Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kalt vatn komið á ný Kalt vatn var aftur komið á Seltjarnarnesi og í vestur-og miðbæ Reykjavíkur rétt fyrir klukkan níu í kvöld en kaldavatnslaust hafði verið á þessum stöðum frá klukkan sjö. Grafin hafði verið í sundur kaldavatnsstofnæð á horni Ingólfsstrætis og Sæbrautar sem orsakaði kaldavatnsleysið. 11.7.2006 21:08
Ekkert kalt vatn í miðborginni Kaldavatnslaust er nú á Seltjarnarnesi og í vestur- og miðbæ Reykjavíkur. Ekki er vitað að svo stöddu hvað veldur en samkvæmt upplýsingum frá Orkuveitunnir er verið að kanna málið. Við segjum nánar frá þessu þegar frekari upplýsingar berast. 11.7.2006 19:57
Methagnaður hjá Alcoa Hagnaður Alcoa Corp. nam 744 milljónum Bandaríkjadala eða sem nemur 57 milljörðum íslenskra króna á öðrum fjórðungi yfirstandandi árs. Þetta er besta afkoma í sögu fyrirtækisins. 11.7.2006 19:16
Notkun kreditkorta 22,2% meiri nú en í fyrra Þenslan kemur meðal annars fram í notkun Íslendinga á kredit- og debetkortum. Kreditkortavelta heimilanna var 22,2% meiri í frá janúar til maí á þessu ári en á sama tíma í fyrra, eða um 90 milljarðar króna. Aukning síðustu tólf mánuði er 18,2% borið saman við tólf mánuðina næstu á undan. Þetta kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar. Debetkortavelta jókst um 10,4% í janúar til maí 2006. Aukning síðustu tólf mánuði er 14,8%. Samtals jókst innlend greiðslukortavelta heimila síðustu tólf mánuði um 16,3%. Kreditkortavelta Íslendinga erlendis jókst um 34,6%á tímabilinu janúar til maí frá sama tíma árið áður. 11.7.2006 19:13
Níu lóðir standa eftir Níu lóðir í landi Úlfarsárdals standa eftir en þær voru í hópi 104 lóða sem boðnar voru út í febrúar. Lóðirnar verða settar í hóp lóða í sama hverfi sem er óráðstafað. Ekki liggur fyrir með hvaða hætti þeim verður útdeilt. 11.7.2006 18:45
Álagið að sliga hjúkrunarfræðinga Hópur reyndra hjúkrunarfræðinga við Landspítalann er að því kominn að hætta vegna viðvarandi álags, segir formaður félags hjúkrunarfræðinga. Formaður stjórnarnefndar spítalans segir molbúahátt ráða för þegar stjórnvöld ákveði fjárframlög til Landspítalans. 11.7.2006 18:45
Samruni Lyfja og heilsu og Lyfjavers ógildur Samkeppniseftirlitið ógilti í dag samruna lyfsölufyrirtækjanna Lyfja og heilsu og Lyfjavers. Í úrskurðinum segir að skaðlegra áhrifa samrunans hefði að óbreyttu aðallega gætt á markaði fyrir smásölu lyfja og á markaði fyrir lyfjaskömmtun en sá markaður hefur vaxið á undanförnum árum. Í krafti stöðu sinnar hefði félagið takmarkað samkeppni og getað hagað verðlagningu, þjónustu og viðskiptaskilmálum að verulegu leyti án tillits til keppinauta eða viðskiptavina. 11.7.2006 18:34
Dæmdur í fangelsi fyrir að breyta lyfseðli Héraðsdómur Austurlands dæmdi í dag rúmlega fimmtugan karlmann fyrir skjalafals. Í mars á þessu ári framvísaði hann lyfseðli á lyfið Parkódín Forte, sem hann hafði fengið framvísað hjá tannlækni, en afmáði kross aftan við texta sem tilgreindi að lyfseðlinum mætti aðeins framvísa einu sinni. Í stað þess lét hann líta þannig út fyrir að lyfseðilinn mætti afgreiða fjórum sinnum á minnst sjö daga fresti. Maðurinn játaði brot sitt og var það virt til refsilækkunar. Hann var því dæmdur til fangelsi í þrjátíu daga en einnig var litið til þess að hann hefur ekki gerst sekur um refsiverðan verknað áður og því fellur refsingin niður haldi maðurinn skilorð í tvö ár frá því dómur var kveðin upp. 11.7.2006 18:32
Auðvelt að sitja í Seðlabankanum og gagnrýna Það er auðveldara að sitja í Seðlabankanum heldur en að bera ábyrgð í ríkisstjórn þegar kemur að stjórn efnahagsmála, segir forsætisráðherra. Hann er sannfærður um að verðbólgan sé á niðurleið. Davíð Oddsson Seðlabankastjóri sagði fyrir aðeins fimm dögum að aðgerðir Seðlabankans væru of varfærnar ef eitthvað væri. 11.7.2006 18:30
Góðæri hjá útgerðarfélögum Góðæri ríkir nú hjá útgerðarfélögunum þar sem verðmæti fiskiaflans hefur hækkað mikið á þessu ári á sama tíma og gengi krónunnar hefur veikst. Ekki er útlit fyrir að verð á aflanum lækki á næstunni. 11.7.2006 18:02
Windows 98 út um gluggann Tölvurisinn Microsoft hætti í dag stuðningi við sín stýrikerfi frá árinu "98. Þó mikið vatn hafi runnið til sjávar í heimi tækninnar á þessum árum er enn mikill fjöldi fólks sem nýtir sér þennan búnað. 11.7.2006 17:16
Aukning í debet- og kreditkortaveltu milli ára Þenslan kemur m.a. fram í notkun Íslendinga á kredit- og debetkortum. Kreditkortavelta heimilanna var 22,2% meiri í frá janúar til maí á þessu ári en á sama tíma í fyrra, eða um 90 milljarðar króna. Aukning síðustu tólf mánuði er 18,2% borið saman við næstu tólf mánuði á undan. Þetta kemur fram í Hagvísum Hagstofunnar. Debetkortavelta jókst um 10,4% á tímabilinu janúar til maí 2006. Aukning síðustu tólf mánuði er 14,8%. Samtals jókst innlend greiðslukortavelta heimilanna síðustu tólf mánuði um 16,3%. Kreditkortavelta Íslendinga erlendis jókst um 34,6%á tímabilinu janúar til maí frá sama tíma árið áður. 11.7.2006 17:00
Grímur átti lægra boð í borholur á Norð-Austurlandi Tilboð í borholur á Norð-Austurlandi og uppsetningu blástursbúnaðar voru opnuð í Landsvirkjun í gær. Verkið var boðið út í júní síðastliðnum, en um er að ræða tilraunaboranir fyrir nýtt raforkuver til álframleiðslu á Húsavík. Tvö tilboð bárust, frá Vélsmiðjunni Grími ehf. og frá Stáli og suðu ehf. Tilboð Vélsmiðjunnar Gríms var lægra, rúmlega 8,8 milljónir. Kostnaðaráætlun Landsvirkjunar var upp á 8,5 milljónir. 11.7.2006 16:15
Skáldaganga um gamla kirkjugarðinn Borgarbókasafn Reykjavíkur býður til kvöldgöngu um gamla kirkjugarðinn við Suðurgötu á fimmtudaginn. Skáldin og bókaverðirnir Einar Ólafsson og Jónína Óskarsdóttir munu leiða gönguna, sem er hluti af göngudagskrá menningarstofnana borgarinnar, Kvöldgöngur úr Kvosinni, sem nú er boðið upp á annað árið í röð. 11.7.2006 16:00
Samkeppni um merki fyrir eyfirsk matvæli Félag um verkefni til að auka hróður eyfirsks matvælaiðnaðar hefur efnt til samkeppni um merki fyrir verkefnið. Merkið mun auðkenna eyfirskan matvælaiðnað og veitingahús og vera gæðastimpill á vöru og þjónustu. 11.7.2006 15:45
Fjölgun ferðamanna mikil Fram kemur í nýlegri skýrslu um erlenda ferðamenn á Íslandi að fjölgun erlendra ferðamanna hefur verið mun hraðari en til dæmis fjölgun landsmanna og vöxtur bílaumferðar síðasta áratuginn. 11.7.2006 14:50
Lifrarbólgutilfellum í hundum fjölgar Á síðustu árum hefur tilfellum lifrarbólgu í hundum farið fjölgandi. Hundar landsins hafa ekki verið bólusettir gegn lifrarbólgu síðustu þrjú ár, vegna þess að þá var hætt að framleiða bóluefni sem notað var gegn lifrabólgu í hundum á Íslandi. 11.7.2006 14:15
Forseti Íslands í kvöldverðarboði í Hvíta húsinu Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands og Dorrit Moussaieff forsetafrú sátu í gær kvöldverð í Hvíta húsinu í boði George Bush forseta Bandaríkjanna og Laura Bush forsetafrúar. 11.7.2006 14:02
Ríkisstjórn styður stefnumörkun Landspítala Háskólasjúkrahúss Ríkisstjórnin styður þá stefnumörkun Landspítala - háskólasjúkrahúss, að yfirmenn spítalans skuli sinna starfi sínu þar eingöngu og ekki öðrum störfum utan hans. 11.7.2006 13:29
Hlé gert á kolmunnaveiðum HB Granda Hlé hefur verið gert á kolmunnaveiðum HB Granda og hefur skipum félagsins verið lagt til 15. ágúst næstkomandi. 11.7.2006 13:22
Umhverfis- og fegrunarátak í Reykjavíkurborg Laugardaginn 22. júlí hefst umhverfis- og fegrunarátak Reykjavíkurborgar. Átakið ber slagorðið “Tökum upp hanskann fyrir Reykjavík” og er fyrirhugað að það eigi sér stað í öllum hverfum borgarinnar og hefjist í Breiðholti. 11.7.2006 12:58
Hætt við framkvæmdir vegna breyttra íbúðalána Kaupendur fimm einbýlishúsalóða og fjögurra parhúsalóða, sem úthlutað var við Úlfarsfell í febrúar, eru hættir við framkvæmdir og búnir að skila lóðunum. 11.7.2006 12:41
Molbúaháttur einkennir fjárveitingar til Landspítalans Molbúaháttur ræður för þegar stjórnvöld ákveða fjárframlög til Landspítalans. Þetta segir formaður stjórnarnefndar spítalans. 11.7.2006 12:07
Framkvæmdastjóri UNICEF á leið til Íslands Á föstudaginn næstkomandi mun framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, heimsækja Ísland. 11.7.2006 12:06
Gaddakylfan veitt í Iðnó í dag Höfundi bestu glæpasögu ársins verður veitt Gaddakylfan í Iðnó í dag milli klukkan fimm og sjö. Þrjár sögur hafa verið valdar í ár en mikil leynd hvílir yfir hverjir höfundar þeirra eru en það mun koma í ljós í kvöld. 11.7.2006 12:01
Verið er að draga fiskibátinn í land Björgunarskipið Oddur V. Gísalson frá Grindavík er að draga lítinn fiskibát, með tvo menn um borð, sem var á reki djúpt út af Reykjanesi. 11.7.2006 10:14
Umferðatafir við Borgarfjarðarbrú Umferðartafir verða við Borgarfjarðarbrú við Borgarnes aðfaranótt 12 júlí milli klukkan 01:00 og 03:00. 11.7.2006 10:00
Afli skipa minnkar milli ára Á árinu 2005 var afli íslenskra skipa tæp 1.669 þúsund tonn sem er 59.000 tonnum minni afli en árið 2004. 11.7.2006 09:39
Kaupendur skila lóðum sínum við Úlfarsfell Kaupendur níu lóða af þeim hundrað og fjórum, sem boðnar voru út við Úlfarsfell í Reykjavík í febrúar, hafa skilað lóðunum aftur. 11.7.2006 09:00
Fimm teknir fyrir ölvunarakstur Nóttin var frekar róleg hjá Lögreglunni í Reykjavík. Þó voru fimm teknir fyrir ölvunarakstur á síðastliðnum sólarhring og eins komu upp fjögur minniháttar fíkniefnamál. 11.7.2006 09:00
Gengu út eftir ræðu Dagnýjar Fulltrúar Bandaríkjanna á ársfundi þings Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu gengu á dyr eftir ræðu Dagnýjar Jónsdóttur, þingmanns Framsóknarflokksins. 11.7.2006 08:00
Þjóðverjinn fundinn Þýskur ferðamaður, sem lögregla lýsti eftir í gærkvöldi, fannst heill á húfi í tjaldi í Laugadalnum. Síðast var vitað um hann á Akureyri og ætlaði hann yfir Kjöl, en lét síðan ekkert vita af ferðum sínum. Því var farið að leita að honum. 11.7.2006 07:53
Alliance hús verði ekki rifið Svokallað Alliance hús sem stendur á Ellingsen reitnum við Mýrargötu, á að rífa ásamt öðrum húsum sem þar standa samkvæmt deiliskipulagi. Þar á að rísa sjö hæða íbúðablokk en Húsafriðunarnefnd leggst gegn niðurrifi hússins. 11.7.2006 07:45
Fleiri innbrot í stærri eignir Af innbrotum í íbúðahúsnæði er algengast að brotist sé inn í einbýlis- og raðhús að sögn Árna Vigfússonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík. Lögreglan brýnir fyrir fólki að ganga vel frá heimili sínu áður en haldið er í ferðalag. Innbrotsþjófar eru á ferðinni allan ársins hring, en eiga sérstaklega auðvelt með að athafna sig þegar fjölskyldur landsins eru að heiman í sumarfríum. 11.7.2006 07:30
Hækkun íbúðaverðs eykur greiðslubyrði Verðhækkun fasteigna síðustu misseri hefur leitt til meiri hækkunar á greiðslubyrði íbúðalána en vaxtahækkanir. Hagfræðingur segir eðlilegt að fasteignaverð fari lækkandi eftir verðhækkunina síðustu misseri. 11.7.2006 07:30
Fíkniefni gerð upptæk Talsvert af fíkniefnum fanst í bíl, sem lögreglan á Selfossi stöðvaði á Hellsiheiði í nótt. 11.7.2006 07:30
Fóru í gegnum varnargirðingu Lögreglunni í Bolungarvík var tilkynnt um töluvert grjóthrun úr Óshlíðinni um eittleytið í fyrrinótt. 11.7.2006 07:15
Rútukaup verða áfram niðurgreidd Framlengja á heimild til endurgreiðslu 2/3 hluta virðisaukaskatts af nýjum innfluttum hópbifreiðum. Starfshópur samgönguráðherra, sem fjallaði um rekstrarumhverfi hópbifreiða, komst að þeirri niðurstöðu, en að öllu óbreyttu rennur heimildin út um næstu áramót. 11.7.2006 07:15
Fiskibátur á reki út af Reykjanesi Björgunarskipið Oddur V. Gíslason frá Grenivík er nú komið að litlum fiskibáti, með tvo menn um borð, sem er á reki djúpt út af Reykjanesi. 11.7.2006 07:01
Annir í embætti Öfugt við svo marga sem nú eru í sumarleyfum frá vinnu og liggja með tærnar upp í loft þeysist Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, á milli landa og landshluta í opinberum erindagjörðum. 11.7.2006 07:00
Réttarstaða sumarhúsaeigenda slæm Nýir landeigendur í Borgarfirði krefja sumarhúsaeigendur til áratuga um fjórfalt hærri leigu í nýjum leigusamningi. Leigjendunum býðst að kaupa lóðina á milljónir. Talsmaður sumarhúsaeigenda segir lagabreytinga þörf. 11.7.2006 07:00
Hagvöxtur og mörg ný störf Heimsmeistaramótið í knattspyrnu hefur aukið hagvöxt í Þýskalandi um 0,3 prósent og hafa meira en fimmtíu þúsund ný störf orðið til vegna mótsins. Búist er við að um helmingur þeirra verði áfram til staðar eftir að mótinu lýkur. Því lauk í fyrradag með sigri Ítala á Frökkum. 11.7.2006 07:00
Ástand stúlkunnar óbreytt Ástand stúlkunnar sem slasaðist alvarlega í bílslysi við Varmahlíð í byrjun mánaðarins er óbreytt, að sögn vakthafandi læknis á gjörgæsludeild Landspítalans. Hún er enn í öndunarvél en ástand hennar er stöðugt. 11.7.2006 07:00
Nýtt upphaf hjá flokknum Jónína Bjartmarz umhverfisráðherra tilkynnti í gær að hún gæfi kost á sér í kjöri til varaformanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi. 11.7.2006 07:00
Sjóræningjar fá sínu framgengt Koma svokallaðra sjóræningjatogara til veiða á úthafskarfa, rétt utan við íslensku efnahagslögsöguna suðvestur af Reykjanesi, er árviss viðburður. Íslensk stjórnvöld reyna að stemma stigu við veiðum þeirra en samstaða þeirra þjóða sem hagsmuna hafa að gæta mætti vera meiri. 11.7.2006 07:00
Árás Bandaríkjanna á Íran: „Íran, yfirgangsseggur Miðausturlandanna, verður að boða til friðar“ Erlent