Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Við eigum að vita hvað þeim fór á milli” Guðmundur Andri Thorsson, þingmaður Samfylkingarinnar og fulltrúi í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, segir að dómsmálaráðherra hafi mátt vita það frá upphafi að óformlegt símtal við lögreglustjóra á aðfangadag gæti ekki talist annað en óeðlilegt. Nefndin hyggst fjalla um málið á opnum fundi á næstu dögum. 1.7.2021 19:40
Fjármálastjóri Trumps lýsti yfir sakleysi sínu Allen Weisselberg, fjármálastjóri fyrirtækis Donalds Trump til áratuga, lýsti yfir sakleysi sínu fyrir dómi í New York í dag. Það gerði hann í kjölfar þess að hann var ákærður fyrir skattsvik vegna tveggja ára langrar rannsóknar saksóknara á fyrirtæki forsetans fyrrverandi. 1.7.2021 19:01
Engir fullorðnir starfsmenn við Skrímslið: „Það greip um sig alger ringulreið“ Foreldri sem varð vitni að því þegar hoppukastali, Skrímslið svokallaða, tókst á loft á Akureyri í dag segir að mikil ringulreið hafi gripið um sig meðal foreldra þegar vindhviða feykti kastalanum á loft. Hann segist hissa á því að enginn fullorðinn starfsmaður hafi verið á staðnum og segir unglingsstráka um 15 ára aldur hafa verið einu starfsmennina á staðnum. 1.7.2021 18:29
Auka vernd uppljóstrara hjá Reykjavíkurborg Borgarráð Reykjavíkurborgar hefur samþykkt reglur um verklag vegna uppljóstrunar starfsmanna um lögbrot og aðra ámælisverða háttsemi. Það felur í sér að lög um vernd uppljóstrara hafa verið innleidd með reglum, verklagsreglum og uppljóstrunargátt. 1.7.2021 18:27
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Einn var fluttur með sjúkraflugi til Reykjavíkur eftir að hoppukastali tókst á loft með hátt í 100 börn innanborðs. Eigandinn hoppukastalans segist bera fulla ábyrgð á þessum harmleik. Rætt verður við hann og lögreglustjórann á Norðurlandi eystra í kvöldfréttum Stöðvar 2 um þetta slys. 1.7.2021 18:17
Heilsugæslan boðar rannsóknir á Landspítala en ekki fyrr en næstu áramót Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu hefur ákveðið að hefja undirbúning þess að flytja rannsóknir á leghálssýnum aftur heim til Íslands, nánar tiltekið á Landspítala. Ákvörðunin er tekin í samráði við heilbrigðisráðuneytið. 1.7.2021 17:59
Segir Brynjar í bullinu og trúir ekki að hann sé viðkvæmt blóm „Fyrstu viðbrögð mín voru bara þau að það væri kannski kominn tími til að Brynjar Níelsson kynnti sér málin aðeins áður en hann færi að skrifa greinar um þau,“ sagði Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna, þegar hann var inntur eftir viðbrögðum við grein Brynjars Níelssonar, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem birtist á Vísi í dag. 1.7.2021 16:59
Gosórói minnkar aftur og lítið sést til jarðelds Verulega hefur dregið úr gosóróa í Fagradalsfjalli frá hádegi, samkvæmt óróariti Veðurstofunnar. Þá hefur ekki sést til glóandi hrauns renna frá gígnum síðustu klukkustundir á vefmyndavél Vísis. 1.7.2021 16:40
Hættustigi vegna vatnavaxta á Norðurlandi eystra lýst yfir Gífurlegir vatnavextir eru í ám og vötnum á svæðinu. 1.7.2021 16:20
„Ég ber ábyrgð á því sem er að gerast þarna“ „Í fyrsta lagi er ég gjörsamlega miður mín, og ég skil ekkert í þessu. Við fylgjum þeirri reglu að það er bara lokað í vindi. Hann er ekki blásinn upp í vindi,“ segir Gunnar Gunnarsson, forstjóri Perlunnar. 1.7.2021 15:51
Takmarkanir repúblikana á kosningum fá grænt ljós Hæstiréttur Bandaríkjanna lagði blessun sína yfir strangari reglur um kosningar sem repúblikanar í Arizona samþykktu árið 2016 í dag. Lögin voru talin koma sérstaklega niður á minnihlutahópum sem eru líklegri til þess að kjósa demókrata. 1.7.2021 15:36
Bæjarstjóranum brugðið vegna Skrímslisins sem tókst á loft Ásthildur Sturludóttir bæjarstjóri á Akureyri segist ekki vita mikið um stöðu mála sem stendur en mikill viðbúnaður er í bæjarfélaginu vegna hoppukastalans, sem ber nafnið Skrímslið, sem hófst á loft og í honum 108 börn. 1.7.2021 15:12
Prinsarnir afhjúpuðu styttu af Díönu prinsessu Bretaprinsarnar Vilhjálmur og Harry afhjúpuðu styttu af móður sinni Díönu prinsessu af Wales við hátíðlega athöfn í garði Kensington-hallar. 1.7.2021 14:54
Fjöldi barna í risastórum hoppukastala sem tókst á loft á Akureyri Fjöldi barna var í risastórum hoppukastala sem tókst á loft við Skautahöllina við Naustaveg á Akureyri á þriðja tímanum í dag. Sex voru flutt til skoðunar á sjúkrahús á Akureyri og eitt með sjúkraflugi suður til Reykjavíkur. 1.7.2021 14:28
Landsbjörg semur um smíði á þremur nýjum björgunarskipum Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur samið við finnsku skipasmíðastöðina KewaTec um smíði á þremur nýjum björgunarskipum. Stefnt er að því að skipin verði tekin í notkun fyrir mitt ár 2023. 1.7.2021 14:22
OECD hvetur ríki til að byggja á íslenskri aðferðafræði í þróunarsamvinnu Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, lofar aðferðafræði Íslands í tvíhliða þróunarsamvinnu. Á vefgátt OECD sem ætlað er að auka skilvirkni þróunarsamvinnu er fjallað um svokallaða héraðsnálgun Íslands. Þar segir að héruðin sem njóti stuðnings standi sig verulega betur en önnur og tilgreind eru dæmi frá í Malaví og Úganda. 1.7.2021 14:01
AstraZeneca klárast: Boðið upp á Pfizer í seinni bólusetningu Vegna skorts á AstraZeneca-bóluefni verður þeim sem áttu eftir að fá seinni skammtinn boðið að fá Pfizer. 1.7.2021 13:45
Íbúð dæmd gölluð vegna erfiðs nágranna Ung kona þarf ekki að greiða lokagreiðslu af íbúð sem hún keypti þar sem íbúðin var metin gölluð í Hæstarétti vegna nágrannaerja. Hæstiréttur hefur aldrei áður dæmt fasteign gallaða vegna nágranna. 1.7.2021 13:28
Nauka języka islandzkiego dla dzieci w wieku przedszkolnym Przedszkola muszą położyć podwaliny pod naukę języka islandzkiego dla dzieci obcego pochodzenia i zapewnić im szerokie możliwości doskonalenia umiejętności językowych w codziennej pracy i zabawie. 1.7.2021 13:03
Nowe instrukcje od epidemiologa Każdy kto ma objawy zakażenia powinien zostać w domu, nie chodzić do szkoły ani do pracy. 1.7.2021 12:33
Alls ekki ólíklegt að gæludýrin smitist af mannfólkinu Það er alls ekki óalgengt að gæludýr hvers eigendur hafa greinst með Covid-19 séu sömuleiðis smituð. Þetta hafa rannsóknir hollenskra vísindamanna leitt í ljós. Þeir mæla fólki frá því að knúsa dýrin á meðan veikindi eru á heimilinu. 1.7.2021 12:31
Skráðu sig í sóttkví vegna villu í rakningarappi Vegna villu í smitrakningarappininu, Rakning C-19 appinu, fyrir iPhone hefur hópur notenda fyrir mistök fengið tilkynningu um útsetningu fyrir COVID-19 smiti, ásamt boði um að skrá sig í smitgát. 1.7.2021 12:27
Þrætur íbúa blokkarinnar töfðu viðgerðir Meirihluti stjórnar húsfélags blokkarinnar sem hrundi í bænum Surfside á Flórída sagði af sér í skugga deilna um hvort ráðast ætti í viðgerðir á byggingunni í kjölfar skýrslu verkfræðinga sem leiddi í ljós skemmdir. Að minnsta kosti átján eru látnir. 1.7.2021 12:23
„Þú hlýtur að vera að grínast“ Kristrún Frostadóttir hagfræðingur og frambjóðandi Samfylkingarinnar stendur á gati vegna málflutnings Ásgeirs Jónssonar seðlabankastjóra um ástandið á húsnæðismarkaðnum. 1.7.2021 12:22
Héldu á villtum kópi fyrir sjálfsmynd: „Getur valdið dýrinu miklum skaða" Líffræðingur hjá Náttúrustofu Austurlands segir að fólk eigi alls ekki að nálgast villta selkópa, hvað þá að halda á þeim fyrir góða sjálfsmynd eins og gerðist síðustu helgi í Reyðarfirði. Það geti hreinlega orðið til þess að urtan yfirgefi þá og þeir drepist í kjölfarið. 1.7.2021 12:13
Brynjar segir þá lögreglumenn sem eiga við sönnunargögn vonda lögreglumenn Brynjar Níelsson þingmaður Sjálfstæðisflokksins telur einsýnt að meðferð lögreglunnar á efni úr búkmyndavélum í tengslum við Ásmundarsalsmálið flokkist undir það að átt hafi verið við sönnunargögn. 1.7.2021 12:13
75 konur fæddu heima árið 2019 og sjö á leiðinni á fæðingarstað Alls fæddust 4.454 börn í 4.385 fæðingum á Íslandi árið 2019. Um er að ræða fjölgun miðað við síðustu ár en árið 2016 höfðu fæðingar ekki verið jafnfáar síðan árið 2002. 1.7.2021 11:51
Macron gerði sig líklegan til að grípa Katrínu þegar henni skrikaði fótur Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra er stödd í Frakklandi, þar sem hún fundaði með Emmanuel Macron Frakklandsforseta í morgun. Það er tímanna tákn að fullbólusettur forsætisráðherra hafi getað faðmað fullbólusettan forseta þegar þau kvöddust við dyraþrepið hjá honum. 1.7.2021 11:44
Matsatriði hverju sinni hvort bólusettir þurfi í sóttkví Fólk sem hefur verið bólusett fyrir Covid-19 skal panta tíma í sýnatöku sem fyrst ef það fær einkenni sem minna á Covid-19. Hann á að halda sig heima og ekki fara í skóla eða vinnu. Bólusettir þurfa ekki að vera í sóttkví vegna minniháttar útsetningar. 1.7.2021 11:33
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um vatnavextina á Norður- og Austulandi en vegir hafa skemmst eftir að ár og lækir hafa flætt yfir bakka sína. 1.7.2021 11:31
Fjármálastjóri Trump gefur sig fram Búist er við því að Allen Weisselberg, fjármálastjóri Trump-fyrirtækisins, verði leiddur fyrir dómara í dag eftir að hann gaf sig fram sjálfviljugur við saksóknara í New York. Hann og fyrirtækið sjálft eru ákærð fyrir skattalagabrot. 1.7.2021 11:17
Tveir greindust með Covid-19 innanlands Tveir greindust með kórónuveiruna frá mánudegi til miðvikudags. Annar var utan sóttkvíar. Hjördís Guðmundsdóttir, upplýsingafulltrúi Almannavarna, segir að búið sé að ná utan um smitið sem var utan sóttkvíar. 1.7.2021 10:51
Ásakendur Cosby slegnir Mikið reiði og undran hefur brotist út eftir að Bill Cosby var sleppt úr fangelsi eftir að sakfelling hans fyrir kynferðisbrot var ógilt í gær. Konur sem báru hann sökum segjast slegnar yfir niðurstöðunni. 1.7.2021 10:49
Milljarðar til SOS Barnaþorpa sem beina sjónum sínum að Ásbrú Í dag hefst formlega samstarf SOS Barnaþorpanna og evrópska íbúðaleigufyrirtækisins Heimstaden sem ætlað er að tryggja örugg heimili og traustan grunn fyrir barnafjölskyldur um allan heim. Samstarfið gerir SOS meðal annars kleift að styrkja verkefni í þágu barna á Íslandi í fyrsta sinn. Ærslabelgur er á leið á Ásbrú í Reykjanesbæ auk þess sem stutt verður við sérkennslu á leikskóla á svæðinu. 1.7.2021 10:43
Gefur Löfven tækifæri til að mynda nýja stjórn Andreas Norlén, forseti sænska þingsins, hefur veitt Stefan Löfven, starfandi forsætisráðherra Svíþjóðar, umboð til að mynda nýja stjórn. 1.7.2021 10:41
Lilja komin aftur til starfa Lilja Dögg Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra er hætt í tímabundnu leyfi sem hófst um miðjan júnímánuð. Um var að ræða veikindaleyfi að læknisráði en ekki var greint frá eðli veikindanna. 1.7.2021 10:19
Undirbúa íslenskunám barna í leikskóla Breytingar hafa verið gerðar á aðalnámskrá leikskóla landsins og eiga þær að miða að því að mæta betur þörfum barna með annað móðurmál en íslensku og fjöltyngdum börnum í leikskólum. Leikskólarnir munu framvegis þurfa að leggja grunn að íslenskunámi barna. 1.7.2021 10:12
Afhjúpa styttu af Díönu í tilefni af sextíu ára fæðingarafmælinu Bretaprinsarnir Vilhjálmur og Harry munu síðar í dag afhjúpa styttu af móður sinni, Díönu, prinsessu af Wales, í garði Kensington-hallar. Díana, sem lést í París í ágúst 1997, hefði orðið sextug á þessum degi hefði henni enst aldur til. 1.7.2021 09:56
Miklir vatnavextir á Seyðisfirði Mikil hlýindi og leysingar hafa verið á Seyðisfirði síðustu daga líkt og annars staðar á Austur- og Norðurlandi. 1.7.2021 09:54
Kviknað í bænum eftir röð hitameta Íbúum bæjarins Lytton í Bresku-Kólumbíu í Kanada var skipað að flýja heimili sín vegna gróðurelda sem geisa þar í gær. Met yfir hæsta hita sem mælst hefur í Kanada hefur verið slegið nokkrum sinum í bænum undanfarna daga og náði hitinn mest tæpum 50°C. 1.7.2021 08:39
Fylgir því gríðarlegt flækjustig að senda sýnin út Mikil og flókin skriffinska fylgir móttöku, merkingu og áframsendingu leghálssýna til Danmerkur, þar sem þau eru rannsökuð. Ferlinu er lýst í erindi sem Heilsugæslan á höfuðborgarsvæðinu sendi Persónuvernd, sem hefur ferlið til skoðunar. 1.7.2021 08:38
Segir ekki nægan stuðning fyrir hægristjórn og skilar umboðinu Ulf Kristersson, formaður hægriflokksins Moderaterna, segir að ekki sé nægur fjöldi manna á sænska þinginu sem myndi styðja við nýja hægristjórn undir hans forsæti. Kristersson hefur því skilað því umboði sem þingforsetinn Andreas Norlén veitti honum til stjórnarmyndunar á þriðjudaginn. 1.7.2021 08:14
Misstu hið stolna Picasso-verk í gólfið á fréttamannafundi Málverk eftir Pablo Picasso, sem kom í leitirnar á dögunum níu árum eftir að því var stolið af Listasafni Grikklands í Aþenu, féll í gólfið á blaðamannafundi grísku lögreglunnar þegar verið var að greina frá nýjustu tíðindum af rannsókn málsins. 1.7.2021 07:59
Segir höfuð óvina verða blóðguð á stálmúr kínversku þjóðarinnar „Aðeins sósíalisminn mun bjarga Kína og framþróun Kína mun byggja á kínverskum sósíalisma,“ sagði Xi Jinping, forseti Kína, í hátíðarávarpi í aðdraganda aldarafmælis kínverska kommúnistaflokksins. 1.7.2021 07:37
Áfram spáð auknum leysingum í hlýindum norðan- og austantil Veðurspá gerir ráð fyrir að á vestanverðu landinu, þar sem sólin er á bak við ský, verði frekar svalt í veðri í dag og átta til þrettán gráðu hiti. Áfram verður þó sól og hlýtt austantil með hita allt að 26 stigum. 1.7.2021 07:08