Fleiri fréttir

Vöxtum verði haldið í lágmarki

Inngrip Seðlabanka Evrópusambandsins í skuldavanda evruríkjanna verða líklega fólgin í því að bankinn kaupi upp hluta af skuldum skuldugustu ríkjanna, og haldi með því vöxtum á öðrum skuldum ríkjanna niðri.

Árangur undir öðrum kominn

„Vandamálið er ekki hvað ég get gert öðruvísi, heldur hvernig hinir ætla að hegða sér öðruvísi,“ segir Lakhdar Brahimi, nýr friðarerindreki Sameinuðu þjóðanna og Arababandalagsins í Sýrlandi.

Veita ráðgjöf við virkjanagerð

Landsvirkjun Power og Verkís hafa tryggt samning um verkfræðiráðgjöf við georgíska fyrirtækið Machakhela HPP 1 LLC við smíði tveggja vatnsaflsvirkjana. Fyrirtækin urðu hlutskörpust í útboði á verkefninu.

Ungfrú heimur kemur frá Kína

Kínverska fegurðardrottningin Yu Wenxia var kjörin ungfrú heimur í við hátíðlega athöfn í borginni Ordos í Kína um helgina. Þetta er aðeins í annað skiptið sem kínversk stúlka hlýtur titilinn en síðast gerðist það árið 2007.

Þung umferð þegar skólarnir byrja

Grunnskólar hefja störf í þessari viku og því má búast við stóraukinni umferð á morgnana og síðdegis. Lögregla mun á sama tíma auka sýnilegt eftirlit á stofnæðum höfuðborgarsvæðisins og í íbúðahverfum í nágrenni við grunnskóla. Markmiðið er sem fyrr að minna ökumenn á að fara varlega í umferðinni.

Spjaldtölvur og snjallsímar gjörbreyta kennsluaðferðum

Dr. William Rankin kennir ensku og miðaldafræði við Abilene Christian University í Texas og á 25 ára starfsferil að baki sem kennari. Hann flutti erindi á skólaráðstefnu sem fór fram fyrir helgi á vegum epli.is. Fyrir fimm árum fór hann að tileinka sér nýja kennsluhætti með tilkomu spjaldtölva og snjallsíma og hefur hlotið fjölda verðlauna fyrir frumkvöðlastarf sitt.

Vikulöng þjóðarsorg í Suður-Afríku hefst á morgun

Vikulöng þjóðarsorg hefst á morgun í Suður-Afríku eftir að 34 verkamenn í hvítagullsnámu nærri Jóhannesborg voru drepnir af lögreglumönnum. Jacob Zuma, forseti Suður-Afríku, sagði íbúa landsins brugðið í miklum sárum eftir átökin.

Ofursnekkja í Reykjavík - Paul Allen kominn aftur?

Risasnekkjan Octopus er komin aftur hingað til lands. Snekkjan er í eigu auðkýfingsins Paul Allens sem er annar stofnanda Microsoft. Snekkjan kom hingað til lands í morgun og er vel sýnileg ökumönnum og gangandi vegfarendum á Sæbrautinni.

Segir breska lögreglu hafa farið inn í sendiráðið í vikunni

Stofnandi WikiLeak, Julian Assange, hélt ræðu á svölum sendiráðs Ekvadors í Lundúnum í dag. Þar sagði hann meðal annars að breska lögreglan hefði farið inni í sendiráðið á miðvikudagskvöldinu vegna ótilgreindrar ógnar. Assange segist hafa heyrt í lögreglumönnum í brunastiganum inni í húsinu á leiðinni upp á hæðina til hans.

Þótti sérviskulegt að hlaupa í vegarköntum

Þegar Sigurður P. Sigmundsson sást hlaupa í vegarköntum á áttunda áratugnum þótti það sérviskulegt. Nú eru allir úti að hlaupa. Sigurður á sinn þátt í því, hann hefur verið óþreytandi að þjálfa og aðstoða við skipulagningu langhlaupa og er nýbúinn að halda erindi hjá fyrirtæki í borginni í tilefni Reykjavíkurmaraþons þegar hann mætir í viðtal við Gunnþóru Gunnarsdóttur.

Hátt í 80 jarðskjálftar um helgina

Hátt í áttatíu skjálftar hafa mælst síðan á föstudaginn en sá stærsti mældist nærri Goðabungu nærri Mýrdalsjökli en hann var 3,8 á richter samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.Töluvert var svo um minni skjálfta á svipuðu svæði en ekkert í líkingu við þann stóra.

Mikið um sjúkraflutninga - slökkvilið ánægt með Menningarnótt

Mikið hefur verið um sjúkraflutninga hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu um helgina. Menningarnótt tókst þó vel til að mati slökkviliðsmanna en þar gerði muninn að sjúkraflutningamenn voru á litlum vélhjólum í miðbænum og gátu þannig komist auðveldlega á milli í mannhafinu.

Skipuleggjendur Menningarnætur í skýjunum

Verkefnastjóri menningarnætur er í skýjunum eftir gærkvöldið og segir allt hafa gengið að óskum. Það hafi hjálpað til að fólk mætti snemma í bæinn og hafi verið til fyrirmyndar.

Ræddu við sendiherra Rússlands áður en dómur féll í Pussy Riot málinu

Íslensk stjórnvöld komu áhyggjum sínum af máli kvennanna í Pussy Riot á framfæri við rússnesk stjórnvöld áður en dómur féll í máli þeirra á föstudag. Engin ákvörðun hefur verið tekin um að bregðast við dómnum sjálfum en utanríkisráðherra skorar á yfirvöld að fella dóminn úr gildi.

Jón Gnarr: Stærsta vandamál borgarinnar eru bílar

"Ég tel að stærsta vandamál Reykjavíkur og þá sérstaklega miðbæjarins, sé bílaumferð,“ sagði Jón Gnarr borgarstjóri Reykjavíkur í viðtali við Sigurjón M. Egilsson í útvarpsþættinum Sprengisandi á Bylgjunni í morgun.

Uppblásna íþróttahúsið vígt í dag

Fyrsta uppblásna íþróttahúsið sem hefur verið reist, hér á landi, eða blásið upp öllu heldur, verður vígt í Hveragerði klukkan þrjú í dag. Húsið er 5.100 fermetrar og er fjölnota íþróttahús. Íþróttahúsið kostaði 300 milljónir.

Þjóðernissinnar flögguðu á Senkaku

Japanskir þjóðernissinnar tóku í gær land á umdeildum eyjaklasa í austur Kínahafi en Japanir deila hart við Kínverja um yfirráð yfir eyjunum.

Braust inn og réðst á húsráðanda

Brotist var inn í hús í Reykjanesbæ í nótt. Karlmaður braut glugga á útihurð og komst þannig inn. Húsráðandi vaknaði við lætin og mætti manninum í anddyrinu. Sá sem braust inn réðst þá á húsráðandann og urðu nokkur átök inn í húsinu. Húsráðandanum tókst svo að stökkva manninum á flótta. Lögreglan hefur ekki fundið manninn og er hans enn leitað. Ekki er vitað hvað honum gekk til með athæfi sínu.

Mikið um líkamsárásir eftir Menningarnótt

Alls voru níu líkamsárásir tilkynntar til lögreglunnar í nótt. Allar árásirnar áttu sér stað í miðborg Reykjavíkur eftir Menningarhátíðina í gærkvöldi. Einn ofbeldismaður var vistaður í fangageymslu eftir líkamsárás á gatnamótum Laugavegs og Klapparstígs.

Rússneskir prestar fyrirgefa Pussy Riot

Háttsettir prestar í rússnesku rétttrúnaðarkirkjunni báðu í dag um miskunn til handa liðsmanna Pussy Riot hljómsveitarinnar. Samkvæmt fréttavef AP þá er ekki talið líklegt að dómskerfið hlusti á bænir prestanna og mildi tveggja ára dóm sem konurnar þrjár hlutu í gær.

Assad í fyrsta sinn á opinberum vettvangi síðan í júlí

Bashar al-Assad, Sýrlandsforseti, birtist í landinu í fyrsta sinn opinberlega síðan í júlí þegar hann mætti í mosku í höfuðborginni Damaskus í gærmorgun. Með honum auk öryggisvarða voru forsætisráðherra landsins en varaforseti landsins var hvergi sjáanlegur.

Assange með yfirlýsingu í dag

Búist er við því að Julian Assange, forsprakki Wikileaks, gefi út yfirlýsingu í dag á tröppum sendiráðs Ekvadors í Lundúnum klukkan eitt í dag. Mál hans hefur vakið harðar deilur en Assange, sem átti að framselja til Svíþjóðar frá Bretlandi, fékk á dögunum pólitískt hæli í Ekvador.

"Veðrið er svo gott og það eru bara allir í góðu skapi“

"Þetta er alveg frábært,“ segir Guðmundur Birgir Halldórsson, viðburðarstjórnandi Menningarnætur um hátíðina sem hefur heppnast einstaklega vel. Um fimmtíu þúsund manns voru í miðbænum síðdegis og ekki óvarlega áætlað að fjöldinn nái hundrað þúsund þegar hátíðin nær hápunkti með flugeldasýningu klukkan ellefu í kvöld.

Skjálftahrina í Krísuvík

Skjálftahrina hefur verið á Krísuvíkursvæðinu. Um er að ræða smáa skjálfta en þeir eru allir undir einum á richter samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands.Skjálftarnir eru á annan tug og byrjaði hrinan skömmu fyrir fjögur í dag. Skjálftavirkni á svæðinu er mikil og skjálftahrinan nú þykir ekki óeðlileg. Sérfræðingar á veðurstofunni munu hinsvegar fylgjast vel með framgangi mála.

Borgartréð 112 ára gamall Gljávíðir

Jón Gnarr, borgarstjóri, útnefndi 112 ára gamlan Gljávíði sem borgartré við athöfn í garði Hressingarskálans við Austurstræti í dag. Garðurinn við Hressingarskálann er einn þekktasti einkagarður frá lokum nítjándu aldar og stóð við hús Árna Thorsteinssonar landfógeta í Reykjavík frá 1862. Garðurinn var nýttur til skrauts og nokkurra nytja og var jafnan kallaður Landfógetagarðurinn.

Um fimmtíu þúsund manns í miðbænum

Um fimmtíu þúsund manns eru komnir niður í miðbæ Reykjavíkur að sögn lögreglumannsins Ágústs Svanssonar, sem sér meðal annars um samhæfingu aðgerða lögreglu og björgunarsveita.

Brahimi tekinn við af Kofi Annan

Alsírski diplómatinn og fyrrum hermaðurinn Lakhdar Brahimi hefur tekið við sem erindreki Sameinuðu Þjóðanna og Arababandalagsins í Sýrlandi eftir að Kofi Annan sagði starfinu lausu.

Íslandsmót í hrútaþuklun

Í dag hefst Íslandsmót í hrútaþuklun á Sauðfjársetrinu í Sævangi á Ströndum. Keppt er bæði í flokki reyndra þuklara og þeirra sem eru óvanir. Með hrútaþukli reyna menn að meta gæði hrúta með hendurnar einar að vopni.

Tíu og tólf ára drengir kveiktu óvart í Fellaskóla

Tveir tíu og tólf ára gamlir drengir kveiktu í Fellaskóla á áttunda tímanum í gærkvöldi. Allt tiltækt slökkvilið var kallað út þegar tilkynning barst um eldsvoðann en það tók slökkviliðsmenn stuttan tíma að ráða niðurlögum eldsins.

Mikil hætta af lögbrjótum í miðbænum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu vill beina því til fólk að nýta sér strætó í dag en ókeypis er í vagnana í dag. Lögreglan brýnir einnig fyrir ökumönnum að virða lokanir á götum, en brögð eru af því að fólk hafi ekið gegn lokunum og þannig skapað mikla hættu.

Tveir hlauparar fluttir á sjúkrahús

Það er töluverður reytingur hjá slökkviliðnu á höfuðborgarsvæðinu en samkvæmt varðstjóra þá hefur Menningarnótt gengið stóráfallalaust fyrir sig enn sem komið er.

Latabæjarhlaupið hafið

Latabæjarhlaupið hófst 13:30 þegar íþróttaálfurinn sjálfur ræsti hlaupið. Fjöldi barna tekur þátt en tveggja til fimm ára gömul börn hlaupa 550 metra en sex til átta ára gömul börn hlaup 1,3 kílómetra.

Arnar vann aftur í heilu maraþoni

Metfjöldi þátttakenda tók þátt í Reykjavíkurmaraþoninu í morgun en yfir þrettán þúsund manns hlupu hinar ýmsu vegalengdir. Arnar Pétursson sigraði annað árið í röð í heilu Maraþoni eftir ótrúlegan endasprett. Arnar var tæpri einni og hálfri mínútu á eftir Piotr Karolczak frá Póllandi þegar fimm kílómetrarar voru eftir. Arnar kom í mark á tveimur klukkustundum, 41 mínútu og tveimur sekúndum og var 10 sekúndum á undan næsta manni.

Ben Stiller myndaði íslenska maraþonhlaupara

Stórstjarnan Ben Stiller var við Reykjavíkurhöfn í morgun þegar hann sá hlaupara í Reykjavíkurmaraþoni hlaupa framhjá. Leikarinn segir á Twitter síðu sinni að hann hafi verið að fara að finna hentuga tökustaði fyrir kvikmynd sína, The secret life of Walter Mitty þegar hann sá hóp maraþonhlaupara fara hjá. Hann greip því farsímann og tók meðfylgjandi mynd af hlaupurunum, sem brostu vingjarnlega til stórleikarans.

Russell Crowe spilar meðal annars á Gamla Gauknum í kvöld

Stórleikarinn og tónlistarmaðurinn Russell Crowe mun ásamt samstarfsfélaga sínum, Alan Thomas Doyle, koma fram á afmælisballi Gamla Gauksins á Menningarnótt. Þetta er líklega í fyrsta skiptið sem stórstjarna úr kvikmyndageiranum heldur tónleika á Menningarnótt í Reykjavík.

Ölvaður ökumaður velti bíl og slasaðist

Bílvelta varð um miðnætti í gær á Skeiðavegi við bæinn Bitru. Ungur ökumaður missti stjórn á bifreið sem fór fjórar veltur áður en hún stöðvaðist. Ökumaður var ásamt þremur farþegum í bílnum. Allir sluppu án stórfelldra áverka og voru komnir út úr bílnum þegar lögreglu bar að garði. Þeir voru þó sendir til aðhlynningar á slysadeild í Reykjavík.

Sjá næstu 50 fréttir