Fleiri fréttir

Krafturinn á við 20 kjarnorkusprengjur

Umfangsmiklar rannsóknir á loftsteinahrapinu yfir borginni Chelyabinsk við Úralfjöll í Rússlandi eru hafnar. Hátt í tuttugu þúsund manns vinna nú að rannsóknarstörfum á svæðinu.

Lýst eftir góðum verkum

Opnað hefur verið fyrir tilnefningar til Samfélagsverðlauna Fréttablaðsins á vefnum Vísir.is (visir.is/samfelagsverdlaun) en verðlaunin verða veitt í áttunda sinn í apríl. Sem fyrr er hægt að tilnefna til verðlaunanna í fimm flokkum.

Reglur vantar um jarðnot á Íslandi

Svisslendingurinn Rudolph Walter Lamprecht á nú allan Heiðardal við Mýrdal og jarðir í Álftafirði. Hann hefur staðið fyrir umfangsmikilli skógrækt í Heiðardal og vill endurheimta votlendi. Hann segir náttúruvernd hafa rekið hann til að eyða stórfé í íslenskt land.

Stjórn kolfallin í fylgiskönnun

Allt stefnir í stjórnarskipti í Noregi eftir þingkosningar í haust, miðað við niðurstöður nýrrar skoðanakönnunar.

Setjast yfir kostnað vegna síldardauðans

Ríkisstjórnin samþykkti í gær að starfshópur ráðuneyta vegna síldardauðans í Kolgrafafirði ynni tillögur til ríkisstjórnar um útgjöld vegna þeirra verkefna sem ráðast þarf í.

Stór íbúðahús reist við Mánatún

Viðskipti Fulltrúar MP banka, Klasa ehf. og Sveinbjörns Sigurðssonar verktaka tóku í gær skóflustungu að stærstu nýframkvæmd við íbúðahúsnæði frá bankahruni.

Olli uppnámi og skelfingu

Hundruð manna særðust þegar tíu tonna loftsteinn splundraðist yfir Úralfjöllum. Þrettán þúsund sinnum þyngra smástirni fór einnig nálægt jörðu.

Hvetja aðildarfélög til að hætta að borga

Samtök félaga í velferðarþjónustu hvetja aðildarfélög sín til að skoða að hætta að borga áfallnar lífeyrisskuldbindingar. Telja ríkið skulda sér 1,5 milljarða króna og að ógreiddar áfallnar skuldbindingar séu um fimm til sex milljarðar hið minnsta.

Mál íslenska smyglhringsins tútnar út

Guðmundur Ingi Þóroddsson og gengi hans eru ekki lengur bara undir grun um smygl á 34 kílóum af amfetamíni, heldur 51 kílói. Tveir til viðbótar voru handteknir í gær og eru nú fjórtán manns í haldi vegna málsins, þar af tíu Íslendingar.

Flestir hættu við uppsögn

Yfir 80 prósent þeirra um 300 hjúkrunarfræðinga sem sagt höfðu upp störfum á LSH höfðu í gær dregið uppsögn sína til baka. Stéttarfélagið Efling fer eftir helgina fram á viðræður um kjör sinna félagsmanna.

Færri slasast við störf eftir hrun

Tilkynnt vinnuslys sem leiddu til fjarveru frá vinnu voru rúmlega 1.300 árið 2011. Slysum fækkað um þriðjung frá hruni. Helsta skýringin samdráttur í byggingariðnaði. Eftirlitsmönnum fækkað vegna sparnaðar. Auknar forvarnir nauðsynlegar.

Mun fremur Íslendingar sem loka

Miklar áhyggjur voru af því að Lamprecht myndi loka Heiðardalnum. Þær áhyggjur hafa ekki ræst og einu girðingarnar sem settar hafa verið upp lúta að skógrækt. Sveitarstjóri segir erlent eignarhald ekki vandamál en vonbrigði séu að áform um uppbyggingu haf

Serena í sögubækurnar

Serena Williams mun í næstu viku endurheimta efsta sæti heimslistans í tennis og verða þar með elsta kona sögunnar til að ná þeim árangri.

Eldur í strætóskýli

Slökkvilið var kallað að strætóskýli við Fjallkonuveg í Grafarvogi í dag þar sem lítils háttar eldur logaði.

Ef einhver vill horfa á klám þá getur hann nálgast klám

"Ef einhver vill af ásettu ráði horfa á klám á netinu, þá mun viðkomandi nálgast klám á netinu. Engar tæknilegar lausnir á netinu geta stöðvað viðkomandi, burtséð frá því að slökkva hreinlega á netinu. En ef markmiðið er að koma í veg fyrir að einhver hópur fólks sjái klám óvart, til dæmis krakkar, þá eru til tæknilegar leiðir til að hjálpa til við slíkt," segir lektor í tölvunarfræði við Háskólann í Reykjavík.

Fjöldi slasaðra tvöfaldast

Talið er að um 950 manns hafi slasast þegar loftsteinn eða þyrping loftsteina sprakk yfir borginni Chelyabinsk nærri Úralfjöllum í Rússlandi.

Loksins mynd af Hugo Chavez

Ríkisstjórnin í Venesúela hefur birt fyrstu myndirnar af Hugo Chavez síðan hann gekkst undir uppskurð á Kúbu fyrir rúmlega tveimur mánuðum.

Klæddu sig úr öllum fötunum og hlupu í kringum stjórnarráðið

Tveir kviknaktir menn sáust á harðahlaupum á lóð stjórnarráðsins í Lækjargötu í nótt. Á Facebook-síðu lögreglunnar segir að óljóst sé hvað mönnunum gekk til "en þó má fullvíst telja að þeir voru ekki á leið á ríkisstjórnarfund,“ segir á síðunni.

Um 80% hafa dregið uppsögn tilbaka

Erna Einarsdóttir, starfsmannastjóri Landspítalans, segir um 80% þeirra hjúkrunarfræðinga sem sögðu upp störfum í desember hafa dregið uppsögn sína tilbaka.

Áfram í gæsluvarðhaldi

Karl á fertugsaldri hefur verið úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. febrúar í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli.

Íslenskir fangar í Danmörku grunaðir um aðild að smygli

Tveir Íslendingar sem afplána nú fimm og átta ára fangelsi í Danmörku fyrir fimm kílóa e-töflusmygl eru líka grunaðir um aðild að stóra amfetamínsmyglinu sem danska lögreglan hefur rannsakað um nokkurra mánaða bil. Mennirnir eru 25 og 37 ára gamlir.

Fastur á 200 í klukkutíma

Var kominn 160 km frá heimili sínu þegar bensínið kláraðist. Reyndi ekki að skipta bílnum úr "Drive" í "Neutral".

Neitar að hafa myrt kærustuna

Oscar Pistorius neitar því að hafa myrt Steenkamp kærustu sína af yfirlögðu ráði og mótmælir ákæru þess efnis harðlega í yfirlýsingu sem fjölskylda hans sendi frá sér eftir hádegi í dag.

Loftsteinaslysið einstæður atburður

Fimmhundruð hið minnsta slösuðust þegar lofsteinum ringdi yfir þrjár rússneskar borgir í morgun. Þetta er í fyrsta sinn í sögunni sem fólk hlýtur skaða af slíku fyrirbæri segir stjörnuáhugamaður.

Hagnaður GM 632 milljarðar

Hagnaður féll þó um 38% á milli ára og hluthafa eru ósáttir við skýringar á því af hverju svo er.

VÍS er óheimilt að nota upplýsingar um meint tryggingasvik

Tryggingafélaginu VÍS er óheimilt að nota upplýsingar sem félaginu barst um meint tryggingasvik viðskiptavinar síns. Þetta er niðurstaða Persónuverndar sem barst kvörtun frá hinum meinta svikara. Persónuvernd segir jafnframt, í úrskurði, að ef maðurinn sem ásökunin beinist gegn krefjist þess að VÍS eyði upplýsingunum þá sé félaginu skylt að verða við því. Í ábendingu sem VÍS barst í gegnum svokallaðan svikahnapp á vefsíðu VÍS segir að hinn meinti svikari hafi dottið af bifhjóli þegar hann ók því próflaus. Hann segi hins vegar sjálfur að hann hafi dottið úr vinnuvél vegna þess að hann hafi verið próflaus.

"Málið er upplýst"

Skólastjóri Verzlunarskóla Íslands hefur rætt við fulltrúa bekkjarins sem stóð að umdeildum ratleik á dögunum. Hann segir nemendur bekkjarins miður sín.

Fjölskylduhjálpin flytur í Breiðholt

Fjölskylduhjálp Íslands mun flytja í húsnæð að Iðufelli 14 í Breiðholti. Umrætt húsnæði hýsti áður Bónus. Það er um tvöfalt stærra og mun hentugra fyrir starfsemi Fjölskylduhjálparinnar en það húsnæði sem samtökin hafa yfir að ráða í dag, að því er fram kemur í tilkynningu frá samtökunum. Fjölskylduhjálpin mun fá húsnæðið um næstu mánaðamót.

Tal stjórnmálamanna byggt á vanþekkingu á tæknimálum

"Eftirlit með netumferð er gagnslaust ef hver sem er getur auðveldlega dulkóðað alla sína netumferð. Það er álíka gáfulegt og að setja á fót tolleftirlit sem rýnir í alla pakka nema þá sem hafa verið innsiglaðir."

Svona vinna rallýpör!

Unnu í keppni sögufrægra rallbíla, en Sebastien Ogier vann aðalkeppnina í Svíþjóð.

Nær 500 manns slasaðir eftir loftsteinasprengingar

Tala slasaðra eftir loftsteinasprengingar í grennd við þrjár borgir í Úralfjöllunum í Rússlandi fer stöðugt hækkandi. Nú er talið að allt að 500 manns hafi slasast en ekki er vitað til þess að neinn hafi farist.

Pistorius hágrét í réttarsal

Spretthlauparinn Oscar Pistorius grét í réttarsal í morgun þegar hann var formlega ákærður fyrir morðið á kærustu sinni á heimili þeirra í gærmorgun.

"Fólk er að skila sér aftur"

Starfsmannastjóri Landspítalans segist aðeins vita um eitt tilfelli þess að hjúkrunarfræðingur ætli ekki að snúa aftur til vinnu.

Stjórn VM mótmælir kvótafrumvarpinu harðlega

Stjórn VM-Félags vélstjóra og málmtæknimanna mótmælir harðlega fyrirhuguðu frumvarpi um breytingar á lögum um stjórn fiskveiða. Með fyrirhuguðum breytingum á að taka aflaheimildir frá undirstöðufyrirtækjum í sjávarútvegi. Það mun rýra afkomu þeirra og stöðuleika, með ófyrirsjáanlegum afleiðingum.

Renault Clio safnar verðlaunum

Renault Clio hefur verið verðlaunaður af EuroNCAP, hann fékk Gullna stýrið í Þýskalandi og er í úrslitum til Bíls ársins í Evrópu.

Sjúkraliðar fagna áfangasigri

Sjúkraliðar fagna áfangasigri í launaleiðréttingu hjúkrunarfræðinga og benda á að kjör og vinnuumhverfi þessara tveggja sétta séu samofin.

Sjá næstu 50 fréttir