Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Vísitalan hríðlækkar Verð á hlutabréfum í Kauphöll Íslands lækkaði verulega í dag, annan daginn í röð. Úrvalsvísitalan hefur lækkað um rúm sjö prósent á tveimur dögum. 26.10.2004 00:01
Sjálfsmorð tuttugu sinnum líklegri Sjálfsmorð eru tuttugu sinnum líklegri meðal fanga en hins almenna borgara. Mesta hættan er við upphaf afplánunnar og við uppkvaðningu þungra dóma. Karlmaður sem dæmdur var í gær í þriggja ára fangelsi fyrir gróft kynferðisofbeldi gagnvart stjúpdóttur sinni framdi sjálfsvíg í kjölfar dómsins. 26.10.2004 00:01
Enn ekkert að gerast Enn situr allt fast í kennaradeilunni, og staðan sú sama og fyrir helgi. Ríkissáttasemjari hefur ekki miðlunartillögu í undirbúningi enn sem komið er. Formlegur sáttafundur sem átti að hefjast klukkan fimm í dag, var enn ekki hafinn skömmu fyrir fréttir. 26.10.2004 00:01
Skipverjarnir sluppu ómeiddir Þrír skipverjar á bátnum Ósk KE sluppu ómeiddir þegar eldur kviknaði í stýrishúsi bátsins út af Garðskaga í gær. Tjón hleypur á milljónum króna. 26.10.2004 00:01
Á röngum stað á röngum tíma Ellefu ára gömul afgönsk stúlka og 23 ára gömul bandarísk kona létust í sjálfsvígssprengjuárásinni sem beint var gegn íslenska friðargæsluliðinu í Kabúl á laugardag. Afganska stúlkan hefur ekki verið nefnd með nafni í erlendum fjölmiðlum. Hún var ein af fjölmörgum börnum sem lifa á því að betla og selja notaðar bækur til útlendinga á götum Kabúl. Hún lést af sárum sínum á sjúkrahúsi snemma á sunnudagsmorgun. Bandaríska konan sem lést hét Jamei Michalsky og var frá bænum Cokato í Minnesota. 26.10.2004 00:01
Áttu ekki að yfirgefa flugvöllinn Hallgrímur Sigurðsson, yfirmaður friðargæsluliðsins í Kabúl, segir að hann hafi verið að sækja teppi í verslun í borginni þegar ráðist var á íslensku friðargæsluliðana í Kabúl á laugardag. 26.10.2004 00:01
Kristinn nýtur stuðnings Framsóknarfélög í Norðvesturkjördæmi samþykkja nú hvert af öðru stuðningsyfirlýsingar við Kristinn H. Gunnarsson alþingismann um leið og fordæmd er brottvikning hans úr þingnefndum. 26.10.2004 00:01
Staða Samfylkingar óásættanleg Staða Samfylkingarinnar innan Reykjavíkurlistans er óásættanleg miðað við fylgi flokksins í borginni. Þetta kom fram í máli Andrésar Jónssonar, formanns Ungra jafnaðarmanna, á fundi Samfylkingarfélags Reykjavíkur í gærkvöld þar sem rætt var um Reykjavíkurlistann, árangur hans og framtíð. 26.10.2004 00:01
Skemmdir kannaðar Kafarar hafa kannað skemmdirnar sem urðu á bryggjunni í Neskaupstað á sunnudag þegar Baldvin Þorsteinsson EA sigldi á bryggjukantinn. Erfitt reyndist að meta þær vegna lélegs skyggnis. Sérfræðingur frá Siglingamálastofnun er farinn austur til að meta tjónið. 26.10.2004 00:01
Eigum að leyfa fjölbreytni Tvær tólf ára stúlkur voru í síðustu viku reknar úr frönskum skóla fyrir að neita að taka ofan höfuðslæðu. Ingvill Plesner er sérfræðingur í trúfrelsismálum og mannréttindum og er stödd hér á landi við rannsóknarstörf á vegum Háskólans á Akureyri. Hún hefur sérstaklega skoðað nýleg lög í Frakklandi sem banna nemendum að ganga með áberandi trúartákn. 26.10.2004 00:01
Kalkþörungaverksmiðja að rísa Gerð landfyllingar undir kalkþörungaverksmiðju á Bíldudal er langt komin. Stefnt er að því að verksmiðjan taki til starfa síðla næsta árs. Heimamenn segja tilkomu hennar ígildi stóriðju fyrir byggðina. 26.10.2004 00:01
Mikið tjón vegna eldsvoða Íslendingar sýna ekki nægilega aðgæslu við eldamennskuna og gleyma sér allt of oft, með skelfilegum afleiðingum. Eignatjón vegna eldsvoða af völdum rafmagns nam um þrjú hundruð milljónum króna á síðasta ári. 26.10.2004 00:01
Ökuriti fækkar óhöppum Bílslysum hefur fækkað um fimmtíu prósent hjá þeim fyrirtækjum sem hafa sérstakan ökurita í bíl sínum, sem skráir niður allar upplýsingar um á hvaða hraða menn keyra og eftir hvaða götum á hverjum tíma. 26.10.2004 00:01
Refsilaust að kýla tönn úr löggu Dómari hjá Héraðsdómi Reykjaness komst að þeirri niðurstöðu að ekki bæri að fangelsa mann sem kýldi lögregluþjón í Keflavík, þannig að hann missti tönn. Lögreglumaðurinn segir ótrúlegt að lögreglan sé ekki betur varin en þetta; ódýrara sé að sparka í hund en lögregluþjóna. Hann fær enn höfuðverkjaköst. 26.10.2004 00:01
Nýr meirihluti L-lista og D-lista á Héraði Forráðamenn L-lista félagshyggjufólks og D-lista Sjálfstæðisflokks, undirrituðu í kvöld samkomulag um samstarf í meirihluta bæjarstjórnar sameinaðs sveitarfélags Austur-Héraðs, Fellahrepps og Norður-Héraðs. Listarnir eru sammála um að ganga til viðræðna við Eirík Björn Björgvinsson, fráfarandi bæjarstjóra Austur-Héraðs, um starf bæjarstjóra hins nýja sveitarfélags. 26.10.2004 00:01
Kennsla í skólum Ísafjarðarbæjar Víða í grunnskólum landsins eru stundakennarar við störf. Kennt er til dæmis í öllum grunnskólum sveitarfélags Ísafjarðarbæjar nema á Flateyri. 26.10.2004 00:01
Fundartími ekki ákveðinn Ekki hefur verið ákveðið hvenær undanþágunefnd kennara og sveitarfélaga fundar. Undanþágunefnd átti síðast fund á föstudag. 26.10.2004 00:01
Leiðbeinendum í skólum fækkar Leiðbeinendur, þeir sem ekki hafa lokið kennaranámi, starfa í rétt tæplega 70 prósentum grunnskóla landsins. Þeim hefur fækkað um 216 milli áranna 2003 og 2004. 26.10.2004 00:01
Óbreytt staða í kennaradeilunni "Það gerðist ekkert á fundinum. Staðan er ekki önnur en var kvöldinu áður," sagði Eiríkur Jónsson formaður Kennarasambands Íslands eftir að fundi þeirra og launanefndar sveitarfélaganna lauk rétt um átta leytið í gærkvöldi. 26.10.2004 00:01
Kærði viku eftir árásina Í dómnum er látið að því liggja að kona hafi unnið til áverkanna," segir Jónína Bjartmarz, alþingismaður og lögfræðingur, um dóm sem kveðinn var upp í Héraðsdómi Reykjaness í síðustu viku þar sem refsingu yfir manni vegna heimilisofbeldis var frestað. Guðmundur L. Jóhannesson, héraðsdómari, dæmdi málið. 26.10.2004 00:01
Bílþjófur kominn í fangelsi Maður fæddur árið 1982 var handtekinn í fyrrakvöld í tengslum við rannsókn fjölda bílþjófnaða sem lögreglan í Reykjavík og lögreglan í Kópavogi unnu saman að. 26.10.2004 00:01
Stal páskaeggi og átti hass Í Héraðsdómi Reykjavíkur var nítján ára piltur dæmdur í þriggja mánaða skilorðbundið fangelsi og sextán ára piltur dæmdur í tveggja mánaða skilorðbundið fangelsi fyrir þjófnaðarbrot. Mál þriðja piltsins var skilið frá þessu máli. 26.10.2004 00:01
Skilorð fyrir ýmis brot Rúmlega tvítugur maður var, í Héraðsdómi Reykjavíkur, dæmdur í fjögurra mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir, brot gegn lögreglulögum, fíkniefnabrot og vopnalagabrot. 26.10.2004 00:01
Komst ekki hjá sektinni Fertugur karlmaður var, í Héraðsdómi Reykjaness, dæmdur til að greiða 50 þúsund króna sekt í ríkissjóð, fyrir hraðakstur. 26.10.2004 00:01
Hefur dælt peningum í borgina Stefán Jón Hafstein er að snúa málum á haus með því að saka ríkisstjórnina um að halda Reykjavíkurborg og sveitarfélögunum í fjársvelti að sögn Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, borgarfulltrúa og þingmanns Sjálfstæðisflokksins. 26.10.2004 00:01
Þingflokkur biðjist afsökunar Málflutningur Kristins H. Gunnarssonar, þingmanns Framsóknarflokksins, er í fullu samræmi við almennan vilja kjósenda flokksins. Þetta kemur fram í ályktun aðalfundar Framsóknarfélagsins í Dalasýslu. Á fundinum var stuðningsyfirlýsing við Kristinn samþykkt einróma. 26.10.2004 00:01
Jarðakaup gagnrýnd Framsóknarfélagið Dalasýslu lýsir þungum áhyggjum af söfnun fárra auðmanna á jörðum, og ríkisstuðningi þeim tengdum. 26.10.2004 00:01
300 miljóna tjón vegna bruna Eignatjón vegna eldsvoða af völdum rafmagns nam um 300 milljónum króna í fyrra samkvæmt ársskýrslu Löggildingarstofu um bruna og slys af völdum rafmagns árið 2003. Áætlað er að brunar vegna rafmagns hafi verið um 850 í fyrra. Fækkaði þeim töluvert miðað við árið 2002 og eignatjón dróst saman. 26.10.2004 00:01
Ræða við Halldór Samningamenn kennara og sveitarfélaga eru væntanlegir til fundar við Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra klukkan tíu til að ræða stöðuna í kennaradeilunni. Hugmyndir um að vísa deilunni í gerðardóm og að blása verkfallið strax af, gætu komið þar til umræðu, en samþykki beggja deilenda þarf til að vísa málinu þangað. 25.10.2004 00:01
Sluppu vel eftir að hafa fest bíl Fjórir útlendingar sem festu bíl sinn í sandbleytu norðan við Mýrdalsjökul á laugardag, geta þakkað sínum sæla fyrir veðurblíðuna um helgina. Fólkið lagði af stað fótgangandi eftir aðstoð og var það illa búið til útivistar. Það komst í skála í fyrrinótt og gisti þar. 25.10.2004 00:01
Viðgerð að hefjast Viðgerð hefst væntanlega í dag á bryggju í Neskaupstað, sem skemmdist mikið þegar fjölveiðiskipið Baldvin Þorsteinsson EA sigldi á hana í gær. Skipið var þá að koma inn til löndunar og rakst perustefni þess langt inn i bryggjuna og í gengum stálþilið á henni þannig að uppfylling innan þilsins hefur runnið út í höfnina. 25.10.2004 00:01
Samruninn úr sögunni Samruni Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH og Sölusambands íslenskra fiskframleliðenda mun endanlega vera úr sögunni eftir að SÍF ákvað um helgina að kaupa franskt matvælafyrirtæki fyrir 29 milljarða króna, sem er þrefalt andvirði móðurfélagsins SÍF. Sameiningin var um tíma mikið keppikefli Íslandsbanka og átti SÍF orðið fjórðungshlut í SH, en hefur nu selt hann. 25.10.2004 00:01
Samherji stofnar nýtt fyrirtæki Útgerðarfyrirtækið Samherji á Akureyri hefur stofnað fyrirtæki í Cuxhafen í þýskalandi, sem á að vinna úr íslenskum ferksfiski og dreifa honum ferskum á markað. Til að byrja með verður unnið úr karfa og honum dreift til veitingahúsa í þýskalandi og nálægum löndum. 25.10.2004 00:01
Rannsókninni lokið Rannsókn á láti Sri Rhamawati er svo til lokið og verður málið sent til ríkissaksóknara á næstunni. Beðið er formlegrar niðurstöðu krufningar, en samkvæmt bráðabirgðaniðurstöðu lést hún af völdum höfuðáverka. Þá er beðið niðurstöðu DNA-rannsóknar frá Noregi. 25.10.2004 00:01
Samruninn úti Samruni Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna, SH og Sölusambands íslenskra fiskframleliðenda, SÍF er endanlega úr sögunni eftir að SÍF ákvað um helgina að kaupa stórt franskt matvælafyrirtæki og selja um leið rúmlega 22% hlut sinn í SH. 25.10.2004 00:01
Óska eftir áliti Umboðsmanns barna Fræðsluráð Reykjavíkur hefur óskað eftir áliti Umboðsmanns barna á rétti barna til náms í verkfalli og hver eigi að verja rétt þeirra þegar hagsmunir tveggja hópa rekast á, eins og í verkfalli grunnskólakennara. Áheyrnarfulltrúi foreldra lagði fram fyrirspurn um réttindi barna á fundi fræðsluráðs sjötta þessa mánaðar. 25.10.2004 00:01
Eimskip í flutning óunnins fisks Eimskip ætlar sér skerf í þeim miklu flutningum sem eru orðnir með frystan óunnin fisk úr öllum heimshornum til Kína. Þaðan er hann fluttur aftur fullunninn á markað á Vesturlöndum. 25.10.2004 00:01
Búið að útskrifa tvo hinna slösuðu Tveir af þeim þremur Íslendingum sem slösuðust í sprengjuárásinni í Kabúl á laugardag, voru útskrifaðir af sjúkrahúsi í morgun. Þeir hafa allir óskað eftir því að yfirgefa Afganistan og koma til Íslands næsta föstudag. 25.10.2004 00:01
Fundur boðaður á morgun Forsætisráðherra hvetur deilendur í kennaradeilunni til að setjast að samningaborðinu aftur og ítrekar að lög verði ekki sett á verkfallið. Launanefnd sveitarfélaganna segir gerðadóm í málinu ekki koma til greina, en að tilboð sem sáttasemjari lagði fram, standi enn. Ríkissáttasemjari var boðaður með stuttum fyrirvara á fund forsætisráðherra nú í hádeginu og þar var boðað til fundar á morgun að því er fram kom í hádegisfréttum útvarps. 25.10.2004 00:01
Fundur á morgun Nýr fundur hefur verið boðaður í kennaradeilunni á morgun samkvæmt hádegisfréttum Ríkisútvapsins. Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari gekk á fund forsætisráðherra laust fyrir klukkan tólf og í útvarpsfréttum kom fram að þar hefði verið ákveðið að funda skyldi á nýjan leik á morgun. 25.10.2004 00:01
Banki tapaði slysabótum í deCODE Landsbankinn seldi Hinriki Jónssyni hlutabréf sín í deCODE á genginu 56 fyrir 5 milljónir króna en seldi þau tveimur árum síðar fyrir hann á 500 þúsund á genginu 5,95. Hinrik er 100% öryrki eftir höfuðhögg og hefur að mati geðlæknis verulega skerta hæfni til að stunda fjárhagsleg viðskipti. 25.10.2004 00:01
Sölvi í Versló Sölvi Sveinsson skólameistari Fjölbrautaskólans við Ármúla hefur verið ráðinn skólastjóri Verslunarskóla Íslands. Hann tekur við af Þorvarði Elíassyni sem lætur af störfum í ágúst á næsta ári. Verkefni Sölva til að byrja með verða fólgin í að starfa sem afmælisnefnd skólans, en skólinn verður hundrað ára á næsta ári, en í ágúst tekur hans svo við embætti skólastjóra. 25.10.2004 00:01
Hundur hrakti kindur fyrir björg Hundur hrakti sex kindur fyrir björg í Vestmannaeyjum á laugardag, samkvæmt Eyjafréttum. Atvikið átti sér stað ofan við Kapplagötu vestan við Herjólfsdal. Talsvert af fé er þar í fjallinu og hafði hundinum verið sleppt þar lausum. Það þarf vart að taka það fram að kindurnar sex drápust í fallinu. 25.10.2004 00:01
Heimili og Skóli á fund ráðherra Framkvæmdastjóri og formaður stjórnar Heimilis og skóla - landssamtaka foreldra fara á fund forsætisráðherra hálffimm í dag. Forsvarmenn Heimilis og skóla fóru þess á leit fyrir helgi að fá að ræða stöðu mála í verkfallsdeilunni við forsætisráðherra og var orðið við því. 25.10.2004 00:01
3 ár fyrir ítrekuð kynferðisbrot Héraðsdómur Reykjaness dæmdi í dag fertugan karlmann í þriggja ára fangelsi fyrir ítrekuð kynferðisbrot gegn fjórtán ára dóttur sinni og annarri stúlku, fimmtán ára. Brotin stóðu yfir í tvö ár og fólust meðal annars í samförum. Maðurinn neitaði sök, en framburður stúlknanna þótti trúverðugur. 25.10.2004 00:01