Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kristján formaður SGS Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur, var kjörinn formaður Starfsgreinasambands Íslands á ársfundi sambandsins í gær. Signý Jóhannesdóttir, formaður verkalýðsfélagsins Vöku á Siglufirði, bauð sig fram gegn honum, en meirihluti uppstillingarnefndar lagði til að Kristján yrði formaður. 14.10.2004 00:01
Iðgjöldum stolið og rukkað um lán Ástráður Hreiðarsson yfirlæknir stefnir Tryggingasjóði lækna fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krefst niðurfellingar á láni sem sjóðurinn veitti honum. Ástráður er félagi í Tryggingasjóðnum og einn þeirra sem töpuðu öllum sínum lífeyri þegar sjóðurinn fór í þrot vegna 80 milljóna króna fjárdráttar Lárusar Halldórssonar fyrrverandi sjóðsstjóra. 14.10.2004 00:01
Landað úr Sólbaki Landað var úr Sólbaki á Akureyri í gær. Sæmundur Friðriksson, útgerðarstjóri Brims, segir að löndunin hafi gengið vel. "Það sást ekki nokkur einasti maður frá sjómannahreyfingunni." 14.10.2004 00:01
Kennarar læri af verkafólki "Þeir sem standa þessa dagana í samningaviðræðum og heyja kjarabaráttu sem um margt minnir á fyrri tíma gætu lært af mönnum eins og Halldóri Björnssyni, fráfarandi formanni Starfsgreinasambandsins." Þetta sagði Árni Magnússon félagsmálaráðherra á ársfundi Starfsgreinasambandsins. 14.10.2004 00:01
Actavis sakað um kúgun Actavis er sakað um að hafa kúgað verkamenn í Búlgaríu og brotið á þeim samninga. Starfsgreinasambandinu hefur borist fyrirspurn vegna meintra brota fyrirtækisins þar. Lögmaður Actavis segir verkalýðsfélög í Búlgaríu ekki hafa gert athugasemdir við starfsemi fyrirtækisins. 14.10.2004 00:01
Samningar virðast ekki halda Erfiðar samningaviðræður við ýmsa hópa opinberra starfsmanna og fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar benda til þess að forsendur kjarasamninga haldi ekki og þeim verði sagt upp í lok komandi árs. 14.10.2004 00:01
Sýna okkur ekki hvað þeir bjóða Tvennt kemur í veg fyrir að kennarar geti gengið að tilboði samninganefndar sveitarfélaganna frá í síðustu viku, segir Eiríkur Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands. Annað er að samninganefnd sveitarfélaganna hafi ekki enn sýnt hvað nákvæmlega sé verið að bjóða kennurum, en hitt er að vinnutímalækkun komi ekki fram fyrr en seint og síðar meir. 14.10.2004 00:01
Töluverð kennsla á Vestfjörðum Það eru ekki allir grunnskólanemendur án kennslu því stundakennarar eru ekki í verkfalli og kenna því enn. Í sumum skólum fá nemendur töluverða kennslu, eins og til dæmis á Suðureyri. 14.10.2004 00:01
Flugbátur í hnattferð á Íslandi Flugbátur sem er á leið umhverfis jörðina lenti á Reykjavíkurflugvelli nú síðdegis. Hann er þriggja hreyfla af gerðinni Dornier DO 24. Flugbátar af þessari tegund flugu fyrst árið 1939 og voru einkum notaðir til leitar og björgunar. 14.10.2004 00:01
Vígahundar bannaðir í borginni Atvik eins og það sem átti sér stað í Breiðholti síðasta föstudag þegar tveir stórir hundar, Rottweiler og Doberman, rifu kött í sig geta væntanlega ekki átt sér stað í framtíðinni ef hugmyndir sem nú eru uppi innan borgarkerfisins verða að veruleika 14.10.2004 00:01
Á uppboð þrátt fyrir samkomulag Umboðsmaður Alþingis hefur komist að þeirri niðurstöðu að tollstjórinn í Reykjavík hafi gert mistök þegar hann auglýsti uppboð á eign vegna vangoldinna fasteignagjalda. 14.10.2004 00:01
Kjalnesingar átelja seinagang Íbúasamtök Kjalarness átelja þann seinagang sem orðið hefur í lagningu Sundabrautar. Til að flýta fyrir framkvæmdum leggja íbúasamtökin til að byrjað verði á framkvæmdum á Kjalarnesi. 14.10.2004 00:01
Barnabætur breytast ekki Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir að ekki sé gert ráð fyrir að barnabætur verði hækkaðar á næsta ári. Össur Skarphéðinsson, formaður Samfylkingar, segir að forsætisráðherrann hafi síðast í fyrradag boðað slíka hækkun 2005. Alþýðusambandið segist undrandi á afstöðu Halldórs. 13.10.2004 00:01
Ræðir við samninganefndir í dag Ríkissáttasemjari mun í dag ræða við samninganefndir í kennaradeilunni, hvora í sínu lagi, og að þeim viðræðum loknum ræðst hvort hann telur ástæðu til að boða til formlegs samningafundar. Hvorugur deilenda hefur gefið nokkrar tilslakanir í skyn eftir að ríkissáttasemjari sló viðræðum á frest á sunnudag eftir árangurslaus fundarhöld. 13.10.2004 00:01
Pétur mikli enn við landið Skipherrann á rússneska beitiskipinu Pétri mikla stóð ekki við þau orð sín við Landhelgisgæsluna í fyrradag að hann myndi halda frá landinu undir kvöld í gær. Klukkan tíu í gærkvöldi lá skipið enn fyrir akkerum út af Þistilfirði, ásamt fjórum öðrum herskipum. 13.10.2004 00:01
Eldur í Hábergi Töluverðar skemmdir urðu á nótaskipinu Hábergi þegar eldur kom upp í skipinu er það var í slipp í Póllandi í fyrradag. Engan sakaði en eldurinn kviknaði í íbúðum skipverja. 13.10.2004 00:01
Bílar skullu saman í Garði Minnstu munaði að slys hlytist af í gærkvöldi þegar ölvaður ökumaður ók þvers og kruss um veginn á leið heim til sín suður í Garði. Þegar bíll kom á móti honum tókst honum ekki að halda sig á sínum vegarhelmingi þannig að hliðar bílanna skullu saman og speglar og hliðarrúður brotnuðu. 13.10.2004 00:01
Handtekinn tvær nætur í röð Lögreglumenn handtóku í nótt tæplega tvítugan mann á vettvangi þar sem hann hafði brotist inn í verslunarmiðstöð í Breiðholti. Það væri vart í frásögu færandi ef sami maðurinn hefði ekki líka verið handtekinn við innbrot á sama stað og um svipað leyti í fyrrinótt. 13.10.2004 00:01
Rússarnir ræddir í nefndinni Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri í utanríkismálaráðuneytinu, var kallaður á fund utanríkismálanefndar Alþingis sem hófst klukkan ellefu til að skýra samskipti ráðuneytisins við rússnesk stjórnvöld vegna rússnesku herskipanna á Þistilfjarðargrunni. 13.10.2004 00:01
Sólbakur landaði í morgun Engar mótmælaaðgerðir voru á bryggjunni á Akureyri í morgun þegar löndun hófst úr togaranum Sólbaki en hann kom til hafnar klukkan átta. Forysta sjómannasamtakanna segist hlíta lögbanni á mótmælaaðgerðir sem sýslumaðurinn á Akureyri féllst á í gær, að beiðni útgerðarfélags Sólbaks. 13.10.2004 00:01
Óbreytt staða í kennaradeilu Samninganefnd kennara mætti til ríkissáttasemjara í morgun en samninganefnd sveitarfélaga hittir hann eftir hádegi. Finnbogi Sigurðsson, formaður samninganefndar kennara, segist ekki vilja ræða niðurstöðu fundarins sem hafi staðið í stutta stund. Farið hafi verið yfir stöðuna sem sé óbreytt. 13.10.2004 00:01
Spennan magnast um þjóðarblómið Nú fara að verða síðustu forvöð fyrir landsmenn að segja álit sitt á því hvert skuli verða þjóðarblóm Íslendinga. Frestur til að velja þjóðarblómið rennur út á föstudag, þann 15. október, eða eftir tvo daga. 13.10.2004 00:01
Íbúum landsins fækkar Íbúum á höfuðborgarsvæðinu fækkaði lítillega á síðastliðnum þremur mánuðum og þónokkuð margir Íslendingar ætla að freista gæfunnar í útlöndum. Fækkunin á höfuðborgarsvæðinu nam samanlagt um áttatíu og átta manns. Þá virðast þónokkrir sjá betri tækifæri í útlöndum en hér á landi því 365 Íslendingar fluttu úr landi umfram þá sem fluttu til landsins. 13.10.2004 00:01
Verða í fjóra daga til viðbótar Samkvæmt upplýsingum Landhelgisgæslunnar ætla rússnesku herskipin að vera á svæðinu út af Þistilfirði í fjóra daga til viðbótar. Þau fylktu aftur liði út af firðinum í nótt. 13.10.2004 00:01
Guggan máluð í felulitum Ísfirsku útgerðarfeðgarnir Ásgeir Gubjartssson og Guðbjartur Ásgeirsson ætla að mála nýjustu Gugguna sína í felulitum, eins og vestfirskir smábátasjómenn orða það. 13.10.2004 00:01
Framsókn stoppar matarskattslækkun Flokkar sem fengu 82% atkvæða í kosningum eru fylgjandi lægri matarskatti. Framsókn er á móti og útlit fyrir að málið sofni á þingi. Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra segir þó að lækkun komi til greina ef "svigrúm" gefist. </font /></b /> 13.10.2004 00:01
Óréttlát stimpilgjöld Margret Frímannsdóttir, þingflokksformaður Samfylkingarinnar lagði fram fyrirspurn til fjármálaráðherra á Alþingi í gær þar sem hún spurði um álit ráðherrans á lækkun eða afnámi stimpilgjalda. Í máli þingmannsins kom fram að Samfylkingin teldi að almenningur nyti ekki vaxtalækkunar á húsnæðislánum sem skyldi vegna "óréttlátrar skattlagningar í formi stimpilgjalda". 13.10.2004 00:01
Rússar létu vita Rússar skýrðu frá því herskip yrðu að æfingum undan Íslandsströndum. Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins skýrði utanríkismálanefnd frá því í gær. 13.10.2004 00:01
18 ára kaupi bjór og léttvín Tuttugu og þrír alþingismenn úr öllum stjórnmálaflokkum hafa lagt fram frumvarp á Alþingi þar sem lagt er til að áfengiskaupaaldur verði lækkaður úr 20 ár í 18 en þó aðeins þegar um léttvín eða bjór er að ræða 13.10.2004 00:01
Samningafundur eftir helgi Samninganefndir sveitarfélaganna og kennara hafa verið boðaðar til fundar hjá Ríkissáttasemjara á mánudag. Þetta var ákveðið eftir óformlega fundi í gær. Eftir viðræður við samninganefndirnar, sitt í hvoru lagi, þótti sáttasemjara ekki ástæða til að boða fund fyrr. 13.10.2004 00:01
Verkalýðsfélög deila um gjöld Óánægja er meðal félagsmanna í Verkalýðs- og sjómannafélagi Sandgerðis sem vinna á Keflavíkurflugvelli, því vinnuveitandi þeirra greiðir félagsgjöld þeirra til Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur. 13.10.2004 00:01
Nemendur fá ekki greiddar bætur Nemendur í Menntaskólanum á Ísafirði sem búsettir eru á heimavist skólans fá ekki greiddar húsaleigubætur, þó svo að lögheimili þeirra séu víðs fjarri skólanum. 13.10.2004 00:01
Norrænar áherslur lagðar Í dag hefst á Hótel Nordica ráðstefna um öryggi og heilnæm matvæli og norrænar áherslur í þeim efnum. Ráðstefnan er haldin á vegum sjávarútvegs-, landbúnaðar- og umhverfisráðuneytis í samvinnu við norrænu ráðherranefndina. 13.10.2004 00:01
Stjórnkerfisbreytingar í borgarráð Íþróttamál og menningarmál verða ekki sameinuð í stjórnkerfi Reykjavíkurborgar. Þetta var ákveðið á fundi stjórnkerfisnefndar Reykjavíkur í gær. Tillögur um sameininguna hafa verið til umræðu hjá borgarfulltrúum Reykjavíkurlistans. Þær mættu hins vegar mikilli andstöðu. Til dæmis sendur formenn allra stærstu íþróttafélaganna í Reykjavík borgarfulltrúum mótmælabréf. 13.10.2004 00:01
Vandinn liggur annars staðar Aðalsteinn Baldursson, talsmaður fiskvinnslufólks hjá Starfsgreinasambandinu, gerir alvarlegar athugasemdir við þann málflutning Sigurgeirs B. Kristgeirssonar, framkvæmdastjóra Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum, að kjarasamningar við sjómenn skýri að verulegu leyti bága stöðu fiskvinnslu í landi. 13.10.2004 00:01
Skattbyrði lífeyrisþega eykst Tekjutengingar og aukin skattbyrði hafa skert lífeyri þeirra sem treysta á almannatryggingakerfið. Formaður Landssambands eldri borgara segir stjórnvöld hlunnfara þá lífeyrisþega sem minnst hafa á milli handanna en forstöðumaður Hagfræðistofnunar telur að þar með sé aðeins hálf sagan sögð. 13.10.2004 00:01
Framsókn gegn R-lista framboði Gestur Gestsson, formaður Félags framsóknarmanna í Reykjavík norður, vill að Framsóknarflokkurinn bjóði sjálfur fram í næstu borgarstjórnarkosningum en ekki undir merkjum Reykjavíkurlistans. Gestur var kosningastjóri Framsóknarflokksins í síðustu alþingiskosningum og sat í kosningastjórn R-listans. 13.10.2004 00:01
121 milljón í sekt Örn Garðarsson fyrrverandi framkvæmdastjóri og stjórnarformaður Brasserie Borgar var í Héraðsdómi Reykjavíkur dæmdur í sjö mánaða skilorðsbundið fangelsi og til að greiða rúmlega 121 milljón króna í sekt fyrir rúmlega sextíu milljóna króna skattsvik. 13.10.2004 00:01
Vildu fimmfalt hærri en hæstu sekt Hæsta sekt vegna ólöglegs samráðs fyrirtækja á Íslandi nemur einu prósenti af ársveltu. Samkeppnisstofnun bauð olíufélögunum að greiða fimmfalt hærri sekt. Lögmaður segir sektir Samkeppnisstofnunar alltaf lækka fyrir dómstólum. </font /></b /> 13.10.2004 00:01
Rússar segjast vera á flugæfingu Fjögur af rússnesku herskipunum sem eftir voru á Þistilfjarðargrunni fóru ekki á brott í gær eins og til stóð. Aftur eru skipin orðin sjö. Gunnar Snorri Gunnarsson, ráðuneytisstjóri hjá utanríkisráðuneytinu, segir ráðuneytið ekki telja ástæðu til að gera of mikið úr veru herskipanna. 13.10.2004 00:01
Sekt lækkuð um 85% í hæstarétti Þórunn Guðmundsdóttir lögmaður fór með mál Mata í grænmetismálinu svokallaða er Sölufélagið, Ágæti og Mata voru dæmd fyrir ólöglegt samráð. 13.10.2004 00:01
Geðlæknar hópast utan í boðsferðir Á annan tug íslenskra geðlækna koma heim í dag frá Stokkhólmi, þar sem þeir dvöldust í boði lyfjafyrirtækja. Sömu geðlæknar ávísa sjúklingum lyf frá þeim fyrirtækjum sem buðu þeim í ferðina. Geðlæknaskortur hefur verið á Landspítalanum vegna ferðalagsins. Lyfjafyrirtæki eru sögð hafa greitt geðlæknum laun í sólarlandaferðum. 13.10.2004 00:01
Sex stórfyrirtæki hafa sent nefnd Sex erlend stórfyrirtæki hafa sent sendinefndir hingað til lands á þessu ári til að kanna kosti þess að hefja hér stóriðju. Fimm þeirra áforma að reisa álver en eitt leitar að lóð undir manganverksmiðju. 13.10.2004 00:01
Áttunda sæti í samkeppnishæfni Ísland er í áttunda sæti yfir samkeppnishæfustu ríki heims. Það hefur færst upp um fjögur sæti frá því í fyrra, meira en nokkurt annað ríki í Vestur-Evrópu. 13.10.2004 00:01
Stimpilgjöld felld niður? Geir Haarde fjármálaráðherra segist reiðubúinn að endurskoða hvort lækka eigi eða jafnvel fella niður stimpilgjöld vegna endurfjármögnunar lána. Hann segir núverandi fyrirkomulag geta mismunað fjármálafyrirtækjum. 13.10.2004 00:01