Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Skólagjöld leyfð í ríkisháskólum? Ríkisstjórnin skoðar að leggja fram frumvarp sem heimilar skólagjöld í framhaldsnámi í íslenskum ríkisháskólum. Endanleg ákvörðun liggur þó ekki fyrir. Ólafur Proppé, rektor Kennaraháskóla Íslands, segir aðeins tímaspursmál hvenær skólagjöld haldi innreið sína í ríkisháskólana. Þeir geti ekki keppt við einkaskóla að óbreyttu. 22.10.2004 00:01
Naglarnir óþarfir Margir ökumenn brugðust skjótt við í kuldakastinu sem gerði í vikunni og létu setja vetrardekk undir bíla sína. Lögum samkvæmt má ekki aka á negldum dekkjum fyrr en eftir 1. nóvember en lögreglan segist ekki munu bregðast við naglaglamri þótt hálka í höfuðborginni sé á bak og burt. 22.10.2004 00:01
EasyJet flýgur ekki til Íslands Flugleiðir keyptu síðdegis 8,4 prósenta hlut í breska lággjaldaflugfélaginu easyJet. Flugleiðamenn eiga ekki von á að easyJet hefji flug hingað til lands þrátt fyrir þetta. 22.10.2004 00:01
Grípa hefði átt inn í strax Félagsmálastjórinn í Reykjavík segir að grípa hefði átt inn í kennaraverkfallið strax og að það sé á sameiginlegri ábyrgð ríkisstjórnar, sveitarfélaga og samfélagsins alls. Það yrði ekki látið viðgangast í siðmenntuðum löndum að börn væru án kennslu svo vikum skipti. 22.10.2004 00:01
Ótrúlegar aðferðir handrukkara Móðir Thelmu Gígju Kristjánsdóttur, sem fyrirfór sér 20. ágúst síðastliðinn, lýsir því í helgarviðtali DV hvernig handrukkarar hröktu hana í opinn dauðann vegna fíkniefnarskuldar sambýlismanns Thelmu. 22.10.2004 00:01
Deilendur á fund forsætisráðherra Forsætisráðherra hefur kallað til sín deilendur í kennaradeilunni á mánudag. Hann segir að viðræðuslitin í gær séu mikil vonbrigði. Ekki hafi þó verið rætt um að setja lög á verkfallið. Kennarar sóttu hart að menntamálaráðherra á Akureyri í dag. 22.10.2004 00:01
Ný stjórn Skjás eins Orri Hauksson, framkvæmdarstjóri þróunarsviðs Símans, var kjörinn formaður stjórnar Skjás eins á hluthafafundi félagsins í gær. Orri hefur MBA-gráðu frá Harvard - háskóla og starfaði sem aðstoðarmaður Davíðs Oddssonar, fyrrverandi forsætisráðherra, á árunum 1997 til 2000. Aðrir sem kosnir voru í stjórn Skjás eins eru Gunnar J. Birgisson, Páll Ásgrímsson, Örn Guðmundsson og Sigfús Ingimundarson. 22.10.2004 00:01
Uppsögn dregin til baka Iceland Express hefur dregið til baka uppsagnir 34 flugliða félagsins. Uppsagnirnar áttu að taka gildi um næstu mánaðamót. Flugfreyjufélag Íslands og Iceland Express eiga nú í viðræðum um nýjan kjarasamning fyrir flugfreyjur og flugþjóna félagsins. Í tilkynningu frá flugfélaginu segir að viðræðunum hafi miðað vel og því hafi uppsagnirnar verið dregnar til baka. 22.10.2004 00:01
Nýtt rannsóknar- og nýsköpunarhús Nýtt rannsóknar- og nýsköpunarhús var tekið í notkun á Akureyri í gær. Húsið er 5.500 fermetrar að stærð og á sjö hæðum. Margar stofnanir koma til með að hafa aðstöðu í húsinu. Þar á meðal Atvinnuþróunarfélag Eyjafjarðar, Hafrannsóknastofnunin, Veðurstofa Íslands og Rannsóknarstofnun og aðalskrifstofa Háskólans á Akureyri. 22.10.2004 00:01
Fyrirtæki hugsa sér til hreyfings Það er að skapast mikil hætta á því að íslensk iðnaðar- og hátæknifyrirtæki flytji starfsemi sína til útlanda. Þetta er mat Vilmundar Jósefssonar, formanns Samtaka iðnaðarins. "Ég er bara að benda á hættuna því þetta getur haft mjög slæmar afleiðingar," segir Vilmundur. "Dönsk og bresk hátæknifyrirtæki flytjast í nokkrum mæli til Indlans þar sem þau fá vel menntað en ódýrt starfsfólk. Íslensk fyrirtæki kunna að fara sömu leið." 22.10.2004 00:01
Skipin bundin við bryggju Öll fjögur rækjuveiðiskip Íshafs á Húsavík liggja bundin við bryggju. Því veldur aflaleysi og hátt verð á olíu. Bergsteinn Gunnarsson, framkvæmdastjóri fyrirtækisins, segir skipin hafa veitt minna af rækju en gert hafi verið ráð fyrir þegar þau hófu veiðar á síðasta ári. Hann vonast til þess að veiðar verði hafnar að nýju eftir áramót. Á meðan sé rækjuvinnslu Íshafs haldið gangandi með aðkeyptri rækju sem veiðist á Flæmska hattinum. 22.10.2004 00:01
Tvíbreið brú í stað einbreiðrar Verið er að leggja lokahönd á gerð nýrrar brúar yfir Vatnsholtsá í Staðarsveit á Snæfellsnesi, en þar var fyrir einbreið brú. 22.10.2004 00:01
Móttaka í Bjarkahlíð Í tilefni af því að í mánuðinum er heil öld liðin frá fæðingu Hákonar Guðmundssonar, fyrsta formanns Landverndar, bjóða dætur hans, Skógræktarfélag Íslands og Landvernd til samkomu í Bjarkahlíð við Bústaðaveg á morgun klukkan tvö, að því er fram kemur á Vef Landverndar. 22.10.2004 00:01
Án búðar í hálfan mánuð Í dag opnar Bónus nýja verslun í Stykkishólmi, en það er fyrsta Bónusverslunin sem opnar á Snæfellsnesi. 22.10.2004 00:01
Endurgreiðslur hækka um 4 prósent Fjögurra prósenta hækkun gjaldskrár tannlækninga var kynnt á ríkisstjórnarfundi í gær. Heilbrigðisráðuneytið gefur gjaldskrána út, en hún er notuð sem grunnur vegna endurgreiðslna Tryggingastofnunar ríkisins. 22.10.2004 00:01
Skilaboð á Akureyrarstrætó Nýir auglýsingaborðar eru komnir á strætisvagna Akureyrar með áletrunum "Mamma er mín fyrirmynd! Foreldrar eru bestir í forvörnum" og "Pabbi er mín fyrirmynd! Foreldrar eru bestir í forvörnum". 22.10.2004 00:01
Kópavogur vildi sérsamninga <p>Eftir að ljóst varð að kennarar voru ekki tilbúnir að ganga að tillögu ríkissáttasemjara í kjarabaráttu þeirra við sveitarfélögin íhugaði Kópavogsbær að ganga að kröfum Kennarasambandsins og semja sér við sína kennara. 22.10.2004 00:01
Óvönduð stjórnsýsla við H.Í. Umboðsmaður Alþingis segir Háskóla Íslands hafa brotið gegn góðum stjórnsýsluháttum þegar hann síðasta vetur ákvað að stytta tímabilið sem nemendur hafa til að greiða skrásetningargjald við skólann. Þá átaldi Umboðsmaður skólann fyrir seinagang. 22.10.2004 00:01
Íslenski hesturinn sló í gegn Íslenski hesturinn sló í gegn á stórsýningu og keppni sem nýverið fór fram í Bretlandi. Að sögn Jónasar R. Jónssonar, umboðsmanns íslenska hestsins, voru áhorfendur um 60 þúsund talsins. 22.10.2004 00:01
Fernt flutt á sjúkrahús Fjórir voru fluttir á sjúkrahús í Reykjavík eftir harðan árekstur þriggja bíla við Blástein á Vesturlandsvegi síðdegis í gær. Fólkið var ekki talið alvarlega slasað. 22.10.2004 00:01
Skipulagi ekki fylgt Þrátt fyrir að markmið í skipulagsmálum höfuðborgarsvæðisins séu skýr er erfitt að uppfylla þau, segir Þorsteinn Víglundsson forstjóri BM Vallár þjónustufyrirtækis á byggingarmarkaði. 22.10.2004 00:01
Íslenski hesturinn sló í gegn Íslenski hesturinn sló sannarlega í gegn á stórsýningu og keppni í Bretlandi, að sögn Jónasar R. Jónssonar umboðsmanns íslenska hestsins. Íslensku sýningarnar fengu frábær viðbrögð hjá þúsundum áhorfenda, sem voru undrandi á hæfileikum hestanna. 22.10.2004 00:01
Láta ekki svelta sig "Kennarar munu aldrei verða sveltir til hlýðni," sagði Jón Pétur Zimsen grunnskólakennari á baráttufundi kennara á Ingólfstorgi í gær. Um 3.000 kennarar mættu í kröfugöngu frá Hlemmi og á fundinn. 21.10.2004 00:01
Lífvörður drottningar járnaður Gremja í garð sigursælla Íslendinga á hestasýningu á Englandi leiddi til þess að flytja þurfti einn lífvarða bretadrottningar burt í járnum. Atvikið varð eftir sýninguna þar sem Íslendingar sköruðu fram úr og hlutu nafnbótina "Star of the Show" eða Stjörnur sýningarinnar. 21.10.2004 00:01
Búið að ná sambandi við mennina Lögreglan er búin að ná sambandi við mennina þrjá, sem réðust á fréttastjóra DV á ritstjórn blaðsins í gær og tóku hann meðal annars kverkataki þannig að á honum sá og höfðu í hótunum við starfsfólk. Lögregla boðaði alla mennina til skýrslutöku í dag, en enginn þeirra var handtekinn í gær, sem bendir til þess að lögregla hafi aðeins náð símasambandi við þá. 21.10.2004 00:01
Fundur í gangi Samningafundur í kennaradeilunni stóð hjá ríkissáttasemjara til klukkan 11 í gærkvöldi og var þá nýr fundur boðaður í morgun og hófst hann klukkan 9. Samningamenn hafa ekkert tjáð sig eftir fundinn í gærkvöldi. 21.10.2004 00:01
Slapp naumlega undan ofsaakstri Maður slasaðist þegar hann kastaði sér frá bíl, sem ekið var á ofsahraða eftir Mýrargötu, skammt frá Slippnum í Reykjavík laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi. Maðurinn var á leið yfir götuna þegar bíllinn birtist skyndilega og sló ekkert af þrátt fyrir að maðurinn væri á götunni, og greip maðurinn þá til þess ráðs að kasta sér frá upp á líf og dauða. 21.10.2004 00:01
Hefst við í stolnum bílum Húsnæðismál ungs manns eru í uppnámi eftir að lögreglan hafði afskipti af ólöglegum og óvenjulegum búferlaflutningum hans. Það hófst með því að maðurinn fannst sofandi í bíl á bílastæði uppi í Breiðholti. Kom í ljós að bíllinn var stolinn og annar stolinn bíll fannst skammt frá þar sem bílnum, sem maðurinn fanst sofandi í, hafði verið stolið. 21.10.2004 00:01
Slapp vel úr veltu Ökumaður, sem var á ferð undir Eyjafjöllum undir kvöld í gær, slapp lítið meiddur þegar fjárflutningavagn, sem hann dró, tókst á loft í vindhviðu. Við það kom mikill hnykkur á bílinn og hann skekktist á veginum með þeim afleiðingum að bæði vagn og bíll ultu út af veginum og stór skemmdust. 21.10.2004 00:01
Krufning kostar 95 þúsund Það getur kostað sitt að leita sér lækninga á spítala. Sjúklingar geta þurft að reiða fram þúsundir á þúsundir ofan. Þeir sem oftast þurfa til læknis fá afslátt. Fólk sem ekki er sjúkratryggt á Íslandi þarf að borga allt að þrettán hundruð þúsund krónur fyrir aðgerð. </font /></b /> 21.10.2004 00:01
Nefbrotin lögga þorir ekki að kæra Lögreglumaður þorði ekki að kæra Jón Trausta Lúthersson sem barði hann í Leifsstöð í desember. Ástæðan var að annar vítisengill hafði hótað börnum lögreglumannsins. Yfirmaður lögreglumannsins segist hafa lagt hart að honum að kæra. Jón Trausti er sá sem réðst á fréttastjóra DV í gær. 21.10.2004 00:01
Sjómenn langþreyttir á þófinu Sjómenn segjast fara að verða langþreyttir á samningaþófi sínu við LÍÚ, en fertugasti samningafundurinn hófst hjá Ríkissáttasemjara í morgun og deilendur voru ekki bjartsýnir fyrir hann. Samningar sjómanna, annarra en vélstjóra, hafa verið lausir frá áramótum og var viðræðum vísað til Ríkissáttasemjara strax í febrúar. 21.10.2004 00:01
Fundurinn stendur enn Samningafundur í kennaradeilunni stóð hjá ríkissáttasemjara til klukkan 11 í gærkvöldi. Boðað var til nýs fundar í morgun og hófst hann klukkan níu og stendur enn yfir. Samningamenn hafa ekkert tjáð sig eftir fundinn í gærkvöldi. 21.10.2004 00:01
Skatttekjur hækkuðu mest á Íslandi Skattekjur, sem hlutfall af þjóðartekjum, hækkuðu langmest á Íslandi í fyrra af OECD ríkjunum þrjátíu, sem eru ríkustu lönd heims. Samkvæmt samantekt OECD hækkaði skatturinn hér á landi úr rétt rúmum 38 prósentum í upp í rúm 40% og næst mest í Tyrklandi, eða úr 31% upp í tæp 33%. 21.10.2004 00:01
Ætla að gefa lögreglu skýrslu Mennirnir þrír, sem frömdu húsbrot á ritstjórn DV í gær, hafa allir heitið því að gefa lögreglunni skýrslu um málið, eftir að lögreglan náði í þá símleiðis í gærkvöldi. Þeir réðust á fréttastjóra DV inni á ritstjórn blaðsins í gær og tóku hann meðal annars kverkataki þannig að á honum sá, og höfðu í hótunum við starfsfólk. 21.10.2004 00:01
Gott að búa við eigin nöldur Þingmenn lýstu á Alþingi í dag þungum áhyggjum af því að stóreignamenn væru að kaupa upp jarðir og kenndu nýjum jarðalögum um. Landbúnaðarráðherra segir nýja tíma í uppsiglingu. Hann var gagnrýndur fyrir að svara ekki spurningum um málið, en ráðherra sagði gott að búa við nöldrið sitt. 21.10.2004 00:01
SUS á móti kaupum Símans Samband ungra Sjálfstæðismann hefur sent frá sér ályktun í ljósi kaupa Símans á ráðandi hlut í Skjá Einum, þar sem hvatt er til einkavæingar Símans og að ríkið dragi sig úr rekstri fjölmiðla. 21.10.2004 00:01
Moska á Íslandi fyrir 700 múslima Múslimar á Íslandi hafa enn ekki fengið úthlutað lóð undir mosku þótt tæp fjögur ár séu liðin frá umsókninni. Salmann Tamini, forstöðumaður Félags múslima á Íslandi, segir ekkert liggja á en vonast þó til að framkvæmdir hefjist innan árs. Múslimar hérlendis voru um 300 árið 2000. Salman segir þá vera að minnsta kosti 700 í dag. Nánar í DV í dag. 21.10.2004 00:01
Dómsmálaráðuneytið fór ei að lögum Dómsmálaráðuneytið fór ekki að lögum þegar það bannaði unnustu fanga á Litla hrauni að heimsækja unnusta sinn, að mati Umboðsmanns Alþingis. Fanginn kvartaði undan úrskurði ráðuneytisins, sem staðfesti úrskurð Fangelsismálastofnunar um að banna unnunstunni heimsóknir. 21.10.2004 00:01
Búnir að gefa skýrslu Mennirnir þrír sem réðust á fréttastjóra DV í gær og gengu berserksgang á ritstjórn blaðsins fóru til lögreglu í dag og gáfu skýrslu um atburði gærdagsins. Fréttastjórinn lagði fram kæru gegn mönnunum í morgun. 21.10.2004 00:01
Hafnaði kröfum um þjóðlendumörk Hæstiréttur hafnaði í dag kröfu íslenska ríkisins um að mörk þjóðlendu næði inn fyrir landsvæði sem eigendur tiltekinna jarða í Árnessýslu kröfðust viðurkenningar á. Hæstiréttur staðfesti úrskurð óbyggðanefndar að svokallaður Framafréttur eins og hann er afmarkaður í úrskurði nefndarinnar, teljist til þjóðlendu. 21.10.2004 00:01
Ekki lagaheimild fyrir takmörkunum Hæstiréttur komst í dag að þeirri niðurstöðu að íslenska ríkið hefði ekki haft lagaheimild til að setja takmarkandi skilyrði fyrir sjóflutningum fyrir varnarliðið á Keflavíkurflugvelli. Atlantsskip höfðaði mál gegn ríkinu, þar sem deilt var um skilyrði sem forvalsnefnd utanríkisráðuneytisins setti fyrir þátttöku í útboði fyrir varnarliðið. 21.10.2004 00:01
Krónur og brýr án endurgreiðslu Tannlæknar segja óréttlátt að Tryggingastofnun taki ekki þátt í niðurgreiðslu á tannkrónum og brúm fyrir eldri borgara, að sögn Gunnars Leifssonar, formanns upplýsinganefndar. Yfirtryggingatannlæknir hafi bent á að því þurfi að breyta. Það hefur þó ekki gerst enn. 21.10.2004 00:01
Veglegur styrkur til daufblindra Daufblindir geta auðveldlega einangrast. Nú hafa þeir fengið myndarlegan styrk, sem hjálpar þeim að taka betur þátt í því sem er að gerast í samfélaginu. 21.10.2004 00:01
Nálgast samkomulag um sorp Heldur hefur þokast í átt til samkomulags milli sveitarstjórnar Ölfuss og stjórnar Sorpstöðvar Suðurlands, að sögn Hjörleifs Brynjólfssonar oddvita sveitarstjórnar Ölfuss. 21.10.2004 00:01