Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fjórtán þúsund skrifað undir Hátt í fjórtán þúsund manns hafa skrifað undir mótmæli gegn byggingu hótels við Austurvöll og menningarhúss á Ingólfstorgi á undirskriftasíðunni ekkihotel.is. 21.8.2012 04:00
Deila um flík leiddi til hópslagsmála Ungur maður er mjög lemstraður, skorinn og marinn í andliti eftir að hafa í tvígang orðið fyrir árás hóps manna aðfaranótt sunnudags. Árásarmennirnir, sem í fyrra skiptið voru þrír en hafði fjölgað um einn í það seinna, voru allir handteknir og yfirheyrðir. 21.8.2012 03:30
Bjóða nám í plastbátasmíði Fjölbrautaskóli Norðurlands vestra hefur í samvinnu við Siglingastofnun Íslands skipulagt nám í plastbátasmíði sem skólinn mun bjóða upp á í vetur. Námið er afrakstur samstarfsverkefnis sem styrkt er af Leonardo-hluta Menntaáætlunar Evrópusambandsins, en að því koma Nýsköpunarmiðstöð Íslands, Sveitarfélagið Skagafjörður og fleiri. 21.8.2012 03:30
Telur sig barnabarn Munchs 72 ára gömul bandarísk nunna fer líklega í DNA-próf á næstunni til að sannreyna hvort hún sé barnabarn listamannsins Edvards Munch. Norska ríkisútvarpið greindi frá þessu. 21.8.2012 02:30
Átrúnaðargoð blómakynslóðarinnar fallið frá Bandaríski söngvarinn og hippinn Scott McKenzie lést í dag, 73 ára að aldri. Hann er þekktastur fyrir flutning sinn á laginu San Francisco (Be Sure to Wear Flowers in Your Hair) en það sló í gegn árið 1967. 20.8.2012 23:14
"Tony var vinur minn og ég mun sakna hans" Talið er að breski kvikmyndagerðarmaðurinn Tony Scott, sem svipti sig lífi í gær, hafi nýlega verið greindur með ólæknandi heilakrabbamein. Það er bandaríska fréttastofan ABC sem greinir frá þessu. 20.8.2012 22:09
Sólgos ná hámarki vorið 2013 "Sólgos geta bæði haft alvarleg áhrif og lítil áhrif. Það er auðvitað eðlilegt að yfirvöld og ríkisstjórnir undirbúi það að eitthvað alvarlegt gerist. Það er aldrei að vita hvað gerist.“ 20.8.2012 21:45
Fjarstæðukenndar ásakanir Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) telja ásakanir Hagsmunasamtaka heimilanna um lögbrot fjarstæðukenndar - en Hagsmunasamtökin hafa óskað eftir tafarlausri rannsókn á aðkomu SFF að samráði bankanna um gengisdóma. 20.8.2012 21:15
Vilja óháða rannsókn Forsvarsmenn Eimskips segja miklu minna magn olíu hafa lekið úr Goðafossi en norsk yfirvöld halda fram. Talsmaður Stofnunar hafs og strandar í Noregi segir Eimskip fá gögn með niðurstöðum rannsókna með haustinu. Upphæð skaðabótakröfunnar geti breyst. 20.8.2012 20:45
Skólakerfið ekki aðlagast tæknibreytingum Forseti menntavísindasviðs Háskóla Íslands segir íslenska skólakerfið ekki hafa tekið nægilega miklum breytingum samhliða tæknibyltingunni og þróun spjaldtölva og snjallsíma. Hann telur tregðu ríkja í kerfinu og breyta þurfi kennsluaðferðum í takt við nýja tíma. 20.8.2012 20:00
Burðardýrið frá Lettlandi og ekki vitað hver skipulagði smyglið Pakki sem innihélt um 700 grömm af kókaíni fannst undir hárkollu sem saumuð hafði verið rækilega við hár rúmlega fertugrar lettneskrar konu sem kom með flugi til Íslands frá Spáni. Hún situr nú í gæsluvarðhaldi. Talið er að efnið hafi verið ætlað til sölu hér á landi og að konan sé burðardýr. 20.8.2012 18:30
Mataræði á kynþroskaskeiðinu hefur áhrif á myndun krabbameins Það hvað strákar borða á kynþroskaskeiðinu hefur áhrif á það hvort þeir fái blöðruhálskrabbamein síðar á ævinni. Þetta sýnir ný íslensk rannsókn. 20.8.2012 18:30
Of fáir notuðu nemakort Strætó Nú þegar skólastarf á landinu er að hefjast reka framhalds- og háskólanemar sig á að verð á nemakortum í strætó hefur nánast tvöfaldast frá því í fyrra. Einar Örn Benediktsson, stjórnarmaður Strætó, segir að ákvörðunin hafi verið nauðsynleg þar sem of fáir nemendur notuðu kortið. 20.8.2012 17:06
Ofbeldismenn sem meiða börn eru oftast undir áhrifum áfengis Um 68% þeirra ofbeldismanna sem starfsmenn barnaverndar og lögregla hafa afskipti af vegna heimilisofbeldis gagnvart börnum eru undir áhrifum áfengis. Þetta sýna bráðabirgðaniðurstöður rannsóknar sem unnið er að á vegum Barnaverndastofu. 20.8.2012 16:44
Stöðvuð með kókaín saumað fast í hársverðinum Pakki sem innihélt um 700 grömm af kókaíni fannst undir hárkollu sem saumuð hafði verið rækilega við hár rúmlega fertugrar sem kom með flugi til Íslands frá Spáni. Hún situr nú í gæsluvarðhaldi. Talið er að efnið hafi verið ætlað til sölu hér á landi og að konan sé burðardýr. Hún hefur áður komið til landsins en þá ekki komið við sögu hjá lögreglu. Konan situr í gæsluvarðhaldi til 23. ágúst næstkomandi. 20.8.2012 15:56
Frumvarp um flýtimeðferð gengislána naut aldrei stuðnings stjórnarliða Frumvarp þingmanns Sjálfstæðisflokksins um flýtimeðferð gengislánamála fyrir dómstólum var þrívegis flutt en málið hlaut aldrei hljómgrunn meðal stjórnarþingmanna. Formaður flokksins segir að núverandi óvissuástand varðandi gengislánin fyrir dómstólum sé því heimatilbúinn vandi. 20.8.2012 13:02
Harma tvöföldun á verði nemakorta í strætó Ung vinstri græn á höfuðborgarsvæðinu harma þá ákvörðun Strætó að hækka verð á nemakortum. Þeir segja forsendu þess að nemar ferðist á umhverfisvænan máta að kortin séu á lágu verði. 20.8.2012 15:52
Múslimar brjóta föstu sína Múslimar víðs vegar um heim brutu föstu sína í gær þegar heilagi mánuðurinn Ramadan kláraðist. Nú halda múslimar upp á hátíðina Eid al-Fitr, sem markar lok föstunnar, með miklum veislum, gleði og bænahaldi. Á myndinni hér til hliðar stendur blöðrusali nærri mosku í Pakistan tilbúinn að selja múslimum blöðrur eftir bænagjörð. 20.8.2012 15:28
Mánudagar eru ekki verstu dagar vikunnar Fólk stendur almennt í þeirri trú að því sé sérstaklega illa við mánudaga og það séu verstu dagar vikunnar. Vísindamenn hafa nú sýnt fram á að þessi almenna sannfæring er röng. Fólki er í raun jafnilla við alla aðra vikudaga að föstudögum undanskildum. 20.8.2012 15:15
Auglýstu á Netinu eftir eggjagjafa Hundrað manns bíða eftir því að komast í tæknifrjóvgun og getur oft verið erfitt að finna egg. Barnlaust par um fertugt sem bíður eftir tyæknifrjóvgun ákvað að auglýsa á Netinu eftir eggjagjafa. Þau segja að sitt hjartans mál sé að eignast barn saman og það hafi þau reynt í nokkur ár. 20.8.2012 14:38
Þörf á almennilegri meðferð fyrir fanga með áfengissýki Helsta heilbrigðisvandamál fanga á Íslandi er áfengis- og vímuefnasýki. Þetta segir Gunnar Smári Egilsson, formaður SÁÁ. Áætlað er að 75-85% fanga séu haldnir sjúkdómnum og langfæstir þeirra hafa aðgang að læknaþjónustu vegna vandans. 20.8.2012 14:12
Ráðherra leitar að dagmömmu Katrín Júlíusdóttir alþingismaður og iðnaðarráðherra er væntanleg aftur til starfa úr fæðingarorlofi með haustinu. Alþingi verður sett aðra vikuna í september og eftir því sem Vísir kemst næst ætlar Katrín að taka þátt í þingstörfum af fullum krafti. Til marks um það auglýsir Katrín eftir dagmömmu á facebooksíðu sinni í dag. 20.8.2012 13:42
Karlar sem beita heimilisofbeldi leita sér hjálpar Frá árinu 2006 hafa 144 karlar nýtt sér þjónustu verkefnisins Karlar til ábyrgðar og komið í stuðningsviðtöl. Viðtölin eru hugsuð fyrir karlmenn sem beita heimilisofbeldi og vilja hætta því og taka ábyrgð á eigin ofbeldishegðun. Gerendurnir geta valið um einstaklings- eða hópmeðferð. 20.8.2012 13:25
Fimm handteknir vegna líkamsárása í Reykjanesbæ Fimm karlmenn hafa verið handteknir vegna líkamsárása sem áttu sér stað í Reykjanesbæ um helgina. Einn þeirra var handtekinn og yfirheyrður vegna innbrots í hús í Reykjanesbæ í fyrrinótt, þar sem ráðist var á húsráðanda. Þá hefur lögreglan á Suðurnesjum handtekið og yfirheyrt fjóra karlmenn í kjölfar hópslagsmála í Hafnargötu í Reykjanesbæ um helgina, þar sem nokkrir menn réðust á einn og slösuðu hann. Lögreglan vinnur að rannsókn þessara tveggja ofangreindu mála. 20.8.2012 13:22
Tony Scott stökk fram af brú Yfirvöld í Bandaríkjunum hafa staðfest að Tony Scott, leikstjóri, hafi látist við að stökkva fram af Los Angeles brúnni. Málið er rannsakað sem sjálfsmorðsmál. Nokkrir einstaklingar hringdu í neyðarlínu Bandaríkjanna, 911, á svipuðum tíma og tilkynntu að einhver hefði stokkið fram af brúnni. Síðar fundust sjálfsmorðsbréf á skrifstofu hans. The New York Times greinir frá þessu. 20.8.2012 13:01
Búist við góðri gæsaveiði Gæsaveiðitímabilið hófst í morgun og er búist við góðri veiði. Varp heiðargæsar og grágæsar gekk mjög vel í sumar og búast má við óvenju sterkum veiðistofnum. 20.8.2012 12:03
Íslenskt forrit upplýsir áhorfendur um allt í kvikmyndinni Íslenskt forrit fyrir snjallsíma og tölvur sem fylgist með kvikmyndum um leið og maður horfir á þær og veitir upplýsingar um allt sem kemur þar fyrir er nú í þróun. Fyrirtækið Stream Tags sem hannar forritið tók þátt í nýsköpunarverkefninu Startup Reykjavík í sumar og kynnti afraksturinn fyrir fjárfestum á síðasta föstudag. Nú standa yfir viðræður við fjárfesta og aðra sem vilja koma að verkefninu en stefnan er sett á Bandaríkin. 20.8.2012 11:58
Skólakrakkar bera með sér nýjar hættur í umferðinni Flestir grunnskólar landsins hefja störf í vikunni og því bætast margir ungir vegfarendur í umferðina. Þá er mikilvægt að ökumenn hugi sérstaklega að þessum nýliðum í umferðinni og séu meðvitaðir um þá, sérstaklega inni í íbúðarhverfum. Í myndbandinu hér að ofan rennir Umferðarstofa yfir helstu atriðin sem skipta máli þegar þessir óreyndu einstaklingar leggja af stað út í umferðina. 20.8.2012 11:25
Mikael Torfason ritstýrir Fréttatímanum "Þetta leggst bara mjög vel í mig. Það eru fimm ár síðan ég starfaði síðast við fjölmiðla, þannig ég kem til baka núna í þvílíku formi og mjög sáttur,“ segir Mikael Torfason, sem hefur verið ráðinn annar tveggja ritstjóra Fréttatímans. Hann sest við hlið Jónasar Haraldssonar, sem ritstýrir blaðinu nú. 20.8.2012 11:11
Í upphafi skyldi ð-ið skoða Þótt flestar bækur séu fullar af bókstöfum fá fæstir bókstafir skrifaða um sig heila bók. Í ð-ástarsaga, sem kemur út á vegum Crymogeu í haust, er saga samnefnds bókstafs rakin í máli og myndum. 20.8.2012 10:22
Lítill árangur af rannsókn nauðgunarmála úr Eyjum Rannsókn í tveimur af þeim þremur nauðgunarmálum sem upp komu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum hefur engan árangur borið. Meintur gerandi hefur hins vegar fundist í þriðja málinu en ekki hefur verið tekin ákvörðun um ákæru. 20.8.2012 10:14
Sakaður um að hafa bitið lögreglumann Garry Kasparov, fyrrum heimsmeistari í skák, var yfirheyrður af lögreglunni í Moskvu, höfuðborg Rússlands, í morgun en hann er sakaður um að hafa bitið lögreglumann í mótmælum þegar dómur var kveðinn upp fyrir stúlkna-pönk-hljómsveitinni Pussy Riot í síðustu viku. 20.8.2012 10:07
Ekvador heitið stuðningi vegna hótana Breta Ríki í Suður-Ameríku hafa heitið Ekvador stuðningi í deilu þeirra við Suður Ameríku. Bresk stjórnvöld eru sögð hafa haft í hótunum við Ekvador vegna ákvörðunar um að veita Julian Assange pólitískt hæli. Assange hefur búið í sendiráði Ekvadors í London frá því í júní og í síðustu viku var ákveðið að veita honum hæli. Hann kemst þó ekki úr sendiráðinu vegna þess að Bretar hafa sagst ætla að handtaka hann um leið og hann fer úr sendiráðinu. 20.8.2012 10:06
Árborgarstrætó verður ekki lengur ókeypis Í næstu viku hefst gjaldtaka í strætóferðum milli Selfoss, Eyrarbakka og Stokkseyrar í fyrsta sinn. Vegna skólasetninga á svæðinu í þessari viku var ákveðið að hefja ekki gjaldtöku fyrr en á mánudaginn næsta. 20.8.2012 09:42
Hljóp tíu kílómetra í annað sinn á hækjum „Ég var alla vega ekki síðastur í mark,“ segir Arnar Vilhjálmsson tölvunarfræðingur sem vakti mikla athygli í Reykjavíkurmaraþoninu á laugardag en hann var sá eini sem hljóp tíu kílómetra á hækjum. 20.8.2012 09:00
The Expendables 2 þénaði 3,5 milljarða um helgina Kvikmyndin The Expendables 2 var tekjuhæsta myndin í Bandaríkjunum um helgina. Tekjur myndarinnar námu tæpum 29 milljónum bandaríkjadala, eða sem samsvarar 3,5 milljörðum íslenskra króna. 20.8.2012 08:05
Handtóku þroskahefta stelpu fyrir að vanhelga Kóraninn Pakistanska lögreglan handtók um helgina ellefu ára gamla, þroskahefta stelpu, eftir að hópur folks í landinu sakaði hana um að hafa vanhelgað Kóraninn, trúarrit múslima. Hópurinn hótaði að brenna heimili kristinna manna fyrir utan Islamabad, höfuðborg landsins, en stúlkan er kristinnar trúar. 20.8.2012 07:47
Stór hluti flugeldanna fór ekki á loft Mannleg mistök urðu líklega til þess að flugeldasýningin á menningarnótt varð ekki eins vegleg og til stóð. "Ein röð af tívolíbombunum fór ekki á loft og fyrir vikið varð sýningin rosalega hæg í byrjun," segir Hilmar Már Aðalsteinsson, sem situr í stjórn Hjálparsveita skáta. 20.8.2012 07:41
Lyf ekki alltaf besti kostur gegn of háum blóðþrýstingi Lyfjameðferð gegn mildum háþrýstingi hefur takmarkaðan árangur í för með sér og bættir lifnaðarhættir eru vænlegri til árangurs. Þetta kemur fram í nýrri grein í British Medical Journal. Prófessor í læknisfræði við Háskóla Íslands (HÍ) segir að ef farið verði eftir tilmælum sem sett eru fram í greininni gæti það haft áhrif á meðferð tugþúsunda Íslendinga og skilað sparnaði í heilbrigðiskerfinu. 20.8.2012 07:38
Báðust afsökunar á veðurspánni Veðurfréttamenn BBC fréttastofunnar báðust í gær afsökunar á því að hafa spáð rangt fyrir um veðrið. Í síðustu viku höfðu veðufréttamennirnir sagt frá því að von væri á sólskini og hlýju veðri á sunnudeginum. Það gerði hins vegar úrhellisrigningu á suðausturhluta Englands í gær. 20.8.2012 07:28
Fjögur ár frá flugslysinu í Madríd Í dag eru fjögur ár liðin frá því að flugvél frá Spanair-flugfélaginu hrapaði á Madrídarflugvelli með þeim afleiðingum að 154 fórust. 20.8.2012 07:22
Banaslys á Sandskeiði Miðaldra karlmaður lést af sárum sínum á gjörgæsludeild Landsspítalans eftir að hann féll á torfæruhjóli á æfingasvæði skammt frá Sandskeiði í gærkvöldi. Hann var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahúsið, en lést þar skömmu síðar. Tildrög slyssins liggja ekki fyrir og óljóst er hvort einhver vitni urðu að slysinu. 20.8.2012 06:58
Gæsaveiðitímabilið hófst í morgun Gæsaveiðitímabilið hófst í morgun og er búist við góðri veiði, samkvæmt heimasíðu Skotveiðifélagisns. Þar segir að varp heiðargæsar og grágæsar hafi gengið mjög vel í ár og búast megi við sterkum veiðistofnum. Það færist í vöxt að landeigendur leigi út veiðilendur og sagði gæsaveiðimaður í viðtali við Fréttastofu að menn ættu að hafa samband við landeigendur, áður en þeir hefja veiðar.- 20.8.2012 06:50
Nýr meirihluti kynntur í dag Viðræður framsóknarmanna við fulltrúa Grindavíkurlistans og Samfylkinguna um myndun nýs meirihluta í bæjarstjórn Grindavíkur hafa staðið yfir alla helgina, og er stefnt að því að kynna nýjan meirihluta í dag. Meirihluti framsóknarmanna og sjálfstæðismanna sprakk í síðustu viku, meðal annars vegna deilna um uppbyggingu íþróttamannvirkja og sölu á félagsheimilinu Festi. 20.8.2012 06:48
Tony Scott látinn Breski leikstjórinn Tony Scott er látinn sextíu og átta ára að aldri. Samkvæmt fréttastofunni AP sást leikstjórinn klifra upp á grindverk á Vincent Thomas-brúnni í Kaliforníu í gær og hoppa niður. Bandaríska strandgæslan fann svo lík leikstjórans með hitamyndavélum í nótt og bíl hans skammt frá brúnni. Scott var þekktastur fyrir að hafa gert bíómyndir á borð við Top Gun og Days of Thunder. Hann var bróðir leikstjórans Ridley Scott. 20.8.2012 06:22