Fleiri fréttir

Hagkerfið komið að ystu mörkum

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt.

Hagkerfið komið að þolmörkum

Forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur íslenska hagkerfið komið að þolmörkum varðandi útgáfu erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum en hún fór yfir hundrað milljarða króna í gær. Hann segir þó ástandið ekki alslæmt.

Eldsvoði á Schiphol-flugvellinum

Ellefu manns létu lífið og fimmtán slösuðust í eldsvoða í fangageymslu á Schiphol-flugvelli í Amsterdam í nótt. Flestir þeirra sem létust voru fíkniefnasmyglarar eða ólöglegir innflytjendur.

Íhugar að stofna eigið flugfélag

Andri Már Ingólfsson eigandi Heimsferða íhugar að stofna sitt eigið flugfélag. Hann útilokar kaup á Iceland Express en félagið er nú til sölu.

Umferðarstofa braut samkeppnislög

Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Umferðarstofa hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína á markaði fyrir upplýsingamiðlun úr ökutækjaskrá. Umferðarstofa hafi þannig brotið gegn samkeppnislögum.

Dómur héraðsdóms staðfestur

Hæstiréttur staðfesti í dag dóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli útgerðarfélagsins Gunnvarar gegn manni sem starfaði áður hjá fyrirtækinu.

Samræma aðgerðir varðandi fjárhættuspil

Norðurlöndin verða að samræma aðgerðir svo hvert land geti stjórnað fjárhættuspilamarkaðnum. Þetta samþykkti Norðurlandaráð á fundi sínum í dag. Þá hlaut íslenskur hlutverkaleikur fyrstu verðlaun í samkeppni um námsefni sem Norræna ráðherranefndin efndi til.

Flug til suður Grænlands í biðstöðu

Flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands eru í biðstöðu eftir að loftferðasamningur milli landanna rann úr gildi fyrr í haust. Ef ekki nást samningar milli heimastjórnar Grænlendinga og Flugfélags Íslands gæti svo farið að flugsamgöngur milli Íslands og suður Grænlands leggist af um óákveðinn tíma.

Suðurflug tekur við rekstri flugstöðvar varnarliðsins

Suðurflug, dótturfélag Avion Group, hefur verið valið til að taka við rekstri flugstöðvar varnarliðsins á Keflavíkurflugvelli. Samningurinn felur í sér daglegan rekstur flugstöðvar varnarliðsins og afgreiðslu á öllum herflugvélum sem um völlinn fara.

Óánægja vegna uppsagna

Margir þeirra starfsmanna sem hefur verið sagt upp hjá Flögu Medcare, eru svekktir vegna uppsagnanna. Svo virðist sem ákveðin eftirsjá ríki meðal starfsmannanna enda sé starfsmannastefna fyrirtækisins góð.

Eru engin takmörk?

Sérfræðinga í peningamálum greinir á um hvað íslenska hagkerfið þolir mikla útgáfu erlendra skuldabréfa í íslenskum krónum. Forstöðumaður Hagfræðistofnunnar telur að útgáfan sé komin að þolmörkum hagkerfisins, en sérfræðingur KB banka segir að í raun séu engin takmörk fyrir útgáfunni.

Áreitti nemendur sína

Hæstiréttur dæmdi mann í dag í fimm mánaða fangelsi, þar af þrjá skilorðsbundna, fyrir að hafa sent ungum stúlkum fjölmörg klámfengin og kynferðisleg smáskilaboð.

Vilja völlinn í Vatnsmýrinni

Margir þeirra sem börðust hvað harðast gegn sameiningu sveitarfélaganna í Eyjafirði, og eru taldir hafa haft mikið að segja um að sameiningu var hafnað, hafa nú skorið upp herör gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar.

Mjög alvarlegar athugasemdir segir Jóhanna

Jóhanna Sigurðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir mjög alvarlegar athugasemdir koma fram í úttekt Ríkisendurskoðunar á kaupum ríkisins á sérfræðiþjónustu á undanförnum árum.

Vöruflutningabíll valt í Mosfellsbæ

Bílstjóri vöruflutningabifreiðar slasaðist þegar bifreið hans valt á hringtorgi á mótum Vesturlandsvegar og Reykjavegar í Mosfellsbæ um hádegisbilið í dag.

ASÍ kannar portúgalska starfsmannaleigu

Alþýðusambandið kannar starfsemi portúgalskrar starfsmannaleigu sem hefur hátt í eitt hundrað starfsmenn hér á landi. Þá er starfsemi íslensku starfsmannaleiganna Tveir plús einn og 2B til skoðunar.

Hagsmunir ferðaþjónustu miklir vegna Grænlandsflugs

Vestnorræna ráðið ræðir nú hvernig koma megi í veg fyrir að flug frá Íslandi til Grænlands leggist af, en samningur við Grænlendinga þar að lútandi rennur út um áramótin. Framkvæmdastjóri Vestnorræna ráðsins segir mikla hagsmuni í húfi bæði fyrir grænlenska og íslenska ferðaþjónustu.

Safna undirskriftum gegn flutningi flugvallar

Íbúar í Dalvíkurbyggð eru byrjaðir með undirskriftasöfnun gegn flutningi Reykjavíkurflugvallar úr Vatnsmýri. Áfram, nýstofnuð hagsmunasamtök Dalvíkurbyggðar, standa fyrir undirskriftasöfnuninni og vonast forsvarsmenn hennar til að íbúasamtök og einstaklingar út um allt land taki þátt í söfnuninni með þeim.

Vill að ríkisvaldið bregðist við vanda sjávarútvegsfyrirtækja

Ef gengi íslensku krónunnar stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta starfsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkrar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við.

Fjöldi barnaverndartilfella tvöfaldast á átta árum

Börnum, sem njóta þjónustu barnaverndarkerfisins, líður jafn illa eða jafnvel verr en börnum innan geðheilbrigðiskerfisins. Stúlkum líður verr en drengjum. Fjöldi barna undir eftirliti barnaverndaryfirvalda hefur ríflega tvöfaldast á átta árum.

Þingi Norðurlandaráðs að ljúka

Þingi Norðurlandaráðs lýkur nú klukkan tvö eftir hádegið, en í morgun hafa samstarfsráðherrar norrænu ríkjanna meðal annars rætt fjármál, orkumál, nýsköpun og framtíðarskipulag norræns samstarfs.

Engin ástæða til að óttast skyndisölu á skuldabréfum

Erfitt er að átta sig á því hvaða áhrif skuldabréfaútgáfa erlendra fjárfesta hefur á íslenskt efnahagslíf. Eiríkur Guðnason, seðlabankastjóri, segir að engin ástæða sé til að óttast að fjárfestarnir selji allir bréf sín á sama tíma. Jafn líklegt sé að þeir vilji eiga skuldabréfin áfram eða gefa út ný.

Hrærð yfir fjölmenninu

Það mátti heyra ekka þegar sveit rauðklæddra björgunarsveitarmanna gekk í íþróttahúsið á Flateyri í gær þar sem þess var minnst að tíu ár eru frá snjóflóðinu sem varð tuttugu manns að bana og lagði stóran hluta þorpsins í rúst. Jóhanna Guðrún Kristjánsdóttir, ein þeirra sem skipulögðu minningarathöfnina, segist hrærð yfir því hversu margir komu.

Malarflutningabíll valt í Mosfellsbæ

Malarflutningabíll fór út af veginum í Mosfellsbæ og er maður fastur í honum. Lögregla, sjúkrabíll og tækjabíll eru á leiðinni á slysstað en ekki er vitað á þessari stundu hversu mikið maðurinn er slasaður. Þá fauk gámur af bíl í Kollafirði.

Dæmdur fyrir að stela bílum

Rúmlega þrítugur karlmaður var í morgun dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að ræna tveimur bílum og keyra þá um götur Reykjavíkur uns lögregla stöðvaði för hans. Maðurinn var jafnframt ökuréttindalaus þegar þetta gerðist.

Fjármálaeftirlit Svíþjóðar varar KB banka við

Kaupþing banki hefur fengið alvarlega viðvörun frá fjármálaeftirlitinu í Svíþjóð, meðal annars fyrir að hygla fyrirtæki í eigu stjórnarmanna Kaupþings, á kostnað annarra viðskiptavina.

Fjölga þarf rýmum

Fjölga verður rýmum á réttargeðdeildinni á Sogni þar sem hún rúmar ekki lengur alla þá sem þyrfti að vista þar segir heilbrigðisráðherra. Hann hefur skipað starfshóp til að huga að uppbyggingu á Sogni.

Huginn greiddi hæstu meðallaunin

Huginn VE 55 greiddi hæstu meðallaunin árið 2004 en meðallaun í útgerðinni voru 685 þúsund krónur á mánuði. Er það hækkun um ellefu prósent frá árinu á undan. Þetta kemur fram í Fiskifréttum.

Ríflega 400 ættleiðingar á árunum 1996-2004

411 ættleiðingar voru hér á landi á tímabilinu 1996 til 2004 eftir því sem fram kemur í nýjum tölum frá Hagstofu Íslands. Í 174 tilvikum var um að ræða stjúpættleiðingu en frumættleiðingar voru 237. Frumættleiddir Íslendingar voru 57 en frumættleiðingar frá útlöndum 180.

Minnihluti kynnti ráðamönnum hugmyndir sínar

Bæjarfulltrúar minnihlutans á Bolungarvík fóru á eigin vegum á fund félagsmálaráðherra og forsætisráðherra til að kynna þeim hugmyndir sínar um gangagerð úr Syðridal í Bolungarvík annað hvort í Vestfjarðagöng eða beint í Tungudal í Skutulsfirði.

Fjórir bílar ultu á Reykjanesbraut í morgun

Fjórir bílar ultu út af Reykjanesbrautinni á milli Voga og Straums, með skömmu millibili upp úr klukkan sjö í morgun þegar ísing myndaðist óvænt á brautinni. Aðeins einn maður meiddist lítillega og var fluttur á slysadeild Borgarspítalans en mikið eignatjón varð.

Hálka og hálkublettir víða um land

Hálkublettir er á Hellisheiði og Þrengslum. Hálka og hálkublettir er á Vesturlandi, Vestfjörðum, Norðvestur- og Norðausturlandi. Á Austfjörðum er hálka, hálkublettir og snjóþekja.

Huga að uppbyggingu á Sogni

Jón Kristjánsson, heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra hefur skipað starfshóp sem á að hafa huga að uppbyggingu við réttargeðdeildina á Sogni. Jón tilkynnti þetta á Sogni í gær þar sem hann var í heimsókn til að kynna sér starfsemina.

Barði dyravörð á Gauki á Stöng

Ölvaður unglingur réðst að tilefnislausu á dyravörð á Gauki á Stöng í nótt og barði hann svo rækilega að flytja þurfti dyravörðinn á slysadeild til aðhlynningar. Lögreglumenn náðu að yfirbuga unglinginn, sem gistir fangageymslur.

Ríkisvaldið bregðist við háu gengi

Ef íslenska krónan stendur í stað eða hækkar getur það leitt til þess að sjávarútvegsfyrirtæki þurfi að hætta stafsemi. Afkoma sjávarútvegsfyrirtækja hefur versnað verulega undanfarna mánuði vegna sterkar stöðu krónunnar en Björgólfur Jóhannsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna, vill að ríkisvaldið bregðist við.

Starfsmannafélag Kópavogs samþykkir samninga

Félagar í Starfsmannafélagi Kópavogs samþykktu í gær nýgerðan kjarasamning við launanefnd sveitarfélaganna, eftir að hafa tvívegis fellt fyrri samninga við nefndina. Yfir sjötíu prósent félagsmanna, sem greiddu atkvæði, voru fylgjandi nýja samningnum, en kosningaþáttaka var rúm sextíu prósent

Fullt út úr dyrum á minningarathöfn í Neskirkju

Fullt var út úr dyrum á minningarstund í Neskirkju í gærkvöldi vegna snjóflóðanna á Flateyri fyrir tíu árum og þurftu því sumir að standa á meðan séra Örn Bárður Jónsson predikaði.

Kostar 1,3 milljarða króna

Toshiba átti lægsta tilboð í vél- og rafbúnað fyrir Hellisheiðarvirkjun. Tilboðið hljóðar upp á átján milljónir evra eða sem samsvarar 1,3 milljörðum króna fyrir vélasamstæðu sem afkastar þrjátíu og fjórum megawöttum.

Fjölmenni á minningarathöfn

Björgunarsveitarmenn og sjóliðar Landhelgisgæslunnar voru meðal kirkjugesta á Flateyri í gærkvöldi, þegar þess var minnst að tíu ár voru liðin frá snjóflóðunum miklu.

Fékk skilorðsbundinn dóm

Héraðsdómur Norðurlands eystra hefur dæmt mann í 30 daga skilorðsbundið fangelsi fyrir að skalla annan mann á skemmtistaðnum Sjallanum á Akureyri undir lok síðasta árs.

Kaupa sig inn í biðröð eftir bóluefni

Kapphlaupið um að verða sér úti um bóluefni gegn fuglaflensu er hafið. Norðmenn hafa farið þá leið að greiða hollenskum lyfjaframleiðanda fúlgur á hverju ári til að tryggja sér lyf. Íslendingar kanna nú alla möguleika.

Íhuga bann við innflutningi á skrautfuglum og gaukum

Til athugunar er í landbúnaðarráðuneytinu að banna innflutning á lifandi páfagaukum og skrautfuglum, að sögn Halldórs Runólfssonar yfirdýralæknis. Hann segir enga ákvörðun enn hafa verið tekna en það sé á hendi landbúnaðarráðherra.

Engir friðargæsluliðar

Flugmálastjórn hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að starfsmenn hennar tengist á engan hátt meintu kynferðisofbeldi, mútuþægni og spillingu friðargæsluliða Sameinuðu þjóðanna í Pristina í Kosovo. Flugmálastjórn tekur fram að starfsmenn hennar séu ekki friðar­gæsluliðar og beri ekki vopn.

Sjá næstu 50 fréttir