Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Gamalt ákvæði í nýju frumvarpi Útvarpsréttarnefnd getur afturkallað leyfi til útvarpsrekstrar áður en útvarpsleyfi falla úr gildi, verði skilyrðum um eignarhald ekki mætt innan þriggja ára, samkvæmt nýju frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Þetta ákvæði var fellt úr fyrra frumvarpi ríkisstjórnarinnar. Formaður Framsóknarflokksins sagði þá, að hann væri öruggari með að frumvarpið stæðist stjórnarskrá. 6.7.2004 00:01
Eitthvað annað vaki fyrir forseta Geir H. Haarde, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segir að ef forsetinn neiti að staðfesta ný fjölmiðlalög sé ljóst að fyrir honum vaki annað en það sem hann hélt fram í upphafi. Hann verði þá kominn enn meira á kaf í stjórnmáladeilur samtímans, en áður. 6.7.2004 00:01
Vilja eigið frumvarp á dagskrá Stjórnarandstaðan hefur krafist þess að frumvarp hennar um þjóðaratkvæðagreiðslu verði tekið á dagskrá Alþingis á morgun. Forseti þingsins hefur fallist á það. Össur Skarphéðinsson formaður Samfylkingarinnar segir ríkisstjórnina sýna forsetanum og þjóðinni allri óvirðingu með því að hafa af henni stjórnarskrárbundinn rétt með brellum. 6.7.2004 00:01
Ólíklegt að Bush breyti ákvörðun Afar ólíklegt er að Bush Bandaríkjaforseti breyti ákvörðun Bandaríkjahers um breytingar á Keflavíkurstöðinni. Íslendingar geti í besta falli vonast eftir einhvers konar frestun í kurteisisskyni, til að bjarga andliti íslenskra stjórnvalda, segir bandarískur sérfræðingur í varnarmálum. 6.7.2004 00:01
Engin niðurstaða Engin niðurstaða fékkst á fundi Bush Bandaríkjaforseta og Davíðs Oddssonar, forsætisráðherra, í dag um framtíð Keflavíkurstöðvarinnarr. Bush vill að Íslendingar taki aukin þátt í kostnaði við Keflavíkurflugvöll. 6.7.2004 00:01
Íslensk stjórnvöld gegn norskum Íslensk stjórnvöld afhentu norska sendiráðinu formleg mótmæli á reglugerð um síldveiðar á Svalbarðasvæðinu í gær. Norsk stjórnvöld settu reglugerðina 14. júní. Þar er þeim fimm ríkjum sem eiga ásamt Noregi norsk-íslenska síldarstofninn veitt leyfi til að veiða samtals 80 þúsund tonn á afmörkuðum hluta Svalbarðasvæðisins. 6.7.2004 00:01
Viðbragðstími styttur Tilkynningarskyldan hefur stytt viðbragðstíma um helming gefi sjálfvirki tilkynningabúnaður í bátum ekki frá sér merki. 6.7.2004 00:01
Sýndarbreytingar Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, segir að breytingarnar á fjölmiðlalögum sem kynntar voru af ríkisstjórninni í gær breyti engu. Hann segir að Norðurljós muni halda áfram að undirbúa málshöfðun vegna laganna. 5.7.2004 00:01
Getur leitt til þráteflis Sigurður Líndal lagaprófessor segist ekki geta sagt til um það hvort breytingar á lögum um fjölmiðla geri það að verkum að lögin séu líklegri en áður til að standast stjórnarskrá. 5.7.2004 00:01
Þrjár breytingar í frumvarpinu Ný fjölmiðlalög verða lög fyrir Alþingi í dag. Ríkisstjórnin samþykkti í gær að afturkalla lögin sem samþykkt voru 24. maí og forsetinn hafði skotið til þjóðarinnar. Þetta útspil ríkisstjórnarinnar þýðir að engin þjóðaratkvæðagreiðsla verður um málið. 5.7.2004 00:01
Vill sjá sátt "Ég legg mikið upp úr því að menn vinni að málinu á næstunni þannig að um það ríki bærileg sátt," segir Halldór Ásgrímsson, formaður Framsóknarflokksins, um nýtt frumvarp að lögum um fjölmiðla. 5.7.2004 00:01
Engar forsendur til að hafna Davíð Oddsson forsætisráðherra segir engar forsendur til þess að Ólafur Ragnar Grímsson forseti hafni þessum lögum. "Enda væri þá kominn upp skrípaleikur í landi sem ég held að enginn vilji stuðla að." 5.7.2004 00:01
Hápunktur sumarsins Um tvö hundruð manns voru á fyrstu sumarhátíð hjúkrunar- og endurhæfingaheimilisins Rjóðurs sem haldin var á laugardaginn. Til fagnaðarins var fjölskyldum barnanna sem þar dvelja boðið auk velunnurum Rjóðurs. 5.7.2004 00:01
Næstu þingkosningar ráða úrslitum "Tillögur ríkisstjórnarinnar voru samþykktar samhljóða," sagði Davíð Oddsson forsætisráðherra eftir þingflokksfund Sjálfstæðisflokksins sem lauk upp úr átta í gærkvöld. 5.7.2004 00:01
Fötluð börn í áhættuhópi Bragi Guðbrandsson, forstöðumaður Barnaverndarstofu, telur fagnaðarefni ef farið verður ofan í saumana á málefnum heyrnarlausra barna. 5.7.2004 00:01
Klókur leikur "Ég myndi halda að þetta væri klókur leikur," segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði um ákvörðun ríkisstjórnarinnar að afturkalla fjölmiðlalögin. 5.7.2004 00:01
Niðurlæging fyrir Davíð "Þetta er ekki kosningamál," segir Birgir Hermannsson stjórnmálafræðingur um ákvæði í nýju fjölmiðlafrumvarpi að það taki ekki gildi fyrr en eftir kosningar 2007. 5.7.2004 00:01
Lagalega umdeilanlegt "Þetta er lausn sem er upphaflega komin frá Sigurði Líndal en þá var gert ráð fyrir að lögin yrðu dregin til baka," segir Svanur Kristjánsson, prófessor í stjórnmálafræði. 5.7.2004 00:01
25 fikniefnamál á landsmótinu Tuttugu og fimm fíkniefnamál komu upp á Landsmóti hestamanna á Hellu um helgina. Töluvert magn fannst af hvítu efni, smjörsýru, hassblöndu og sljóvgunarefnum auk þess sem nokkrar E-pillur fundust. 5.7.2004 00:01
Vel heppnuð humarhátíð Gestir á Humarhátíð á Höfn um helgina voru í kringum þrjú þúsund og heppnaðist hátíðin vel. 5.7.2004 00:01
Kom skemmtilega á óvart "Þessi lausn kom skemmtilega á óvart," segir Hjálmar Árnason, þingflokksformaður Framsóknarflokks, um nýtt frumvarp að lögum um fjölmiðla og ákvörðun þess efnis að fella þau gömlu úr gildi. 5.7.2004 00:01
Alger sátt Einar Kristinn Guðfinnsson, þingflokksformaður Sjálfstæðisflokks, segir algera sátt vera innan þingflokksins um breytt fjölmiðlalög. "Það tjáðu sig mjög margir og allir voru mjög ánægðir og sáttir við niðurstöðuna." 5.7.2004 00:01
Geðveikt í Egilshöllinni Átján þúsund manns gafst kostur á að kaupa sér miða á tónleika Metallicu sem haldnir voru í Egilshöllinni í gær. Þrátt fyrir að nokkrir miðar voru óseldir, voru þetta stærstu innitónleikar sem nokkurn tímann hafa verið haldnir á Íslandi. 5.7.2004 00:01
Skrípaleikur segir Skarphéðinn Skrípaleikur, er það orð sem Skarphéðinn Berg Steinarsson, stjórnarformaður Norðurljósa, segir fyrst koma upp í hugann þegar breytingar á fjölmiðlalögunum og málsmeðferð ríkisstjórnarinnar séu skoðuð. Prósentubreytingar og frestun gildistöku laganna breyti engu fyrir Norðurljós, og ríkisstjórnin sé að hæðast bæði að forsetanum og þjóðinni. 5.7.2004 00:01
Engin þjóðaratkvæða- greiðsla Fjölmiðlafrumvarpið, sem til stóð að bera undir þjóðaratkvæðagreiðslu, verður afturkallað, samkvæmt samkomulagi ríkisstjórnarflokkanna í gær, og verður nýtt fjölmiðlafrumvarp kynnt á Alþingi í dag. Engin lög um þjóðaratkvæðagreiðslu verða lögð fram, að því tilskyldu að forseti synji nýjum fjölmiðlalögum ekki staðfestingar. 5.7.2004 00:01
Fjölgar mest á Austurlandi Örlítil hækkun var á gistinóttum í maí á milli ára samkvæmt tölum Hagstofunnar. Í ár voru gistinætur í maí 80.100 en voru 79.739 árið 2003 (0,45%). Gistinóttum fjölgaði í öllum landshlutum nema á Suðurlandi þar sem þeim fækkaði um rúmlega 6 % og tæplega 3% á Norðurlandi. 5.7.2004 00:01
Stærri innritunarsalur í Leifsstöð Nýr innritunarsalur í Flugstöð Leifs Eiríkssonar hf. var formlega tekinn í notkun síðastliðinn föstudag klukkan 15. 5.7.2004 00:01
Miklum verðmætum stolið Ungur maður hefur verið úrskurðaður í allt að viku gæsluvarðhald, grunaður um innbrot í íbúðarhús í Hafnarfirði á föstudagskvöld, þar sem miklum verðmætum var stolið. Þýfið er ekki komið i leitirnar og lögregla telur ekki útilokað að fleiri hafi verið í vitorði með honum, og því var krafist gæsluvarðhalds vegna rannsóknarhagsmuna. 5.7.2004 00:01
Auðkífingur veiðir lunda Dularfullur rússneskur auðkýfingur, sem hér er á ferð, sparaði sér klifrið upp í Bjarnarey, þegar hann hélt þangað til lundaveiða í fyrradag, og lét þyrlu flytja sig og fylgdarlið sitt út í eyna. Þar náði hann að veiða nokkra lunda í soðið áður en þyrlan sótti þá aftur, og lenti við Höfðaból í Eyjum. Þar var lundinn matreiddur og snæddur að hætti Eyjamanna. 5.7.2004 00:01
Hefði getað farið illa Fjórir voru fluttir á Slysadeild Landsspítalans eftir að hafa hnigið í öngvit af súrefnisskorti á tónleikum Metallicu í Egilshöll í gærkvöldi og björgunarsveitarmenn þurftu að bjarga tugum manna út úr húsinu, sem komnir voru í andnauð. <strong></strong> 5.7.2004 00:01
Óvíst um þinghald í dag Óvíst er um þinghald í dag og á morgun. Samkvæmt þingsköpum þarf að leita afbrigða svo hægt sé að ræða nýtt frumvarp ríkisstjórnarinnar um fjölmiðla í dag. Allt stefnir í að þingfundur klukkan þrjú verði eingöngu útbýtingarfundur og umræða um frumvarpið verði ekki fyrr en á miðvikudag. 5.7.2004 00:01
Harkaleg viðbrögð andstöðunnar Stjórnarandstaðan og hagsmunaaðilar hafa brugðist harkalega við þeirri ákvörðun ríkisstjórnarinnar að afturkalla fjölmiðlalögin, og leggja fram nýtt frumvarp með nokkrum breytingum. Talsverð átök hafa verið innan ríkisstjórnarinnar um fyrirhugaða þjóðaratkvæðagreiðslu. 5.7.2004 00:01
Á ekki von á miklum umræðum Davíð Oddsson forsætisráðherra, á ekki von á miklum umræðum um nýja frumvarpið, eins og urðu um það fyrra, þar sem þingmenn séu nú þegar búnir að ræða efnisatriðin í þaula. 5.7.2004 00:01
Umferðaröryggi fyrir ferðamenn Gefinn hefur verið út bæklingur fyrir erlenda ferðamenn um umferðaröryggi. Að útgáfunni standa Slysavarnafélagið Landsbjörg, Umferðastofa, Umhverfisstofnun og Vegagerðin, en hingað til hafa upplýsingar um akstur á Íslandi hafa ekki verið til nægilegar aðgengilegar fyrir ferðamenn. 5.7.2004 00:01
Kann að leiða til þráteflis Sigurður Líndal, lagaprófessor, sem varð fyrstur manna til að stinga upp á því að taka fjölmiðlalögin aftur, óttast að eins og að því er staðið, kunni það að leiða til þráteflis á milli forseta og Alþingis. 5.7.2004 00:01
Vill ná sáttum Össur Skarphéðinsson, segir að enn sé hægt að ná sáttum um fjölmiðlafrumvarpið, þótt framkoma ríkisstjórnarinnar í málinu sé með eindæmum. Össur hefur verið í fremstu víglínu þeirra sem berjast gegn fjölmiðlafrumvarpi ríkisstjórnarinnar og hann er ekki hrifinn af þessum nýjasta gjörningi ríkisstjórnarinna. 5.7.2004 00:01
Mun fara dómstólaleiðina Sigurður G. Guðjónsson, forstjóri Norðurljósa, segir ljóst að fyrirtækið muni fara dómstólaleiðina til þess að fá hinu nýja fjölmiðlafrumvarpi hnekkt, ef það þá verður samþykkt. Hann segir viðbrögð sín svipuð og þegar fyrra frumvarpið var sett fram enda sé útgáfan nú ekki skárri. 5.7.2004 00:01
Sumarþing hafið Fundir Alþingis hófust á ný klukkan þrjú í dag. Til stóð að dreifa tveimur frumvörpum, annars vegar stjórnarfrumvarpi um afnám nýsettra fjölmiðlalaga og ný og breytt fjölmiðlalög. Hins vegar frumvarpi formanna stjórnarandstöðunnar um fyrirkomulag þjóðaratkvæðagreiðslu um hin fyrri fjölmiðlalög. 5.7.2004 00:01
Brotist inn í sjö flutningabíla Brotist var inn í sjö stóra flutningabíla, við Klettagarða, í fyrrinótt, og stolið úr þeim hljómtækjum og öðrum verðmætum. Í öllum tilfellum var brotin hliðarrúða í bílunum. Kannski hafa þjófarnir ekki verið mjög vanir, því í einhverjum tilfellum höfðu þeir skriðið inn um brotna rúðuna, í stað þess að teygja sig inn og taka hurðina úr lás. 5.7.2004 00:01
Þingfundi lauk með hvelli Það fór allt í háaloft á Alþingi í dag þegar Halldór Blöndal sleit þingi þrátt fyrir hávær mótmæli stjórnarandstöðu sem vildi halda fundinum áfram. Stjórnarandstaðan gerði harða hríð að ríkisstjórninni, á stuttum þingfundi sem hófst klukkan þrjú, í dag, og lauk klukkan hálf fjögur. 5.7.2004 00:01
Sveiflaði eggvopnum í Breiðholti Maður, vopnaður tveim eggvopnum, var handtekinn í Breiðholti í dag, eftir að hafa reynt þar innbrot og veifað vopnum sínum að nálægu fólki. Íbúi í Fellahverfi, sem fréttastofan ræddi við, sagði að lögreglumenn hefðu verið eldsnöggir á vettvang og fundið manninn eftir skamma leit, en hann var þá kominn inn í íbúð í hverfinu, þar sem hann mun eiga sér afdrep. 5.7.2004 00:01
LSH vill skoða tillögur um stokk Fulltrúar stjórnarnefndar Landspítalans háskólasjúkrahúss segja mikilvægt að skoða allar tillögur um færslu Hringbrautar, þótt framkvæmdir séu þegar hafnar. Stjórnarnefndin hitti í dag fulltrúa Höfuðborgarsamtakanna og Samtaka um betri byggð, sem telja bestu lausnina að setja Hringbraut í 600 metra opinn stokk. 5.7.2004 00:01
Vandi framhaldsskóla leystur Vandi framhaldsskólanna hefur verið leystur með fjárveitingu úr fjáraukalögum, segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, menntamálaráðherra. Gagnrýnt hefur verið að fjárveitingu vanti fyrir allt að 700 nemendur, sem sótt hafa um framhaldsskólanám næsta haust, en skólastjórnendur segja þennan vanda hafa verið fyrirsjáanlegan, en lítið hafi verið að gert. 5.7.2004 00:01
Fara ekki fram á opinbera rannsókn Félag heyrnarlausra ætlar ekki, að svo stöddu, að fara fram á opinbera rannsókn á því hversu mörg heyrnarlaus börn hafi orðið fyrir kynferðisofbeldi. Talskona Stígamóta segir að nýlegur dómur í máli gegn heyrnarlausum manni, feli í sér alvarleg skilaboð út í samfélagið. 5.7.2004 00:01
Skortir á heiðarleika stjórnvalda Ólafur Hannibalsson, talsmaður Þjóðarhreyfingarinnar, segir skorta á heiðarleika stjórnvalda og segir nýjasta útspil þeirra undanbrögð. Ólafur var meðal þeirra sem hvöttu forseta Íslands til að skjóta fjölmiðlalögunum í þjóðaratkvæðagreiðslu en í kjölfarið urðu til samtökin Þjóðarhreyfingin með lýðræði. 5.7.2004 00:01
Trump hellir sér yfir flokksbróður sinn: „MAGA ætti að losa sig við þennan aumkunarverða aumingja“ Erlent