Fölsuð könnun Jakob Bjarnar Grétarsson skrifar 12. apríl 2013 06:39 Hans Kristján Árnason. Segir af fölsun könnunar.
Hans Kristján Árnason, einn stofnenda Stöðvar 2, upplýsir á Facebookvegg sínum að frjálslega hafi verið farið með niðurstöður skoðanakannana og þær hafi beinlínis verið falsaðar. Hann greinir frá fundi sínum og Jóns Óttars Ragnarssonar með ónefndum forstjóra fyrirtækis sem kannaði áhorf. Staðan var verri en þeir félagar áttu von á en það reyndist ekki vandamál; forstjórinn einfaldlega breytti niðurstöðunum svo viðskiptavinum hans líkaði betur. Hans Kristján tengir frásögn sína við blogg Ómars Ragnarssonar sem segir að allt spilist nú upp í hendurnar á formanni Framsóknarflokksins, dæmalaust ástand hafi skapast í íslenskum stjórnmálum, ef marka megi könnun MMR: "Helmingur sjónrmálaafls, sem hefur verið langstærsti flokkurinn í 90 ár, eða 15% allra kjósenda, ætla að rústa fylgi síns flokks og lyfta öðrum flokki í staðinn upp í hans sess, -- vill frekar kjósa öflugan formann þess flokks en veika formann síns flokks!"Frásögn Hans Kristjáns:Þegar við Jón Óttar Ragnarsson rákum Stöð 2 báðum við þekkt skoðanaskoðunarfyrirtæki um að kanna áhorf á stöðina. Eigandi og forstjóri þess mætti síðar til okkar með niðurstöðurnar. Við vorum þarna þrír á læstri skrifstofunni og við Jón biðum spenntir eftir niðurstöðunni. Forstjóri og eigandi könnunarinnar birti okkur tölurnar. Ekki áttum við Jón Óttar von á svona lélegri útkomu. Þá sagði verktakinn: Líkar ykkur ekki við þessar niðurstöður? ...Ó, NEI... reyndar ekki, við héldum að staðan væri skárri. Ekki málið, svaraði verktakinn ... ég barasta laga tölurnar. Svo krotaði hann eitthvað og sagði - Sko, líkar ykkur þetta betur? Ný og betri útkoma. Okkur Jóni leið strax betur.... og þó. Jamm, takk fyrir, sagði verktakinn - og rétti okkur reikninginn um leið og hann kvaddi, brosandi.Uppfært 08:30:Jón Óttar Ragnarsson brást skjótt við þessari frétt með pistli á pressan.is og upplýsir að maðurinn sem Hans Kristján talar um sé öndvegismaðurinn, "sem ekki mátti vamm sitt vita", Dr. Bragi Jósepsson, sem rak fyrirtækið Skáís. Hann vísar frásögninni á bug: "Ekki aðeins er enginn flugufótur fyrir fréttinni heldur er erfitt að sjá hverjum hún gagnast í þeirri pólistísku móðursýki sem nú gengur yfir landið." Pistil Jóns Óttars má finna á hér.
Mest lesið Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Innlent „Þetta var algjörlega magnað“ Innlent „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Innlent Hafi verið beggja vegna borðsins Innlent Tugir slösuðust vegna skýstróka á Sikiley Erlent „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Innlent Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Innlent Kom af fjöllum eftir tilkynningu Trump um orkuvopnahlé Erlent Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Erlent Fleiri fréttir Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Braust inn með hníf í annarri og hamar hinni Telur núna sannað að fundin sé hin rétta Brattahlíð Eiríks rauða Kalla eftir aðgerðum ekki yfirlýsingum Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Sjá meira