Fleiri fréttir

SPRON fyrirhugar breytingar í hlutafélag

Stjórn SPRON samþykkti í dag að undirbúa breytingu sparisjóðsins í hlutafélag og óska eftir skráningu félagsins í Norrænu kauphöllina á Íslandi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SPRON. Breyting sparisjóðsins í hlutafélag verður háð samþykki stofnfjáreigenda og Fjármálaeftirlitsins.

Sviptur leyfi til að ávísa róandi og örvandi lyfjum

Heilbrigðisráðuneytið hefur svipt þekktan geðlækni leyfi til að ávísa róandi og örvandi lyfjum. Leyfissviptingin er að tillögu landlæknis en embættinu hefur borist fjöldi ábendinga um að læknirinn ávísi ekki lyfjum samkvæmt læknisfræðilegum aðferðum.

Reyk lagði frá Járnblendiverksmiðjunni á Grundartanga

Mikinn reyk lagði frá Járnblendiverksmiðjunni á Grundartangi nú síðdegis eftir að viftur sem sjá um að soga reyk frá verksmiðjunni hættu að virka. Aðeins tók nokkrar mínútur að koma viftunum aftur í gang.

Fluttur á slysadeild eftir trampólínslys

Flytja þurfti karlmann á þrítugsaldri á slysadeild um síðustu helgi eftir óhapp á trampólíni. Maðurinn fékk slæma byltu og féll í yfirlið skamma stund. Þá fékk hann einnig skurð á andlitið.

Bára Friðriksdóttir valin í Tjarnaprestakalli

Valnefnd í Tjarnaprestakalli, Kjalarnesprófastsdæmi, ákvað á fundi sínum þann 6. júlí síðastliðinn að leggja til að sr. Bára Friðriksdóttir verði ráðin sóknarprestur í Tjarnaprestakalli. Níu umsækjendur voru um embættið. Embættið veitist frá 1. september 2007.

Tilkynning frá vegagerðinni

Vegna mikilla blæðinga í malbiki á Kræklingahlíð norðan Akureyrar eru vegfarendur beðnir að sýna sérstaka aðgát meðan þetta ástand varir og fylgja fyrirmælum um lækkun á umferðarhraða. Búið er að gera við skemmdir á klæðningu á Þingvallavegi við Grafningsvegamót. Vegfarendur eru þó enn beðnir að sýna aðgát vegna steinkasts.

Þrettán stútar teknir um helgina

Þrettán ökumenn voru teknir fyrir ölvunarakstur í umdæmi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Þetta voru tólf karlar og ein kona á fimmtugsaldri. Lögreglan stöðvaði sömuleiðis för sex annarra ökumanna í Reykjavík um helgina. Fimm þeirra höfðu þegar verið sviptir ökuleyfi og einn hafði aldrei öðlast ökuréttindi. Þetta voru allt karlmenn.

Nafn mannsins sem lést á Akrafjallsvegi

Maðurinn sem lést í umferðarslysi á Akrafjallsvegi í gær hét Aðalsteinn Davíð Jóhannsson. Hann var 35 ára gamall og bjó á Akranesi. Hann lætur eftir sig eiginkonu og tvö ung börn.

Faðir stúlkunnar vill hjálp barnaverndaryfirvalda

Stúlkunni sem réðst á jafnöldru sína í tívolíinu við Smáralind síðustu viku var vísað úr skóla síðastliðið haust. Hún er á skólaskyldualdri en fékk ekki skólavist síðastliðinn vetur. Faðirinn segist hafa átt viðtöl við barnaverndaryfirvöld í dag og leiti eftir úrræðum á þeirra vegum.

Mikið um innbrot í bíla

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu ítrekar á vefsíðu sinni við vegfarendur að skilja ekki verðmæti eftir í bílum sínum. Sé það óumflýjanlegt er mikilvægt að verðmæti séu ekki í augsýn. Talsvert hefur verið um innbrot í bíla upp á síðkastið. Þjófar virðast meðal annars sækjast eftir geislaspilurum, myndavélum og GPS-tækjum.

Sjúkraflutningamenn vilja ekki Benz

Sjúkraflutningamenn óttast öryggi sitt og farþega í nýjum sjúkrabílum sem keyptir hafa verið til landsins. Í mörg ár hefur Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins notað bíla af Econline gerð. Nú hafa hins vegar verið keyptir bílar af gerðinni Benz-Sprinter.

Íslendingar nálgast heimsmeistaratitil í skólaskák

Skáksveit Salaskóla er efst í flokki 14 ára og yngri á heimsmeistaramóti í skák sem fram fer í Tékklandi þessa dagana. Íslendingarnir hafa 3,5 vinning í forskot á næstu sveit þegar aðeins tveimur umferðum er ólokið á mótinu.

Bjórsalar herja á ungmenni höfuðborgarinnar

Svokallaðir bjórsalar hafa komið í stað landasala í því að sjá ungmennum höfuðborgarinnar fyrir áfengi. Bjórsalar eru ungt fólk með aldur til að kaupa áfengi í vínbúðum, sem selja bjór til ungmenna með umtalsverðri álagningu. Sem dæmi má nefna að kippa af Viking Lager kostar 2500 krónur hjá bjórsala, en 990 krónur í vínbúð. Þetta er rúmlega 150% hækkun.

Áhöfn TF-SIF má ekki ræða tildrög slyssins

Áhöfnin á TF SIF má ekki ræða við fjölmiðla þar sem rannsókn stendur yfir á orsökum þess að þyrlan brotlenti í sjónum skammt undan Straumsvík. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra ræddi við áhöfnina í gær og sagði hana hafa staðið sig með prýði. Þyrlan var á æfingu með björgunarsveit Hafnarfjarðar þegar þegar hún missti skyndilega afl.

Bíll fór í Kópavogshöfn

Unnið er að því að draga vörubíl sem féll í höfnina í Kópavogi upp aftur. Bíllinn fór í sjóinn þegar vinna stóð yfir við uppfyllingu í höfninni. Bakkinn gaf sig undan þunga bílsins. Einn maður var í bílnum og slapp hann ómeiddur.

Þyrlan líklega ónýt vegna seltu

Þyrla Landhlegisgæslunnar, sem brotlenti í sjónum út af Straumsvík í gærkvöldi, var dregin til lands í nótt og flutt í flugskýli við Reykjavíkurflugvöll til rannsóknar. Vonast er til að upplýsingar úr flugrita hennar varpi ljósi á atburðinn. Talið er að þyrlan, sem þjónað hefur hér við björgunarstörf í rúma tvo áratugi, sé ónýt þar sem selta komst í allan viðkvæman rafbúnað hennar. Að sögn Rannsóknanefndar flugslysa, sem hefur nú umsjón með þyrlunni, eru tildrög atviksins ókunn, en flugriti hennar verður sendur til aflestrar í Bretlandi.

Slysum á Miklubraut fjölgaði um 45%

Aftanákeyrslum í Reykjavík fjölgaði um 25% árið 2006. Flest tjón verða á Miklubrautinni og fjöldi slasaðra þar aukist um 45%. Og enn einu sinni eru gatnamót Miklubrautar og Kringlumýrarbrautar þau tjónamestu. Þetta kemur fram í samantekt Sjóvá Forvarnarhússins fyrir árið 2006.

Lögreglan rannsakar árásina við tívolíið í Smáralind

Mál stúlkunnar sem réðst á jafnöldru sína við tívolíið í Smáralind á þriðjudag í síðustu viku er í athugun lögreglu. Lögreglumenn sem tóku stúlkuna á vettvangi hafa sent skýrslu til ofbeldisbrotadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Stúlkan sem ráðist var á hefur ekki kært árásina en lögreglan lítur málið alvarlegum augum.

Heildarafli jókst í júní

Heildarafli íslenskra skipa í nýliðnum júnímánuði var 6,4% meiri en í júní 2006, en það sem af er árinu hefur hann dregist saman um 1,6% miðað við sama tímabil 2006, miðað við fast verðlag. Aflinn nam alls 111.570 tonnum í júní 2007 samanborið við 135.515 tonn í júní 2006.

Unnið að því að ná flugrita úr TF Sif

Unnið er að því að ná flugrita TF Sif, þyrlu Landhelgisgæslunnar, úr flakinu samkvæmt tilkynningu frá Rannsóknarnefnd flugslysa. Ekkert er hægt að segja ennþá um orsakir slyssins.

Bók um Jón Ásgeir gefin út í Bretlandi

Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, starfandi stjórnarformanni Baugs, er lýst sem glaumgosa sem sé að kaupa upp Bretland í nýrri bók sem komin er í forsölu. Bókin er gefin út í óþökk Jóns Ásgeirs og ber heitið Sex, Lies and Supermarkets eða kynlíf, lygar og stórmarkaðir.

Bílvelta við Borgarfjarðarbrú

Einn slasaðist þegar bíll valt útaf Vesturlandsvegi við Borgarfjarðarbrú laust fyrir klukkan tíu í kvöld. Ekki liggur fyrir hvað olli slysinu.

Reynt að hífa TF Sif upp úr sjónum

Reynt verður að hífa TF Sif, þyrlu landhelgisgæslunnar, upp úr sjónum í kvöld. Þyrlan liggur á hvolfi úti af Hvaleyrarholti milli Straumsvíkur og Hafnarfjarðar en kafarar eru nú að losa spaðana af þyrlunni til þess hægt verði að snúa henni við.

Verða að taka spaðana af TF Sif

Taka verður spaðana af TF Sif til að hægt verði að snúa vélinni við þar sem hún liggur á hvolfi í sjónum samkvæmt upplýsingum Vísis. Kafarar eru nú á leiðinni til að meta aðstæður og finna út hvernig best er að hífa þyrluna upp úr sjónum.

Ofsóttur vegna hunds

Fyrir um þremur vikum síðar logaði netsamfélagið stafnanna á milli vegna ásakana á hendur Helga Rafn Brynjarssyni sem var sagður hafa misþyrmt hundinum Lúkasi og sparkað hann til dauða á bíladögum á Akureyri.

TF Sif líklega ónýt

Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra, segir að TF Sif sé að öllum líkindum ónýt. Hann segist þegar vera búinn að gera ráðstafanir til að útvega nýja þyrlu. Georg Lárusson, forstjóri Landhelgisgæslunnar, segir mikil mildi að enginn hafi slasast.

Búið að bjarga mönnunum fjórum sem voru um borð í TF Sif

Búið er að bjarga mönnunum fjórum sem voru um borð í TF Sif þegar hún féll í sjóinn. Mennirnir eru allir heilir á húfi og ómeiddir samkvæmt heimildum Vísis. Þyrlan var á æfingu með björgunarsveit Hafnarfjarðar þegar slysið varð.

Heimilin skulda 86 milljarða í lánum í erlendri mynt

Heimilin í landinu skulda áttatíu og sex milljarða króna erlendri mynt en þetta er tólf prósent af heildarlánum heimilanna. Lánin geta stórhækkað ef gengi krónunnar fellur og hefur seðlabankastjóri varað við þeim.

Áhöfn slapp ómeidd eftir að TF Sif féll í sjóinn

TF Sif, þyrla Landhelgisgæslunnar, féll í sjóinn mitt á milli Straumsvíkur og Hafnarfjarðarhafnar um klukkan sjö í kvöld. Fjórir menn voru um borð en þeir sluppu allir ómeiddir. Þyrlan er enn á floti í sjónum og reynt verður að hífa hana upp.

Rekin frá Bandaríkjunum en barnið varð eftir

Dagbjört Rós Halldórsdóttir, fær ekki að snúa til Bandaríkjanna til að sækja sautján mánaða dóttur sína. Henni var vísað frá Bandaríkjunum fyrir tveimur mánuðum en hún hafði þá ekki endurnýjað dvalarleyfi sitt. Dóttirin varð eftir í Bandaríkjunum, en Dagbjört fær ekki vegabréfsáritun til að hitta barnið.

Eigandi Lúkasar ánægður og ringlaður yfir óvæntri upprisu hundsins

Hundurinn Lúkas er á lífi. Hann hefur nú verið týndur í tvo mánuði og var sú saga komin á kreik að tveir drengir hefðu sett hann í íþróttatösku og sparkað honum á milli sín þangað til hann drapst á Akureyri. Lögreglurannsókn var í fullum gangi þegar tíðindin bárust. Eigandi Lúkasar segist ánægður en einnig ringlaður.

Flutningabíll valt út í Eyjafjarðará

Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll fór útaf vegi og valt út í Eyjafjarðará rétt innan við Hrafnagil síðdegis í dag. Bíllinn var við malarflutninga þegar slysið átti sér stað og var einn maður um borð. Hann sakaði ekki.

Um þrjú hundruð barrtré felld á Þingvöllum á næstu árum

Hátt í þrjú hundruð barrtré á Þingvöllum verða felld á næstu árum því þau teljast ekki upprunaleg samkvæmt Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna. Heimsminjaskrá setur það ekki að skilyrði að tréin verði felld en það verður engu að síður framkvæmt svo Þingvellir verði í sinni upprunalegu mynd frá þjóðveldistímanum.

Hundurinn Lúkas er sagður á lífi

Hundurinn Lúkas er að öllum líkindum á lífi. Gunnar Jóhannsson, yfirmaður rannsóknardeildar lögreglunar á Akureyri, segir að lögreglumenn hafi ásamt eiganda hundsins séð Lúkas fyrir ofan bæinn eftir ábendingar frá vegfaranda.

Á 160 kílómetra hraða á leið til kærustunnar

Tveir ökumenn á fertugsaldri voru teknir fyrir ofsaakstur í Reykjavík á laugardag. Annar ökumaðurinn sem var á um 160 kílómetra hraða gaf þá skýringu að hann þyrfti að koma farsíma kærustunnar sem hann hafði undir höndum til hennar og mátti það ekki þola neina bið.

Ökumenn og bíll í annarlegu ástandi

Nítján ára piltur var tekinn í miðborginni á föstudag fyrir að keyra undir áhrifum fíkniefna. Með honum í bílnum voru tveir piltar og ein stúlka. Ungmennin voru öll í annarlegu ástandi og voru flutt á lögreglustöð. Ökumaður bílsins reyndist þegar hafa verið sviptur ökuleyfi og bíll hans var auk þess búinn nagladekkjum.

Keppt í kleinubakstri á Egilstöðum

Fjórðungsmót Minjasafns Austurlands í kleinubakstri var haldið á Egilstöðum í gær, en þá var jafnframt íslenski safnadagurinn. Voru keppendur beðnir um að koma með 15 bakaðar kleinur sem yrðu dæmdar eftir útliti, bragði og áferð.

Eitraður kræklingur

Kræklingur í Hvalfirði er að öllum líkindum eitraður um þessar mundir og varar Umhverfisstofnun fólk við að tína hann sér til matar. Á heimasíðu stofnunarinnar segir að mælingar sýni að magn eitraðra svifþörunga sé yfir viðmiðunarmörkum og skelfiskurinn sé því óætur.

Ernir fær nýja vél

Flugfélagið Ernir er að fá nýja flugvél til landsins í dag. Ernir halda uppi áætlunarflugi til Hafnar, Sauðárkróks, Bíldudals og Gjögurs. Þetta er 19 sæta Jet Stream -vél, samskonar og félagið á fyrir.

Sinueldar á Grundartanga

Slökkviliðinu á Akranesi, ásamt björgunarsveitarmönnum þaðan, lögreglunni í Borgarnesi og bændum, sem mættu á vettvang með haugsugur, tókst í gærkvöldi að ráða niðurlögum sinuelda sem blossuðu upp í grennd við álverið á Grundartanga um sexleytið í gærkvöldi.

Ísland fremst Evrópulanda í lífsgæðum

Ísland leiðir lista yfir þau Evrópulönd sem eru færust um að sjá þegnum sínum fyrir löngu og hamingjusömu lífi. Könnunin á þrjátíu löndum álfunnar leiddi í ljós að lífshamingja Evrópubúa er ekki háð neyslu. Samtökin New Economics Foundation stóðu að könnuninni og tóku tillit til kolefnisútblásturs, hversu ánægt fólk var með lífið og lífslíkur.

Sjá næstu 50 fréttir