Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Lögreglan á 250 skammbyssur Lögregluembættin víðsvegar um land hafa tvö hundrað fimmtíu og fjórar skammbyssur til umráða og þrjátíu og sjö riffla. Þetta kemur fram í skýrslu sem var unnin eftir samráðsfundi innanríkisráðuneytisins og ríkislögreglustjóra í byrjun október síðastliðnum, og fréttastofa hefur undir höndum. 20.11.2012 14:16
Ólíklegt að skýrslutökum ljúki í dag Ólíklegt er að skýrslutökum yfir þolendum og öðrum vitnum, í líkamsárásarmálum sem eru nú til aðalmeðferðar í Héraðsdómi Reykjaness, ljúki í dag eins og gert var ráð fyrir. 20.11.2012 14:08
Augljóslega ósammála niðurstöðunni "Það er búið að kæra þetta þannig að við erum augljóslega ósammála niðurstöðunni," segir Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá sérstökum saksóknara. Héraðsdómur Reykjavíkur vísaði í dag frá ákæru á hendur Magnúsi Guðmundssyni, fyrrverandi forstjóra Kaupþings í Lúxemborg, og að hluta ákæru gegn Ólafi Ólafssyni, einum aðaleiganda Kaupþings. 20.11.2012 13:55
Dýraníðið kært til lögreglu - Myndbandið fjarlægt af YouTube Dýraverndunarsamband Íslands hefur tilkynnt hestakonu til lögreglu sem á myndbandi sást beita harkalegum aðferðum við tamningar. Netheimar loga þar sem hegðun konunnar er fordæmd. 20.11.2012 12:09
Meira af ungu fólki sem dvelur hér í stuttan tíma Um 40 prósent meiri sala var til erlendra ferðamanna í nóvember og október miðað við sama tíma í fyrra og um 25 til 30 prósent yfir allt árið. Bandaríkjamenn og Norðmenn eyða mestu hér á landi. 20.11.2012 11:15
Annþóri og Berki gert að víkja á meðan vitni gaf skýrslu Annþóri Kristjáni Karlssyni og Berki Birgissyni var gert að víkja úr dómssal í morgun þegar eitt vitnanna gaf skýrslu í máli þeirra. Þetta var gert að kröfu saksóknara í málinu. Verjendur þeirra mótmæltu kröfunni. Eftir að skýrslutöku lauk var hlé gert á þinghaldi og verjendur fengu að ráðfæra sig við sakborninga og ákveða hvaða spurningum verður beint að vitninu. Verjendur munu síðan spyrja vitnið. 20.11.2012 11:02
Einn mesti tónlistarviðburður síðari tíma í Hörpu í kvöld Beðið hefur verið eftir tónleikum Fílharmóníusveit Berlínar í Hörpu með nokkurri eftirvæntingu, enda er hljómsveitin álitin ein sú allra besta í heiminum í dag. Miðar á tónleikana seldust upp á mettíma. 20.11.2012 10:30
Vilborg lögð af stað á Suðurpólinn Vilborg Arna Gissurardóttir hóf í gær göngu sína á Suðurpólnum en áætlað er að ferð hennar á syðsta punkt Jarðar taki um 50 daga. 20.11.2012 10:18
Myndir Halldórs Baldurssonar úr héraðsdómi Teiknarinn Halldór Baldursson fangaði með blýanti sínum þegar Annþór Kristján Karlsson og Börkur Birgisson gáfu skýrslu fyrir dómi í gær. Áður hafði dómari bannað fréttaflutning af réttarhöldum í líkamsárásarmáli Annþórs, Barkar og sjö annarra. 20.11.2012 10:00
Enn mikill viðbúnaður í héraðsdómi Sami viðbúnaður er í Héraðsdómi Reykjaness í dag, á öðrum degi réttarhaldanna yfir Annþóri Karlssyni, Berki Birgissyni og félögum, og var í gær. Annþór og Börkur verða viðstaddir þegar fyrsta vitni í líkamsárásarmáli gefur skýrslu. Þetta er aðalvitni ákæruvaldsins. Þessi árás átti sér stað í Mosfellsbæ. Annþór og Börkur eru ásamt sjö öðrum sakaðir um að hafa ráðist á fjóra menn með golfkylfum, trékylfum og sleggju. 20.11.2012 09:18
Hillary Clinton á leið til Ísraels Hillary Clinton utanríkisráðherra Bandaríkjanna er nú á leið til Ísraels. Þar mun hún ræða við Benjamin Netanyahu forsætisráðherra Ísraels og leiðtoga palentínsku heimastjórnarinnar í Ramallah um ástandið á Gaza svæðinu. 20.11.2012 09:13
Fjölveiðiskipið Þórsnes II strandaði í Breiðafirði Fjölveiðiskipið Þórsnes II tók niðri á grynningu í Norðurflóa innarlega í Breiðafirði um 7 sjómílum suð-vestur af Reykhólum upp úr kl. 6 í morgun. Skipverjar höfðu samband við Landhelgisgæsluna og upplýstu um aðstæður. 20.11.2012 08:34
Kelduskóli og Háteigsskóli hlutskarpastir í Skrekk Atriði Kelduskóla og Háteigsskóla urðu hlutskörpust á fyrsta undanúrslitakvöldi Skrekks, hæfileikakeppni grunnskólanna, sem fram fór í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. 20.11.2012 07:09
Hægt að ættleiða turnspírur á þaki dómkirkjunnar í Mílanó Forstöðumenn dómkirkjunnar í Mílanó fara óhefðbundar leiðir í fjáröflun sinni fyrir nauðsynlegar endurbætur á þaki kirkjunnar. 20.11.2012 06:59
Kærir vegna atviks í Heiðarholti Kolfinna S. Magnúsdóttir bæjarfulltrúi í meirihlutanum í Garði, ætlar að leggja fram kæru vegna atviks á skammtímavistuninni Heiðarholti, sem heyrir undir Félagsþjónustu Sandgerðisbæjar, Garðs og Voga. 20.11.2012 06:56
Spáir stormi suðaustanlands í kvöld Veðurstofan spáir stormi suðaustanlands í kvöld. Annars verður vaxandi noðraustanátt og allt að 18 metrum um hádegi og éljagangur nema á Vestur- og Suðvesturlandi. 20.11.2012 06:46
Tóku réttindalausan ökumann undir áhrifum fíkniefna Lögreglumenn í Keflavík óku í nótt fram á kyrrstæðan bíl, sem var í gangi. Ungur maður sat þar undir stýri og við nánari athugun kom í ljós að hann var bæði undir áhrifum fikniefna og áfengis. 20.11.2012 06:45
Skriður kominn á samninga um vopnahlé á Gaza Skriður virðist kominn á samninga milli Ísraelsmanna og Hamassamtakanna á Gaza um vopnahlé í þeim átökum sem staðið hafa linnulaust frá því í miðri síðustu viku. 20.11.2012 06:40
Slúðurblað segir Kate Middleton vera ólétta Bandaríska slúðurblaðið New York Post greinir frá því að Kate Middleton hertogaynjan af Cambridge, eiginkona Williams Bretaprins sé ólétt af fyrsta barni þeirra hjóna. 20.11.2012 06:38
Flóttamanni frá Írak vísað út landi fyrir hádegið Flóttamanni frá Írak hefur verið vísað úr landi og verður honum fylgt út núna fyrir hádegi. 20.11.2012 06:36
Fresta niðurstöðum rannsókna á líki Ríkharðs þriðja Fornleifafræðingar sem rannsaka líkamsleifar Ríkharðs þriðja Englandskonungs segja að niðurstöður úr rannsóknum þeirra muni ekki liggja fyrir fyrr en í janúar á næsta ári. 20.11.2012 06:33
Afnema þarf samkeppnistálma Samkeppniseftirlitið telur ekki tilefni til íhlutunar vegna kvörtunar Samtaka fiskframleiðenda og útgerða. Eftirlitið beinir hins vegar tilmælum til Steingríms J. Sigfússonar, atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra, um að draga úr samkeppnishindrunum í sjávarútvegi. 20.11.2012 06:00
Ræða lagasetningu vegna lánsveða lífeyrissjóðanna - Fréttaskýring kolbeinn@frettabladid.is 20.11.2012 06:00
Orðar bann á almenn lán hjá lífeyrissjóðum Björn Valur Gíslason, formaður fjárlaganefndar, segir að lífeyrissjóðir hafi ekki viljað taka þátt í því að bregðast við efnahagshruninu, hvorki með niðurfellingu skulda né fjárfestingum. Hann segir að þeir skáki í skjóli lánsveða sem séu trygg og vilji því lítið sem ekkert gera. 20.11.2012 06:00
Vissi ekki að peningarnir kæmu frá Eir Jóhannes Rúnar Jóhannsson hæstaréttarlögmaður, tengdasonur Sigurðar Helga Guðmundssonar, fyrrverandi framkvæmdastjóra Eirar, stóð í þeirri trú að gjafabréf á flugmiða sem Sigurður afhenti honum væri persónuleg gjöf frá tengdaföður hans. 20.11.2012 06:00
Umstang án fordæma hjá Annþóri og Berki Fáheyrður viðbúnaður var í Héraðsdómi Reykjaness í gærmorgun þegar aðalmeðferð hófst í líkamsárásarmáli á hendur Annþóri Kristjáni Karlssyni, Berki Birgissyni og sjö öðrum mönnum. 20.11.2012 06:00
Afskipti af tóbakssölu barna þyrnir í augum Samtök verslunar og þjónustu saka Heilbrigðiseftirlit Hafnarfjarðar og Kópavogsvæðis um íþyngjandi og ólögmæt afskipti af afgreiðslustörfum þeirra sem eru yngri en átján ára í verslunum þar sem tóbak er selt. 20.11.2012 06:00
Hitabylgjur, þurrkar og mikil flóð víða Breyti jarðarbúar ekki snarlega um stefnu varðandi losun gróðurhúsalofttegunda má búast við að andrúmsloft jarðar verði að meðaltali fjórum gráðum heitara í lok aldarinnar, eða jafnvel strax eftir hálfa öld eða svo. 20.11.2012 00:30
Hamas setur skilyrði Seint í kvöld höfðu loftárásir Ísraela á Gasasvæðið síðan á miðvikudag kostað nærri hundrað manns lífið. Um 50 þeirra voru almennir borgarar, þar á meðal tugir barna. 20.11.2012 00:00
Lögreglan í úreldum skotvestum Grunnbúnaður lögreglunnar hér á landi til þess að takast á verið sérstakar lögregluaðgerðir er mjög takmarkaður. Meðal annars er nokkur hluti af varnarbúnaði lögreglu kominn til ára sinn og úreldur, sem dæmi má nefna að skotvesti lögreglunnar eru beinlínis útrunninn, en notkunartími þeirra var frá 1995 til 2005. 19.11.2012 23:28
Vinna að því að fylla Ártúnsbrekkuna af snjó Það hafa eflaust einhverjir skíðamenn horft með öfundaraugum til snjóþyngslanna á Norðurlandi undanfarna daga, en veður á höfuðborgarsvæðinu hefur ekki boðið upp á miklar snjóiðkanir. 19.11.2012 22:21
Ók á tengikassa og slökkti ljósin Ökumaður bifreiðar í Keflavík missti stjórn á bílnum með þeim afleiðingum að hún hafnaði á tengikassa. Atvikið varð með þeim hætti að bifreiðin rann til að aftan samkvæmt tilkynningu frá lögreglu. 19.11.2012 22:14
Tólf íslenskum glæpamönnum vísað frá Noregi Íslendingar eru sú þjóð sem er helst rekin frá Noregi sé miðað við höfðatölu. Þetta kom fram í spjalli félaganna í Reykjavík síðdegis við kennarann Guðna Ölversson sem er búsettur í Noregi. 19.11.2012 21:30
Íslensk kona lemur hest ítrekað með svipu Hrollvekjandi myndband sem Nicole Muller setti inn á Youtube sýnir konu berja hest ítrekað með svipu. Það er augljóst að fólkið á myndbandinu er íslenskt, en þar má meðal annars heyra karlmann tala íslensku við konuna. Hann segir meðal annars meira eftir að hún lemur hestinn ítrekað með svipu. 19.11.2012 21:10
Bubbi þakkar Jóni Ólafs umhyggju í sinn garð Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir á veggnum sínum á samskiptavefnum Facebook að ástæðan fyrir því að jólaplatan hans hafi verið frestað hafi verið vegna fyrirspurnar frá STEF, en sá sem spurði krafðist nafnleyndar, en Bubbi nafngreinir hann engu að síður á samskiptavefnum. 19.11.2012 21:00
Segir árásirnar á Palestínu hægfara þjóðarmorð - eldræða Ögmundar í heild sinni Ögmundur Jónasson hélt kröftuga ræðu á mótmælum fyrir utan bandaríska sendiráðið í kvöld, en þar gerði hann meðal annars orð innanríkisráðherra Ísraels, um að hann vildi sprengja Palestínu aftur til miðalda, að umtalsefni. 19.11.2012 20:13
Þrír vilja keppa um Norðfjarðargöng Útboðsferli Norðfjarðarganga er hafið og segir bæjarstjóri Fjarðabyggðar það mikil gleðitíðindi. Þrír verktakahópar óska eftir að bjóða í verkið. Göngin verða milli Eskifjarðar og Neskaupstaðar, 7,5 kílómetrar að lengd, en markmiðið samkvæmt matsáætlun er að styrkja byggðarlög á Austurlandi með því að tryggja greiðar samgöngur og auka umferðaröryggi. 19.11.2012 19:54
Sjálfhverfa kynslóðin: Gæti orðið rof í keðjunni Það kemur til með að hafa miklar afleiðingar að eignir heillar kynslóðar þurrkist út og gott betur. Þetta segir verkfræðingur sem reiknað hefur út að á meðan hrein eign Íslendinga á aldrinum 30 til 45 ára hafi horfið, hafi eignastaða þeirra sem eru 60 - 75 ára aukist mjög. 19.11.2012 19:01
Ögmundur hvetur Obama til þess að stöðva blóðbaðið Ögmundur Jónsson innanríkisráðherra tók þátt fjölmennum mótmælum við bandaríska sendiráðið síðdegis í dag sem félagið Ísland-Palestína skipulagði. Hann krefst þess að Bandaríkjamenn stöðvi blóðbaðið á Gaza. 19.11.2012 18:45
Almannavarnir: Hættu- og óvissustigi aflétt Búið er að aflétta hættu- og óvissustigi vegna snjóflóðahættu á norðanverðum Vestfjörðum og á Mið-Norðurlandi samkvæmt tilkynningu frá almannavörnum. 19.11.2012 17:42
Engin heimild var til staðar fyrir ríkisábyrgð handa Farice Ríkisendurskoðun átelur innanríkisráðuneytið fyrir óljós fjárframlög til Farice ehf., en alls hefur ríkissjóður veitt félaginu 4,2 milljarða króna í framlög frá árinu 2002 til 2011 og það er ljóst að félagið mun þurfa meira fé áður en yfir lýkur. 19.11.2012 17:17
Varð fyrir vonbrigðum með dóminn "Dómurinn er mér mikil vonbrigði og satt best að segja átti ég ekki von á að sannleikanum yrði snúið á hvolf jafn rækilega og raun ber vitni,“ segir Aron Karlsson. Hann var í dag dæmdur í tveggja ára fangelsi og til að greiða Íslandsbanka, Glitni og Arion banka um 160 milljónir króna i bætur vegna fjársvika tengdum fasteignaviðskiptum. "Niðurstaðan er byggð á röngum forsendum og mér finnst í þessu tilfelli að bankakerfið hafi fengið að njóta vafans í málinu en ég ekki,“ segir hann. 19.11.2012 17:01
Varnargirðing fyrir utan bandaríska sendiráðið Lögreglan hefur sett upp varnargirðingu fyrir utan bandaríska sendiráðið en yfir fimmtán hundruð manns hafa skráð sig á mótmæli fyrir utan sendiráðið sem hefjast núna klukkan fimm. Það er félagið Ísland-Palestína sem stendur fyrir mótmælafundinum. 19.11.2012 16:47
Lífsleikni Gillz ekki frumsýnd á föstudag Stórveldið hefur ákveðið að fresta sýningu á bíómyndinni Lífsleikni Gillz um óákveðinn tíma en frumsýna átti myndina á föstudaginn. 19.11.2012 16:19
Anderson Cooper illa brugðið Honum var illa brugðið, Anderson Cooper, fréttamanni CNN sjónvarpsstöðvarinnar, þegar hann varð vitni að sprengingu í beinni útsendingu í gærkvöldi þegar hann var við fréttaflutning þar. Ástandið á Gaza verður alvarlegra með hverjum deginum sem líður en Cooper var að segja fréttir af tíu manns sem höfðu farist í sperngingu þegar hann heyrði hvellinn. Hann fullyrðir að þetta sé ein mesta sprenging sem hann hafi heyrt síðan hann kom þangað. 19.11.2012 16:17