Styttist í alvarlegt slys með hverri mínútu Sunna Valgerðardóttir skrifar 5. mars 2013 06:00 Starfsmenn Hringrásar munu fara yfir skráningarferli fyrirtækisins í kjölfar umfjöllunar Fréttablaðisins af amerískum þvottavélum sem átti að farga. Fréttablaðið/Stefán
Formaður Rafiðnaðarsambandsins gagnrýnir seinagang við framkvæmdir á rafkerfi Vallarsvæðisins harðlega. Reynst geti stórhættulegt að nota heimilistæki fyrir vitlaus kerfi. Um 400 vélar sem Hringrás fargaði voru ekki skráðar í kerfið. „Með hverri mínútu styttist í að alvarlegt slys verði í þessu húsnæði eða með búnaði sem fluttur hefur verið þaðan, hver á að bera ábyrgðina af því?“ spyr Kristján Þórður Snæbjarnarson, formaður Rafiðnaðarsambands Íslands, í grein sem skrifuð var í kjölfar umfjöllunar Fréttablaðsins um amerískar þvottavélar úr íbúðum varnarliðsins í Keflavík. „Það getur vel verið að alvarlegt slys hafi orðið af því nú þegar án þess að það hafi verið tilkynnt sökum þess að ólöglegur búnaður er tengdur slíku slysi.“ Kristján bendir á að raflost af raftækjum geti haft mjög alvarlegar afleiðingar, eins og skemmdir á líffærum og minnisleysi sem geti komið fram nokkrum vikum, mánuðum eða mörgum árum seinna. Greint var frá því í blaði gærdagsins að talið væri að gamlar þvottavélar úr íbúðum á vallarsvæðinu væru ekki sendar til förgunar eins og lög segja til um, heldur væru seldar eða gefnar. Framkvæmdastjóri Háskólavalla, Ingvi Jónasson, þvertók fyrir það en undirstrikaði þó að engin hætta stafaði af heimilistækjunum. Kristján segir að í ljósi þess hversu langan tíma það hefur tekið að skipta út ameríska rafkerfinu á svæðinu fyrir hið íslenska og íbúar noti heimilistæki sem ekki henta fyrir kerfin, skapist mikil hætta. „Það er ekki að ástæðulausu sem kröfur til raffanga eru settar og það er ekki bara á Íslandi heldur á viðkomandi raforkumarkaði, Evrópu- eða Ameríkumarkaði. Þessar reglur eru til þess að tryggja öryggi og heilsu fólks.“
Mest lesið Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Innlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Erlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Innlent Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Erlent Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Innlent „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Innlent Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Erlent Fleiri fréttir Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sinntu útkalli þar sem grindverk hafði fokið fyrir akbraut Dómurinn segi ekki alla söguna Yfir sjötíu prósent óánægja með Ingu Sæland Leita enn að einum eftir alvarlega líkamsárás Höfuðpaur Reykholtsmálsins fær átta ára dóm Segir kollega sína á þingi hafa framið húsbrot í fylleríisferð fyrir austan Skipuð formaður Jafnréttissjóðs Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Sjá meira