Sigurður H. Richter hefur fjallað um Hönnunarkeppni verkfræðinema í 20 ár: Kominn tími til að aðrir taki við 9. febrúar 2013 08:00 Fjölmörg lið tóku þátt í Hönnunarkeppni verkfræðinema í Háskólabíói í gær. fréttablaðið/valli „
Ég er að verða sjötugur svo það er alveg kominn tími til að aðrir taki við keflinu,“ segir Sigurður H. Richter. Hann stóð á tímamótum í gær þegar hann lét af störfum sem umsjónarmaður sjónvarpsmynda um árlega Hönnunarkeppni véla- og iðnaðarverkfræðinema við Háskóla Íslands. Sigurð þarf vart að kynna en hann er fyrir löngu orðinn þjóðþekktur fyrir sjónvarpsþætti sína Nýjasta tækni og vísindi, sem voru á dagskrá Sjónvarpsins í þrjátíu ár. Sigurður segist hafa frétt af Hönnunarkeppninni eftir að fyrsta keppnin var haldin árið 1991. Honum hafi fundist þetta áhugavert viðfangsefni og fengið leyfi til að fjalla um næstu keppni í Sjónvarpinu. Sigurður segir að margt sé eftirminnilegt frá keppni liðinna ára en það sé erfitt að tína eitthvað sérstakt til. „Á hverju ári er ný þraut lögð fyrir keppendur og mér hefur alltaf fundist jafn merkilegt hvað þeim hefur gengið vel að leysa úr verkefnunum.“ Margir hafa komið að vinnunni við sjónvarpsmyndirnar og segir Sigurður samstarfið hafa verið farsælt. „Verkfræðinemar eiga heiður skilinn fyrir að hafa komið Hönnunarkeppninni á laggirnar. Keppendur hafa komið með skemmtilegar og frjóar hugmyndir og furðulegustu tæki orðið til.“ Sigurður ætlar að halda áfram að fylgjast með Hönnunarkeppninni þótt það verði úr fjarlægð. „Þetta er svo skemmtilegt að ég mun halda áfram að mæta og fylgjast með.“ - gój
Mest lesið Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Talinn ætla að ráðast á Trump og fleiri háttsetta Erlent Fleiri fréttir „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Sjá meira