Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Sólveig Anna segir af sér vegna vantraustsyfirlýsingar Sólveig Anna Jónsdóttir hefur tilkynnt stjórn Eflingar um afsögn sína sem formaður félagsins. Afsögnin kemur í kjölfar vantraustsyfirlýsingar sem starfsfólk Eflingar sendi Sólveigu Önnu, félaginu og fjölmiðlum á föstudag. 31.10.2021 23:56
Einn besti knapi landsins braut á þrettán ára stúlku árið 1993 Jóhann Rúnar Skúlason, landsliðsmaður í hestaíþróttum, hefur verið rekinn úr landsliðinu vegna þess að hann á að baki dóm fyrir alvarlegt kynferðisofbeldi. Jóhann Rúnar varð þrefaldur heimsmeistari árið 2019 og var hestafólk verulega ósátt við að hann komst ekki í efstu þrjú sætin í kjöri íþróttamanns ársins. 31.10.2021 23:46
Einn liggur í valnum og níu eru særðir eftir skotárás á hrekkjavökuballi Lögreglan í Texarkana í Texas hefur haft hendur í hári 21 árs gamals manns sem grunaður er um skotárás sem framin var á skemmtistað þar sem hrekkjavökuball fór fram í gærkvöldi. Tvítugur karlmaður lést og níu særðust í árásinni. 31.10.2021 22:59
Tvöfalt líklegri til að vera tekin kyrkingartaki af maka en í slag niðri í bæ Konum sem leitað hafa á spítala vegna ofbeldis hefur fækkað mikið á síðustu fimmtán árum, samkvæmt niðurstöðum nýrrar rannsóknar. Rannsakandi segir niðurstöðurnar óvæntar, sérstaklega í ljósi þeirrar vitundarvakningar sem hefur orðið í samfélaginu síðustu ár. 31.10.2021 22:21
Ekið á gangandi vegfaranda á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar Ekið var á gangandi vegfaranda á gatnamótum Grensásvegar og Miklubrautar rétt í þessu. 31.10.2021 21:54
Metnaðarfullt hrekkjavökuball Hrafnistu: „Ég er á sex stjörnu hóteli“ Heimilismenn á Hrafnistu klæddu sig í búninga í tilefni hrekkjavökuballs. Heimilismenn skemmtu sér konunglega og skáluðu í eiturgrænum hrekkjavökudrykk. 31.10.2021 21:31
Vikið úr landsliði í hestaíþróttum vegna kynferðisbrots Stjórn Landssambands hestamannafélaga og landsliðsnefnd hafa vikið einum landsliðsmanni úr landsliðshópi Íslands í hestaíþróttum. Ástæðan er refsidómur sem landsliðsmaðurinn fyrrverandi hefur hlotið fyrir kynferðisbrot. 31.10.2021 21:31
Allir sammála: Hrekkjavaka er betri en öskudagur Hrekkjavakan er haldin hátíðleg í kvöld víða um heim, þar á meðal hér á landi. Fréttamaður okkar leit við í Hamrahlíð þar sem búið var að skreyta hús í anda hátíðarinnar. 31.10.2021 20:57
Lestir skullu saman á Englandi Tvær lestir skullu saman á milli bæjanna Andover og Salisbury á Englandi í kvöld. Viðbragðsaðilar eru mættir á vettvang en litlar upplýsingar liggja fyrir um slys á fólki, lögregla hefur þó gefið út að enginn hafi látist. 31.10.2021 20:47
Smitaðist beint eftir hjartaaðgerð og kveðst eiga líf sitt bóluefnum að þakka Maður sem smitaðist af Covid-19 inni á hjartadeild aðeins örfáum dögum eftir stóra aðgerð segist eiga bóluefnum líf sitt að þakka. Það hefði enginn þurft að smitast þarna inni að sögn mannsins, sem gagnrýnir að heimsóknir hafi verið leyfðar á deildinni. 31.10.2021 20:06
Sterkasta flugfreyja landsins býr í Hveragerði Anna Guðrún Halldórsdóttir í Hveragerði er líklega sterkasta flugfreyja landsins en hún gerði sér lítið fyrir á dögunum og setti þrjú Evrópumet og tvö heimsmet í Ólympskum lyftingum. 31.10.2021 20:00
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Maður sem smitaðist af Covid-19 á hjartadeild aðeins örfáum dögum eftir stóra aðgerð segist eiga bóluefnum líf sitt að þakka. Rætt verður við manninn í kvöldfréttum Stöðvar 2, sem gagnrýnir að heimsóknir hafi verið leyfðar á deildinni. 31.10.2021 18:14
Sjúklingur smitaður af Covid-19 lést á Landspítala Sjúklingur sem smitaður var af Covid-19 lést á Landspítalanum í dag. 31.10.2021 18:05
Lögregla drap 25 meinta bankaræningja Lögreglan í Brasilíu felldi 25 fimm meinta bankaræningja í aðgerð sem sögð er fara í sögubækurnar. 31.10.2021 17:54
Mýs vísa á að norrænir sæfarar hafi fyrstir numið Asóreyjar Nýjar rannsóknir á arfgerð músa á Asóreyjum benda til þess að norrænir sæfarar hafi verið fyrstu mennirnir til að nema land á þessum afskekkta eyjaklasa í miðju Atlantshafi, hundruðum ára áður en Portúgalar komu þar árið 1427. 31.10.2021 17:27
Ný stjórn Samtaka leigjenda: Leigumarkaðurinn skuli þjóna leigjendum Staða leigjenda er of veik, réttindi þeirra lítil og húsnæðiskostnaður of hár. Breyta þarf leigumarkaðinum svo að hann þjóni leigjendum, en miðsnoti þá ekki. Þetta segir í tilkynningu frá stjórn Samtaka leigjenda sem skipuð var á aðalfundi í gær. 31.10.2021 16:24
Hnífamaður í gervi Joker slasaði sautján í Tókýó Sautján eru særðir, þar af einn alvarlega, eftir hnífaárás í lest í Tókýó í Japan í dag. 31.10.2021 15:38
Hestakona fær skertar bætur vegna ölvunar Hestakona krafðist þess að henni yrðu greiddar fullar bætur vegna líkamstjóns sem hún hlaut eftir fall af hestbaki. Tryggingarfélagið féllst ekki á það og taldi nærri lagi að greiða henni 1/3 hluta tjónsins. 31.10.2021 14:56
„Fólk bara gefst upp“ Hjúkrunarfræðingur á bráðamóttökunni segir ríkja algjörlega ótækt ástand. Álagið hafi vaxið mikið undanfarin ár. 31.10.2021 14:23
„Það er auðvitað ágallinn við þetta kerfi okkar“ Dósent í stjórnsýslurétti segir að það verði að vera ljóst að ágalli á meðferð kjörgagna hafi raunverulega haft áhrif á niðurstöðu kosninganna, ef hrófla eigi við niðurstöðunni. 31.10.2021 13:29
COP26 sett í Glasgow: „Okkar síðasta og besta von“ Loftslagsráðstefna Sameinuðu þjóðanna, COP26, var sett í morgun. Setningin markar upphaf tveggja vikna fundarhalda og viðræðna þar sem fulltrúar næstum 200 ríkja freista þess að ná saman um aðgerðir til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda og stemma stigum við áhrifum af hnattrænni hlýnun. 31.10.2021 13:19
Grunur um að þremur hafi verið byrlað Grunur leikur á að þremur hafi verið byrluð ólyfjan á Akureyri í nótt, tveimur konum og einum karlmanni. Önnur kvennanna fannst nær rænulaus fyrir utan skemmtistað í bænum en vinir hinna tveggja komu þeim á slysadeild. 31.10.2021 13:12
G20 stefna að kolefnishlutleysi „um miðja þessa öld eða fyrr“ Leiðtogar G20-ríkjanna, helstu iðnvelda heims, náðu í morgun saman um að skuldbinda sig til að ná kolefnishlutleysi „um miðja þessa öld eða fyrr“. Þessi fyrirheit eru talin munu gefa tóninn fyrir Loftslagsrástefnu Sameinuðu þjóðanna, COP26, sem var sett í Glasgow í morgun. 31.10.2021 12:38
Málefnalegar ástæður fyrir því að 20 starfsmenn Landspítalans hafni bólusetningu Starfandi forstjóri Landspítalans segir að spítalinn hafi brugðist eins vel við og hann gat þegar hópsmit kom upp á hjartaskurðdeild. Hún kveðst skilja vel að aðstandendur séu sárir vegna málsins. 31.10.2021 12:12
Fleiri karlkyns nemendur í framhaldsskólum Fleiri karlkyns nemendur eru nú skráðir í framhaldsskólanám en kvenkyns. Hlutfall karlkyns nemenda eru 53% á móti 47% kvenkyns nemendum. Í tölfræðinni er ekki gert ráð fyrir öðrum kynjum. 31.10.2021 11:37
Fimmtíu og átta greindust með Covid-19 Fimmtíu og átta greindust með Covid-19 innanlands í gær og sex á landamærunum, samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum. 32 þeirra sem greindust með veiruna voru í sóttkví við greiningu, sem er rúmur helmingur. Hlutfallið hefur verið svipað undanfarna daga. 31.10.2021 11:08
Vilja láta banna „njósnaauglýsingar“ Neytendasamtökin hvetja íslensk stjórnvöld til að beita sér á alþjóðavettvangi fyrir banni við því sem þau kalla „njósnaauglýsingum“, eða netauglýsingum sem byggja á persónusniði og eftirliti með notendum. Tryggja þurfi stafræn réttindi neytenda á veraldarvefnum. 31.10.2021 10:37
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um nýjustu tölur um Covid-smit og tölum við forstjóra Landspítalans um stöðuna þar. 31.10.2021 10:08
Fallegt að tilveruréttur þeirra „sé jafn mikill og þeirra sem æfa hefðbundnar íþróttir eins og knattspyrnu“ Rafíþróttir njóta vaxandi vinsælda hér á landi og eru biðlistar í nær allar rafíþróttadeildir á landinu. Á Eskifirði er sportið jafn vinsælt og fótboltaæfingar en áhersla er lög á samskipti og hreyfingu barna á rafíþróttaæfingum. 31.10.2021 10:01
Vann rúmar fimmtíu milljónir Ljónheppinn Lottó-áskrifandi var með allar tölur réttar í gærkvöldi og fær fyrir það rúmar 52,9 milljónir í sinn hlut. Vinningstölur kvöldsins voru 5 8 16 21 27 7. 31.10.2021 08:48
„Við hljótum að geta skemmt okkur betur en svo að kvöldið þurfi að enda í sjúkrabíl“ Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins stóð í ströngu við sjúkraflutninga í gærkvöldi og í nótt. Eftir miðnætti í gærkvöldi voru fjórir til sex sjúkrabílar stöðugt í miðbæ Reykjavíkur. 31.10.2021 07:51
Hótaði fólki með hamri Mikill erill var á hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í gærkvöldi og í nótt. Tíu aðilar voru vistaðir í fangageymslu og fjölmargir ökumenn voru stöðvaðir grunaðir um akstur undir áhrifum áfengis eða fíkniefna. 31.10.2021 07:33
Heimsleiðtogar uggandi yfir kjarnorkuáætlun Írana Leiðtogar Bandaríkjanna, Bretlands, Þýskalands og Frakklands segjast hafa miklar og stígvaxandi áhyggjur af kjarnorkuáætlun Írans. Leiðtogarnir ræddu málið á G20 fundinum í Róm í dag. 30.10.2021 23:26
Baldwin rýfur þögnina um skotið sem banaði Halynu Hutchins Alec Baldwin tjáði sig við fjölmiðla um voðaskotið sem varð Halynu Hutchins að bana í fyrsta skipti í dag. Hann segir hana hafa verið vinkonu sína og að honum hafi verið bannað að ræða smáatriði málsins þar sem formleg rannsókn væri í gangi. 30.10.2021 22:48
Afléttingar nú séu óábyrgar: Segir Landspítalann lekt fley í öldugangi Tómas Guðbjartsson, skurðlæknir á Landspítalanum, segir fyrirséða fimmtu bylgju kórónuveirufaraldursins hafa fyllt gjörgæslu Landspítalans upp í rjáfur auk þess sem hún hafi áhrif á alla aðra starfsemi spítalans. 30.10.2021 21:50
Tveggja mánaða fangelsi fyrir strok úr fangelsi fyrir 29 árum Karlmaður sem gaf sig fram við lögreglu eftir nærri þriggja áratuga flótta undan réttvísinni var á dögunum dæmdur til að sæta fangelsisvist í tvo mánuði auk þess tíma sem hann átti eftir að afplána þegar hann strauk. 30.10.2021 21:07
Sögðust vera Talibanar og myrtu þrennt til að koma í veg fyrir tónlistarflutning Þrír vopnaðir menn ruddust inn í mosku þar sem brúðkaup fór fram í Afganistan í gærkvöldi og heimtuðu að tónlistarflutningi yrði hætt í nafni Talibana. Fór svo að þeir myrtu minnst þrennt í skotárás. 30.10.2021 20:25
Rúði um 15 þúsund ær yfir veturinn Einn snjallasti rúningsmaður landsins rúði um fimmtán þúsund ær síðasta vetur og ætlar gera enn betur í vetur þegar hann ferðast á milli bæja og rýir fyrir bændur. Hann er að rýja að meðaltal 300 kindur á dag. 30.10.2021 20:02
Bandaríkjamenn segja Rússa brjóta alþjóðalög Bandaríkjamenn mótmæla þeim skilyrðum sem Rússar setja fyrir siglingum skipa norður fyrir Rússland og segja þau brot á alþjóðalögum. Þá hafi þeir áhyggjur af áhuga Kínverja á Norðurslóðum vegna almennrar framgöngu þeirra á alþjóðasviðinu. 30.10.2021 19:40
Mönnunarkrísa á Landspítala getur leitt til takmarkana fyrir almenning Svo getur farið að mönnunarkrísa á Landspítala leiði til þess að almenningur þurfi að búa við sóttvarnatakmarkanir á ný, að sögn forstjóra Landspítalans. Staðan er mjög tvísýn á sjúkrahúsinu. 30.10.2021 19:15
Viðvarandi óvissustig á Siglufjarðarvegi vegna jarðskriðs Viðvarandi óvissustigi hefur verið lýst yfir á Siglufjarðarvegi vegna jarðskriðs og hættu á grjóthruni allt árið um kring. Fyrrverandi eftirlitsmaður segir aldrei muni vera hægt að laga veginn almennilega, finna verði varanlegri lausn. 30.10.2021 18:15
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Svo getur farið að mönnunarkrísa á Landspítala leiði til þess að almenningur þurfi að búa við sóttvarnatakmarkanir á ný að sögn forstjóra Landspítalans. Staðan er mjög tvísýn á sjúkrahúsinu. Rætt verður við forstjóra Landspítalans í kvöldfréttum Stöðvar 2. 30.10.2021 18:11
Íslendingar nýta nánast allan þorskinn Ný athugun Sjávarklasans á nýtingu á þorskafurðum hérlendis sýnir fram á að Íslendingar beri af öðrum sjávarútvegsþjóðum í þeim efnum og að nýtingin sé um níutíu prósent. 30.10.2021 17:32
Trump safnar enn fúlgum fjár á grunni lyga Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, hefur verið meinað að birta færslur á Facebook og öðrum samfélagsmiðlum. Honum hefur einni verið bannað að nota sjóði Save America, pólitískrar aðgerðarnefndar hans, til að fjármagna annað forsetaframboð. 30.10.2021 16:31
Minister Zdrowia wątpi w możliwość zniesienia wszystkich obostrzeń Minister Zdrowia Svandís Svavarsdóttir przyznaje, że mało prawdopodobne będzie całkowite zniesienie obostrzeń, które planowano wcześniej na 18 listopada. 30.10.2021 15:08