Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Árásargjarn höfrungur nartar í Japani Höfrungur hefur bitið að minnsta kosti sex strandgesti í Japan en í gær þurfti að flytja eitt fórnarlamba hans á spítala vegna sára sinna. Yfirvöld hafa sett upp tæki og tól til að reyna að komast hjá árásunum. 11.8.2022 21:38
Ákærður fyrir að ráðast á annan Íslending í London Íslendingur á þrítugsaldri hefur verið ákærður af héraðssaksóknara fyrir stórfellda líkamsárás á annan Íslending í London. Atvikið átti sér stað í nóvember árið 2018. 11.8.2022 21:19
Nafn mannsins sem lést við Langasand Maðurinn sem lést við sjósund við Langasand á Akranesi hét Elías Jón Sveinsson. 11.8.2022 20:45
Biðjast afsökunar á að hafa sigað lögreglu á hinsegin mótmælendur Stjórn Hinsegin daga hefur beðist afsökunar á því að hafa nafngreint Elínborgu Hörpu og Önundarburs við lögreglu fyrir Gleðigönguna árið 2019. Á leið sinni í gönguna var Elínborg handtekið. 11.8.2022 20:28
„Þetta er algjör skrípaleikur“ Foreldrar barna í Reykjavík sem hafa ekki fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. 11.8.2022 20:20
Rekin í gegn af fljúgandi sólhlíf Strandgestur í Garden City í Suður-Karólínu lést af sárum sínum eftir að sólhlíf sem hafði fokið úr festingu sinni lenti í bringu hennar. 11.8.2022 19:30
Hópur fólks hafi komist til valda með offorsi og eineltistilburðum Formaður Öldunnar, stéttarfélags innan Alþýðusambandsins (ASÍ), segir framtíð verkalýðshreyfingarinnar svarta eftir sviptingar innan hennar undanfarið. Hann segir hóp fólks hafi komist til valda með offorsi og eineltistilburðum, sem fáir séu spenntir að vinna með. 11.8.2022 19:00
Tók banka í gíslingu til að geta tekið út sparifé sitt Maður tók banka í gíslingu í Beirút í dag til að krefjast þess að bankinn leyfði honum að taka út sparifé af læstum reikningi svo hann gæti borgað sjúkrareikninga föður síns. Mótmælendur hópuðust fyrir framan bankann til að krefjast þess að bankinn léti undan kröfum mannsins. 11.8.2022 18:42
Blaðamennirnir boðaðir í yfirheyrslu á ný Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur boðað blaðamennina fjóra sem eru með réttarstöðu sakbornings eftir umfjöllun um „skæruliðadeild Samherja“, aftur í skýrslutöku. 11.8.2022 18:17
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Foreldrar barna í Reykjavík sem ekki hafa fengið leikskólapláss söfnuðust saman í ráðhúsinu í morgun til þess að mótmæla stöðunni. Talsverður hiti var í fólki þegar það ræddi málin við borgarstjóra og borgarfulltrúa. Við sýnum frá mótmælunum í kvöldfréttatíma Stöðvar 2. 11.8.2022 17:57
Matvælastofnun og Fiskistofa muni sinna eftirliti um hvalveiðar Matvælaráðherra hefur sett reglugerð um eftirlit við hvalveiðar. Matvælastofnun er falið að hafa reglubundið eftirlit til að farið sé að lögum um velferð dýra við hvalveiðar og mun Fiskistofa sjá um framkvæmd eftirlitsins. Eftirlitið mun hefjast samstundis. 11.8.2022 17:48
Tveir alvarlega slasaðir eftir rússíbanaslys í Lególandi Alls eru 34 slasaðir, þar af tveir alvarlega, eftir rússíbanaslys í bænum Günzburg í suðurhluta Þýskalands. Öllum farþegum rússíbanans bauðst áfallahjálp eftir slysið. 11.8.2022 17:41
Virðast hafa komið hingað til lands einungis til að svíkja fé Rannsókn lögreglu á fjársvikamáli sem viðskiptavinir Landsbankans urðu fyrir í síðasta mánuði miðar vel. Talið er að hópur brotamanna hafi verið að verki en framkvæmdar hafa verið bæði handtökur og húsleitir við rannsóknina. 11.8.2022 17:20
Færast nær fyrsta geimskoti Starship Starfsmenn geimferðafyrirtækisins SpaceX náðu nýjum áfanga í Texas í vikunni þegar tilraunir voru gerðar með Starship-geimfarið. Kveikt var á hreyflum fyrra og seinna stigs Starship en þetta var í fyrsta sinn sem tilraunir eru gerðar með fyrra stigið, sem kallast Super Heavy. 11.8.2022 16:33
Formenn innan SGS harma aðstæður sem urðu til afsagnar Drífu Ellefu formenn aðildarsambanda innan Starfsgreinasamband Íslands hafa sent frá sér yfirlýsingu þar sem þeir þakka Drífu Snædal, sem sagði af sér embætti formanns Alþýðusambands Íslands í gær, fyrir farsælt og gefandi samstarf. 11.8.2022 16:26
Tölvuárás á Fréttablaðið litin alvarlegum augum Blaðamannafélaga Íslands fordæmir tölvuárás sem gerð var á Fréttablaðið í morgun sem og tilraunir rússneska sendiráðsins til að hafa áhrif á fréttaflutning íslenskra fjölmiðla af stríðinu í Úkraínu. 11.8.2022 15:46
Hefði ekki farið í sumarfrí og látið leikskólavandann liggja Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins vandar meirihlutanum ekki kveðjurnar þegar kemur að leikskólamálum í Reykjavík. Hann segir fulltrúa meirihlutans hafa farið í sumarfrí þegar ljóst væri að ekki yrði unnt að standa við gefin loforð í málaflokknum án stórtækra aðgerða. 11.8.2022 14:59
Viðbrögðin sýna tangarhald Trumps á Repúblikanaflokknum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gæti mögulega verið fundinn sekur um brot á lögum sem hann sjálfur þyngdi refsinguna við töluvert. Það er að segja ef hann braut lög með því að flytja opinber gögn, og þar á meðal leynilegt gögn, með sér til Flórída þegar hann flutti úr Hvíta húsinu. Trump er sagður vera að leita sér að lögmönnum til að mögulega verja sig. 11.8.2022 14:30
Umboðsmaður vill skýringar á barnabanni Umboðsmaður Alþingis hefur óskað eftir upplýsingum og skýringum frá lögreglustjóranum á Suðurnesjum vegna ákvörðunar hans um að takmarka aðgengi barna yngri en tólf ára að gosstöðvunum í Meradölum. 11.8.2022 13:57
Bein útsending: Eldgosið í nærmynd Vísir sýnir beint frá eldgosinu í Meradölum. Hægt er að fylgjast með gangi gossins á Vísi sem og á Stöð 2 Vísi í sjónvarpi. 11.8.2022 13:25
Ekkert bendi til þess að mávar séu árásargjarnari nú en áður Engin breyting er á hegðun máva og ekkert sem bendir til þess að þeir séu árásargjarnari nú en áður. Fuglafræðingur segir að ef bæjarfélög vilji hafa græn svæði í byggð verði þeir að lifa með mávnum. 11.8.2022 12:30
Undarlegt ár að baki hjá verkalýðshreyfingunni Fyrrverandi ríkissáttasemjari segir það mjög óvenjulegt að forseti Alþýðusambandsins segi af sér vegna deilna inna verkalýðshreyfingarinnar. Átökin hafi verið óvenju opinber síðasta árið. Sviptingarnar gætu haft nokkur áhrif á gerð kjarasamninga í haust. 11.8.2022 12:29
Dwie wygrane po 5 mln W loterii Loterii Uniwersytetu Islandii / Happdrættis Háskóla Íslands (HHÍ) dwie osoby wygrały po 5 mln koron. 11.8.2022 12:02
Netárás á vef Fréttablaðsins Netárás var gerð í morgun á vef Fréttablaðsins. Hótun barst ritstjórn blaðsins um að vefnum yrði lokað í kvöld verði hún ekki við beiðni um opinbera afsökun vegna myndar sem birtist í Fréttablaðinu í gær. 11.8.2022 12:02
Dobre warunki do wędrówki na wulkan Aktywność wulkanu w Medardalur nie ulega zmianie, co przyciąga każdego dnia setki turystów. 11.8.2022 11:53
Tímaspursmál hvenær hraun rennur suður úr Meradölum Hraun er enn ekki farið að flæða úr Meradölum en jarðeðlisfræðingur segir tímaspursmál hvenær það gerist. Þá muni hraunið renna í átt að Suðurstrandavegi, rúmlega fjögurra kílómetra leið. 11.8.2022 11:40
Segja Rússland vera hryðjuverkaríki Þingmenn Lettlands samþykktu í morgun ályktun um að Rússland væri hryðjuverkaríki og aðgerðir Rússa í Úkraínu væru tilraunir til þjóðarmorðs á úkraínsku þjóðinni. Þingmennirnir kölluðu eftir því að önnur ríki lýsi því einnig yfir að Rússland sé hryðjuverkaríki. 11.8.2022 11:29
Komust á brott með fokdýrar merkjavörur Bíræfnir innbrotsþjófar brutust inn í verslunina Attikk á Laugavegi í morgun. Framkvæmdastjórinn telur þjófana hafa stolið varningi, sem er í eigu þriðju aðila, að andvirði einnar milljónar króna. 11.8.2022 11:20
Segir rússneska sendiherrann vilja afvegaleiða umræðuna Steinunn Þóra Árnadóttir, þingmaður Vinstri grænna, telur vert að dusta rykið af lagafrumvarpi þar sem lagt er til að grein sem snýr að banni við því að móðga þjóðhöfðingja og smána fána þjóðríkja verði máð úr hegningarlögum. 11.8.2022 11:19
Hádegisfréttir Bylgjunnar Leikskólamál, kjaramál, mávagarg og eldgos verða meðal umfjöllunarefna í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag. 11.8.2022 11:14
Sífellt fleiri reyna að komast til Kanaríeyja og margir hafa dáið Minnst 9.589 manns hafa flúið frá ríkjum Afríku til Kanaríeyja á þessu ári. Það er aukning um 27 prósent, samanborið við sama tímabil í fyrra. Leiðin er þó mjög hættulegt og minnst þúsund hafa dáið við að fara hana, samkvæmt hjálparsamtökum sem starfa á svæðinu. 11.8.2022 10:37
Myndaveisla: Ferðamenn trúa ekki eigin augum í Meradölum Þeir ferðamenn sem ljósmyndari okkar, Vilhelm Gunnarsson myndaði við gosstöðvarnar í Meradölum trúðu ekki sínum eigin augum þegar þeir sáu tilkomumikið sjónarspilið í dalnum í fyrsta sinn. Það er enda ekki á hverjum degi sem fólk víðs vegar að kemst í tæri við eldgos. 11.8.2022 10:19
Hyggjast banna „Parasite-kjallaraíbúðir“ í Seúl Yfirvöld í Suður Kóreu hyggjast banna ákveðnar tegundir kjallaraíbúða í Seúl, höfuðborg landsins í kjölfar dauða tveggja kvenna og ungrar stelpu sem fórust í miklum flóðum í borginni fyrr í þessari viku. 11.8.2022 08:20
Edda les sinn síðasta fréttatíma í kvöld Edda Andrésdóttir hefur lesið kvöldfréttir á Stöð 2 í næstum þrjátíu ár en á fimmtíu ára feril að baki í fjölmiðlum. Á þeim tímapunkti hefur hún ákveðið að hætta að lesa fréttir en hún er ekki endilega hætt í fjölmiðlum. 11.8.2022 08:00
Sjö ákærðir fyrir nauðgun í kjölfar hópárásar í námu í Suður-Afríku Yfirvöld í Suður-Afríku hafa ákært sjö manns fyrir 32 nauðganir eftir hópárás í yfirgefinni námu í nágrenni Jóhannesarborgar. 11.8.2022 07:50
Átta herflugvélar virðast hafa skemmst í sprengingum á herstöð á Krímskaga Að minnsta kosti átta rússneskar herflugvélar virðast hafa skemmst eða eyðilagst í sprengingum sem urðu á Saky herstöðinni á Krímskaga á þriðjudag, ef marka má nýjar gervihnattamyndir af herstöðinni. 11.8.2022 07:23
Engin breyting á gosinu og meinlaust veður fyrri hluta dags Engin breyting hefur orðið á eldgosinu í Meradölum og álitlegra veður verður á svæðinu í dag en hann rignir með kvöldinu. 11.8.2022 07:05
Stórt hlutfall íslenskra lækna útskrifast erlendis Tæplega helmingur lækna frá Íslandi útskrifast nú úr grunnámi við erlenda háskóla. 11.8.2022 06:56
Uppvís að gripdeild og reyndi að skalla lögreglumann Maður var handtekinn í gær eftir að hafa reynt að skalla lögreglumann sem hafði afskipi af honum vegna gripdeildar. 11.8.2022 06:30
Þúsundir manna þurft að flýja heimili sín í Frakklandi Alls hafa um tíu þúsund manns þurft að flýja heimili sín í Frakklandi vegna mikilla skógarelda. Íbúar Gironde-svæðisins hafa þurft glíma við fjölda elda í ágústmánuði. 10.8.2022 23:58
„Guðfaðir glímunnar“ sem kenndi bæði Bruce Lee og Chuck Norris er allur Áhættuleikarinn og júdómeistarinn Gene LeBell, sem var gjarnan kallaður „Guðfaðir glímunnar“ og kenndi bæði Chuck Norris og Bruce Lee, er látinn 89 ára að aldri. Ásamt því að keppa í júdói og bandarískri glímu lék LeBell sem áhættuleikari í meira en þúsund myndum. 10.8.2022 23:38
Tveir unnu fimm milljónir á sama miðanúmeri Tveir einstaklingar með sama miðanúmer unnu fimm milljónir hvor í ágústútdrætti Happdrættis Háskóla Íslands (HHÍ). Allt að fjórir geta átt miða með sama miðanúmeri. 10.8.2022 23:08
Segir Norður-Kóreu vera lausa við Covid-19 Kim Jong-Un, leiðtogi Norður-Kóreu, heldur því fram að landið sé nú alveg laust við Covid-19 sjúkdóminn. Hann segir að lág dánartíðni landsins „fordæmalaust kraftaverk“ en einungis 74 manns hafa látist vegna sjúkdómsins í landinu. 10.8.2022 22:38
Sölvi Tryggvason snýr aftur með fjóra þætti Fjórir nýir þættir af hlaðvarpinu Podcast með Sölva Tryggva eru komnir á áskriftarsíðu Sölva sem sett var í loftið nýlega. Sölvi hefur ekki birt nýjan þátt síðan tvær konur sökuðu hann um ofbeldi í maí á síðasta ári. 10.8.2022 22:22
Börn geti fengið of stóran skammt af svefnlyfjum vegna ósamræmis samheitalyfja Sérfræðingur í nýrnalækningum barna segir „bagalegt“ að lyfseðilsskylt svefnlyf fyrir börn fáist ekki á landinu og að samheitalyf skuli koma í mörgum mismunandi styrkleikum. Slíkt geti valdið því að börn fái of stóran skammt af svefnlyfjum. 10.8.2022 22:17