Deila um flík leiddi til hópslagsmála 21. ágúst 2012 03:30 Helgin var nokkuð annasöm hjá lögreglunni á Suðurnesjum. Fréttablaðið/gva
Ungur maður er mjög lemstraður, skorinn og marinn í andliti eftir að hafa í tvígang orðið fyrir árás hóps manna aðfaranótt sunnudags. Árásarmennirnir, sem í fyrra skiptið voru þrír en hafði fjölgað um einn í það seinna, voru allir handteknir og yfirheyrðir. Ástæða barsmíðanna, að sögn Jóhannesar Jenssonar, yfirmanns rannsóknardeildar lögreglunnar á Suðurnesjum, var sú að einn fjórmenninganna taldi að sá sem fyrir ofbeldinu varð væri klæddur í peysu eða jakka í sinni eigu. Ekki liggur fyrir hvort það átti við rök að styðjast en hann fann sig alltént knúinn til að hefna þess og freista þess að endurheimta flíkina. Við það fékk hann aðstoð félaga sinna, en í seinna skiptið þurftu þeir einnig að halda aftur af vinafólki fórnarlambsins, sem reyndi að koma því til hjálpar. Alls tóku sjö þátt í slagsmálunum þegar mest lét. Málið er enn í rannsókn. Á svipuðum tíma braust hálfþrítugur maður inn í íbúðarhús í bænum og gekk í skrokk á húsráðanda sem hafði vaknað við ólætin þegar húsbrjóturinn mölvaði rúðuna í útidyrunum. Svo virðist sem hann hafi ætlað að gera upp sakir við mann sem reyndist alls ekki vera á staðnum. - sh
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Leigubílstjóri lét hnefana tala Búið að opna Hellisheiði á ný Sjá meira