Fleiri fréttir

Ólafur Ragnar: Hefði ekki getað neitað Icesave án internetsins

Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði á íslensku vefverðlaununum í Hörpunni í gær að hann hefði ekki getað neitað Icesave-lögunum staðfestingar ef ekki hefði verið fyrir internetið. Í febrúar árið 2011 fékk forsetinn um 38 þúsund undirskriftir þess efnis að synja lögunum - sem hann gerði.

Neyðarfundur vegna hrossakjötsins

Bresk heilbrigðisyfirvöld hafa boðað til neyðarfundar með matvælaframleiðendum og forsvarsmönnum stórmarkaða í dag vegna hrossakjötshneykslisins svokallaða sem hefur vakið sterk viðbrögð meðal almennings í Bretlandi.

Yfir 6000 flóttamenn sóttu um hæli

Rúmlega sex þúsund og eitt hundrað flóttamenn sóttu um hæli í Danmörku á síðasta ári og hafa ekki verið fleiri í meira en áratug.

Hnífaárás í miðbænum

Um klukkan hálf fjögur í nótt náðu dyraverðir að yfirbuga mann á skemmtistað við Hafnarstræti eftir að hann hafði veitt öðrum manni áverka, á hendi og víðar, með hníf. Hnífamaðurinn nefbrotnaði í átökunum en upplýsingar um líðan mannsins sem varð fyrir árásinni liggja ekki fyrir að svo stöddu.

Krotarinn handtekinn í nótt

Lögreglan í Frakklandi handtók í nótt unga konu sem sökuð er um að hafa krotað á tímamóta málverk franska málarans Ferdinand Victor Eugène Delacroix, Liberty Leading the People.

Fyrsti niðurskurður frá upphafi

Leiðtogar ESB-ríkjanna 27 náðu í gær samkomulagi um fjárlagaramma sambandsins fyrir árin 2014 til 2020, en samkvæmt honum verður sett útgjaldaþak við rúma 900 milljarða evra á tímabilinu. Samkomulagið felur í sér þriggja prósenta niðurskurð frá yfirstandandi tímabili, en þetta er fyrsti niðurskurðurinn í framlögum til ESB í 56 ára sögu sambandsins.

Rússar hringla með tímann

Dmitrí Medvedev, forsætisráðherra Rússlands, er andvígur áformum Vladimírs Pútín forseta um að hætta við að hafa sumartíma allt árið, en það var Medvedev sem tók ákvörðun um það árið 2011 meðan hann var forseti.

Ósætti á milli mótórhjólasamtaka - hnífur kom við sögu

Tveir voru handteknir í miðborginni í nótt eftir að hafa beitt hnífum í átökum. Rétt eftir eitt brutust út slagsmál á skemmtistað við Tryggvagötu og var hnífur þar dreginn upp. Sá sem það gerði var sleginn í höfuðið en aðra sakaði ekki. Lögregla telur að rekja megi atvikið til ósættis manna í bifhjólasamtökum.

Þykir varla styrkja stöðu formannsins

Könnun sýnir mikinn stuðning við Hönnu Birnu Kristjánsdóttur í formannsembætti Sjálfstæðisflokkins. Hún stefnir þó á varaformannsembættið. Stjórnmálafræðingur segir stöðu Bjarna Benediktssonar varla hafa styrkst við þessa könnun.

Samkeppni um lækna hefur aukist

Læknaskortur er fyrirséður í landinu. Forstjóri Landspítalans segir reynt að bregðast við eftir megni. Hingað til lands hafa verið ráðnir læknar frá Asíu til að fylla stöður sem innlendir læknar fást ekki í. Vinir og fjölskylda toga lækna aftur heim.

Pallbíllinn er of stór fyrir bílastæði í 101

Íbúi í Þingholtunum fær ekki íbúakort frá Bílastæðasjóði þar sem pallbíll hans er of stór fyrir bílastæðin samkvæmt reglugerð um bílastæði og hámarkslengd bíla. Verið að passa upp á lífsgæði íbúa, segir framkvæmdastjóri Bílastæðasjóðs.

Mikilvægi norðurslóða eykst sífellt

Áhugi alþjóðasamfélagsins á norðurslóðum eykst ár frá ári. Norðurskautsráðið er í miðri hringiðunni en nýstofnaðri fastaskrifstofu ráðsins verður stýrt næstu árin af Magnúsi Jóhannessyni, fyrrverandi ráðuneytisstjóra. Hann kannast ekki við kapphlaup þjóða

Raðmorðinginn gengur enn laus

Bandaríski raðmorðinginn Christopher Dorner gengur enn laus. Lögregluyfirvöld í Los Angeles hafa skipulagt afar umfangsmikla leit að Dorner. Grunur leikur á að hann haldi til í fjallakofa í grennd við fjölsóttan dvalarstað, hátt yfir Los Angeles-borg.

Neyðarástandi lýst yfir í New York

Andrew Cuomo, ríkisstjóri í New York, hefur lýst yfir neyðarástandi í ríkinu. Íbúar á austurströnd Bandaríkjanna búa sig nú undir eitt versta hríðarveður í manna minnum.

Mannshvörf - Mál Valgeirs Víðissonar

Hvarf Valgeirs Víðisson var eitt umtalaðasta mál seinni hluta síðari aldar. Valgeir yfirgaf heimili sitt aðfaranótt 19 júní árið 1994 og snéri aldrei aftur heim til sín. Málið var rannsakað sem sakamál og var talið að honum hefði verið ráðinn bani.

Best í heimi

Hann kom, sá og sigraði, íslenski hópurinn sem keppti í listhlaupi á skautum á Special Olympics í suður Kóreu. Sigurvegararnir í Íslandi í dag

George W. Bush málar myndir af baðherbergjum

Það hefur lítið farið fyrir George W. Bush, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, frá því að hann lét af embætti fyrir rúmum fjórum árum. Hann hefur engu að síður verið iðinn við kolann.

„Vímuefnanotkun er vágestur sem við verðum að takast á við“

„Vímuefnanotkun er vágestur sem við verðum að takast á við," segir Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum. Vinnslustöðin í Vestmannaeyjum sagði nýverið upp ellefu sjómönnum eftir að þeir féllu á vímuefnaprófi. Ísfélagið hefur í hyggju að framkvæma svipuð próf.

Framsóknarflokkurinn með tæp 20 prósent - Björt framtíð skammt á eftir

Framsóknarflokkurinn er annað stærsta stjórnmálaafl landsins samkvæmt könnun MMR sem var framkvæmd á tímabilinu 31. janúar til 6. febrúar. Það er nokkuð ljóst að flokkurinn bætir töluvert við sig vegna niðurstöðu í Icesave málinu, en flokkurinn var andvígur samningaleiðinni frá upphafi.

Lýsa yfir stuðningi við hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum

Hjúkrunarfræðingar hjá heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins lýsa yfir stuðningi við hjúkrunarfræðinga á Landspítalanum. "Við hvetjum til þess að strax verði unnið að því að ganga frá stofnanasamningi við þá og í kjölfarið gengið frá lausum stofnanasamningum á öðrum heilbrigðisstofnunum,“ segir í yfirlýsingu frá heilsugæsluhjúkrunarfræðingunum.

Lögreglan lýisr eftir Emblu Nótt

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Emblu Nótt Anderson er fór að heiman frá sér 1 febrúar s.l. Embla Nótt er 15 ára, var klædd í "army" úlpu, svartar íþróttabuxur og svarta strigaskó. Embla Nótt er um 160 sm á hæð, með grænleit augu og axlasítt svart hár. Þeir sem hafa einhverjar upplýsingar um ferðir Emblu Nótt frá því 1 febrúar s.l. eru beðnir að hafa samband við lögregluna á höfuðborgarsvæðinu í síma 444 1000.

Áframhaldandi gæsluvarðhald vegna stóra fíkniefnamálsins

Þrír karlar hafa verið úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald til 21. febrúar og einn til 14. febrúar í tengslum við rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á umfangsmiklu fíkniefnamáli. Fjórmenningarnir, sem eru á fertugs- og fimmtugsaldri, voru handteknir í síðasta mánuði eftir lagt var hald á verulagt magn af því sem talið er vera sterk fíkniefni, en efnin voru send í nokkrum póstsendingum til landsins. Um tíma sat karl á þrítugsaldri einnig í gæsluvarðhaldi í þágu rannsóknarinnar, en honum var sleppt úr haldi lögreglu í byrjun mánaðarins.

Íslendingar mega aldrei sætta sig við yfirgang

Sigmundur Davíð gerði deiluna í Icesave-málinu að umtalsefni á flokksþingi Framsóknarflokksins í Gullhömrum í Grafarvogi í dag. "Íslendingar eru, og verða vonandi alltaf, herlaus þjóð. En við sættum okkur ekki við yfirgang. Við heyjum baráttu okkar á grundvelli laga og réttar, vegna þess að við vitum að með lögum skal land byggja. Við megum aldrei láta undan ofríki sama hversu mikið ofurefli kann að vera við að etja,“ sagði Sigmundur Davíð.

Bæjarstjórinn óttast ekki útkomu bæjarstarfsmanna

Ranglega var sagt í inngangi fréttar um fíkniefnapróf í Fréttablaðinu og Vísi í morgun að bæjarstjórinn í Vestmannaeyjum óttaðist útkomu bæjarstarfsmanna úr fíkniefnaprófum. Hið rétta er, eins og kom fram síðar í fréttinni, að Elliði Vignisson bæjarstjóri kvaðst þvert á móti enga trú hafa á því að starfsmenn bæjarins hefðu eitthvað að óttast í slíkum prófum. Beðist er velvirðingar á þessasari missögn. Umrædd frétt hefur nú verið leiðrétt á Vísi.

Hagkaup tók umdeilda peysu úr umferð

"Ef viðskiptavinur bendir okkur á svona lagað þá förum við bara eftir því, enda er ekki okkar tilgangur að særa blygðunarkennd viðskiptavina okkar,“ segir Gunna Ingi Sigurðsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, en fyrirtækið tók umdeilda peysu úr sölu eftir að fyrirtækinu bárust ábendingar frá viðskiptavinum.

Mikil óánægja með náttúruverndarfrumvarp

Ferðaklúbburinn 4x4 birtir í dag heilsíðuauglýsingu í Fréttablaðinu þar sem Alþingi er hvatt til að "leggja nú þegar til hliðar frumvarp til laga um náttúrvernd og vanda betur til verka.“

Sjá næstu 50 fréttir