreytingar eru framundan hjá Icelandair Group, en fyrirtækið hefur nánast tvöfaldast að vexti á undanförnum árum. 24.9.2007 18:45
Tífaldur munur á stærstu forlögunum Forlagið - sem verður til þegar Mál og menning og JPV sameinast - verður að minnsta kosti tífalt stærra en næst stærsta bókaútgáfa landsins. 24.9.2007 18:45
Skaðabætur vegna brunalóða Borgin gæti þurft að reiða fram á fjórða tug milljóna króna í skaðabætur til eigenda brunalóðarinnar að Austurstræti 22 því ekki er gert ráð fyrir að fullnýta byggingarrétt lóðarinnar. 24.9.2007 18:30
Vísir tekur kipp Breyttar áherslur á ritstjórn Vísis og nýtt útlit virðast falla í góðan jarðveg hjá netnotendum. Á heimasíðu Modernus er fylgst vandlega með netnotkun hér á landi og þar má sjá að gríðarleg aukning hefur verið í flettingum á Vísi þegar kemur að fréttalestri. Aukningin á milli vikna er 88 prósent. 24.9.2007 17:38
Lögreglumenn í djúpum skít Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu gerði í dag húsleit á heimili annars mannsins sem situr í gæsluvarðhaldi fyrir að hafa smyglað inn 1800 millilítrum af fljótandi kókaíni. Að sögn sjónarvotta var aðkoman á heimili mannsins skelfileg, límt var fyrir alla glugga og matarleifar og kattarúrgangur um öll gólf. 24.9.2007 17:05
Ánægður með minnkandi dópneyslu í fangelsunum Nýlega var framkvæmd allsherjar úttekt á fíkniefna- og lyfjaneyslu fanga hér á landi. Valtýr Sigurðsson, forstjóri Fangelsismálastofnunar, segist afar ánægður með niðurstöðurnar sem sýni að málin þokist í rétta átt. Í Hegningarhúsinu á Skólavörðustíg og í fangelsunum í Kópavogi og á Kvíabryggju reyndist enginn fangi hafa neytt fíkniefna eða lyfja sem bönnuð eru innan veggja fangelsisins. Ástandið er þó ekki eins gott á Litla Hrauni. 24.9.2007 16:30
Börðu mann á sjómannadansleik Tveir menn voru í Héraðsdómi Austurlands í dag sakfelldir fyrir líkamsárás á sjómannadansleik á Höfn í Hornafirði í sumar. 24.9.2007 16:27
Miklar breytingar á búsetu á jörðum á suðurhluta landsins Sjö af hverjum tíu bændum á suðurhluta landsins telja miklar eða mjög miklar breytingar hafa orðið á búsetu á svæðinu samkvæmt könnun sem Rannsóknarmiðstöð Háskólans á Bifröst gerði fyrir Bændasamtök Íslands. 24.9.2007 16:07
IGS þarf að greiða 60 milljóna króna sekt vegna samkeppnisbrota Héraðsdómur Reykjavíkur hafnaði í dag kröfu Flugþjónustunnar á Keflavíkurflugvelli (IGS) um að úrskurður áfrýjunarnefndar samkeppnismála vegna fyrirtækisins yrði felldur úr gildi. Félagið þarf því að greiða 60 milljóna króna sekt vegna samkeppnisbrota. 24.9.2007 15:57
Kærðir fyrir að hylja ekki malarfarm sinn Nokkrir ökumenn á malarflutningabílum í umdæmi lögreglunnar á Selfossi hafa verið kærðir í dag í átaki lögreglunnar gegn akstri án yfirbreiðsla. 24.9.2007 15:37
Verðlaunaður fyrir baráttu gegn loftlagsbreytingum Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, tók í gær við verðlaunum frá Louise T. Blouin stofnuninni fyrir forystu á alþjóðavettvangi í baráttunni gegn loftslagsbreytingum og fyrir að stuðla að nýrri sýn á nýtingu hreinnar orku víða um heim. 24.9.2007 15:10
Lögreglan lokar Laugavegi Lögreglan hefur lokað hluta Laugavegar vegna þess að þakplötur eru farnar að fjúka af þaki húss númer 71 við götuna. Vegfarendum er bannað að ganga framhjá húsinu vegna hættu á því að plöturnar slasi fólk. Körfubíll er á svæðini og eru iðnaðarmenn nú að athafna sig á þaki hússinns. 24.9.2007 14:19
Reyndu að flýja Fáskrúðsfjörð Samkvæmt heimildum Vísis reyndu þeir Guðbjarni Traustason og Alvar Óskarsson, sem nú sitja í gæsluvarðhaldi vegna Fáskrúðsfjarðarmálsins, að flýja Fáskrúðsfjörð þegar þeir urðu varir við að þeim var veitt eftirför. 24.9.2007 14:07
Hæstiréttur staðfestir gæsluvarðhald Hæstiréttur Íslands staðfesti í morgun gæsluvarðhaldsúrskurð yfir Bjarna Hrafnkelssyni og Einari Jökli Einarssyni. Þeir voru báðir handteknir í tengslum við Fáskrúðsfjarðarmálið í síðustu viku og úrskurðaðir í gæsluvarðhald af Héraðsdómi Reykjavíkur til 18. október. Alls voru fimm úrskurðaðir í gæsluvarðhald en aðeins Bjarni og Einar Jökull áfrýjuðu úrskurðinum til Hæstaréttar. 24.9.2007 13:23
Samherji hættir skreiðavinnslu á Hjalteyri Samherji hyggst loka skreiðavinnslu sinni á Hjalteyri við Eyjafjörð og missa á bilinu 8-10 manns vinnuna við það. Samherji hefur verið stærsti vinnuveitandinn í Arnarneshreppi og segir Axel Grettisson, oddviti hreppsins, að starfsmönnum hafi verið boðin vinna á Dalvík og akstur þangað, alla vega í vetur. 24.9.2007 13:06
Tekist á um mögulegar olíulindir Íslendingar, Færeyingar, Bretar og Írar ætla í vikunni að freista þess að ná samkomulagi um skiptingu Hatton Rockall svæðisins. Um mikla hagsmuni er að tefla því talið er að þar geti verið gjöfular olíulindir. 24.9.2007 12:30
Vara við litarefnum sem valda hegðunarvanda hjá börnum Neytendasamtökin hvetja íslenska neytendur til að sniðganga matvæli sem innihalda hin umdeildu asó-litarefni. Fram kemur í frétt á heimasíðu samtakanna að efnin geti valdið ofvirkni og hegðunarvanda hjá börnum. Efnin eru algeng í hvers konar sælgæti. 24.9.2007 12:11
Ekki vanhæfur til að fjalla um ráðningu frænda Bæjarlögmaður Kópavogs hefur komist að þeirri niðurstöðu að skólanefndarfulltrúi hafi ekki verið vanhæfur til að að sitja afgreiðslu á ráðningu aðstoðarskólastjóra Smáraskóla. Lögmaðurinn mun senda bæjarstjórn Kópavogs niðurstöðu sína á morgun. 24.9.2007 12:10
Meira frelsi til skoðana í nýrri ríkisstjórn Formaður Samfylkingarinnar segir að stjórnarliðum leyfist nú að hafa skoðanir og skýtur þannig föstum skotum að fyrri ríkisstjórrn. Stjórnarliðar hafa enda tjáð sig frjálslega mál sem einhugur er ekki um í ríkisstjórninni. 24.9.2007 12:03
Hnefaleikaforkólfur ákærður fyrir líkamsárás Í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun var þingfest ákæra á hendur 45 ára karlmanni sem gefið er að sök að hafa ráðist á 37 ára karlmann á veitingastaðnum Classic Rock með hnefahöggum. Maðurinn neitaði sök þegar hann var inntur eftir afstöðu sinni til ákærunnar í morgun. Ákærði hefur lengi sinnt áhrifastörfum fyrir hnefaleikahreyfingunna á Íslandi og hlaut dóm fyrir að þjálfa hnedaleika áður en Íþróttin var lögleidd hér á landi. 24.9.2007 11:14
Óheimilt að krefjast viðbótargreiðslu vegna gengislækkunar Samgönguráðuneytið hefur staðfest úrskurð Neytendastofu um að Heimsferðum hafi verið óheimilt að krefja mann um viðbótargreiðslu fyrir ferð sem hann keypti hjá fyrirtækinu vegna gengislækkunar krónunnar 24.9.2007 11:12
Eðlileg gagnrýni Gagnrýni Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur, formanns Samfylkingarinnar, á hagstjórn síðustu ríkisstjórnar er eðlileg að mati Péturs H. Blöndal, alþingismanns. Hann segir ekkert óeðlilegt að flokkur sem kemur nýr inn í ríkisstjórn gagnrýni aðgerðir þeirrar sem sat á undan. 24.9.2007 10:54
Fangi framdi ekki sjálfsmorð Valtýr Sigurðsson fangelsismálastjóri segir það alrangt að maðurinn sem lést á Litla-Hrauni um helgina hafi svipt sig lífi eins og líkur eru leiddar að í DV í dag. Valtýr segir að alfrei hafi neitt bent til þess að um sjálfsvíg hafi verið að ræða og það hafi verið staðfest við nánari eftirgrennslan. 24.9.2007 10:35
Mikill áhugi á húsnæði í samgöngumiðstöð Mikill áhugi er hjá ýmsum aðilum á húsnæði í nýrri samgöngumiðstöð sem ætlunin er að reisa í Vatnsmýrinni innan tveggja ára. 24.9.2007 10:30
Þungt að vita af bróður mínum í varðhaldi Logi Freyr Einarsson, sem handtekinn var í Noregi í síðustu viku í tengslum við Fáskrúðsfjarðarmálið, segir í samtali við Vísi að erfitt sé að vita af bróður sínum á Íslandi í gæsluvarðhaldi 24.9.2007 10:14
Valt í þrengslunum Malarflutningabíll fór útaf veginum í Þrengslunum til móts við Votaberg laust fyrir klukkan tíu í morgun. Ökumaður var fluttur á slysadeild. 24.9.2007 09:45
Hvetja utanríkisráðherra til að taka af skarið í loftlagsmálum Náttúruverndarsamtök Íslands vonast til þess að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra kynni metnaðarfulla í loftlagsmálum fyrir hönd Íslands á fundi Sameinuðu þjóðanna í New York í dag. 24.9.2007 09:32
Fannst látinn í klefa sínum Karlmaður fæddur 1972 fannst látinn í klefa sínum á Litla-Hrauni um helgina. Frá þessu er greint á heimasíðu fanga, Timamot.is. Þar segir að ekkert bendi til þess að maðurinn hafi tekið sitt eigið líf. Hinn látni var við það að ljúka afplánun á 16 ára fangelsisdómi sem hann fékk fyrir morð. Hann strauk af áfangaheimilinu Vernd fyrir hálfum mánuði og var greint frá því í fjölmiðlum. 24.9.2007 09:25
Vonskuveður í kringum landið Vonskuveður er á nær öllum miðum í kringum landið og eru aðeins um 150 fiskiskip skráð á sjó. Þar af liggja mörg í vari , til dæmis undir Grænuhlíð við Ísafjarðardjúp og inni á fjörðum bæði fyrir austan og vestan. 24.9.2007 07:56
Eldur í iðnaðarhúsnæði í Hafnarfirði Eldur kviknaði í geymslu á efri hæð í iðnaðarhúsnæði við Kaplahraun í Hafnarfirði í gærkvöldi og hafði teygt sig í þakið þegar slökkvilið kom á vettvang. 24.9.2007 07:17