Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Stækkun Norðuráls á Grundartanga Framkvæmdir við stækkun Norðuráls á Grundartanga ganga mjög vel. Nýtt fimmtíu metra hátt súráls-síló hefur verið reist á mettíma og vinna við kerskála hefur gengið vonum framar. 29.6.2005 00:01
Hans Markús kærir biskup "Strax í kjölfar niðurstöðu áfrýjunarnefndar sem birtist stefndi ég biskupi, fyrir hönd Þjóðkirkjunnar, og öðrum málsaðilum fyrir Héraðsdóm Reykjaness til að krefjast ógildingar þess að Hans Markúsi skuli gert að færa sig til í starfi," segir Sveinn Andri Sveinsson lögmaður Hans Markúsar Hafsteinssonar sóknarprests í Garðasókn. 29.6.2005 00:01
FF fagnar rannsókn Stjórn Félags framhaldskólakennara (FF) hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem því er fagnað að fram eigi að fara opinber rannsókn á stjórnarháttum og samskiptum innan Menntaskólans á Ísafirði. 29.6.2005 00:01
Fá 60 milljarða fyrir orkusölu Fulltrúar Alcan á Íslandi og Orkuveitu Reykjavíkur hafa skrifað undir samkomulag um að Alcan kaupi af Orkuveitunni 200 MW af raforku vegna hugsanlegrar stækkunar álversins í Straumsvík. 29.6.2005 00:01
Þykir ritstjórnarstefnan ógeðfelld Flugfélagið Iceland Express hættir frá og með deginum í dag að selja blöðin DV og Hér og nú í sínum vélum. 29.6.2005 00:01
Engin afstaða til Finns og Halldórs Tveir hæstaréttarlögmenn hafa skilað álitsgerð sem þeir voru fengnir til að vinna að beiðni stjórnarandstöðunnar. Þeir telja margt í minnisblaði Ríkisendurskoðunar frá því um miðjan mánuðinn verulegum annmörkum háð. Bent er á sterk tengsl Halldórs Ásgrímssonar og Finns Ingólfssonar. 29.6.2005 00:01
S-hópurinn tengdist Halldóri Efasemdir um hæfi Halldórs Ásgrímssonar forsætisráðherra við sölu á hlut ríkisins í Búnaðarbankanum hlutu að vakna um leið og S-hópurinn svokallaði skilaði inn tilkynningu um áhuga á kaupum á hlut í bankanum. 29.6.2005 00:01
Olís og Esso hækkuðu um krónu Olíufélögin Olís og Esso hækkuðu bensínið um eina krónu lítrann í gær og er það þriðja hækkunin á tæpum mánuði. Búist er við að Skeljungur hækki verð í dag. 28.6.2005 00:01
VG ræða framboðsmál í Reykjavík Félagsmenn Vinstri grænna í Reykjavík ætla í kvöld að fjalla um framboðsmál sín fyrir næstu borgarstjórnarkosningar en sem kunnugt er eru Vinstri grænir hluti R-listans. Líklegt er talið að Vinstri grænir muni velja frambjóðendur sína með innanflokksprófkjöri. 28.6.2005 00:01
Fundað um myndatöku í Krísuvík Það ræðst væntanlega á næstu klukkustundum hvort kvikmynda megi atriði í myndinni Flags of Our Fathers í Krísuvík. Í morgun hófst fundur í skipulags- og byggingarráði Hafnarfjarðar þar sem endanleg ákvörðun verður tekin. 28.6.2005 00:01
Tvö ár til að laga fjárlagahallann Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins mun á morgun tilkynna Silvio Berlusconi, forsætisráðherra Ítalíu, að Ítalir hafi tvö ár til að koma fjárlagahalla ríkisins undir þriggja prósenta mörkin sem Evrópusambandsríkin hafa sett sér. 28.6.2005 00:01
Meiri svikastarfsemi á sumrin Á sumrin lifnar yfir svikastarfsemi sem beinist að því að svíkja út fé af fyrirtækjum. Svo virðist sem þeim sem stunda þessa iðju treysti því að auðveldara sé að villa um fyrir sumarafleysingafólki heldur en starfsmönnum sem hafa meiri reynslu. Þetta kemur fram á vef Samtaka verslunar og þjónustu. 28.6.2005 00:01
Mesta aukning á milli ára Dagvöruverslun í maí var 13% meiri en í sama mánuði fyrir ári. Þetta er mesta aukning á milli ára síðan farið var að mæla smásöluvísitölu árið 2001. 28.6.2005 00:01
Mótmælin hefjast fyrir alvöru Mótmælin við Kárahnjúka virðast loksins vera að hefjast fyrir alvöru og síðasta leyfið fyrir tjaldbúðum ætti að liggja fyrir síðar í dag. Einn skipuleggjenda mótmælanna, Birgitta Jónsdóttir, sem er ekki enn farin austur, segist búast við tuttugu manna hópi á svæðið í dag og á morgun. 28.6.2005 00:01
Andstaða við íbúðabyggð í Viðey Viðeyingafélagið leggst gegn hugmyndum um byggingu íbúðabyggðar í Viðey og telur hana geta valdið óafturkræfum náttúruspjöllum á þessari náttúruperlu. Hins vegar hvetur stjórn félagsins borgaryfirvöld til að hrinda sem fyrst í framkvæmd þeirri uppbyggingu í Viðey sem fram kom í stefnumótun sem fjórir ráðgjafahópar hafa lagt til um framtíð eyjanna á sundunum. 28.6.2005 00:01
Ný reglugerð um farþegaflug Með nýrri reglugerð eru flugfélög gerð mun ábyrgari en áður gagnvart farþegum, ef þau fella niður flug, seinka flugi eða neita farþegum um far. Reglugerðin er sam evrópsk og tekur til skaðabóta vegna tafa sem farþegar verða fyrir og á Flugmálastjórn að framfylgja henni og taka við kvörtunum, ef einhverjar verða. 28.6.2005 00:01
Aukið samstarf vegna hamfara Norðurlöndin ætla að auka samstarf vegna náttúruhamfara. Þetta var ákveðið á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Danmörku í gær. Í þeim löndum þar sem engin eru íslensk sendiráð geta Íslendingar leitað aðstoðar í öðrum norrænum sendiráðum. 28.6.2005 00:01
Ekki varanlegir hnekkir Íslenskur listaverkamarkaður hefur ekki borið varanlega hnekki vegna fölsunarmála undanfarin ár og traust almennings á núlifandi listamönnum hefur aukist. Þetta er meðal þess sem fram kemur í niðurstöðum nefndar um listaverkafalsanir sem skipuð var af menntamálaráðherra, Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur. 28.6.2005 00:01
Björgunarskip náði í bilaða skútu Björgunarskipið Björg á Rifi var kallað út um tvöleytið vegna skútu sem var með bilaða skrúfu. Björgin er á leið til hafnar með skútuna í togi, ferðin gengur vel og aðstæður eru góðar. Skútan er frönsk og í áhöfninni eru tveir. 28.6.2005 00:01
Breytingar á Bandaríkjaflugi Icelandair mun fljúga til New York allan næsta vetur en síðustu tvö árin hefur ekki verið flogið til borgarinnar yfir háveturinn. Hins vegar verður gert hlé á áætlunarflugi til Minneapolis frá 9. janúar til 13. mars 2006. 28.6.2005 00:01
Grænt ljós á tökur í Krýsuvík Í gær var samþykkt á fundi skipulags- og byggingaráðs í Hafnarfirði að leyfa tökur á myndinni Flags of our fathers í Krýsuvík. 28.6.2005 00:01
Hross skemmdu golfvöll Töluverðar skemmdir urðu af völdum hrossa á golfvelli golfklúbbsins Kjalar í Mosfellsbæ fyrr í mánuðinum. Unnið hefur verið að lagfæringum, en tíma tekur að græða upp traðkið eftir hrossin. 28.6.2005 00:01
Fjársvikafyrirtæki hóta fólki Rukkarar erlendra fjársvikafyrirtækja hringja hiklaust í fólk heim að kvöldlagi og hóta því öllu illu ef það greiði ekki tiltekna "skuld." Fjölmargir forráðamenn íslenskra fyrirtækja hafa orðið fyrir slíkum hótunum. Samtök verslunar og þjónustu hafa sent út viðvörun 28.6.2005 00:01
Vanfóðruð hross í Hafnarfirði Héraðsdýralæknir hafði í vikunni afskipti af þremur vanfóðruðum hestum, sem haldnir voru í hesthúsi á svæði hestamannafélagsins Sörla í Hafnarfirði. Var eigendum veitt tiltal og gert að sleppa þeim í haga, svo þeir kæmust á grös. 28.6.2005 00:01
Vel tekið í óperuhús í Kópavogi Bjarni Daníelsson óperustjóri Íslensku óperunnar tekur vel í hugmynd Gunnars Birgissonar bæjarstjóra Kópavogs um að reisa óperuhús í Kópavogi. 28.6.2005 00:01
Skeljungur hækkar Olíufélagið Skeljungur fylgdi í gær í kjölfar annarra olíufyrirtækja í landinu og hækkaði eldsneytisverð á stöðvum sínum til samræmis við Olís og Esso. 28.6.2005 00:01
Verðmunur á tjaldsvæðum Talsverður verðmunur er á tjaldstæðum víða um landið samkvæmt nýrri úttekt sem sýnir að á stöku stöðum greiðir fjölskylda tæpar fimm þúsund krónur fyrir gistingu í tjaldi. 28.6.2005 00:01
Hlutur hvors kyns 40% Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópvogi hefur samþykkt að efna til opins prófkjörs um val á frambjóðendum fyrir sveitarstjórnarkosningar næsta vor. Prófkjörið verður einungis bindandi fyrir sex efstu sætin, ef lagaákvæðum flokksins um hlutfall kynja er fullnægt. Samkvæmt þeim skal hlutur hvors kyns ekki vera minni en 40%. 28.6.2005 00:01
Íslenskur aðstoðarframkvæmdastjóri Á ráðherrafundi EFTA-ríkjanna í Liechtenstein sem lauk í gær var tekin ákvörðun um að ráða Lilju Viðarsdóttur sem aðstoðarframkvæmdastjóra EFTA með aðsetur í Brussel til þriggja ára frá hausti 2006. 28.6.2005 00:01
Hafa litla trú á Genfarsamningunum Þrír af hverjum fjórum Íslendingum hafa heyrt um Genfarsamningana en Íslendingar eru samt meðal þeirra þjóða sem hafa hvað minnsta trú á því að samningarnir dugi til að vernda fólk á stríðstímum. Þetta er ein af niðurstöðum alþjóðlegrar skoðanakönnunar sem gerð var fyrir Rauða krossinn. 28.6.2005 00:01
Líst vel á hugmynd um óperuhús Gunnar I. Birgisson, bæjarstjóri í Kópavogi, hefur varpað fram þeirri hugmynd að óperuhús verði reist á menningartorfunni í Kópavogi og telur að hún geti orðið fullbúin innan örfárra ára, ef drifið verði í málinu. Gunnari Guðbjörnssyni óperusöngvara líst vel á hugmyndina 28.6.2005 00:01
3 ár og milljón í skaðabætur Rúmlega fertugur karlmaður var dæmdur í þriggja ára fangelsi í dag fyrir að nauðga fyrrverandi sambýliskonu sinni. Honum var jafnframt gert að greiða henni eina milljón króna í skaðabætur. 28.6.2005 00:01
Ríkið gekk á bak orða sinna Komuverslun fríhafnarinnar á Keflavíkurflugvelli hefur verið stækkuð um meira en helming, frá 460 fermetrum upp í rúma þúsund fermetra. Samtökum verslunar og þjónustu þykir utanríkisráðuneytið hafa gengið á bak orða sinna með því að samþykkja að stækka rekstur sem er í samkeppni við einkaaðila. 28.6.2005 00:01
Aukið fjármagn til umferðaröryggis Stórauknu fjármagni verður á næstu fjórum árum veitt til umferðaröryggismála samkvæmt samningi sem Umferðarstofa og Ríkislögreglustjóri undirrituðu á blaðamannafundi í gær. 28.6.2005 00:01
Ólína fór fram á rannsókn Ólína Þorvarðardóttir skólameistari Menntaskólans á Ísafirði hefur farið fram á það við menntamálaráðuneytið að fram fari opinber rannsókn á starfs- og stjórnunarháttum hennar við skólann. 28.6.2005 00:01
Páll afhentur Þristavinafélaginu Landgræðsla ríkisins hætti í dag rekstri flugvéla til landgræðslu og afhenti síðustu vél sína, Pál Sveinsson, til Þristavinafélagsins. Flugvélin hefur nú verið máluð í litum Icelandair en Þristavinafélagið hefur sett sér það markmið að halda henni áfram flughæfri. 28.6.2005 00:01
Ísland ætlar í öryggisráðið Forsætisráðherra Íslands staðfesti á fundi forsætisráðherra Norðurlandanna að Ísland myndi sækjast eftir sæti í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Hætti Ísland við gætu Norðurlöndin orðið atkvæðalaus í ráðinu í sex ár. 28.6.2005 00:01
Hlúð að verkum Samúels í Selárdal Viðgerð á listaverkum Samúels Jónsson í Selárdal hófst á síðasta ári og er fram haldið í sumar. Félag um endurreisn safns hans stendur að framkvæmdunum og hlaut nýlega tvo styrki til verksins. </font /></b /> 28.6.2005 00:01
Stjörnugjöf vega Nú í sumar verður byrjað á að meta vegi landsins og þeim gefnar stjörnur í einkunn eins og bílum og hótelum. Stjörnugjöfin er þegar hafin í um tíu löndum og hefur þegar skilað þeim árangri að vegir hafa verið bættir töluvert. 28.6.2005 00:01
Lægsta boð frá Selfossi Fyrirtækið Nesey á Selfossi átti lægsta boð í lagningu strengja fyrir Landsvirkjun milli Ufsar- og Kelduárslóns vegna Kárahnjúkavirkjunar, tæpar 14,5 milljónir króna, um 43 prósentum undir kostnaðaráætlun. 28.6.2005 00:01
Krefjast bóta vegna samráðs Á morgun verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur mál félagsmanns Neytendasamtakanna á hendur einu olíufélaganna vegna meints taps af ólöglegu verðsamráði þeirra. 28.6.2005 00:01
Dæmt fyrir hrottafengna nauðgun 42 ára gamall maður var dæmdur í þriggja ára fangelsi í gær fyrir hrottafengna nauðgun á fyrrum sambýliskonu sinni. Verknaðurinn stóð í um klukkustund í fjölbýlishúsi á höfuðborgarsvæðinu að kvöldi mánudagsins 12. júlí í fyrra. Hann þarf að auki að greiða henni eina milljón króna í skaðabætur. 28.6.2005 00:01
Fléttulisti valinn í prófkjöri VG Vinstrihreyfingin grænt framboð í Reykjavík ætlar að boða til prófkjörs 1. október þar sem valið verður fólk í sex efstu sæti á lista, hvort sem hreyfingin býður fram ein eða með Reykjavíkurlistanum. 28.6.2005 00:01
Neitar sök og vill ekki tjá sig Hæstiréttur staðfesti í gær gæsluvarðhaldsúrskurð Héraðsdóms Suðurlands yfir manni á þrítugsaldri sem grunaður er um fíkniefnasölu og kynferðismök við stúlku undir 14 ára aldri. Maðurinn var handtekinn á miðvikudaginn fyrir viku og úrskurðaður í gæsluvarðhald á fimmtudag, en það rennur út á morgun. 28.6.2005 00:01
RJF hópur fær liðsauka í BNA Vonir standa til að Aron Pálmi Ágústsson, sem setið hefur í stofufangelsi í Bandaríkjunum frá 1997 og á eftir tvö ár af tíu ára fangelsisdómi, fái að koma til Íslands á næstu vikum. Þriggja manna sendinefnd RJF hópsins, sem berst fyrir frelsun Arons, heldur um miðjan næsta mánuð til Texas. 28.6.2005 00:01