Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Schroniska dla bezdomnych otwarte tylko w dzień Mrozy minęły a wraz z nimi Miasto Reykjavík postanowiło zmienić godziny otwarcia schronisk dla bezdomnych, które przez ostatnie kilkanaście dni zapewniały całodobową pomoc. 3.1.2023 16:41
Níu fluttir með flugi til Reykjavíkur eftir alvarlegt umferðarslys Harður árekstur varð á Suðurlandi í dag. Fólksbíll og jeppi skullu saman á Suðurlandsvegi við Öldulón og Fagurhólsmýri, suður af Öræfajökli, um klukkan tvö en níu manns voru í bílunum tveimur. 3.1.2023 16:39
Ákærður fyrir að hafa nauðgað tíu ára dreng Karlmaður hefur verið ákærður fyrir að hafa með grófum hætti brotið kynferðislega á tíu ára dreng, við nokkur tilefni sumarið 2015. Brotin eru sögð hafa átt sér stað bæði utan- og innandyra. 3.1.2023 16:18
Harður árekstur á Kringlumýrarbraut Harður tveggja bíla árekstur varð á gatnamótum Kringlumýrarbrautar, Laugavegar og Suðurlandsbrautar á þriðja tímanum í dag. Tveir voru fluttir á slysadeild. 3.1.2023 16:07
Mannskæður skotbardagi eftir flótta úr fangelsi Að minnsta kosti sjö eru fallnir eftir að til skotbardaga kom á milli lögreglumanna sem leita fanga sem flúðu úr fangelsi á nýársdag og hóps vopnaðra manna í Mexíkó. Þrjátíu fangar sluppu þegar félagar í glæpagengi réðust á fangelsið. 3.1.2023 15:51
Kokkur Pútíns segir hvert hús í Bakhmut vera virki Rússneski herinn á í basli með að brjóta varnir Úkraínumanna við Bakhmut á bak aftur þar sem „hvert hús er virki“, samkvæmt Yevgeny Prigozhin, eiganda Wagner Group málaliðahópsins. Hann og Wagner hafa leitt viðleitni Rússa við að ná tökum á bænum um mánaða skeið en víglínunum þar hefur verið lýst sem „hakkavél“. 3.1.2023 15:13
Aldrei fleiri bílar á hringveginum en á síðasta ári Aldrei áður hefur meiri umferð mælst á hringveginum en árið 2022 og var þá met ársins 2019 slegið. Umferðin í fyrra reyndist einu og hálfu prósenti meiri en árið 2019. Mun minna var ekið í desember 2022 en árið áður og helgast líklega af veðuraðstæðum. 3.1.2023 14:32
Björgunarafrek þegar fjölskylda í Teslu steyptist fram af bjargi Ljóst er að björgunarafrek var unnið í Kaliforníu-ríki Bandaríkjanna í gær þegar Tesla með fjögurra manna fjölskyldu innanborðs steyptist fram af 76 metra háu þverhnípi niður í grýtta fjöru. 3.1.2023 13:58
Greta Baldursdóttir fallin frá Greta Baldursdóttir fyrrverandi hæstaréttardómari lést á nýársdag. Frá þessu er greint á vef Hæstaréttar. Greta var 68 ára gömul en hún varð fjórða konan til að verða skipuð hæstaréttardómari árið 2011 og starfaði við réttinn til 2020. 3.1.2023 13:52
Mikilvægt að huga að forvörnum: „Vatnið finnur sér alltaf leið“ Mikilvægt er að sinna forvörnum svo ekki komi til vatnstjóns vegna mikillar frosthörku í vetur segir sérfræðingur í forvörnum hjá VÍS. Sérstaklega þurfi að huga að útveggjum og þakrennum. Forstjóri verslunar í Reykjavík segir betur hafa farið en á horfðist vegna leka um áramótin. 3.1.2023 13:08
Leggur til að samnýta borgarlínu og fluglest til Keflavíkur Hægt væri að samnýta neðanjarðargöng fyrir fluglest frá Reykjavík til Keflavíkur og borgarlínu. Þetta segir ritstjóri skýrslu um lestarmál, sem kom út fyrir nokkrum árum, sem telur verkefnið leysa samgönguvanda borgarinnar í eitt skipti fyrir öll. 3.1.2023 13:01
Þúsundir hitameta slegin í Evrópu yfir áramótin Hiti var allt frá tíu til tuttugu gráðum yfir meðaltali fyrir árstíma víða á í Evrópu um áramótin. Met var slegin í þúsundatali, sums staðar með margra gráða mun í einstaklega óvenjulegum hlýindum. 3.1.2023 12:08
„Eina áramótaheitið sem ég hef staðið við“ Sístækkandi átakið Veganúar hefst formlega í kvöld með upphafsfundi í Bíó Paradís. Formaður félags grænkera telur alla geta sneitt hjá dýraafurðum í einn mánuð og segir átakið oft leiða til betri neysluvenja til frambúðar 3.1.2023 11:43
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum heyrum við í óánægðum veitingamönnum sem segja rekstrarumhverfi veitingastaða orðið ómögulegt vegna mikilla hækkana. 3.1.2023 11:34
Farsímanotkun sögð hafa leitt til einnar mannskæðustu árásar stríðsins Rússneskir ráðamenn í Donetsk-héraði í Úkraínu segja að þeir hermenn sem féllu í einni af mannskæðustu árásum stríðsins í Úkraínu á nýársnótt geti kennt sjálfum sér um. Úkraínumenn hafi fundið þá vegna þess hve margir af hermönnunum voru að nota farsíma sína. 3.1.2023 11:16
Óska eftir að ræða við sundlaugargesti sem urði vitni að banaslysi Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill ná tali af sundlaugargestum sem voru á vettvangi þegar karlmaður á áttræðisaldri missti meðvitund í Breiðholtslaug og lést í kjölfarið í síðasta mánuði. Andlát mannsins er til rannsóknar hjá lögreglunni. 3.1.2023 10:40
Reka sendiherra Frakklands úr landi og líta til Rússlands Herstjórn Búrkína Fasó hefur skipað sendiherra Frakklands að yfirgefa landið. Tvær vikur eru síðan að mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna í Búrkína Fasó var gert að yfirgefa landið. Herstjórnin hefur verið að styrkja samband Búrkína Fasó og Rússlands að undanförnu. 3.1.2023 10:08
Taka aftur upp fjársvikamál gegn lygaþingmanninum Saksóknarar í Brasilíu ætla að taka aftur upp rannsókn á fjársvikamáli gegn George Santos, verðandi þingmanni Repúblikanaflokksins í Bandaríkjunum. Rannsóknin var sett á ís á sínum tíma þar sem brasilísku lögreglunni tókst ekki að hafa uppi á Santos. 3.1.2023 09:46
Hæg umferð úr Mosfellsbæ til Reykjavíkur vegna farms á veginum Löng bílaröð hefur myndast á Vesturlandsvegi, úr Mosfellsbæ og til Reykjavíkur, og gengur umferð mjög hægt eftir að farmur fór af bíl nærri Korputorgi. 3.1.2023 08:23
„Ég vildi fjölskylduna, ekki stofnunina“ „Ég vil fá föður minn aftur, ég vil fá bróður minn aftur,“ segir Harry Bretaprins í viðtali við ITV sem verður birt 8. janúar næstkomandi, tveimur dögum fyrir útgáfu bókarinnar Spare. 3.1.2023 08:06
Borga Tókýóbúum milljón krónur á barn fyrir að flytja frá borginni Stjórnvöld í Japan hyggjast nú bjóða fjölskyldum eina milljón króna á barn fyrir að flytja frá Tókýó til strjálbýlari svæða landsins. Markmiðið er að draga úr fólksfækkun á landsbyggðinni. 3.1.2023 07:28
Kynferðisbrotamenn óvelkomnir á verðlaunahátíð Skipuleggjendur César verðlaunanna í Frakklandi, sem eru helstu kvikmyndaverðlaunin þar í landi, hafa nú gefið það út að allir þeir sem eiga yfir höfði sér fangelsisdóm fyrir kynferðisbrot eða hafa verið dæmdir fyrir slík brot séu ekki velkomnir á hátíðina sem haldin verður í næsta mánuði. 3.1.2023 07:27
Selenskí segir drónaárásir Rússa verða langvarandi Selenskí Úkraínuforseti sagði í reglulegu ávarpi sínu í nótt að Rússar ætli sér augljóslega að beita írönskum drónum í meira mæli næstu mánuðina til að draga stríðið á langinn og að ætlun þeirra sé að vona að Úkraínumenn missi baráttuþrekið. 3.1.2023 07:18
Suðvestan og dálítil él fyrri partinn en hvassara á Austurlandi Veðurstofan spáir suðvestan og vestan golu eða kalda fyrri part dags og dálitlum éljum, en hvassara á Austurlandi með rigningu eða snjókomu. 3.1.2023 07:13
Forseti borgarstjórnar Reykjavíkur kallar eftir lest til Keflavíkur „Við getum ekki lengur stungið höfðinu í sandinn. Það er tilvalið verkefni að úthýsa uppbyggingu lestar til Keflavíkur ef verkefnið reynist hagkvæmt en ákvörðun um þetta er vitaskuld á ábyrgð ríkisins.“ 3.1.2023 06:58
Mikil fjölgun myglugreininga Rannsóknarstofa Náttúrufræðistofnunar Íslands á Akureyri greindi 1.532 sýni í fyrra þar sem grunur lék á að myglu væri að ræða. Þetta er 22 prósenta fjölgun frá fyrra ári. 3.1.2023 06:43
Neyðarskýlin ekki lengur opin allan sólarhringinn Reykjavíkurborg hyggst ekki halda áfram með sólarhringsopnanir neyðarskýla borgarinnar, nú þegar nýtt ár er gengið í garð og kuldakast desembermánaðar yfirstaðið. 3.1.2023 06:27
Skilaboð send til 30 þúsund notenda Sportabler 30 þúsund notendur smáforritsins Sportabler fengu meldingu í morgun um að brotist hafi verið inn á reikning þeirra og persónuupplýsingum stolið. Öryggisrannsókn Sportabler hefur leitt í ljós að engum persónuupplýsingum notenda hafi verið stolið. 2.1.2023 23:54
Hlæjandi maður, handtekinn hundur og bífræfinn grænmetisþjófur Verkefni lögreglunnar eru jafn misjöfn og þau eru mörg og enginn dagur er eins. Vísir fór yfir dagbókarfærslur lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á árinu 2022 og tók saman nokkur athyglisverð, óvenjuleg, og í sumum tilvikum spaugileg útköll. 2.1.2023 23:37
Þingmenn í fangelsi fyrir að sparka í ólétta þingkonu Tveir þingmenn í Senegal hafa verið dæmdir í sex mánaða fangelsi fyrir að sparka í maga óléttrar þingkonu á senegalska þinginu. Upp úr sauð þegar umræður fjárlög stóðu yfir. 2.1.2023 23:21
„Þarf ekki að kunna að keyra til að leigja bílaleigubíl?“ „Þarf ekki að kunna að keyra til að leigja bílaleigubíl?“ spyr Sirrý Arnardóttir, rithöfundur og kennari við Háskólann á Bifröst, sem sat heillengi föst fyrir aftan bílaleigubíl sem kínverskur ferðamaður hafði leigt ásamt fjölskyldu sinni. Sá virtist ekki kunna að skipta um gír, aka út í kant eða keyra í hringtorgi. 2.1.2023 21:22
„Að rústa þér andlega og líkamlega er það eina sem ég mun einbeita mér að“ Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um nálgunarbann á hendur manni sem ítrekað hefur haft uppi grófar hótanir, þar á meðal líflátshótanir, í garð annars manns og fjölskyldu hans. 2.1.2023 21:09
Mygla hefur greinst í um þrjátíu skólabyggingum og búist er við aukningu Mygla hefur komið upp í um þrjátíu grunn-og leikskólum í Reykjavík. Nú síðast í þremur leikskólum en færa þarf starfsemi tveggja þeirra í annað húsnæði. Sviðsstjóri segir borgina í átaki og telur að fleiri skólar bætist í hópinn. 2.1.2023 20:42
„Þú getur gert þetta bara á Tenerife“ Endurvinnslan er hætt að greiða skilagjald beint inn á greiðslukort. Í staðinn var smíðað nýtt snjallforrit sem fólk getur notað heima hjá sér. Mikil aðsókn hefur verið í endurvinnslustöðvar í dag og framkvæmdastjóri fyrirtækisins segir nýja fyrirkomulagið hafa mælst vel fyrir. 2.1.2023 19:41
Kaldasti desember í meira en hundrað ár Ríflega hundrað ára kuldamet féll í Reykjavík í desember en hann var síðast kaldari árið 1916. Veðurfræðingur segir of snemmt að segja til um hvort um sé að ræða áhrif loftslagsbreytinga en vissulega hafi verið miklar öfgar í veðri síðustu tvo mánuði. 2.1.2023 18:31
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum Stöðvar 2 verður farið yfir kuldakastið í nýliðnum desember þegar ríflega hundrað ára kuldamet féll í Reykjavík. Veðufræðingur segir of snemmt að segja til um hvort öfgar í veðrinu í vetur séu tilkomnar vegna loftslagsbreytinga, en þeirri spurningu er varpað fram. 2.1.2023 18:31
Sigríður Soffía Níelsdóttir hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 Sigríður Soffía Níelsdóttir, danshöfundur, hlýtur Íslensku bjartsýnisverðlaunin 2022 sem afhent voru við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Forseti Íslands, hr. Guðni Th. Jóhannesson, afhenti verðlaunin, sem eru áletraður gripur úr áli frá ISAL í Straumsvík og ein og hálf milljón króna í verðlaunafé. 2.1.2023 17:23
„Ég er ekki í neinum felum fyrir þessari þjóð“ Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri var valinn maður ársins af fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar og var valið kynnt í Kryddsíld á gamlársdag. Ásgeir segist sofa vel á næturnar þrátt fyrir ábyrgð í starfi og vera kurteis maður, að minnsta kosti að mati mömmu sinnar. 2.1.2023 17:14
Eltu sofandi ökumann í korter Lögreglan í Bæjarlandi í Þýskalandi átti í eftirför í síðustu viku sem verður að teljast óhefðbundin. Ítrekaðar tilraunir til að reyna að fá ökumann Teslu rafmagnsbíls til að stöðva gengu ekki eftir en ökumaðurinn reyndist steinsofandi við stýrið. Bílinn var þó stilltur á sjálfstýringu. 2.1.2023 16:53
Árið hófst á fíngerðri svifryksmengun Svifryksmengun lá yfir höfuðborgarsvæðinu síðustu klukkustundir ársins 2022 og fyrstu klukkustundir ársins 2023 en veðuraðstæður vógu upp á móti henni. Áberandi hátt hlutfall fínasta og hættulegasta svifryksins mældist á gamlárskvöld og nýársnótt. 2.1.2023 15:34
Aldrei fleiri þyrluútköll en í fyrra Metfjöldi þyrluútkalla var hjá Landhelgisgæslunni í fyrra en þá sinnti flugdeild hennar 299 útköllum. Meirihluti þeirra var vegna sjúkraflutninga og þriðjungur var á sjó. 2.1.2023 14:36
Níðstangargrín fór öfugt ofan í hestafólk og ekki bætti annállinn úr skák Formaður Landssambands hestamanna segir hestafólk almennt ekki geta hlegið að gríni þess efnis að kaupa eigi fallegan hest til þess eins að saga af honum hausinn. Formaðurinn tjáir sig í tilefni atriðis í Áramótaskaupinu þetta árið. Hann ítrekar áhyggjur af ofbeldi sem þrífist í starfsemi Sólsetursins. Þá er hestafólk svekkt að ekkert hafi verið fjallað um Landsmót hestamanna í íþróttaannál RÚV. 2.1.2023 14:19
McCarthy í erfiðri stöðu og líkur á óreiðu á þingi Nýtt kjörtímabil hefst í Bandaríkjunum á morgun og munu Demókratar þá formlega missa meirihluta í fulltrúadeildinni. Kevin McCarthy, leiðtogi Repúblikana í fulltrúadeildinni, hefur unnið hörðum höndum að því að tryggja sér atkvæði 218 þingmanna svo hann geti orðið þingforseti en svo virðist sem hann nái því ekki. 2.1.2023 14:05
Hafnar ásökunum um leyndarhyggju og einræðistilburði Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknarflokksins í borginni segir ásakanir Sjálfstæðismanna um leyndarhyggju og einræðistilburði órökstuddar og óskiljanlegar. Ekki sé hægt að ræða málefni Ljósleiðarans á opnum fundum þar sem trúnaður ríki um málið innan rýnihóps. 2.1.2023 13:15
Sinna fræðslu um skaðsemi flugelda óháð hvað björgunarsveitir selja Forstjóri Umhverfisstofnunar segir stofnunina eiga að sinna fræðsluhlutverki varðandi loftgæði vegna flugelda. Formaður Landsbjargar segir herferð stofnunarinnar nú fyrir áramót hafa komið aftan að björgunarsveitunum og niður á flugeldasölu. 2.1.2023 13:07