Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Verulega áfátt Í úrskurði Héraðsdóms í Baugsmálinu í morgun segir m.a. að samkvæmt íslenskri dómaframkvæmd verði að lýsa því hvernig ákærði er talinn hafa með athæfi sínu gerst sekur um það brot sem um ræðir. Í ákæru ríkisvaldsins gegn forsvarsmönnum Baugs sé því verulega áfátt. 20.9.2005 00:01
Mannbjörg fyrir utan Garðskaga Einum manni var bjargað í morgun þegar mikill leki kom skyndilega að bát hans þar sem hann var staddur um þrettán sjómílur norðvestur af Garðskaga. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út en áður en hún kom á vettvang var manninum bjargað um borð í bát. 20.9.2005 00:01
Lentu utan vegar vegna hálku Tveir bílar lentu utan vegar á Hellisheiði í morgun vegna snjókomu og hálku en engan sem í þeim var sakaði. Einnig greinir Vegagerðin frá hálku á Klettshálsi, krapa á Holtavörðuheiði og snjóþekju eða hálku víða á Norðausturlandi. 20.9.2005 00:01
Ágallarnir of miklir Ágallarnir á þeim átján ákæruliðum í Baugsmálinu, sem dómarar í málinu höfðu tiltekið með bréfi í lok ágúst, þykja vera svo miklir að vísa þurfi málinu frá dómi. Í niðurstöðu úrskurðarins segir að þar sem ágallar eru á verulegum hluta ákærunnar sé ekki hjá því komist að vísa málinu frá í heild. 20.9.2005 00:01
Skerpt á heimildum Íbúðalánasjóðs Skerpt hefur verið á heimild Íbúðalánasjóðs til áhættustýringar og ávöxtunar lausafjár með sérstökum viðauka við reglugerð um fjárhag og áhættustýringu Íbúðalánasjóðs. 20.9.2005 00:01
Samþykktu kjarasamning Félagar í Starfsmannafélagi Suðurnesja samþykktu kjarasamning við launanefnd sveitarfélaga á fundi sínum í gær. Sjötíu og sex prósent félagsmanna greiddu atkvæði með samningnum en tuttugu og tvö prósent greiddu atkvæði á móti samningnum. Tvö prósent fundarmanna skiluðu auðu. 20.9.2005 00:01
Varla möguleiki á nýrri ákæru Aðspurður hvort hann telji möguleika fyrir ákæruvaldið að leggja fram nýja ákæru segir Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs Jóhannessonar, að það geti ekki verið ætlunin að ákæruvaldið komi fram með ákæru sem ekki standist og fái síðan leiðbeiningu dómstóla hvernig gera eigi ákærurnar úr garði. 20.9.2005 00:01
Baugsmálið á pólitískum forsendum? Davíð Oddsson utanríkisráðherra sagði í viðtali við fréttastofu Stöðvar 2 í júlí síðastliðnum að ef rannsókn Baugsmálsins væri á pólitískum forsendum, eins og forsvarsmenn Baugs hafa haldið fram, þá hljóti dómstólar að henda málinu út. 20.9.2005 00:01
Höfða mál gegn olíufélögunum Ljóst er að nokkrar útgerðir hyggjast höfða mál á hendur olíufélögunum og krefjast bóta vegna samráðs. Friðrik J. Arngrímsson, framkvæmdastjóri Landssambands íslenskra útvegsmanna, segir óljóst hversu margar útgerðir höfði mál en segir ljóst að þær verði allnokkrar. 20.9.2005 00:01
Jarðgöng myndu kosta milljarð Kostnaður við að gera jarðgöng fram hjá mesta hættusvæðinu á Óshlíðarvegi til Bolungarvíkur er áætlaður um einn milljarður króna en gerð vegskála yfir núverandi veg á sama svæði myndi kosta helmingi minna, eða um 500 milljónir. 20.9.2005 00:01
Reykjavík fallandi stjarna Reykjavík er fallandi stjarna meðal lesenda bresku blaðanna <em>Guardian</em> og <em>Observer</em>, fellur úr tólfta sæti yfir vinsælustu borgirnar í fyrra niður í þrítugasta og fjórða sæti núna.<em> </em>Forstöðumaður Ferðamálaráðs Íslands segir að niðurstaðan sé auðvitað visst áhyggjuefni. 20.9.2005 00:01
Fyrstu síldinni landað Fyrstu síldinni á þessari haustvertíð var landað á Höfn í Hornafirði í morgun þegar síldveiðiskipið Jóna Eðvalds kom þangað með fjörutíu tonn. Skipverjar höfðu leitað fyrir sér austur af landinu síðan á laugardag þegar þeir fengu þennan slatta og er talið að síldin sé almennt ekki gengin inn á hefðbundið veiðisvæði. 20.9.2005 00:01
Stefna ÖÍ að verða tilbúin Lögfræðingar Öryrkjabandalags Íslands leggja nú lokahönd á stefnu á hendur íslenskum stjórnvöldum vegna vanefnda á samningi sem Öryrkjabandalagið gerði við heilbrigðisráðherra fyrir hönd ríkisstjórnarinnar í aðdraganda kosninga árið 2003. 20.9.2005 00:01
Mikill skortur á leikskólakennurum Stjórnarmenn í stjórn Félags leikskólakennara harma það að varla sé minnst á skort á faglærðum leikskólakennurum í umræðu um starfsmannaskort á leikskólum. Þeir segja einblínt á að ófaglærða starfsmenn vanti þrátt fyrir að nú þegar sé alltof hátt hlutfall ófaglærðra starfsmanna við störf á leikskólum. 20.9.2005 00:01
Frétt DV röng segir rektor Rektor Viðskiptaháskólans á Bifröst segir forsíðufrétt DV í dag, að Sveinbjörn Kristjánsson, fangi á Litla Hrauni, stundi bókhaldsnám á Bifröst, vera ranga. 20.9.2005 00:01
Dómsmálaráðherra tjáir sig ekki Björn Bjarnason dómsmálaráðherra tjáir sig ekki um niðurstöðu Héraðsdóms í Baugsmálinu. Þetta tilkynnti starfsmaður dómsmálaráðuneytisins fréttastofunni þegar hún reyndi að ná tali af ráðherra í dag. 20.9.2005 00:01
Bóndi varð fyrir gaseitrun Bóndi var hætt kominn þegar hann varð fyrir gaseitrun þar sem hann var að vinna í fjósi sínu á bóndabæ í Hrútafirði. Maðurinn fannst meðvitundarlaus um ellefuleytið í morgun. Þyrla Landhelgisgæslunnar flutti hann á Landspítalann í Fossvogi þar sem hann liggur nú þungt haldinn. 20.9.2005 00:01
Báturinn kominn til hafnar Þjóðbjörg, bátur sem tók inn á sig vatn norðvestur af Garðskaga í morgun, er komin til hafnar í Sandgerði og er skipstjórinn, sem var einn um borð, heill á húfi. Báturinn Gunnþór, sem var að veiðum í nágrenninu, tók bátinn í tog. 20.9.2005 00:01
RÚV sýknað af 30 milljóna kröfu Ríkisútvarpið var í dag sýknað af rúmlega þrjátíu milljón króna kröfu fyrirtækisins Teftra Film vegna sýningar á fræðsluþáttunum „Viltu læra íslensku?“. Tuttugu og einn þáttur sem fyrirtækið framleiddi undir þessu nafni var sendur út í Ríkissjónvarpinu, án þess að greiðsla kæmi fyrir. 20.9.2005 00:01
Tveir vilja fyrsta sætið Jóhannes Valdemarsson framkvæmdastjóri hefur ákveðið að bjóða sig fram til 1. sætis í prófkjöri framsóknarmanna í Kópavogi, sem fram fer laugardaginn 12. nóvember. Áður hefur Ómar Stefánsson bæjarfulltrúi boðið sig fram í 1. sætið. 20.9.2005 00:01
Keypti Vatnsveitu Grundarfjarðar Orkuveita Reykjavíkur hefur keypt Vatnsveitu Grundarfjarðar og tekur við rekstri hennar um næstu áramót. Orkuveitan tekur strax við verkefnum er snúa að byggingu hitaveitu og verður hitaveita lögð á næsta ári. 20.9.2005 00:01
Óskað eftir viðræðum um boltann OgFjarskipti og 365 ljósvakamiðlar sendu inn bréf til Símans og Íslenska sjónvarpsfélagsins fyrir helgi þar sem óskað var eftir viðræðum um með hvaða hætti Íslenska sjónvarpsfélagið muni afhenda OgFjarskiptum og 365 ljósvakamiðlum sjónvarpsmerki sitt. 20.9.2005 00:01
Nóg komið af körlum Tillaga Kjartans Magnússonar, borgarfulltrúa Sjálfstæðisflokks um að gerð verði stytta af Tómasi Guðmundssyni skáldi og henni verði komið fyrir á áberandi stað í borginni var vísað til menningar- og ferðamálaráðs. 20.9.2005 00:01
Áhyggjur af hátæknigreinum Framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins segir ekkert hafa verið rannsakað hvað mörg störf hafi flust úr landi vegna gengisþróuninnar, né heldur hvaða áhrif það hafi. Taka þurfi upp Evruna til að losna við gengissveiflur. 20.9.2005 00:01
Fimmtán hafa boðið sig fram Sjálfstæðisflokkurinn hefur ákveðið að halda prófkjör vegna borgarstjórnarkosninganna 4. og 5. nóvember. Framboðsfrestur er ekki runninn út, en fimmtán hafa tilkynnt framboð í eitthvert tólf efstu sætanna. 20.9.2005 00:01
MH fær nýtt hús Menntamálaráðherra og borgarstjórinn í Reykjavík tóku í dag fyrstu skóflustunguna að nýbyggingu Menntaskólans við Hamrahlíð. Húsið verður rúmlega þrjú þúsund fermetrar að stærð og í því verða meðal annars þrír íþróttasalir, bókasafn, átta raungreinastofur og þrjár til fjórar kennslustofur. 20.9.2005 00:01
Frávísun vekur athygli erlendis Ákvörðun Héraðsdóms Reykjavíkur um að vísa ákærum í Baugsmálinu frá vakti athygli ýmissa erlendra fjölmiðla í gær, þar á meðal fréttastofanna Associated Press, Reuters og Bloomberg. 20.9.2005 00:01
Baugsmál: Fáir vilja tjá sig Davíð Oddsson utanríkisráðherra vildi ekki tjá sig um Baugsmálið í dag en hann er staddur í New York á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna. Fréttastofan reyndi jafnframt ítrekað að ná í feðgana Jón Ásgeir Jóhannesson og Jóhannes Jónsson, án árangurs. 20.9.2005 00:01
Hæstiréttur getur ógilt úrskurðinn Úrskurði Héraðsdóms verður vísað til Hæstaréttar á næstunni. Ýmsar spurningar vakna við það. Getur Hæstiréttur til dæmis ógilt úrskurð Héraðsdóms og skyldað hann til að taka ákærurnar fyrir eins og þær eru? Og ef Hæstiréttur hins vegar staðfestir úrskurðinn, getur ákæruvaldið þá útbúið nýjar ákærur og byrjað allt ferlið upp á nýtt? 20.9.2005 00:01
Öllu Baugsmálinu vísað frá dómi <font face="Helv"></font> Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í gær Baugsmálinu frá dómi í heild sinni vegna ágalla í ákærum. Jón H. Snorrason saksóknari ætlar að áfrýja úrskurðinum til Hæstaréttar og hefur hann til þess þriggja daga frest. 20.9.2005 00:01
Áfellisdómur segir lagaprófessor Lagaprófessor við Háskóla Íslands telur úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur áfellisdóm yfir embætti ríkislögreglustjóra. Þá telur varaformaður allsherjarnefndar, Jónína Bjartmarz, rétt að kanna hvort eðlilegt sé að bæði meðferð rannsóknar og ákæruvald fari fram í húsakynnum ríkislögreglustjóra. 20.9.2005 00:01
Skýrslutökur standa enn Skýrslutökur standa enn í rannsókn Lögreglu í Reykjavík á slysinu sem varð á Viðeyjarsundi aðfaranótt laugardagsins 17. september. Í slysinu fórust maður og kona, en hjón komust af nokkuð slösuð með 10 ára son sinn lítið meiddan. 20.9.2005 00:01
Fjalla á um möguleg brot Hannesar Héraðsdómur Reykjavíkur á að taka til efnismeðferðar kröfur Auðar Laxness á hendur Hannesi Hólmsteini Gissurarsyni, aðrar en bótakröfur, samkvæmt úrskurði Hæstaréttar í gær. Krafist var um 7,5 milljóna króna í bætur vegna meintra höfundarréttabrota Hannesar við ritun bókarinnar Halldór. 20.9.2005 00:01
Baugsmálinu gerð skil erlendis Helstu fjölmiðlar Bretlands og Danmerkur gerðu Baugsmálinu skil í dag. Flestir fjalla þeir um fjárhagslegt tjón Baugs af völdum lögreglurannsóknarinnar. Undirbúningur Baugs að málsókn á hendur íslenska ríkinu er enn á byrjunarstigi. 20.9.2005 00:01
Sjónvarpið var sýknað Ríkisútvarpið var sýknað af kröfum Tefra-Film um greiðslu á rúmlega 38 milljónum króna auk vaxta fyrir sýningarrétt á kennslumyndaröðinni "Viltu læra íslensku?" sem sýnd var í sjónvarpi á þessu og síðasta ári. 20.9.2005 00:01
Mannréttindanefndin rúin trausti "Mun meiri vinnu er þörf," sagði Davíð Oddsson utanríkisráðherra um umbætur á skipulagi Sameinuðu þjóðanna í ræðu sinni á sextugasta allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í gærkvöldi. Davíð áréttaði að taka þyrfti á mannréttindamálum með meira afgerandi hætti en verið hefur. 20.9.2005 00:01
Menntað fólk vantar Stjórn Félags leikskólakennara harmar hversu lítil umræða er um hve erfitt er að fá leikskólakennara til starfa, og að umræðan skuli snúast um hve erfitt sé að fá ófaglært fólk til starfa. 20.9.2005 00:01
Vaknaði við að báturinn lak Mannbjörg varð þegar Þjóðbjörg GK-110, níu tonna plastbátur, tók inn á sig sjó og fylltist á skömmum tíma norður af Garðskaga. Reinhard Svavarsson skipstjóri var einn um borð þegar þetta gerðist. Landhelgisgæslan og nærstaddir bátar brugðust skjótt við og björguðu honum. </font /></b /> 20.9.2005 00:01
Rotaðist í Norðurárdal Ökumaður bíls sem fór út af veginum og valt í Norðurárdal síðdegis í gær var fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild Landsspítala-háskólasjúkrahúss í Fossvogi í Reykjavík. Maðurinn sem var einn í bílnum hafði orðið fyrir nokkru höfuðhöggi og rotast. 20.9.2005 00:01
Símapeningarnir í jarðgangagerð Kristinn H. Gunnarsson, þingmaður Vestfirðinga, var hætt kominn á veginum um Óshlíð á laugardag. Hann segist vongóður um að ríkisstjórnin fallist á jarðgangagerð og vill að símapeningarnir verði notaðir til þess. 20.9.2005 00:01
Sendir fannst undir kvöld Mikill viðbúnaður var hjá björgunarsveitum og Landhelgisgæslu við Sandgerði í gær vegna sendinga neyðarsendis á svæðinu. Að sögn Landhelgisgæslu hófust sendingarnar klukkan 11:17 í morgun og fór strax nokkur viðbúnaður í gang. 20.9.2005 00:01
Erfitt að leggja málið fram á ný "Ég bjóst allt eins við þessari niðurstöðu. Það hlyti að koma til skoðunar að ef vísa ætti svo stórum hluta ákærunnar frá dómi kæmi til álita að vísa henni allri frá," segir Einar Þór Sverrisson verjandi Jóhannesar Jónssonar. 20.9.2005 00:01
Ákæruskjalið ónýtt "Ég fagna náttúrulega þessari niðurstöðu og hún er í samræmi við það sem við höfum haldið fram. Þetta er jafnframt mikill áfellisdómur fyrir ákæruvaldið," segir Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, sem staddur er í Bandaríkjunum. 20.9.2005 00:01
Saksóknari dragi sig í hlé "Ég er yfir mig hamingjusamur og þetta kom mér ekki á óvart eftir það sem á undan var gengið," segir Jóhannes Jónsson í Bónus um vísun allra ákæranna 40 í Baugsmálinu frá dómi. 20.9.2005 00:01
Björn tjáir sig ekki um Baugsmálið <p>Björn Bjarnason dómsmálaráðherra kaus að svara ekki fyrirspurnum Fréttablaðsins eftir að ljóst var að fjölskipaður héraðsdómur vísaði Baugsmálinu frá dómi í gær. 20.9.2005 00:01