Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Í-listinn fengi hreinan meirihluta Í-listinn, sameiginlegt framboð Samfylkingarinnar, Vinstri - grænna, Frjálslyndra og óháðra á Ísafirði, næði hreinum meirihluta í bæjarstjórn ef kosið yrði nú. Þetta kemur í ljós í nýrri könnun sem Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands vann fyrir NFS. Átta ára valdatíð sjálfstæðismanna og framsóknarmanna virðist á enda samkvæmt þessu. 2.5.2006 21:03
Höft festu starfsmannaleigur í sessi Takmarkanir á frjálsu flæði vinnuafls frá nýjum EES-ríkjum síðustu 2 ár hafa fest starfsmannaleigur í sessi segja Samtök atvinnulífsins. 2.5.2006 23:47
Verðtrygging er lífeyriskerfinu nauðsyn Lífeyriskerfið færi á haus ef verðtryggingin yrði afnumin segir Hrafn Magnússon, framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Skiptar skoðanir eru um málið innan verkalýðshreyfingarinnar. 2.5.2006 23:36
Íslensk stjórnvöld ættu að skammast sín Íslensk stjórnvöld ættu að sjá sig um hönd, jafnvel skammast sín fyrir hvernig staðið hefur verið að framkvæmdum við álverið á Reyðarfirði. Þetta segir Hjörleifur Guttormsson sem gagnrýnir harðlega frummatsskýrslu Alcoa um umhverfisáhrif frá álverinu og framgang stjórnvalda í þeim efnum. 2.5.2006 22:40
Krefjast þess að verðhækkanir verði dregnar til baka Neytendasamtökin hafa sent stórri ferðaskrifstofu bréf þar sem þau krefjast þess að ákvörðun þeirra um verðhækkun á pakkaferðum skrifstofunnar verði dregin til baka. Á heimasíðu Neytendasamtakanna segja samtökin að ferðaskrifstofan hafi sent mörgum neytendum sem greitt hafa svonefnt staðfestingagjald bréf þar sem þeim er tilkynnt um að verð ferðanna hafi verið hækkað eða verði hækkað vegna gengisbreytinga að undanförnu. 2.5.2006 22:38
Jarðgöng þurfa ekki í umhverfismat á ný Íbúasamtök Laugardalshverfa og Grafarvogs segja það misskilning að framkvæmdir á Sundabraut muni tefjast vegna umhverfismats á jarðgöngum. Þeim kosti hafi þegar verið gerð skil í umhverfismati og því þyrfti einungis að endurskoða niðurstöður þess umhverfismats út frá nýjum hugmyndum en óþarfi sé að meta gangakostinn upp á nýtt. 2.5.2006 22:34
Þingfundur stendur enn Þingfundur stendur enn á Alþingi en hann hófst í dag laust eftir hádegi. Verið er að ræða breytingar á lögum um almannatryggingar vegna uppsagnar sjálfstætt starfandi sérfræðinga í hjartalækningum á samningi við ríkið. 2.5.2006 22:19
Sumarbústöðum fjölgar um ríflega þriðjung á átta árum Sumarbústöðum í landinu hefur fjölgað um rúman þriðjung í landinu frá árinu 1997. Þetta kemur fram í svari fjármálaráðherra við fyrirspurn Björgvins G. Sigurðssonar, þingmanns Samfylkingarinnar. Í tölum frá Fasteignamati ríkisins kemur í ljós að 7617 sumarbústaðir voru í landinu árið 1997. 2.5.2006 21:30
Þjóðsögur og þulur hjá Nemendaleikhúsinu Þjóðsögur og þulur eru í aðalhlutverki í sýningu Nemendaleikhúss Listaháskóla Íslands sem sett er upp á Litla sviði Þjóðleikhússins. Í sýningunni er drepið á frægum þjóðsögum eins og Nú skyldi ég hlæja ef ég væri ekki dauður, sem er einnig titill sýningarinnar. Auk þess bregður fyrir þeim Gilitrutt, Bakkabræðrum, púkanum og fjósamanninum og Búkollu, svo nokkur séu nefnd. 2.5.2006 20:30
Stúdentar ekki sáttir við orð Runólfs á Bifröst Stúdentaráð Háskóla Íslands og Félag Stúdenta við Háskólann á Akureyri mótmæla orðum Runólfs Ágústssonar, rektors á Bifröst og segja skólagjöld hvorki forsendu né skilyrði fyrir því að háskólar nái í fremstu röð. 2.5.2006 20:15
6 tonna steypuplata féll á starfsmann Ístaks Það má með sanni segja að starfsmaður Ístaks á Keflavíkurflugvelli hafi ekki verið feigur þegar að sex tonna steypuplata féll á hann um klukkan fjögur í dag. Verið var að setja gólf í eitt flugskýlið þegar að steypuplatan hrundi ofan á manninn og brotnaði og var í fyrstu talið að um mjög alvarlegt vinnuslys væri að ræða 2.5.2006 20:04
Segir ummæli formanns KSÍ lykta af rangstöðu Verkefnisstjóri Biskupsstofu segir þau ummæli formanns KSÍ, að það veki furðu að vændi á HM sé í brennidepli hjá kirkjunnar mönnum, lykta af rangstöðu. Að hans mati á Íþróttahreyfingin, líkt og kirkjan, að standa vörð um velsæmi 2.5.2006 18:45
Dagur gegn megrun og fordómum í garð feitra Megrunarlausi dagurinn, baráttudagur gegn átröskun, megrun og fordómum í garð feitra, er á laugardag.Lögð er áhersla á að konur hætti að eltast við óraunhæfar útlitskröfur. 2.5.2006 18:45
Gæsluvarðhald yfir Litháa staðfest Hæstiréttur staðfesti í dag að Lithái, sem handtekinn var með amfetamín í flöskum og brennisteinssýruþegar hann kom til landsins í febrúar, verði í gæsluvarðhaldi þar til máli hans lýkur en þó ekki lengur en til 9. júní. 2.5.2006 17:49
Kjósa milli þriggja nafna á Ströndum Heimabyggð, Strandabyggð, Strandahreppur og Sveitarfélagið Standir eru þær tillögur að nýju nafni á sameinað sveitarfélag Broddanes- og Hólmavíkurhreppa sem samstarfsnefnd um sameiningu hefur sent til umsagnar til örnefnanefndar. Þetta kemur fram á vefnum Strandir.is. 2.5.2006 17:33
Allir viðskiptabankarnir skiluðu methagnaði Viðskiptabankarnir þrír skiluðu allir methagnaði á fyrstu þremur mánuðum ársins. Samtals nemur hagnaðurinn rúmlega fjörutíu milljörðum króna. Ef Straumur-Burðarás er tekinn inn í dæmið er fjórða metið fallið. 2.5.2006 17:19
Kynna skýrslu um íslenskt efnahagslíf í New York Viðskiptaráð Íslands ætlar á morgun að bregðast við gangrýnisröddum innan lands sem utan og kynna skýrslu um íslenskt efnahagslíf sem Tryggvi Þór Herbertsson, forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands, hefur unnið í samvinnu við einn virtasta hagfræðing í heimi á sviði fjármálastjórnar og fjármálastöðugleika. Skýrslan verðir kynnt fyrir bandarískum fjölmiðlum og fjármálamönnum í New York og er enginn kattarþvottur fyrir íslenskt efnahagslíf segir forstöðumaður Hagfræðistofnunar. 2.5.2006 17:12
Rafmagnslaust á Fellströnd, Skarðsströnd og Saurbæ Um tvöleitið í dag fór af Fellströnd, Skarðsströnd og Saurbæ þegar grafa tók háspennustreng í sundur við Ásgarð. Áætlað er að viðgerð ljúki um klukkan 19.00 2.5.2006 17:00
Olíufélagið hækkar bensínverð Olíufélagið hækkaði verð á bensíni í dag. Eftir hækkunina verður sjálfsafgreiðsluverð á bensínstöðvum félagsins á höfuðborgarsvæðinu tæpar 128 krónur. Á heimasíðu félagsins segir að ástæðan sé hækkandi heimsmarkaðsverð. 2.5.2006 16:46
Stúlkan sem saknað var fundin Lögreglan á Selfossi lýsti í morgunn eftir fjórtán ára stúlku sem hvarf af heimili sínu á sunnudag. Að sögn lögreglu fannst stúlkan nú fyrir skömmu í heimahúsi í Reykjavík heil á húfi. 2.5.2006 16:32
Tímabundin lækkun á olíugjaldi Tímabundin lækkun á olíugjaldi verður framlengd til áramóta ef frumvarp fjármálaráðherra þar að lútandi nær fram að ganga. Fyrsta umræða um frumvarpið er á þingi í dag en það ríður á að samþykkja það fyrir 1. júní því þá rennur núverandi framlengingartímabil út. 2.5.2006 16:24
Stjórnarliðar og stjórnarandstaða sameinuð meðal barna Fulltrúar stjórnarliða og stjórnandstöðu sameinuðust í göfugu verkefni meðal prúðra barna í dag. Gott hljóð var í mannskapnum og mikið var helgið þegar forsætisráðherra ljóstraði því upp við börnin að Össur Skarphéðinsson væri prúðastur þingmanna. 2.5.2006 15:51
Tvennt slasaðist í bílveltu Tvennt var flutt á slysadeild eftir að jeppi valt í beygjunni á gatnamótum Suðurlandsvegar og Vesturlandsvegar um klukkan tvö í dag. Fjórir voru í bílnum en að sögn lögreglu var ökumaður jeppans á það mikilli ferð að hann náði ekki beygjunni og því valt bíllinn. 2.5.2006 15:24
Bílvelta á Suðurlandsvegi Bílvelta varð á Suðurlandsvegi rétt ofan við gatnamót Suðurlands- og Vesturlandsvegar klukkan 2 í dag. Tilkynn var um að fjórir væru slasaðir og voru þrír sjúkrabílar sendir á staðinn. Ekki er enn vitað hvað olli slysinu eða hversu alvarlegt það er en lögreglan er á staðnum. Við segjum nánar frá þessu síðar í dag. 2.5.2006 14:18
Borgarafundur á Ísafirði í kvöld Bæjarmálin á Ísafirði verða í brennidepli á fimmta borgarafundinum sem NFS efnir til í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Þá verða kynntar niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar Félagsvísindastofnunar á fylgi flokkanna í bænum. 2.5.2006 13:56
Enginn áhugi lengur fyrir kröfugöngum Fjölskylduhátíðir í stað kröfugangna á baráttudegi verkalýðsins, er krafa formanns Rafiðnaðarsambandsins. Hann segir félagsmenn verkalýðsfélaganna engan áhuga hafa lengur á því að fara í kröfugöngur. 2.5.2006 12:15
Aldrei meiri hagnaður Glitnir hefur aldrei skilað meiri hagnaði á einum ársfjórðungi en hann gerði fyrstu þrjá mánuði ársins. Á sama tíma gerðist það í fyrsta sinn í sögu bankans að meira en helmingur hagnaðar er frá útlöndum. 2.5.2006 12:07
Fjórtán milljarða hagnaður Landsbankans Landsbankinn skilaði rúmlega fjórtán milljarða króna hagnaði eftir skatta fyrstu þrjá mánuði ársins og hefur aldrei gert betur. Erlendar tekjur bankans hafa aukist verulega milli ára. Þær voru tveir milljarðar króna á fyrsta ársfjórðungi síðasta árs en eru nú komnar í þrettán milljarða króna. 2.5.2006 12:03
Lögreglan lýsir eftir 14 ára stúlku Lögreglan á Selfossi lýsir eftir stúlku á fimmtánda ári, Guðrúnu Ídu Ragnarsdóttur. Síðast er vitað um ferðir hennar í Reykjavík um miðjan dag á sunnudag. Guðrún er með dökkt axlarsítt hár en ekki liggja fyrir upplýsingar um klæðnað. 2.5.2006 11:57
Kallar skýrslu Alcoa "sýndarplagg" Matsáætlun Alcoa á umhverfisáhrifum fyrirhugaðs álvers á Reyðarfirði hefur verið skilað, hálfu ári eftir áætlaðan tíma. Hjörleifur Guttormsson náttúrufræðingur segir í fréttatilkynningu sem hann sendi nýverið frá sér að skýrsla þessi sé í raun "sýndarplagg" þar sem bygging verksmiðjunnar sé nú langt á veg komin þótt mat á umhverfisáhrifum sé lögum samkvæmt grunnforsenda fyrir slíkri framkvæmd. 2.5.2006 11:00
Tónleikar Iggy Pop færðir í Hafnarhúsið Fyrirhugaðir tónleikar Iggy Pop, sem fram áttu að fara í Laugardalshöll annað kvöld, hafa verið færðir í Hafnarhúsið við Tryggvagötu. Að sögn tónleikahaldara hafði miðasalan fram að nýliðinni helgi ekki verið eins góð og vonir stóðu til um og því var gripið til þessa ráðs. 2.5.2006 10:49
Methagnaður hjá Glitni Glitnir hefur aldrei hagnast meira á einum ársfjórðungi en hann gerði fyrstu þrjá mánuði ársins. Hagnaður samstæðunnar nam rúmum níu milljörðum króna eftir skatta og er það þrefalt meira en á sama ársfjórðungi í fyrra. 2.5.2006 10:34
Glitnir skilaði methagnaði Glitnir skilaði methagnaði á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Hagnaðurinn ríflega þrefaldaðist og var níu komma einn milljarður eftir skatta samanborið við þrjá milljarða á sama ársfjórðungi 2005. Hagnaður fyrir skatta nam 11,2 milljörðum, samanborið við 3,6 milljarða á sama tímabili 2005, sem er rúmlega þreföldun. 2.5.2006 10:05
Lést af áverkum Jónatan Helgi Rafnsson lést í gær af áverkum sem hann hlaut þegar hann féll fram af svölum á fjórðu hæð hótels á Kanaríeyjum. Bænastundir verða haldnar í Bessastaðakirkju klukkan 20 í kvöld og í Landakirkju í Vestmannaeyjum til minningar um Jónatan Helga. 2.5.2006 08:59
1,5 milljarða tap hjá DeCode DeCode Genetics, móðurfélag Íslenskrar erfðagreiningar, tapaði andvirði rúmra 1.500 milljóna króna á fyrsta fjórðungi þessa árs. Þetta kemur fram í þriggja mánaða uppgjöri fyrirtækisins til Nasdaq-markaðarins í New York. 2.5.2006 08:56
Sjónlistamiðstöð á Korpúlfsstöðum Sjónlistamiðstöð tekur til starfa á Korpúlfsstöðum í haust. Fulltrúar Reykjavíkurborgar, Sambands íslenskra myndlistarmanna, Forms Íslands - samtaka hönnuða og Iðntæknistofnunar skrifuðu í gær undir samstarfssamning um rekstur miðstöðvarinnar. Markmið sjónlistamiðstöðvarinnar er að veita fjölbreyttu frumkvöðlastarfi á sviði sjónmennta stuðning. 2.5.2006 08:49
Tekinn á 170 km hraða á Sæbrautinni Lögregla stöðvaði ökumann eftir að bifreið hans mældist á nær 170 kílómetra hraða á Sæbraut við Súðarvog um klukkan þrjú í nótt. Hámarkshraði þarna er 60 kílómetrar á klukkustund og maðurinn því á meira en 100 kílómetra hraða fyrir ofan leyfilegan hámarkshraða. 2.5.2006 08:46
Lífeyrissjóðir með góða ávöxtun Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins og Lífeyrissjóður hjúkrunarfræðinga voru báðir með bestu nafnávöxtun sína frá upphafi á síðasta ári. Hún nam 18,9 prósentum hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins og 18,5 prósentum hjá Lífeyrissjóði hjúkrunarfræðinga. 2.5.2006 08:45
Slapp með lítilsháttar meiðsl Ökumaður slapp með lítilsháttar meiðsl þegar hann missti stjórn á bíl sínum á Reykjanesbraut í nótt með þeim afleiðingum að bíllinn endaði utan vegar. Bíllinn skemmdist talsvert og var fluttur burt með kranabíl. Slysið má að sögn lögreglu rekja til þess að hálka myndaðist skyndilega á veginum. 2.5.2006 08:43
Varnarmálaráðherra Rússlands á landinu? Igor Ivanov, varnarmálaráðherra Rússlands, kom til Íslands í gærkvöldi að því er fram kemur á vef Víkurfrétta. Engar upplýsingar fengust nú í morgun um hvers vegna hann er hér á landi, hvorki í rússneska sendiráðinu né utanríkisráðuneytinu íslenska. 2.5.2006 08:41
1. maí í rysjóttu veðri Víða um land voru kröfugöngur og útifundir í tilefni baráttudagsins, oft í rysjóttu veðri. Talsverður fjöldi marséraði undir blaktandi fánum í Reykjavík, frá Hlemmi niður á Ingólfstorg. 1.5.2006 19:20
Fyrirtæki verða að taka samfélagslega ábyrgð Fyrirtæki verða að taka samfélagslega ábyrgð sagði Ingibjörg R. Guðmundsdóttir varaformaður Alþýðusambands Íslands, í 1. maí ræðu sinni á Ingólfstorgi í dag. Ekki sé nóg að hugsa bara um hagnað og hlutabréfaverð. 1.5.2006 19:08
Finnst eðlilegt að Ásatrúarfélagið kanni rétt sinn Formaður allsherjarnefndar Alþingis segir sjálfsagt að fólk og félög leiti réttar síns, aðspurður um stefnu Ásatrúarfélagsins á hendur ríkinu. Félagið telur ríkið mismuna trúfélögum og brjóta bæði gegn stjórnarskrá og mannréttindasáttmála Evrópu. 1.5.2006 18:45
Óttast um lífríki Lagarfljóts Skilyrði fiska og þörunga í Lagarfljóti munu versna þegar Jökulsá á Dal verður leidd í árfarveg fljótsins í kjölfar Kárahnjúkavirkjunar. Umhverfissinnar vilja frekari rannsóknir á hugsanlegum skaða og var haldin málstofa um það á degi umhverfisins 1.5.2006 18:15
Tekinn á 144 kílómetra hraða Ökumaður var stöðvaður eftir að bifreið hans mældist á 150 kílómetra hraða í umdæmi lögreglunnar á Dalvík í dag. Hann var þó ekki sá eini sem ók ansi greitt á norðanverðu landinu í dag því lögreglan á Blönduósi stöðvaði einn sem hafði mælst á 150 kílómetra hraða. 1.5.2006 17:35