Átta ár fyrir nauðgun og hrottalegt ofbeldi Stígur Helgason skrifar 12. apríl 2013 07:00 Jens Hjartarson á sér langan brotaferil. Hann virðist sérstaklega einbeita sér að því að ganga í skrokk á ungum stúlkum.
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í gær Jens Hjartarson, 33 ára, í átta ára fangelsi fyrir að nauðga stúlku og beita þrjár til viðbótar hrottalegu ofbeldi. Þá er hann fundinn sekur um tvær líkamsárásir að auki. Í dómnum segir að brotin gegn konunum hafi öll verið „hrottaleg og beinast að líkama, kynfrelsi og andlegri heilsu þeirra, auk þess að vera með öllu tilefnislaus“. Árásirnar gegn konunum fjórum voru gerðar á stuttu tímabili, frá því í ágúst og fram í desember í fyrra. Þá var hann handtekinn á gistiheimili í miðbænum fyrir að ganga þar hrottalega í skrokk á átján ára stúlku sem hann hafði kynnst í meðferð. Hann játaði að til átaka hefði komið en sagðist ekkert muna eftir atvikum. Hann er sakfelldur fyrir að hafa slegið hana ítrekað í andlitið, sparkað í höfuð hennar og líkama, traðkað á andliti hennar, barið hana með eldhússtól, dregið hana á hárinu eftir gólfinu, haldið fyrir vit hennar þannig að hún náði ekki andanum og lagt hníf að hálsi hennar og hótað henni lífláti. Fyrsta árásin átti sér stað fjórum mánuðum fyrr, í ágúst í fyrra. Þá þvingaði hann stúlku til samræðis og endaþarmsmaka á heimili hennar. Hann neitaði sök en framburður konunnar er metinn trúverðugri, auk þess sem skoðun lækna benti eindregið til þess að stúlkunni hefði verið nauðgað. Fram kemur í dómnum að stúlkan hafi ekki treyst sér til að búa heima hjá sér síðan, hún sé nú alltaf hrædd, félagsfælin og vantreysti fólki. Um miðjan október ruddist hann inn á fyrrverandi unnustu sína eftir að hafa séð hana á tali við ókunnugan mann í bakaríi. Hann reiddist mjög, sló konuna í tvígang og í síðara skiptið þannig að hún féll á klósett og missti meðvitund. Þegar hún rankaði við sér var Jens að kveikja í bolnum sínum. Konan fór þá inn í svefnherbergi til dóttur sinnar og þar réðst hann á hana aftur, þegar hún var með barnið í fanginu, þannig að samfella barnsins varð útötuð í blóði. Í dómnum segir að barnið hafi grátið og Jens þá öskrað: „Þegiðu krakki!“ og reynt að slá til þess. Í dómnum segir að konan hafi síðan þurft að ávinna sér traust barnsins að nýju. Tveimur vikum síðar réðst hann á fjórðu stúlkuna, sautján ára gamla, kýldi hana í andlitið og meira til. Jens er auk þess sakfelldur fyrir að berja bróður sinn með billjardkjuða, ráðast á starfsmann á bensínstöð og ýmis önnur smávægilegri brot.
Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Sjá meira