Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Elton John keypti íslenska glerlist Elton John keypti tvo íslenska glerlistarmuni af Ingu Elínu Kristinsdóttur í gærkvöldi skömmu áður en hann steig á svið á afmælistónleikum Ólafs Ólafssonar. Elton, sem safnar glerlistaverkum, keypti glerskúlptúr á um 100 þúsund krónur af listamanninum og glerskál. Hann virtist hinn ánægðasti með kaupin, að sögn listakonunnar. Inga Elín kom með úrval gripa á staðinn sem Elton dvaldi á meðan hann beið þess að fara á svið. Hann valdi gripina tvo og "virtist mjög ánægður," að sögn listakonunnar. "Fine, fine," sagði Elton, "This is very fine." Inga Elín er höfundur verðlaunagripsins Ístónsins sem afhentur er við Íslensku tónlistarverðlaunin ár hvert. 21.1.2007 14:18
Valdimar Leó kominn í Frjálslynda flokkinn Valdimar Léo Friðriksson, sem kom inn sem varaþingmaður Samfylkingar fyrir Guðmund Árna Stefánsson 2005, er genginn til liðs við þingflokk Frjálslyndra. Hann greindi frá þessu í þættinum Silfri Egils á Stöð 2 í dag. Valdimar náði ekki öruggu sæti á framboðslista Samfylkingarinnar í prófkjöri flokksins í SV kjördæmi í haust. 21.1.2007 13:34
Elton söng afmælissönginn fyrir Ólaf Breski tónlistarmaðurinn Elton John staldraði stutt við á Íslandi því strax að loknum afmælistónleikum fyrir stjórnarformann Samskipa hélt hann til Bandaríkjanna. Hann gaf sér þó tíma til að syngja afmælissönginn fyrir Ólaf Ólafsson. 21.1.2007 12:21
Sér fyrir endann á löngum frostakafla Nú sér loks fyrir endann á þeim samfellda frostakafla sem verið hefur á landinu síðan 5. janúar. Suðrænt loft sækir nú að landinu og fer að hlýna, fyrst vestan til, seint á morgun og á þriðjudag ætti að vera orðið frostlaust víðast hvar á láglendi. Horfur eru á að hlýindin dvelji jafnvel í einhverja daga og því ætti að verða nokkur snjóbráð. 21.1.2007 12:16
Átökin harðna hjá forystumönnum Frjálslyndra Átökin fara harðnandi meðal forystumanna Frjálslynda flokksins þegar tæp vika er til landsþings flokksins. Magnús Þór Hafsteinsson, varaformaður flokksins segir Margréti Sverrisdóttur hafa niðurlægt og gert lítið úr störfum þingmanna flokksins með orðum sínum í fjölmiðlum, birtingu níðvísna á bloggvef sínum og fleiru miður skemmtilegu. 21.1.2007 11:36
Vélsleðaslys í Hveradölum Vélsleðaslys varð á Hveradalasvæðinu eftir hádegið í dag. Sleði valt með feðgin, stúlku á tíunda ári og 35 ára faðir hennar, voru á sleðanum að sögn lögreglunnar á Selfossi, sem kom á staðinn im klukkan kortér í fjögur. Stúlkan slasaðist ekki mikið en maðurinn var meðvitundarlaus þegar að var komið. Þau voru bæði flutt á slysadeild. 20.1.2007 20:54
Ólöf tók myndirnar Ólöf Ósk Erlendsdóttir, sem kært hefur Guðmund Jónsson, forstöðumann Byrgisins fyrir kynferðisbrot, átti frumkvæðið að því að taka myndir af athöfnum þeirra. Segist hún hafa gert það vegna gruns um að hann hefði logið að sér um sérstöðu sambands þeirra. Og að myndatökurnar hafi verið með vitund og samþykki Guðmundar. 20.1.2007 19:36
Aðgengi að varnarskjölum aukið Utanríkisráðuneytið mun beita sér fyrir því að kaldastríðsnefnd þingsins fái öryggisvottun frá NATO og geti þannig óhindrað farið í gegnum öll skjöl um öryggis- og varnarmál. Í svari til nefndarinnar er bent á þá afstöðu að veita ber almenningi og fræðimönnum fullan aðgang að slíkum skjölum, svo fremi að samningar við erlend ríki hindri það ekki. 20.1.2007 19:30
Framboðslisti Samfylkingarinnar NA-kjördæmi samþykktur Framboðslisti Samfylkingarinnar í Norðausturkjördæmi var samþykktur samhljóða af aukakjördæmisþingi flokksins sem haldið var á Akureyri í dag. Kosið var um þrjú efstu sætin á listanum í prófkjöri sem fram fór s.l. haust en þrjú efstu sætin hlutu í prófkjöri Kristján L. Möller, alþingismaður, Einar Már Sigurðsson, alþingismaður og Lára Stefánsdóttir, framkvæmdastjóri. 20.1.2007 19:15
Elton John á Íslandi Einkaþota breska tónlistarmannsins Eltons Johns lenti á Reykjavíkurflugvelli nú fyrir stundu. Stórstjarnan er hingað komin til að leika í afmæli Ólafs Ólafssonar, stjórnarformanns Samskipa, sem haldið verður í frystigeymslu fyrirtækisins í kvöld. 20.1.2007 18:56
Færð versnar á Klettshálsi á Vestfjarðavegi Það er versnandi færð á Klettshálsi á Vestfjarðavegi þar sem er mikill skafrenningur, og má búast við að vegurinn verði ófær undir kvöld. Það er búið að opna Siglufjarðarveg sem lokaðist um stund nú síðdegis af litlu snjóflóði. Á Norðurlandi er víða ofankoma eða skafrenningur. Annars er vetrarfærð í öllum landshlutum; hálka, hálkublettir eða snjóþekja en það er helst að vegir séu auðir á Suðausturlandi. 20.1.2007 18:33
Elton John spilar í einkaveislu í Reykjavík í kvöld Hinn heimsfrægi tónlistarmaður Elton John verður meðal skemmtikrafta í fimmtugs-afmælisveislu Ólafs Ólafssonar, stjórnarfomanns Samskipa, sem haldin verður í Ísheimum, frystigeymslu Samskipa, við Vogabakka í Reykjavík í kvöld. Elton John stígur á svið klukkan hálf níu og spilar í klukkustund. 20.1.2007 17:43
Fært orðið um Vestfirði Það er búið að opna Steingrímsfjarðarheiði og allar aðalleiðir á Vestfjörðum eru því orðnar færar. Á Norðurlandi er víða ofankoma eða skafrenningur. Annars er vetrarfærð í öllum landshlutum; hálka, hálkublettir eða snjóþekja en það er helst að vegir séu auðir á Suðausturlandi. 20.1.2007 17:06
Stjórnlaus tankbíll í fimm bíla árekstri á Akureyri Umferðaróhapp varð á Akureyri síðdegis. Tankbíll náði ekki að stoppa og rann niður Þórunnarstræti og yfir gatnamót. Fimm bílar urðu fyrir skemmdum. Nota þurfti klippur til að ná ökumanni og farþega út úr jeppabifreið en þau voru ekki talin alvarlega slösuð. Þau voru flutt á slysadeild til skoðunar. 20.1.2007 16:49
Nýr rektor tekur við boðkeflinu í Háskólanum í Reykjavík Dr. Guðfinna S. Bjarnadóttir flutti síðasta ávarp sitt sem rektor Háskólans í Reykjavík og í lok útskriftarathafnar í skólanum í dag. Bjarni Ármannsson, formaður Háskólaráðs, leiddi svo fráfarandi rektor og hinn nýja rektor skólans, dr. Svöfu Grönfeldt, saman og Guðfinna afhenti Svöfu boðkefli til marks um að hún væri tekin við stjórn skólans. 20.1.2007 16:42
Leita þarf skjala um varnarmálin í 850 hillumetrum Valgerður Sverrisdóttir, utanríkisráðherra heldur áfram að birta leyniskjöl og hefur nú sent formanni kaldastríðsnefndarinnar svar við ósk hennar eftir upplýsingum um gögn í skjalasafni ráðuneytisins. Valgerður sagði fyrir helgi, að hún vildi ekki viðhafa það andrúmsloft leyndarhyggju varðandi varnarmálin, sem áður var ríkjandi. 20.1.2007 15:58
Kýrin Blúnda setur glæsilegt Íslandsmet Kýrin Blúnda frá Helluvaði á Rangárvöllum hefur sett nýtt og glæsilegt Íslandsmet í mjólkurafköstum einstakra kúa í landinu. Fréttablaðið Dagskráin á Selfossi sagði frá þessu fyrir helgi. 20.1.2007 14:40
Kjörsókn er ágæt hjá Framsóknarmönnum Um kl 15 í dag höfðu um 500 manns kosið á Selfossi í prófkjöri Framsóknarflokksins í Suðurkjördæmi að sögn fréttavefsins Suðurlands.net. Klukkan 13 var heildartalan 850 yfir þá sem höfðu kosið á kjörfundi kjördæminu öllu. Alls er kosið á 26 kjörstöðum í Suðurkjördæmi. Þátttaka í prófkjörinu er heimil öllum félagsmönnum í framsóknarfélögunum í kjördæminu. 20.1.2007 13:59
Hlakka til að stíga inná gólfið Nú styttist í að strákarnir okkar hefji leik á Heimsmeistaramótinu í handbolta sem haldið í Þýskalandi. Vísir heyrði í Arnór Atlasyni í morgun sem hlakkaði mikið til að stíga inn á gólfið í Bördelandhalle í Magdeburg. 20.1.2007 12:58
Ólafur Ólafsson og eiginkona hans gefa milljarð króna Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Samskipa, og eiginkona hans, Ingibjörg Kristjánsdóttir landslagsarkitekt, kynntu í morgun að þau hefðu stofnað velgerðarsjóð og lagt honum til einn milljarð króna í stofnframlag. Tekjum sjóðsins verður varið til ýmissa verkefna í þróunarlöndum og til að göfga mannlíf á Íslandi. 20.1.2007 12:01
Olíuyfirráð í Írak að ráðast Lagafrumvarp sem veitir ríkisstjórninni í Bagdad yfirráð yfir olíulindum Íraks er nánast tilbúið að því er fram kemur í stórblaðinu New York Times í dag. Mikil pólitísk átök hafa verið um yfirráð yfir þessum þriðju mestu olíulindum heims. 20.1.2007 11:56
Enn myrkur í Bláfjöllum en fólk laust úr lyftum Flestir eru nú komnir heim úr Bláfjöllum og starfsmenn að klára að aka gil og brekkur í Bláfjöllum til að athuga hvort ekki hafi allir skíðamenn komist niður úr brekkunum eftir að rafmagn fór af svæðinu fyrr í kvöld. Viðgerð stendur enn yfir á rafmagnslínu sem slitnaði um sjö-leytið í kvöld þannig að rafmagn fór af svæðinu.a 19.1.2007 21:07
Viðurkenndu að mistök hefðu átt sér stað gagnvart Byrginu Fyrir fjórum árum flutti félagsmálaráðuneytið fjárframlag Byrgisins á nýja kennitölu, þar sem líknarfélagið var gjaldþrota. Ríkisendurskoðun gaf leyfi fyrir þessu að uppfylltum ströngum skilyrðum sem ekki var fylgt eftir. 19.1.2007 20:58
Bað stjórn Byrgisins um að krefjast lögreglurannsóknar Ólafur Ólafsson, læknir Byrgisins og fyrrverandi landlæknir, bað stjórn meðferðarheimilisins um að krefjast lögreglurannsóknar vegna meintrar misnotkunar forstöðumanns á skjólstæðingum sínum. Hann segir að lögmaður Byrgisins hafi kært innan við sólarhring eftir að Kompásþáttur um Byrgið var sýndur viku fyrir jól. 19.1.2007 20:55
Fólk fast í lyftu í Bláfjöllum Björgunarsveitarfólk á höfuðborgarsvæðinu hefur verið ræst út til þess að bjarga fólki úr skíðalyftum í Bláfjöllum. Allt svæðið er rafmagnslaust, fólk er fast í lyftum og annað fólk fast í brekkunum þar sem erfiðlega gengur að skíða niður í kolniðamyrkri. Talsvert af börnum var einnig á skíðaæfingu, enda einn af fyrstu dögunum sem svæðið er opið. 19.1.2007 19:07
Svartur blettur á lýðræðissögu Íslands Formaður Vinstri grænna segir það blett á lýðræðissögu Íslands að leynilegir viðaukar hafi verið gerðir við varnarsamning Bandaríkjanna og Íslands. Ráðuneytisstjóri í utanríkisráðuneytinu segir það rangt mat að einn þeirra geri Bandaríkjamönnum mögulegt að taka yfir flugstarfsemi á Keflavíkurflugvelli án samráðs við Íslendinga. 19.1.2007 18:45
Konum fjölgar ekki á Alþingi í vor Konum á þingi mun heldur fækka en fjölga í vor, miðað við framkomna lista og nýjustu skoðanakannanir. Staðan er nokkuð jöfn á höfuðborgarsvæðinu en aðeins í Norðaustur kjördæmi er útlit fyrir jafnt kynjahlutfall. 19.1.2007 18:22
22 umferðaróhöpp í dag Enn verða óvenju mörg umferðaróhöpp á höfuðborgarsvæðinu, þrátt fyrir að vetrarfærðin eigi ekki að koma neinum á óvart lengur. 22 umferðaróhöpp hafa orðið í dag, frá klukkan sjö í morgun. Engin slys hafa hins vegar orðið á fólki, enda flest vægt samstuð. 19.1.2007 18:09
Kynþokkafyllstur Gísli Örn Garðarson leikari var valinn kynþokkafyllsti karlmaður landsins á Rás 2 í dag. Hlustendur Rásar 2 tilnefndu fjöldann allan af frambærilegum karlmönnum og einvalalið smekkkvenna valdi úr hreystimennunum, eins og venja er á bóndadegi. 19.1.2007 17:24
Slökkvilið kallað að Kaplahrauni Allir tiltækir bílar slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins voru kallaðir að gamalli fiskvinnslustöð í Kaplahrauni í Hafnarfirði upp úr fimm í dag. Mikill reykur barst frá húsinu en verkefnið var fljótafgreitt. Eldur var laus í nokkrum fiskikerum sem stóðu fyrir utan húsið og slökkti fyrsti bíllinn sem kom á vettvang fljótt og vel í þeim. 19.1.2007 17:21
Stjórnarandstaðan hótar málþófi alla næstu viku Stjórnarandstaðan á Alþingi hótar því að taka alla næstu viku undir umræður um Ríkisútvarpsfrumvarpið eftir að stjórnarmeirihlutinn hafnaði boði um að fresta gildistöku laganna fram yfir þingkosningar. Stjórnarþingmenn segja að Alþingi sé haldið í gíslingu með grímulausu málþófi. 19.1.2007 17:20
Gæsluvarðahald staðfest yfir meintum barnaníðingi Hæstiréttur Íslands staðfesti í dag gæsluvarðhaldsúrskurð yfir karlmanni sem grunaður er um að hafa reynt að lokka stúlkubörn upp í bíl sinn. Grunur leikur á að maðurinn hafi reynt að koma fram vilja sínum við fimm ára gamla stúlku. Maðurinn hefur neitað sök. 19.1.2007 16:50
Engar umræður á Alþingi um helgina Þingfundi verður slitið klukkan fimm í dag eftir miklar umræður um frumvarp um Ríkisútvarpið síðustu vikuna. Þing hittist ekki aftur fyrr en á mánudaginn. Þingmenn hafa margir hverjir í öðru að snúast um helgina. Prófkjör Framsóknarmanna verður í Suðurkjördæmi auk þess sem kjördæmisráð funda á tveimur stöðum. 19.1.2007 16:34
Ástæða fiskidauða súrefnisskortur Niðurstöður rannsókna starfsmanna Hafrannsóknarstofnunar benda til þess að ástæða fiskidauða í Grundarfirði í síðustu viku hafi verið súrefnisskortur. 19.1.2007 15:51
Ók ölvaður á umferðaljós og stöðumæli Óvenju margir voru stöðvaðir ölvaðir undir stýri síðasta sólahring á höfuðborgarsvæðinu. Alls voru níu teknir á þessum tíma, þar af voru fimm í Reykjavík, þrír í Hafnarfirði og einn í Garðabæ. 19.1.2007 15:11
Neytendasamtökin fagna dómi Hæstaréttar Neytendasamtökin fagna niðurstöðu Hæstaréttar Íslands um að héraðsdómi beri að taka til meðferðar kröfu Sigurðar Hreinssonar, húsasmiðs á Húsavík, um bætur frá Keri, fyrrverandi eiganda Esso, vegna meints olíusamráðs. Hæstiréttur felldi úrskurð sinn í málinu í gær. 19.1.2007 14:45
Fáir í þingsal meðan rætt er um RÚV-frumvarpið Umræður standa enn yfir um frumvarp um hlutafélagavæðingur Ríkisútvarpsins. Þingfundur stóð fram á nótt í gær þar sem þingmenn stjórnarandstöðunnar ræddu um frumvarpið. Þingmenn stjórnarflokkanna hafa skaða þá um málþóf en á meðan Magnús Þór Hafsteinsson, þingmaður Frjálslynda flokksins, hélt ræðu í dag var salurinn næstum mannlaus. 19.1.2007 14:30
Strætó hækkar fargjaldið Fargjöld í strætó hækka að jafnaði um 10% á mánudaginn 22. janúar. Minnst hækkar gjaldið fyrir aldraða og öryrkja eða um 6,7%. 19.1.2007 14:30
Atlantsolía lækkar líka verð Atlantsolía hefur lækkað verð á eldsneyti en ESSO lækkað verð hjá sér í morgun. Verð á bensíni hjá Atlantsolíu lækkar um fimmtíu aura og er nú 109,40 krónur. Verð á dísel lækkar um eina krónu og er nú 111 krónur. 19.1.2007 14:15
Ölvun á dansleik framhaldsskólanema Talsverð ölvun var á tveimur skóladansleikjum framhaldsskólanema í Reykjavík í gærkvöld. Lögregla segir að hringja hafi þurft í forelda og forráðamenn á þriðja tug ungmenna undir 18 ára aldri til að gera þeim að sækja börn sín sem voru drukkin. 19.1.2007 14:03
Flestir smituðust af salmonellu á Spáni eða í Búlgaríu Langflestir þeirra íslensku ferðamanna sem smituðust erlendis af salmonellu á síðasta ári smituðust á Spáni eða í Búlgaríu. Árið 2006 voru 108 einstaklingar greindir með salmonellu á Landspítala-Háskólasjúkrahús. 19.1.2007 13:41
Þurftu ekki að þrífa Bandaríkjamenn höfðu tryggt það strax árið 1951, fyrir 55 árum, að þeir þyrftu ekki að hreinsa upp eftir Varnarliðið þegar það færi af landi brott. Þetta kemur fram í leyniskjölum sem birt voru í gærkvöldi. 19.1.2007 13:25
Samtök atvinnulífsins ósátt við ákvörðun Háskóla Íslands Samtök atvinnulífsins eru ósátt við þá ákvörðun Háskóla Íslands að synja Ágústi Einarssyni, nýráðnum rektor Háskólans á Bifröst, um launalaust leyfi í þrjú ár. Samtökin eru meðal aðstandenda Háskólans á Bifröst og tilnefna tvo af stjórnarmönnum skólans. 19.1.2007 13:20
Flug milli Akureyrar og Keflavíkur Flug milli Akureyrar og Keflavíkur hefst í sumar. Þar með geta Norðlendingar nýtt sér millilandaflug Icelandair á morgnana. Það mun kosta Norðlendinga um átta þúsund krónur aukalega að fljúga í gegnum Keflavík fram og til baka. 19.1.2007 13:15
Umhverfisráðherra fundar með Strætó Umhverfisráðuneytið hefur átt fund með fulltrúum Strætós bs. um hugsanlega þátttöku ríkisins í kostnaði við rekstur almenningssamgangna. Þetta kemur fram í svari Jónínu Bjartmarz umhverfisráðherra við fyrirspurn Björns Inga Hrafnssonar, varaþingmanns Framsóknarfloksins. 19.1.2007 13:15