Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Linie lotnicze zagubiły rower podróżnika Jedenaście dni temu, kolarz Simon Owens przyleciał na Islandię z Wielkiej Brytanii, z planem objechania wyspy na rowerze, który wraz z resztą bagażu nadal nie dotarł na wyspę. 14.7.2022 13:38
Twitter ekki legið jafn lengi niðri í fjölda ára Twitter datt út í um hálftíma rétt fyrir hádegi fyrir tugþúsundir notenda samfélagsmiðlsins. Þetta hálftíma sambandsleysi er það lengsta hjá forritinu síðan 2016. Forsvarsaðilar miðilsins hafa ekki greint frá ástæðunum. 14.7.2022 13:30
Akcja ratunkowa w Breiðafjörður Wczoraj rano, z tonącej łodzi rybackiej uratowano dwie osoby. 14.7.2022 13:07
Dómari hafnaði kröfum Heard Bandarískur dómari neitaði í gær að fella niður tíu milljóna dala miskabætur sem leikkonunni Amber Heard hefur verið gert að greiða fyrrverandi eiginmanni sínum, Johnny Depp, fyrir meiðyrði. Depp vann meiðyrðamál gegn Heard í síðasta mánuði en það sneri að grein sem hún skrifaði á vef Washington Post þar sem hún sagðist hafa orðið fyrir heimilisofbeldi. 14.7.2022 13:00
Znikające lodowce W zeszłym roku lodowiec Skeiðarárjökull, będący częścią Vatnajökull, cofnął się aż o 400 metrów. 14.7.2022 12:50
Er undanþegin fjölda laga bæði sem drottning og sem Elísabet Windsor Persónulegar undanþágur fyrir Elísabetu Bretadrottingu hafa verið ritaðar í meira en 160 lög frá 1967 en lögin varða allt milli himins og jarðar, meðal annars dýravelferð og réttindi starfsmanna. 14.7.2022 12:49
Söguleg stund þegar fyrsti bjórinn var seldur úr húsi Þau voru sannarlega langþráð, viðskiptin sem urðu að veruleika í brugghúsinu Smiðjunni á Vík í dag þegar brugghúsið varð það fyrsta í sögu landsins til að selja bjór frá framleiðslustað. 14.7.2022 12:47
Tveir slasaðir eftir slys í tívolíinu í Árósum Tveir eru slasaðir eftir að vagnaröð losnaði í rússíbana í Tivoli Friheden í Árósum fyrr í dag. Búið er rýma tívolíið og því hefur verið lokað út daginn. Sjúkraliðar eru á staðnum til að sinna hinum slösuðu og eru vitni í skýrslutöku hjá lögreglu. 14.7.2022 12:17
Telur innviðaráðherra draga Austfirðinga á asnaeyrunum Þingmaður Miðflokksins segir innviðaráðherra á villigötum vegna gjaldtöku í jarðgöngum landsins til að fjármagna Fjarðarheiðargöng. Ríkisstjórnin þurfi að hugsa málið til enda í stað þess að draga Austfirðinga á asnaeyrunum, að mati þingmannsins. 14.7.2022 12:16
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar verður rætt við Björn Zöega, nýjan stjórnarformann Landspítala og forstjóra Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð. Hann segir að störfum gæti fækkað á Landspítala með hagræðingartillögum nýrrar stjórnar, sem skipuð var í gær. Tími sé kominn á breytingar. 14.7.2022 11:45
Staðan gæti breyst í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins í dag Sérfræðingur um málefni breska Íhaldsflokksins segir vel geta gerst að einhverjir þeirra sem komast áfram í annarri umferð í leiðtogakjöri flokksins í dag dragi sig í hlé og lýsi yfir stuðningi við einhvern þeirra efstu. Sama hver niðurstaðan verði að lokum megi ekki búast við stefnubreytingu í helstu málum flokksins. 14.7.2022 11:45
AirTag seldist upp vegna umfjöllunar Áslaugar Örnu AirTag staðsetningartæki frá Apple seldust upp hér á landi í kjölfar þess að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, ráðherra, sagði frá því að hún hefði verið með slíkt tæki í tösku sem týndist. 14.7.2022 10:54
Spacey segist saklaus Kevin Spacey, hinn víðfrægi bandaríski leikari, lýsti yfir sakleysi sínu í dómssal í Lundúnum í morgun en hann hefur verið ásakaður um að brjóta kynferðislega gegn þremur mönnum fyrir áratug og rúmlega það. Spacey, sem er 62 ára gamall, sagðist saklaus af öllum fimm ákæruliðunum gegn sér. 14.7.2022 10:21
Meðaltekjur 640 þúsund krónur á mánuði Heildartekjur einstaklinga voru um 7,7 milljónir króna að meðaltali árið 2021. Það gerir um 640 þúsund krónur á mánuði. Miðgildi tekna var lægra, um fimm hundruð þúsund krónur á mánuði. 14.7.2022 10:11
Ekki á leið í landsmálin þrátt fyrir sterkar skoðanir á kvótakerfinu Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri er allt annað en sáttur við hvernig í pottinn er búið í sjávarútvegsmálum landsins. Hann líkir kaupunum Síldarvinnslunnar á útgerðinni Vísi við senu úr Verbúðinni í nýjum pistli en kveðst ekki vera á leiðinni í landsmálin þrátt fyrir sterkar skoðanir á kvótamálunum. 14.7.2022 09:02
Hulið verk Van Gogh fannst í Skotlandi Hulið verk eftir listamanninn Vincent Van Gogh fannst við röntgenskoðun á öðrum verkum á safni í Skotlandi. 14.7.2022 08:49
550 höfða mál gegn Uber vegna kynferðisbrota ökumanna 550 konur hafa höfðað mál gegn Uber vegna kynferðisbrota ökumanna á vegum fyrirtækisins. Glæpirnir sem ökumennirnir eru sagðir hafa framdir eru meðal annars mannrán, nauðganir, kynferðisofbeldi og áreitni. 14.7.2022 08:28
Mordaunt talin sigurstranglegust í annarri umferð Íhaldsmanna Önnur umferð í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins í Bretlandi fer fram í dag og ættu úrslit að liggja fyrir um klukkan tvö í dag. Sex frambjóðendur berjast nú um leiðtogaembættið og um leið forsætisráðherrastólinn eftir fyrstu umferð í gær. 14.7.2022 08:15
Veðrið gæti orðið ferðafólki til vandræða Útlit er fyrir vestlæga átt vestantil en hæga norðlæga átt austantil á landinu í dag. Síst er útlit fyrir skúri á Suðurlandi en þó víða annarsstaðar. Hámarkshiti gæti náð 18 stigum suðaustan til og milt veður er á öllu landinu. Þegar kvölda tekur nálgast lægð úr suðvestri og hvessir sunnan og vestan til í fyrramálið. 14.7.2022 07:34
Asparfræsský áhrifalítil en grasið verður áfram rótsterkt Hvít asparfræsský svífa nú um loftin en líffræðingur segir það misskilning að hvítir hnoðrarnir séu frjókorn en ekki fræ. Hins vegar standi yfir grasfrjókornatímabil sem nái hámarki kringum næstu mánaðamót. Ofnæmislæknir segir ofnæmislyf, augndropa og nefúða bestu meðölin við frjókornaofnæmi. 14.7.2022 07:30
Samkomulag í höfn um útflutning kornvöru Stjórnvöld í Tyrklandi segja samkomulag hafa náðst við Úkraínu, Rússland og Sameinuðu þjóðirnar um útflutning kornvöru frá Úkraínu. Að sögn varnarmálaráðherrans Hulusi Akar verður samkomulagið undirritað í næstu viku. 14.7.2022 07:23
Skeiðarárjökull hopaði mest Skeiðarárjökull hopaði mest íslenskra jökla árið 2021, eða um 400 metra þar sem mest var við austanverðan sporðinn. 14.7.2022 07:19
Ákærður fyrir nauðgun á tíu ára stúlku sem fékk ekki að fara í þungunarrof Karlmaður á þrítugsaldri var í gær ákærður fyrir nauðgun á tíu ára stúlku í Ohio í Bandaríkjunum. Stúlkan varð þunguð eftir manninn og neyddist til að fara í þungunarrof í öðru ríki eftir að henni var meinaður aðgangur að því í Ohio. 14.7.2022 07:15
Fyrsti rafbíll Lamborghini verður jepplingur Fyrsti rafbíll ítalska sportbílaframleiðandans Lamborghini verður jepplingur og er væntanlegur árið 2028. Það er líflína fyrir bensín bíla þrátt fyrir rafvæðinguna. 14.7.2022 07:01
Kýldi vagnstjóra í andlitið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu var kölluð til um klukkan 21.30 í gærkvöldi þegar „ósáttur viðskiptavinur“ kýldi vagnstjóra í andlitið. Ekkert fleira stendur um atvikið í dagbók lögreglu en það átti sér stað í póstnúmerinu 109. 14.7.2022 06:54
Vill Landspítalann af fjárlögum og fá greitt fyrir veitta þjónustu Það þarf að einfalda stjórnskipulag Landspítalans og breyta því hvernig hann er fjármagnaður, segir Björn Zoëga, nýr stjórnarformaður Landspítalans og forstjóri Karolinska-sjúkrahússins í Svíþjóð. 14.7.2022 06:39
Ákærðir fyrir að selja stolna texta af Hotel California Þrír karlmenn hafa verið ákærðir fyrir að hafa selt handskrifaða texta Don Henley, söngvara Eagles, af lögum plötunnar Hotel California. Textunum var stolið á áttunda áratug síðustu aldar. 13.7.2022 23:41
Óttast ekki að umræða um gjaldtöku spilli áformum um Fjarðarheiðargöng Áform ríkisstjórnarinnar um að hefja gjaldtöku í öllum jarðgöngum landsins gætu orðið eitt helsta þrætumál samfélagsins á næstu misserum. Formaður byggðaráðs Múlaþings óttast ekki að umræða um jarðgangatoll spilli áformum um Fjarðarheiðargöng. 13.7.2022 22:20
Borgarfulltrúi handtekinn í Moskvu vegna andstöðu við stríðið Saksóknari í Rússlandi lagði í dag fram ákæru á hendur Ilya Yashin borgarfulltrúa í Moskvu skömmu áður en láta átti hann lausan úr 15 daga varðhaldi fyrir að fara ekki að fyrirmælum lögreglu. 13.7.2022 22:09
Hrafn Jökulsson með fjórða stigs krabbamein Hrafn Jökulsson, rithöfundur og fyrrverandi ritstjóri, hefur greinst með fjórða stigs krabbamein. Í færslu á Facebook-síðu sinni segir hann vera á leiðinni í lyfja- og geislameðferð. 13.7.2022 22:00
Ísland ekki uppselt þrátt fyrir að eftirspurn fari fram úr væntingum Þrátt fyrir mikla eftirspurn eftir gistingu hér á landi í sumar telur framkvæmdastjóri Edition hótelsins, Ísland samt ekki uppselt. Mjög erfiðlega gengur hins vegar að finna starfsfólk til að vinna í ferðaþjónustunni víðast hvar. 13.7.2022 21:35
Nóra er fundin og komin heim Guðmundur Felixson og Þuríður Blær Jóhannsdóttir fengu köttinn Nóru aftur heim til sín í dag, mánuði eftir að Reykjavíkurborg fjarlægði hana. Þau vonast til þess að borgin endurskoði verkferla sína eftir málið. 13.7.2022 20:08
Herinn á Sri Lanka að missa þolinmæðina Mikil reiði er meðal almennings á Sri Lanka eftir að landflótta forseti landsins skipaði forsætisráðherra í embættið í sinn stað. Herinn hefur gefið leiðtogum stjórnmálaflokka frest til að setja fram áætlun um framtíð Sri Lanka. 13.7.2022 19:45
Ætlaði að hjóla hringinn í kringum Ísland en hjólið finnst ekki ellefu dögum síðar Hjólreiðamaðurinn Simon Owens kom hingað til Íslands frá Bretlandi fyrir ellefu dögum síðan. Hann ætlaði sér að hjóla í kringum landið á tveimur vikum en hjólið hefur enn ekki borist til landsins. 13.7.2022 19:45
Róstursamt á breska þinginu og þingmönnum hent út Róstursamt var á breska þinginu í dag og hart sótt að fráfarandi forsætisráðherra. Þingforseti lét henda tveimur þingmönnum skorska aðskilnaðarflokksins Alba út úr þingsalnum. Sex eru eftir í leiðtogakjöri Íhaldsflokksins eftir fyrstu umferð í dag. 13.7.2022 19:21
Þyrla hrapaði er barist var við skógarelda í Grikklandi Þyrla á vegum slökkviliðsins á eyjunni Samos í Grikkland hrapaði niður í Eyjahaf er unnið var að því að slökkva skógarelda á eyjunni. Fjórir voru í þyrlunni er hún hrapaði. 13.7.2022 18:31
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í kvöldfréttum segjum við frá því að allt önnur og lægri viðmið eru um tengda aðila í flestum öðrum greinum en gilda varðandi ráðandi hlut í sjávarútvegsfyrirtækjum. Þingflokksformaður Samfylkingarinnar segir að verið sé að færa stórútgerðum fiskveiðiauðlind landsmanna á silfurfati. 13.7.2022 18:01
Rishi Sunak vann í fyrstu umferðinni Rishi Sunak, fyrrverandi fjármálaráðherra Bretlands, sigraði í fyrstu umferð leiðtogakosninga breska Íhaldsflokksins í dag. Alls buðu átta manns sig fram og féllu tveir úr keppni. 13.7.2022 17:52
Björn Zoëga formaður nýrrar stjórnar Landspítala Heilbrigðisráðherra hefur skipað nýja stjórn Landspítala til tveggja ára en stjórnin er skipuð af fimm einstaklingum í senn. Björn Zoëga, forstjóri Karólínska sjúkrahússins í Svíþjóð, verður formaður stjórnarinnar. 13.7.2022 17:29
Þyrlan sótti slasaða hestakonu Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann í Fossvogi rétt í þessu með slasaða hestakonu innanborðs. 13.7.2022 16:28
Vill leyfa heilbrigðisstarfsfólki að vinna lengur Heilbrigðisráðuneytið hefur sett áform um breytingu á lögum um heilbrigðisstarfsmenn í samráðsgátt. Breytingunni er ætlað að mæta mönnunarvanda í heilbrigðiskerfinu með því að heimila heilbrigðisstofnunum að ráða fólk eftir sjötíu ára aldur. 13.7.2022 16:13
Heiða Björg býður sig fram til formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga Heiða Björg Hilmisdóttir hefur tilkynnt framboð sitt til formennsku í Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Hún hefur verið varaformaður sambandsins síðastliðin fjögur ár. 13.7.2022 15:35
Biður herinn um að tryggja frið í Srí Lanka Ranil Wickremesinghe, forsætisráðherra Srí Lanka, hefur skipað her landsins að gera það sem nauðsynlegt er til að koma á röð og reglu. Hann er nú starfandi forseti eyríkisins eftir að forsetinn flúði til Malíveyja. 13.7.2022 14:48
Verði grýtt til dauða fyrir hjúskaparbrot Súdönsk kona hefur verið dæmd til að vera grýtt dauða fyrir hjúskaparbrot en dómurinn er sá fyrsti af þessu tagi í Súdan í níu ár. Mannréttindastofnanir segja dóminn brjóta innlend og alþjóðleg lög og krefjast frelsunar konunnar. 13.7.2022 14:46
Fór á rúnt með ölvuðum ökumanni og verður af sjötíu milljónum króna Vátryggingarfélag Íslands var á dögunum sýknað af kröfu manns um greiðslu 142 milljóna króna, að frádregnum 38 milljónum króna sem þegar höfðu verið greiddar og 32 milljónum vegna eingreiðsluverðmætis örorkulífeyris, vegna alvarlegs umferðarslyss sem varð árið 2017. Dómurinn taldi að maðurinn hefði sjálfur borið ábyrgð á líkamstjóni sínu með því að hafa farið á rúnt með ölvuðum ökumanni og þyrfti því að bera tvo þriðju hluta tjóns síns sjálfur. 13.7.2022 14:12