Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Bein útsending: Eldgosið í Geldingadölum Lesendur Vísis geta nú fylgst með eldgosinu í Geldingadölum í beinni útsendingu. Ný vefmyndavél horfir yfir gígaröðina og verður sýnt frá gosinu allan sólarhringinn. Myndavélin er háþróuð og verður hægt að snúa linsunni og færa áhorfendur nær einstaka gígum ef tilefni gefst til. 12.5.2021 18:54
Óvissustig nú á Norðurlandi vestra Ríkislögreglustjóri hefur ákveðið að lýsa yfir óvissustigi almannavarna vegna hættu á gróðureldum á Norðurlandi vestra. Ákvörðunin er tekin í samráði við lögreglustjóra og slökkviliðsstjóra á svæðinu. 12.5.2021 18:47
Bein útsending: Kvöldfréttir Stöðvar 2 Í dag var lokað á gosstöðvunum til að hægt væri að laga göngustíga og koma þannig í veg fyrir hættu sem hefur skapast á svæðinu síðustu vikur. Fréttamaður okkar, Kristján Már Unnarsson, hefur þó verið á svæðinu í dag og fylgst með framkvæmdunum. 12.5.2021 18:01
Utanríkisráðherrar Bandaríkjanna og Rússlands funda í fyrsta sinn í Reykjavík Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússlands, og Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, munu hittast á tvíhliða fundi í Reykjavík þann 20. maí næstkomandi. 12.5.2021 17:34
Gerir ekki kröfu um að Kolbeinn segi af sér eða fari í leyfi Formaður Vinstri grænna telur að Kolbeinn Óttarsson Proppé hafi tekið rétta ákvörðun með því að draga til baka framboð sitt í prófkjöri flokksins eftir að kvartað var undan hegðun hans til fagráðs flokksins. Hún telur þó ekki ástæðu til þess að hann fari í leyfi eða segi af sér þingmennsku. 12.5.2021 17:01
Geymslur þurfa ekki að greiða skaðabætur Héraðsdómur fyrst, svo Landsréttur og nú Hæstiréttur eru sammála um að fyrirtækið Geymslur sé ekki skaðabótaskylt vegna stórbrunans í Garðabæ í apríl 2018. Hæstiréttur kvað upp dóm sinn í dag og staðfesti dóm á neðri dómstigum. 12.5.2021 16:30
Segir aðkomu HÍ að rekstri spilakassa á ábyrgð stjórnvalda og skólans Stúdentaráð Háskóla Íslands hefur kallað eftir því að Háskóli Íslands hætti rekstri spilakassa. Forseti Stúdentaráðs segir vandann aðallega felast í því að Háskólinn sé ekki nógu vel fjármagnaður af stjórnvöldum og gagnrýnir að skólinn þurfi að fjármagna starfsemi sína með rekstri slíkra kassa. 12.5.2021 16:12
Öll viðtöl Sölva Tryggvasonar fjarlægð Öll viðtöl Sölva Tryggvasonar hafa verið fjarlægð af hlaðvarpsveitum og YouTube-rás hlaðvarpsstjórnandans, eftir að beiðni þess efnis barst stafrænu auglýsingastofunni KIWI. 12.5.2021 16:11
Vængir James Webb opnaðir á jörðinni í síðasta sinn Vísindamenn vinna nú að því að opna gyllta spegilvængi James Webb sjónaukans (JSWT) í síðast sinn á jörðu niðri. Næst þegar vængirnir opna verður það vonandi á sporbraut sólina. James Webb er stærsti og öflugasti geimsjónauki sem hefur verið smíðaður. 12.5.2021 16:02
Efna til hönnunarsamkeppni um Fossvogslaug Dagur B. Eggertsson borgarstjóri og Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóri Kópavogs skrifuðu í dag undir viljayfirlýsingu um að finna nýrri sameiginlegri sundlaug bæjarfélaganna stað um miðbik Fossvogsdals í göngufæri frá grunnskólum dalsins, Snælandsskóla og Fossvogsskóla. 12.5.2021 15:59
Störf Sögu Ýrar „mjög óvanaleg hagsmunagæsla“ Lögmannafélag Íslands mun óska eftir upplýsingum um störf Sögu Ýrar Jónsdóttur lögmanns fyrir Sölva Tryggvason fjölmiðlamann. Félagið hefur eftirlitsskyldu og formaður þess telur framferði Sögu óvanalegt. 12.5.2021 15:54
Húsnæði starfsmannaleigunnar „alger bráðabirgðalausn“ Eigandi starfsmannaleigu sem er ákærður fyrir að stefna lífi og heilsu starfsmanna sinna í hættu með því að hýsa þá í iðnaðarhúsnæði án tilskilinna leyfa gaf óljós svör við aðalmeðferð málsins í dag. Tók hann ekki beina afstöðu til sakarefnisins og sagði að búseturýmin í húsnæðinu hafi verið alger bráðabirgðalausn. 12.5.2021 15:36
Tilkynntu mál Kolbeins ekki til lögreglu Mál sem tilkynnt var til fagráðs Vinstri grænna vegna hegðunar Kolbeins Óttarssonar Proppé þingmanns var ekki tilkynnt til lögreglu. Fagráðið mat það svo að málið væri ekki þess eðlis. 12.5.2021 14:57
Kristján Þór biðst afsökunar á brogaðri upplýsingagjöf ráðuneytisins Kristján Þór Júlíusson ráðherra vonast til að draga megi lærdóm af þeim mistökum sem voru gerð af hálfu ráðuneytisins; að mismuna í upplýsingagjöf aðgengi að skýrslu sem nú er til umfjöllunar. 12.5.2021 14:54
Cheney vikið úr embætti: Ætlar áfram að beita sér gegn Trump Liz Cheney var í dag vikið úr embætti sínu sem þriðji æðsti Repúblikaninn í fulltrúadeild Bandaríkjaþings. Haldin var atkvæðagreiðsla hjá þingflokknum en úrslitin voru svo gott sem ljós löngu fyrir það, þar sem aðrir leiðtogar flokksins höfðu snúist gegn henni. 12.5.2021 14:44
Talibanar ná tökum á mikilvægu svæði nærri Kabúl Vígamenn Talibana hafa ná stjórn á Nerkh-héraði sem gæti nýst þeim sem gætt inn í Kabúl, höfuðborg landsins. Sveitir Talibana eru nú einungis um fjörutíu kílómetra frá höfuðborginni en héraðið hefur áður verið notað til að gera mannskæðar árásir á Kabúl. 12.5.2021 14:01
Bein útsending: Staða og horfur í sjávarútvegi og fiskeldi Kristján Þór Júlíusson, sjávarútvegs- og landbúnaðaráðherra, hefur boðað til opins streymisfundar þar sem kynnt verður skýrsla um stöðu og horfur í íslenskum sjávarútvegi og fiskeldi, sem tekin var saman að beiðni ráðherra. Fundurinn hefst klukkan 14. 12.5.2021 13:59
Zamknięto szlak do wulkanu Najgorętsze miejsce w Islandii, na półwyspie Reykjanes, odwiedzane przez tysiące ludzi z powodu erupcji wulkanu jest dziś zamknięte dla zwiedzających. 12.5.2021 13:51
„Eitt ljótasta mál sem ég hef séð á 30 ára ferli“ Sviðsstjóri slökkviliðsins á höfuðborgarsvæðinu segir sakamál gegn eiganda starfsmannaleigunnar 2findjob eitt það ljótasta sem hann hefur séð á sínum 30 ára ferli. Mikil íkveikjuhætta var í húsnæðinu og ljóst að þar hefði getað orðið stórslys. Verkamenn bjuggu í litlum svefnkössum sem var staflað upp. 12.5.2021 13:31
Almannavarnastig vegna Covid-19 fært niður á hættustig Ríkislögreglustjóri, í samráði við sóttvarnarlækni, hefur ákveðið að lækka almannavarnastig vegna COVID-19 frá neyðarstigi niður á hættustig. 12.5.2021 13:24
Fylgi Sjálfstæðisflokks fer úr 28,7 prósentum í 25,6 milli kannanna hjá MMR Fylgi Sjálfstæðisflokksins mældist 25,6 prósent í nýrri könnun MMR, en var 28,7 prósent í þeirri síðustu. 12.5.2021 12:52
Bein útsending: Ísland ljóstengt Samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytið og Fjarskiptastjóður standa fyrir kynningarfundi í dag um árangur af landsátakinu Ísland ljóstengt á síðustu árum. Átakið er sagt hafa bylt forsendum búsetu og atvinnurekstrar í sveitum landsins. 12.5.2021 12:32
Óttast að nýtt stríð brjótist út á Gasa Embættismenn Sameinuðu þjóðanna óttast að nýtt stríð muni brjótast út á Gasa-ströndinni. Rúmlega þúsund eldflaugum hefur verið skotið frá Gasa að Ísrael og her Ísraels hefur gert hundruð loftárása á Gasa, sem er eitt þéttbýlasta svæði heimsins, og hafa minnst tvo fjölbýlishús verið jöfnuð við jörðu. 12.5.2021 12:10
Fimmtungur barna stundar ekki tómstundir Ójöfnuður meðal barna hér á landi birtist helst í því að nærri fimmtungur þeirra fær ekki tækifæri til að stunda tómstundir og fleiri börn búa við þröngan kost en áður. 12.5.2021 12:08
Samfylkingin vill tvöfaldan persónuafslátt eftir atvinnuleysi og styrkja viðburði listafólks Samfylkingin mun í vikunni leggja fram þingsályktunartillögu með úrræðum gegn atvinnuleysi. Formaður flokksins segir aðgerðir ríkisstjórnarinnar kjarklausar. 12.5.2021 12:07
UNICEF: Jemen þolir enga bið Hundruð þúsunda barna eru í hættu vegna vannæringar í Jemen og þeim fjölgar sífellt. 12.5.2021 11:51
Landlæknir hvetur alla til að uppfæra rakningarappið Á upplýsingafundi rétt í þessu kynnti Alma Möller landlæknir til sögunnar uppfærslu á smitrakningarappinu, sem felur í sér að nú geta símar „átt samskipti“ við aðra síma í nágrenninu með Bluetooth. 12.5.2021 11:41
Tveir greindust á Sauðárkróki í gær Tveir greindust með kórónuveiruna á Sauðárkróki í Skagafirði í gær, en alls eru nú tíu manns í einangrun í bænum. 12.5.2021 11:36
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um stöðunaá kórónuveirufaraldrinum hér innanlands en í máli sóttvarnalæknis í morgun kom fram að tveir hafi nú greinst með indverska afbrigði veirunnar á landamærunum. 12.5.2021 11:36
Íslendingar eiga heimtingu á einu verðmætasta frímerkta skjali heims Biblíubréfið, eitt verðmætasta frímerkta skjal í heimi, er í raun í eigu íslenska ríkisins, að mati Þjóðskjalasafns Íslands. 12.5.2021 11:31
Tveir greinst með indverska afbrigðið á landamærunum Tvö tilvik inverska afbrigðisins hafa fundist á landamærunum hérlendis og eru báðir einstaklingarnir nú í einangrun í sóttvarnahúsi. Á upplýsingafundi rétt í þessu sagði Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir viðbúið að afbrigði í dreifingu erlendis bærust hingað. 12.5.2021 11:27
Ahmadinejad aftur í forsetaframboð Mahmoud Ahmadinejad, fyrrverandi forseti Írans, hefur skráð sig í framboð að nýju fyrir forsetakosningar sem fara fram í júní. Í forsetatíð sinni var Ahmadinejad þekktur sem harðlínumaður en hefur undanfarið reynt að hasla sér völl sem miðjumaður og verið gagnrýninn á klerkastjórnina. 12.5.2021 11:18
Fékk fyrst veður af kvörtunum vegna Kolbeins í gær Þingflokksformaður Vinstri Grænna segist ánægð með ákvörðun Kolbeins Óttarssonar Proppé, þingmanns VG, um að hætta við framboð vegna hegðunar gagnvart konum. Ákvörðunin, sem komið hafi á óvart, sé alfarið Kolbeins. Hún hafi fyrst fengið veður af kvörtunum vegna hans í gær. 12.5.2021 11:11
Vilja nota gömul brot Arbery í vörn meintra morðingja hans Lögmenn feðganna Travis (35) og Gregory McMichael (65) hafa farið fram á að mega nota sakaskrá Ahmaud Arbery, 25 ára manns sem þeir eru sakaðir um að hafa myrt, í réttarhöldunum gegn þeim. Feðgarnir, auk William Bryan, eru hvítir og sátu fyrir Arbery, sem var svartur, þegar hann var úti að skokka og skutu hann til bana. 12.5.2021 11:00
Um þriðjungur smitaðra á Seychelleseyjum fullbólusettur Alþjóðaheilbrigðisstofnunin vinnur nú að því að fara yfir gögn frá Seychelleseyjum, þar sem ríflega þriðjungur þeirra sem hefur greinst með Covid-19 síðustu vikur hefur verið fullbólusettur. 12.5.2021 10:58
Æskilegra talið að Mogginn fjalli um efni skýrslu um sjávarútveginn en Kjarninn Þórður Snær Júlíusson ritstjóri Kjarnans segir um ævintýralega ósvífni og mismunun að ræða er varðar upplýsingagjöf hins opinberra til ólíkra miðla. 12.5.2021 10:47
Þrír greindust innanlands í gær Þrír greindust með kórónuveiruna innanlands í gær. Tveir sem greindust voru í sóttkví, en einn var utan sóttkvíar. 12.5.2021 10:46
Konferencja prasowa poświęcona COVID-19 O godzinie 11:03, rozpocznie się spotkanie informacyjne poświęcone najnowszym działaniom dotyczącym koronawirusa w kraju. 12.5.2021 10:42
Minnast þess að átján ár eru liðin frá fæðingu Madeleine McCann Foreldrar hinnar bresku Madeleine McCann minnast þess í dag að átján eru liðin frá fæðingu hennar og segjast þau enn halda í „smá“ von um að hún muni finnast á lífi. Madeleine hvarf úr hótelíbúð fjölskyldunnar í Praia da Luz í Portúgal í maí 2007. 12.5.2021 10:22
Bein útsending: Fundur Samfylkingarinnar – Verk að vinna – strax Frambjóðendur Samfylkingarinnar munu kynna nýjar tillögur sínar að „markvissum aðgerðum til að hraða ráðningum, auka virkni á vinnumarkaði, verja afkomuöryggi og leggja grunn að kraftmikilli endurreisn“ á fréttamannafundi sínum sem hefst klukkan 10:30. 12.5.2021 10:16
Gjaldþrotakröfu NRA hafnað: Tilgangurinn sagður að komast undan málaferlum Beiðni samtaka skotvopnaeigenda í Bandaríkjunum, National Rifle Association, um gjaldþrot var hafnað af alríkisdómara í gær. Sá sagði beiðnina ekki hafa verið lagða fram í góðri trú, heldur væri markmiðið að komast undan lögsókn ríkissaksóknara New York. 12.5.2021 10:12
Svona var 180. upplýsingafundur almannavarna Þórólfur Guðnason, sóttvarnalæknir, fer yfir stöðu mála varðandi framgang kórónuveirufaraldursins hér á landi ásamt Ölmu Möller landlækni og Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni. 12.5.2021 10:10
Kennarar og gestafyrirlesarar munu geta sótt bætur ef málfrelsi þeirra er skert Bresk stjórnvöld hyggjast kynna til sögunnar ný lög sem munu gera kennurum, nemendum og gestafyrirlesurum kleift að sækja bætur fyrir dómstólum ef háskólar brjóta gegn ákveðnum skilmálum um að þeir virði málfrelsi. 12.5.2021 10:07
Banna unglingsstúlku sem mótmælti Kreml að yfirgefa heimabæinn Dómstóll í Rússlandi bannaði nítján ára gamalli stúlku að yfirgefa heimabæ sinn í meira en tvö ár eftir að hún var sakfelld fyrir skemmdarverk. Stúlkan vakti mikla athygli þegar hún tók þátt í mótmælum gegn stjórnvöldum árið 2019. 12.5.2021 09:42
Bein útsending: Drífa yfirheyrir Gunnar Smára Alþýðusamband Íslands stendur í aðdraganda Alþingiskosninganna í haust fyrir röð samtala við forystufólk flokkanna. 12.5.2021 09:35