Fleiri fréttir

Flestir flugu til Kaupmannahafnar

Tæplega 380 þúsund farþegar flugu frá Keflavík til Kastrup-flugvallar í Kaupmannahöfn árið 2012. Þetta kemur fram í samantekt vefsíðunnar turisti.is.

Steinunn lætur af störfum

Steinunn Stefánsdóttir, aðstoðarritstjóri Fréttablaðsins, hefur látið af störfum hjá blaðinu eftir tólf ára starf. Það tilkynnti hún samstarfsmönnum sínum í tölvupósti síðdegis í dag.

„Dapurlegt raus hjá ASÍ“

"Þetta er óttalega dapurt raus hjá ASÍ og ég vísa þessu auðvitað til föðurhúsanna." Þetta segir Gunnar Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaupa um hugmyndir ASÍ að þær verslanir sem ekki taka þátt í verðlagskönnun sambandsins séu að leit skjóls til verðhækkana.

Ekkert flogið innanlands í dag

Öllu flugi innanlands í dag hefur verið aflýst. Þetta kemur fram á heimasíðum Flugfélags Íslands og Flugfélagsins Ernis. Millilandaflug hefur þó gengið nokkuð áfallalaust fyrir sig.

Þór Saari leggur fram vantrauststillögu að nýju

Þór Saari lagði í dag fram vantrauststillögu á ríkisstjórnina. Hann hefur jafnframt óskað eftir því við Ástu Ragnheiði Jóhannesdóttur, forseta Alþingis, að tillagan verði tekin á dagskrá þingsins á morgun.

Strætó að hefja ferðir á ný

Stefnt er að því að hefja akstur upp úr klukkan fjögur á helstu stofnleiðum Strætós og þeim minni eftir því sem vegirnir eru ruddir. Þetta kemur fram á Facebook-síðu Strætó.

Buðu björgunarsveitarmönnum í hádegismat

"Þetta æxlaðist þannig að ein kona sem starfar hjá okkur er í björgunarsveitinni í Garðabæ. Hún er bara í viðbragðsstöðu en við ákváðum í hádeginu að bjóða þeim sem komust í mat,“ segir Gísli Þorsteinsson, markaðsstjóri Nýherja, en fyrirtækið bauð björgunarsveitarmönnum í hádegismat í dag til þess að hvíla lúin bein eftir erfið verkefni morgunsins.

Lokuðust inni í tæpar fimm klukkustundir

Bílaröð á Vesturlandsvegi komst hvergi eftir að veginum var lokað snemma á níunda tímanum í morgun. Varlega áætlað voru hátt í eitt þúsund bílar fastir á Vesturlandsvegi við jaðar Grafarholts.

Russell Crowe sá fljúgandi furðuhlut

Stórleikarinn og Íslandsvinurinn Russell Crowe fullyrðir að hann hafi séð fljúgandi furðuhlut hátt yfir borginni Sidney í Ástralíu á dögunum.

Vilja að heildarendurskoðun stjórnarskrár verði lokið á 70 ára afmælinu

Árni Páll Árnason, formaður Samfylkingarinnar, Katrín Jakobsdóttur, formaður VG, og Guðmundur Steingrímsson, formaður Bjartrar framtíðar, leggja í dag fram frumvarp til breytingar á stjórnarskrá sem heimilar stjórnarskrárbreytingar á næsta kjörtímabili og tillögu til þingsályktunar um að heildarendurskoðun stjórnarskrárinnar á grundvelli tillagna stjórnlagaráðs verði lokið á 70 ára afmæli lýðveldisins árið 2014. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef Samfylkingarinnar. Þar kemur líka fram að formenn Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks hafa verið upplýstir um þennan tillöguflutning. Vonir standa til að unnt verði að mæla fyrir báðum málunum í dag og koma þeim til nefndar.

Brjálað að gera hjá 112 - 800 tilkynningar fyrir hádegi

"Það stefnir í að þetta sé mesta álag hjá okkur frá upphafi - frá því klukkan átta í morgun og fram að hádegi bárust um 800 tilkynningar til okkar,“ segir Þórhallur Ólafsson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar.

50 strandaglópar hjá Strætó

"Andrúmsloftið er þokkalegt,“ segir Reynir Jónsson, framkvæmdastjór Strætó, en um fimmtíu farþegar sitja fastir í höfuðstöðvum Strætó í Hesthálsi, skammt frá Ártúnsbrekkunni.

Þeir sem eru með hungruð börn í bílum beðnir um að hringja í 112

Þeir sem eru fastir í bifreiðum með börn sem eru farin að finna til hungurs, eru beðinn um að láta lögregluna vita í síma 112 svo hægt sé að aðstoða. Þetta kemur fram á Facebook-síðu lögreglunnar þar sem hún mun reyna að koma tilkynningum áleiðis til vegfarenda í dag.

Landhelgisgæslan til aðstoðar vegna ófærðarinnar

Starfsmenn séraðgerða- og sprengjueyðingasviðs Landhelgisgæslunnar voru í morgun kallaðir til aðstoðar lögreglu og slökkviliði höfuðborgarsvæðisins vegna ófærðarinnar. Fylgja ökutæki þeirra nú neyðarbílum í útköll og tryggja greiðan aðgang þeirra um höfuðborgarsvæðið.

Athugað með akstur klukkan hálftvö

Klukkan hálftvö verður skoðað hvort hægt verði að hefja akstur strætisvagna á höfuðborgarsvæðinu. Strætisvagnaferðir hafa verið í lamasessi í allan dag vegna veðurs. Þá sinnir heimaþjónusta sveitarfélaganna einungis brýnustu erindum.

Engin alvarleg slys en mikið eignatjón

Engin alvarleg slys urðu á fólki í árekstrinum á Hafnarfjarðarveginum í morgun. Það er þó ljóst að eignartjón er gríðarlega mikið.

Unnið að því að ryðja götur og aðstoða fólk

Áfram er lögð áhersla á að halda stofnbrautum og strætisvagnaleiðum opnum, sem og helstu göngu- og hjólaleiðum samkvæmt tilkynningu frá Reykjavíkurborg. Vel gengur miðað við aðstæður. Þeir sem sinna snjóruðningi ítreka að fólk leggi ekki af stað á vanbúnum bílum.

Almannavarnir: Ekki sækja börnin ykkar í skólann

Almannavarnir sendu frá sér tilkynningu nú rétt í þessu en þar segir að börnin eru örugg í skólunum. "Vinsamlegast reynið ekki að komast til þess að sækja þau fyrr en aðstæður leyfa og lögregla hefur gefið út tilkynningu þar að lútandi. Allir björgunaraðilar á svæðinu eru á ferðinni og einkabílar í umferðinni eru til mikilla trafala við björgunarstörf.“

Strætó í hremmingum

Öllum ferðum Strætó, bæði innan höfuðborgarsvæðisins og utan, hefur verið aflýst í augnablikinu vegna veðurs og færðar. Skoðað verður með akstur næst klukkan hálfeitt. Einnig hefur Ferðaþjónusta fatlaðra í Reykjavík hætt akstri. Á vefsíðu Strætó kemur fram að unnið verður í því eins og hægt er að koma þeim heim sem fóru af stað í morgun.

Hátt í 20 bíla árekstur á Hafnarfjarðarveginum

Um 15 til 20 bíla árekstur varð skömmu fyrir hálf ellefu á Hafnarfjarðarveginum suður við Kópavogslækinn. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu á höfuðborgarsvæðinu hafa sjúkrabílar verið kallaðir á vettvang og tækjabíll slökkviliðsins.

Lumar þú á myndum af ófærðinni?

Vísir leitar að myndum og myndböndum frá lesendum sem fanga veðurofsann sem gengur nú yfir landið. Bæði er hægt að senda okkur myndirnar og myndböndin sjálf eða hlekki á netsíður þar sem þau er að finna á netfangið ritstjorn@visir.is, í ummælum hér fyrir neðan eða á Facebook-síðu Vísis. Lumar þú á myndum af óveðrinu í dag?

Allar sveitir Landsbjargar kallaðar út

"Það er nóg að gera. Við erum úti um alla höfuðborgina og á Suðurnesjum,“ segir Gunnar Stefánsson hjá Slysavarnarfélaginu Landsbjörg. Hann segir að mestur mannskapurinn hafi verið sendur á Vesturlandsveg. "Þar er einhver hnútur sem og út um alla borgina,“ segir Gunnar.

Áfram snjóbylur í dag - mikill vindur á morgun og föstudag

"Það verður áfram mikill vindur í dag og hættir að snjóa upp úr hádegi, en það má búast við skafrenningi næstu daga, því það verður áfram mikill vindur á morgun og föstudag,“ segir veðurfræðingur á Veðurstofu Íslands.

Innanlandsflug í uppnámi - millilandaflug á áætlun

Öllu innanlandsflugi hefur verið frestað eða aflýst í dag samkvæmt upplýsingum sem finna má á heimasíðu Isavia. Flug til Akureyrar og Egilsstaða verður endurskoðað um hádegisbilið. Flugi til Ísafjarðar hefur verið aflýst.

Baldur siglir ekki í dag

Ferð ferjunnar Baldurs fellur niður í dag vegna óveðurs samkvæmt upplýsingum frá Sæferðum. Til stóð að Baldur legði úr höfn klukkan þrjú í dag frá Stykkishólmi og svo klukkan sex frá Brjánslæk. Glórulaus bylur er nú á Stykkishólmi sem og víðar. Gert er ráð fyrir að siglt verði á morgun.

Snjóruðningstæki að störfum síðan þrjú í nótt

Snjóruðningstæki og bílar hafa verið að síðan þrjú í nótt. Reynt er að halda stofnbrautum og strætisvagnaleiðum opnum og að tryggja að fólk komist inn á bílastæði við grunnskóla og leikskóla.

Öllum ferðum Strætó aflýst

Vegna slæmrar færðar og veðurs má búast við miklum seinkunum á öllum leiðum höfuðborgarsvæðisins í dag samkvæmt upplýsingum sem finna má á heimasíðu Strætó.

Lögreglan hvetur fólk til að vera heima

Reikna má með að öll heimaþjónusta, heimahjúkrun og félagsleg heimaþjónusta í Reykjavík gæti orðið sein í dag vegna veðurs. Þetta kemur fram á vef Reykjavíkurborgar. Þar segir líka að haft verður samband við fólk ef fella verður niður þjónustu sökum ófærðar.

Vesturlandsvegur lokaður

Vesturlandsvegur hefur lokast á ný vegna ófærðar. Fólki er ráðlagt að aka ekki um Vesturlandsveginn.

Ferðafólk í vandræðum við Landmannalaugar

Fjölmennt björgunarsveitarlið var kallað út á Suðurlandi á áttunda tímanum og er lagt af stað á sérbúnum jeppum og snjóbílum í átt til Landmannalauga, en þar er ferðafólk í fimm jeppum í vandræðum.

Stórhríð og kolófært víða á landinu

Vonskuveður er á Suðurlandi og víðast hvar ekki ferðaveður. Ófært er bæði á Hellisheiði og í Þrengslum og er fólk eindregið beðið að hlíta tilmælum lögreglu um að reyna ekki að fara þar um.

Búið að opna Vesturlandsveg

Búið er að opna Vesturlandsveg að nýju en hann er lokaðist við Víkurveg vegna ófærðar, blindu og svo er árekstur við Víkurvegsbrú. Ástand á Víkurvegi einnig slæmt. Búið að kalla til björgunarsveit til aðstoðar, að því er segir í tilkynningu.

Mikið óveður: Hellisheiðin og Þrengslin eru lokuð

Veður fer nú mjög versnandi á Suður- og Suðvesturlandi og búið er að loka bæði Hellisheiði og Þrengslum og umferð gengur hægt um Reykjanesbraut þar sem skyggni er afleitt þótt brautin teljist fær.

Sjá næstu 50 fréttir