Fleiri
18.10.2004 00:01 Fleiri hross flutt út Útflutningur á hrossum hefur aukist á milli ára, samkvæmt tölum frá Bændasamtökum Íslands. Nú hafa um eitt hundrað fleiri hross farið utan heldur en á sama tíma í fyrra, að sögn Hallveigar Fróðadóttur hjá BÍ. "Það hefur verið nóg að gera og ekkert lát ennþá," sagði hún. 18.10.2004 00:01 Jónas neitar allri sök Einn sakborninga í líkfundarmálinu neitar allri sök. Hinum sakborningunum tveimur ber að mestu leyti saman um að allir þrír hafi átt þátt í að koma líki Vaidasar Júsevicsíusar fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 18.10.2004 00:01 Hærri skattur á áfengi Heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar Norðurlandanna samþykktu á fundi sínum um áfengismál í morgun að leggja til aukna skattlagningu á áfengi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir þetta þó ekki þýða að skattar á áfengi hækki hér á landi, enda séu þeir ærnir fyrir. 18.10.2004 00:01 Óveður á Kjalarnesi Óveður er á Kjalarnesi og hafa hviður þar farið yfir 40 metra á sekúndu. Í morgun valt vörubíll frá fyrirtækinu Fönn á hliðina í vindhviðu á Vatnsnesvegi á Kjalarnesi. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. Á tólfta tímanum fauk svo byggingardót úr ókláruðum sumarbústað yfir Vesturlandsveg. Þá hnikaðist annar ókláraður bústaður á járngrindum við Kjalarnes úr stað í heilu lagi en endaði ferðina við skemmu í nágrenninu. 18.10.2004 00:01 Vilja hærri skatta á áfengi Hækka þarf skatta á áfengi í því markmiði að draga úr neyslu þess. Þetta er sameiginleg niðurstaða heilbrigðis- og félagsmálaráðherra á Norðurlöndum, eftir að hafa fjallað um áfengismál á sérstökum aukafundi í Kaupmannahöfn. Fundinum lauk í gær. 18.10.2004 00:01 Á meðal stærstu fyrirtækja Evrópu Tvö íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru meðal þriggja stærstu sjávarútvegsfyrirtækja Evrópu. Fyrirtækin sem um ræðir eru SH, sem er í öðru sæti, og SIF Group sem er í því þriðja. 18.10.2004 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
Tuga milljóna tjón Víst þykir að kviknað hafi í út frá heyi þegar 600-700 fjár brunnu inni á bænum Knerri á Snæfellsnesi í gærkvöldi. Fjárhús, hlaða og vélageymsla, og margar vinnuvélar, brunnu þar til kaldra kola. Tjón er metið á tugi milljóna króna. Menn lögðu sig í mikinn háska við að reyna að bjarga sauðfénu. 19.10.2004 00:01
Áfram leynd um Línu Net Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins í Orkuveitu Reykjavíkur fá ekki að sjá endurskoðanaskýrslu Línu Nets eins og þeir hafa beðið um. Lína Net var dótturfélag Orkuveitunnar. Guðlaugur Þór Þórðarsson, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, segir að stjórn Línu Nets hafi synjað beiðninni. Meirihluta stjórnarinnar mynda þeir Alfreð Þorsteinsson og Stefán Jón Hafstein, fulltrúar Reykjavíkurlistans. 19.10.2004 00:01
Háskólar sameinast næsta sumar Stofnaður verður nýr háskóli sem tekur yfir rekstur Háskólans í Reykjavík og Tækniháskóla Íslands. Samkomulag um þetta var undirritað í gær. Stefnt er að því að starfsemin verði endanlega sameinuð næsta sumar. Þá verður skólinn næst stærsti háskóli landsins með í kringum 2.600 nemendur og um 180 fasta starfsmenn. 19.10.2004 00:01
Tillaga um hækkun gjalda aldraðra Gjöld fyrir heimaþjónustu, fæði og akstur í félagsstarf í Reykjavík hækka um tuttugu milljónir króna á næsta ári miðað við tillögur sem liggja fyrir í félagsmálaráði Reykjavíkur vegna gerð fjárhagsáætlunar næsta árs. 19.10.2004 00:01
Logandi kindur í veðurofsa Talið er að á sjöunda hundrað fjár hafi brunnið inni í eldsvoða á bænum Knerri á sunnanverðu Snæfellsnesi á mánudagskvöld. Mikið eignatjón varð þegar hlaða, fjárhús og skemma með fjölda tækja urðu eldi að bráð. Slökkvistarfi lauk í gær. 19.10.2004 00:01
Ekki refsað fyrir að berja konuna Héraðsdómur Reykjaness sleppti í gær manni við refsingu, sem sannað þótti að hafði gengið í skrokk á eiginkonu sinni. Maðurinn viðurkenndi að hafa lagt hendur á konuna eftir að grunur kom upp um framhjáhald hennar. 19.10.2004 00:01
Kvöðum ekki aflétt Ekki kemur til greina að aflétta kvöðum sem fylgja skipulagi vegna matvöruverslunar Bónuss og Hagkaupa í Spönginni að sögn Steinunnar Valdísar Óskarsdóttur, formanns skipulagsnefndar borgarinnar. 19.10.2004 00:01
Fiskmarkaður opnaður á Siglufirði Fiskmarkaður hefur verið opnaður á Siglufirði. Ólafur Kárason, formaður bæjarráðs Siglufjarðar, segir að markaðurinn sé opnaður vegna aukinnar fiskgengdar á miðunum fyrir norðan land. 19.10.2004 00:01
Yfirheyrður vegna dóplista Lögreglan yfirheyrði í gær Björn Sigurðsson í Krummahólum í Breiðholti vegna nafnalista yfir dópsala sem hann birti á vef sínum dopsalar.tk. Nöfn tveggja lögreglumanna eru á vefnum og hefur annar þeirra kært Björn. 19.10.2004 00:01
Nóatún fékk leyfi fyrir mistök Mistök voru gerð í skipulagi Grafarholts þegar Nóatún fékk að opna verslun við Þjóðhildarstíg. 19.10.2004 00:01
Vind lægir í dag Óveðrið sem geisað hefur víða um land síðan á mánudag með miklu hvassviðri á Suður- og Vesturlandi mun ganga niður í dag, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. 19.10.2004 00:01
Mikill uppblástur á Suðurlandi Uppblástur á Suðurlandi í hvassviðrinu undanfarna tvo daga er sá mesti sem orðið hefur í mörg ár. Þetta segir Jón Ragnar Björnsson, fræðslufulltrúi Landgræðslu Íslands. Hann segir uppblásturinn hafi verið mestan í uppsveitum Rangárvallasýslu, sérstaklega í kringum Heklu. Hann segir mold, sand og vikur hafa myndað skafla á svæðinu. 19.10.2004 00:01
Brúin yfir Núpsvötn skemmdist Þjóðvegurinn lokaðist í gær þegar brúin yfir Núpsvötn við Lómagnúpa skemmdist í óveðrinu. Yfirborð brúarinnar opnaðist þegar málmgrindur sem lagðar voru í brúna fyrir skömmu flettust upp. 19.10.2004 00:01
Ótrúlegri slysaalda í Langadal Þrír bílar lentu utan vegar og einn árekstur varð í norðanverðum Langadal í gærdag. Enginn slaðasist alvarlega en tveir bílar eru nokkuð skemmdir. 19.10.2004 00:01
Bærinn þakinn brúnni slikju Mikið moldrok var á hálendinu í hvassviðrinu sem gekk yfir landið í gær og fyrradag. Að sögn lögreglunnar í Vestmannaeyjum fóru Eyjamenn ekki varhluta af moldrokinu. Var það svo mikið að varla sást út úr augum um tíma. 19.10.2004 00:01
Hækka skólagjöldin um 500%? Háskólinn í Reykjavík og Tækniháskóli Íslands verða sameinaðir næsta haust og verða þar með að næststærsta háskóla landsins, með um 2500 nemendur. Miðað við núverandi skólagjöld má reikna með að skólagjöld Tækniskólanemenda hækki um rúmlega 500 prósent. 19.10.2004 00:01
Strokufangi handtekinn Nítján ára gamall fangi sem strauk úr fangelsinu á Skólavörðustíg að morgni mánudags var handtekinn á veitingastað í miðbæ Hafnarfjarðar síðar um daginn. Hann hefur nú verið vistaður í fangelsinu að nýju. Lögreglan í Hafnarfirði handtók manninn seint á mánudagskvöldið eftir að hann réðst á starfsmann veitingastaðar í bænum. 19.10.2004 00:01
Tveir af fjörtíu voru í bílbeltum Mildi þykir að enginn skyldi hafa slasast lífshættulega þegar rúta með fjörtíu manns innanborð fauk út í kant og valt út af veginum undir Akrafjalli um klukkan sjö í gærmorgun. Rútan endaði á toppnum fyrir neðan veginn. 19.10.2004 00:01
Ríkið efli sveitarfélögin Borgarstjórn Reykjavíkur skorar á ríkisstjórnina að efla tekjustofna sveitarfélaga þannig að þau geti með eðlilegum hætti sinnt þeim verkefnum sem þau hafa með höndum. Áskorunin var samþykkt samhljóða á fundi borgarstjórnar í gær. Margrét Sverrisdótti, varaborgarfulltrúi Frjálslyndra lagði fram tillögu í þessa átt en henni var breytt með tillögu Reykjavíkurlistans. 19.10.2004 00:01
Þrjár beiðnir af ellefu samþykktar Þrjár undanþágubeiðnir af ellefu voru samþykktar á sjöunda fundi undanþágunefndar vegna verkfalls grunnskólakennara. Fimm beiðnum var hafnað og þremur frestað 19.10.2004 00:01
Fékk óskina áttfallt uppfylta Sjö einhverfir nemendur Hamraskóla í Grafarvogi snúa til kennslu í dag. Jákvætt svar fékkst í fjórðu tilraun þegar beiðninni var breytt úr undanþágu fyrir þrjá kennara í 23. Yngvi Hagalínsson skólastjóri segir að vel hefði verið hægt að leysa neyð nemendanna með kennurunum þremur. 19.10.2004 00:01
30. dagur verkfalls kennara Ásmundur Stefánsson ríkissáttasemjari telur ekki að lög verði sett á verkfall kennara. Hann leggur ekki mat á hvort þokast hafi í samkomulagsátt á fundi samninganefnda kennara og sveitarfélaga í gær. 19.10.2004 00:01
Endurnýja samstarfið Héraðslistinn hefur ákveðið að ganga til viðræðna við sjálfstæðisflokkinn um myndun meirihlutastjórnar á Héraði. 19.10.2004 00:01
Ávinningurínn um hálfur milljarður Hvalfjarðargöngin hafa komið Vesturlandi í sömu stöðu og Suðurland hefur gagnvart höfuðborgarsvæðinu. Ávinningurinn er mestur hjá þeim sem næst göngunum búa. Væntingar Vestlendinga hafa stóraukist með tilkomu ganganna. </font /></b /> 19.10.2004 00:01
Rækjuveiðar bannaðar í Djúpinu Rækjuveiðar verða ekki leyfðar í Ísafjarðardjúpi í vetur ef farið verður að tillögum Hafrannsóknastofnunar. Leggur stofnunin ennfremur til að rækjuveiðar verði ekki leyfðar í Arnarfirði að svo stöddu. 19.10.2004 00:01
Mannabreytingar hjá Gæslunni Björn Brekkan Björnsson, þyrluflugmaður hjá Landhelgisgæslunni, hefur tekið að sér að vera flugrekstrarstjóri Landhelgisgæslunnar, að því er fram kemur í fréttatilkynningu. Benóný Ásgrímsson sem sinnt hefur flugrekstrarstjórastarfinu síðastliðin fjögur ár verður áfram yfirflugstjóri. 19.10.2004 00:01
Beiðni Steingríms hafnað Stjórn Landssíma Íslands hefur hafnað kröfu Steingríms J. Sigfússonar, alþingismanns, um að boðað verði til hluthafafundar í fyrirtækinu vegna kaupa þess á hlut í Skjá einum. 19.10.2004 00:01
Banaslys í Skagafirði Banaslys varð í nótt þegar bíll valt út af þjóðveginum ofan við Varmahlíð í Skagafirði. Einn lést og voru þrír fluttir á Fjórðungssjukrahúsið á Akureyri. Fréttastofunni er ekki kunnugt um líðan þeirra né tildrög slyssins, nema hvað hálka var á vettvangi. 18.10.2004 00:01
Gripið verði til lagasetningar Gunnar Birgisson, formaður menntamálanefndar Alþingis, segir að ríkið verði að grípa til örþrifaráða með lagasetningu ef ekki gangi saman með deilendum í kennaradeilunni á næstunni. Gunnar sagði þetta í viðtali við Ríkisútvarpið í gærkvöldi en vildi ekki tímasetja nánar hvenær nóg væri komið svo að lög verði sett til að stöðva verkfallið. 18.10.2004 00:01
Mynda nýjan meirihluta Héraðslisti félagshyggjufólks og listi Sjálfstæðisflokksins munu reyna að mynda nýjan meirihluta í nýsameinuðu sveitarfélagi Fellahrepps, Austur- og Norðurhéraðs en flokkarnir störfuðu saman í stjórn Austurhéraðs, fjölmennasta svæðisins, fyrir sameininguna. 18.10.2004 00:01
Stormur á norðaustanverðu landinu Snjór og hálka er á fjallvegum um norðan- og austanvert landið og víða er hálka niður á láglendi og í þéttbýli, eins og á Akureyri og Húsavík. Stormur er á norðaustanverðu landinu og lentu nokkrir ökumenn í vandræðum í Oddsskarði í gærkvöldi. 18.10.2004 00:01
Standa við lokun sorpstöðvar Lausn á ágreiningi um Sorpstöð Suðurlands er ekki í sjónmáli. Aðeins vika er í að stöðinni verði lokað. Engar formlegar viðræður hafa átt sér stað til að leysa ágreininginn. 18.10.2004 00:01
Braust inn í Kjarvalsstaði Lögreglumenn handtóku innbrotsþjóf á vettvangi í gærkvöldi eftir að hann hafði brotist inn í Kjarvalsstaði. Ólíklegt er talið að hann hafi haft listaverkaþjófnað í huga heldur hafi hann frekar verið að leita að peningum eða smáhlutum til að koma í verð því hann hafði rótaði í hirslum á skrifstofunni þegar lögregumenn komu að honum. 18.10.2004 00:01
Dráttarbíll valt vegna vindhviðu Stór dráttarbíll með tengivagn valt í mikilli vindhviðu þegar bíllinn, sem var á austurleið, átti skammt ófarið að Kirkjubæjarklaustri um klukkan sex í morgun. Ökumanninn sakaði ekki en bíllinn liggur á hliðinni á þjóðveginum og er hann lokaður. Vagninn, sem var tómur, hafnaði utan vegar. 18.10.2004 00:01
Ók niður ljósastaura Sautján ára unglingur, sem er nýkominn með bílpróf, missti stjórn á jeppa sínum þegar hann ók yfir hraðahindrun á Selfossi seint í gærkvöldi með þeim afleiðingum að hann ók niður tvo ljósastaura áður en bíllinn nam staðar. 18.10.2004 00:01
Steinar féllu á veginn Tveir stórir steinar, allt að hálfu tonni hvor, féllu úr fjallshlíð fyrir ofan þjóðveginn austan við Höfn, á móts við bæinn Þorgeirsstaði, í gærkvöldi. Svo vel vildi til að engin var á ferð um veginn þegar þeir féllu og með lagni komust ökumenn fram hjá þeim. 18.10.2004 00:01
Olíulinda leitað við Ísland Búist er við auknum áhuga olíufélaga á að leita að olíulindum í grennd við Ísland og víðar á norðurslóðum vegna hækkandi olíuverðs og ótryggs ástands á mörgum helstu olíuvinnslusvæðunum. 18.10.2004 00:01
Björgunarsveitir kallaðar út Björgunarsveitir hafa verið kallaðar út til að aðstoða fólk sem lent hefur í vandræðum í bílum sínum vegna ófærðar og illviðris sem gengur nú yfir norðaustanvert landið. Mjög hvasst er einnig í vindhviðum vestur eftir Suðurströndinni. 18.10.2004 00:01
Fleiri hross flutt út Útflutningur á hrossum hefur aukist á milli ára, samkvæmt tölum frá Bændasamtökum Íslands. Nú hafa um eitt hundrað fleiri hross farið utan heldur en á sama tíma í fyrra, að sögn Hallveigar Fróðadóttur hjá BÍ. "Það hefur verið nóg að gera og ekkert lát ennþá," sagði hún. 18.10.2004 00:01
Jónas neitar allri sök Einn sakborninga í líkfundarmálinu neitar allri sök. Hinum sakborningunum tveimur ber að mestu leyti saman um að allir þrír hafi átt þátt í að koma líki Vaidasar Júsevicsíusar fyrir í höfninni í Neskaupstað. Aðalmeðferð málsins hófst í morgun fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. 18.10.2004 00:01
Hærri skattur á áfengi Heilbrigðis- og félagsmálaráðherrar Norðurlandanna samþykktu á fundi sínum um áfengismál í morgun að leggja til aukna skattlagningu á áfengi. Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra segir þetta þó ekki þýða að skattar á áfengi hækki hér á landi, enda séu þeir ærnir fyrir. 18.10.2004 00:01
Óveður á Kjalarnesi Óveður er á Kjalarnesi og hafa hviður þar farið yfir 40 metra á sekúndu. Í morgun valt vörubíll frá fyrirtækinu Fönn á hliðina í vindhviðu á Vatnsnesvegi á Kjalarnesi. Ökumaður bílsins slapp ómeiddur. Á tólfta tímanum fauk svo byggingardót úr ókláruðum sumarbústað yfir Vesturlandsveg. Þá hnikaðist annar ókláraður bústaður á járngrindum við Kjalarnes úr stað í heilu lagi en endaði ferðina við skemmu í nágrenninu. 18.10.2004 00:01
Vilja hærri skatta á áfengi Hækka þarf skatta á áfengi í því markmiði að draga úr neyslu þess. Þetta er sameiginleg niðurstaða heilbrigðis- og félagsmálaráðherra á Norðurlöndum, eftir að hafa fjallað um áfengismál á sérstökum aukafundi í Kaupmannahöfn. Fundinum lauk í gær. 18.10.2004 00:01
Á meðal stærstu fyrirtækja Evrópu Tvö íslensk sjávarútvegsfyrirtæki eru meðal þriggja stærstu sjávarútvegsfyrirtækja Evrópu. Fyrirtækin sem um ræðir eru SH, sem er í öðru sæti, og SIF Group sem er í því þriðja. 18.10.2004 00:01