Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Brúnin er að lyftast á Íslendingum Íslendingar hafa orðið sífellt ánægðari með sinn hag síðustu misseri. Fleiri Íslendingar segjast dafna og færri eiga í basli en áður og þá hefur andleg líðan farið batnandi. Þetta leiðir ný könnun Capacent Gallup á líðan Íslendinga í ljós en Capacent hefur mælt stöðu og andlega líðan Íslendinga frá því í maí 2010. 8.6.2012 07:00
Norðmenn íhuga harðar aðgerðir vegna makríldeilunnar Norsk stjórnvöld íhuga harðar aðgerðir gegn Íslendingum og Færeyingum vegna makríldeilunnar, að því er Fiskifréttir greina frá. 8.6.2012 06:59
Helmingur veiðigjalds renni til þeirra sem afla teknanna Stjórn Samstöðu, flokks lýðræðis og velferðar, leggur til að helmingur af veiðigjaldi, hið minnsta, renni aftur til þeirra svæða þar sem teknanna er aflað til að styðja við uppbyggingu og innviði samfélaga á landsbyggðinni og atvinnusköpun þar. 8.6.2012 06:56
Romney gengur betur í fjáröflun en Obama Mitt Romney aflaði sér meira fjármagns í kosningasjóði sína í maí en Barack Obama bandaríkjaforseti. 8.6.2012 06:51
Kínamúrinn yfir tvöfalt lengri en áður var talið Kínamúrinn er meir en tvöfalt lengri en áður var talið. Þetta segja kínversk stjórnvöld sem nýlega létu endurmæla múrinn. 8.6.2012 06:49
Mikið um ölvunar- og fíkniefnaakstur Ölvaður ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Sandgerðisvegi í gærkvöldi með þeim afleiðingum að bíllinn fór út af veginum og valt. 8.6.2012 06:48
Nakinn fréttamaður flúði frá Kristjaníu Fréttamaður frá dönsku sjónvarpsstöðinni TV2 lenti í miklum vandræðum í Kristjaníu í Kaupmannahöfn í gær. 8.6.2012 06:38
Kostnaðurinn margfaldur eftir nokkur ár Kostnaður ríkisins er margfalt meiri ef vegir fá að grotna niður. Vegamálastjóri segir viðhald þjóðvega komið niður fyrir lágmarksþröskuld. Vegakerfið er að hrynja undan okkur, segir Ólafur Guðmundsson, fulltrúi EuroRAP á Íslandi. 8.6.2012 06:30
Varast gullgrafaraástand í ferðaþjónustu Ör fjölgun ferðamanna hér á landi er verkefni sem nauðsynlegt er að horfast í augu við, að mati Ólínu Þorvarðardóttur, þingmanns Samfylkingar. 8.6.2012 06:00
Telur nauðsynlegt að framselja meiri völd Spánverjum tókst að selja ríkisskuldabréf fyrir 2,1 milljarð evra í gær, aðeins fáeinum dögum eftir að fjárhagsvandræði spænskra banka juku enn á óvissuna á evrusvæðinu. 8.6.2012 05:00
Hillary Clinton ítrekar að Assad verði að víkja Hrottasveitir Sýrlandshers sagðar hafa myrt flesta þorpsbúa í Qubair í kjölfar loftárása á þorpið. Einungis örfáum tókst að komast undan og skýra frá því sem gerðist. Clinton ómyrk í máli um ofbeldið í Sýrlandi. 8.6.2012 03:00
Geta um frjálst höfuð strokið Varðstöðvar, eftirlitsmyndavélar og annar viðbúnaður er horfinn úr þorpinu þar sem blindi andófsmaðurinn Chen Guangcheng var hafður í stofufangelsi í tæp tvö ár. 8.6.2012 02:00
Nú fundin 147 árum síðar Sagnfræðingar í Bandaríkjunum hafa nú fundið læknaskýrslur um dauða Linc-olns, en þær hafa verið týndar í 147 ár. Lincoln dó árið 1865, þegar hann varð fyrir skoti morðingja í leikhúsi í Washington. 8.6.2012 00:00
Sumarbústaður við Elliðavatn alelda Slökkviliðsmenn berjast nú við eld í sumarbústað við Elliðavatn, Norðlingaholtsmegin. Samkvæmt upplýsingum frá varðstjóra er bústaðurinn alelda en hann stendur á svokölluðum Selásblett. Enginn hefur fundist inni í bústaðnum. Slökkviliðsmenn reyna nú að verja gróðurinn í kringum bústaðinn. Ein stöð er á staðnum, þar á meðal einn tankbíll með 10 tonn af vatni. Búist er við að slökkvistarf standi yfir eitthvað frameftir kvöldi. 7.6.2012 21:25
Gekk um íbúðarhverfi vopnaður haglabyssu Maður á sextugsaldri gekk um íbúðarhverfi í Reykjavík síðdegis í dag vopnaður haglabyssu. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu var sérsveit Ríkislögreglustjóra send á staðinn og var maðurinn afvopnaður. Við nánari athugun kom í ljós að ekki var um raunverulegt skotvopn að ræða heldur eftirlíkingu. Ekki er vitað hvað manninum gekk til, en hann var undir áhrifum áfengis og vart viðræðuhæfur. Hann verður látinn sofa úr sér í kvöld og nótt og síðan yfirheyrður í fyrramálið. 7.6.2012 21:52
Niðurstöðurnar ekki vonbrigði Þóra Arnórsdóttir, segir að niðurstaða skoðunarkönnunar þar sem hún mælist með 39 prósent fylgi, ekki vera vonbrigði þrátt fyrir að hún mælist með minna fylgi nú en áður. Það sé gott að mælast með fjörutíu prósent fylgi aðeins einni viku eftir að hún hóf kosningabaráttuna. Þetta kom fram í kosningaþætti Ríkissjónvarpsins í kvöld. Ólafur Ragnar sagði að niðurstöðurnar væru í samræmi við þann meðbyr sem hann hefði fundið fyrir undanfarið. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup mælist Ólafur með tæplega 46 prósent fylgi og Þóra með 39 prósent. Ari Trausti mælist með rúmlega 9 prósent fylgi en aðrir frambjóðendur minna. 7.6.2012 20:25
Forsetinn ber ábyrgð á því að landið verði ekki stjórnlaust Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, sagði í kosningaþætti í Ríkissjónvarpinu í kvöld að Bessastaðir væri síðasta stoppistöðin ef flokkarnir ná ekki að mynda ríkisstjórn í landinu eftir næstu þingkosningar, það gæti hugsanlega gerst þar sem margir flokkar verði í framboði. "Þá er það forsetinn einn sem ber ábyrgð á því að landið verði ekki stjórnlaust.“ 7.6.2012 20:18
Ólafur Ragnar og Þóra hafa langmest fylgi Ólafur Ragnar Grímsson og Þóra Arnórsdóttir mælast með langmest fylgi af forsetaframbjóðendunum sex, samkvæmt nýrri skoðanakönnun Capacent Gallup. 7.6.2012 19:56
Fékk viðskiptahugmynd við dauðans dyr Ungur maður sem var við dauðans dyr segist vilja veita dauðvona fólki huggun með því að gera þeim kleift að taka upp og senda skilaboð til ástvina. Þannig sé ekkert eftir ósagt ef allt fer á versta veg. 7.6.2012 19:48
Ætlar ekki að láta undan þrýstingi útgerðarmanna Steingrímur J. Sigfússon, sjávarútvegsráðherra, segir Alþingi muni ekki láta undan þrýstingi útgerðarmanna í kvótamálinu. Meirihluti þingmanna styður frumvarp um hækkun veiðigjalda. 7.6.2012 19:38
Líklegt að hnakkar verði boðnir til sölu Tilkynnt var um þrjú innbrot í hesthús í Víðidal í dag og segir lögregla að ekki sé ólíklegt að í framhaldinu bjóði einhverjir illa fengna hnakka og hjálma til sölu. "Reiðtygjum var einnig stolið í tveimur innbrotum í hesthús í Mosfellsbæ á dögunum og því rétt að fólki hafi þetta hugfast ef því býðst að kaupa slíkar vörur. 7.6.2012 19:09
Draga á úr nammiáti Íslendinga Velferðaráðherra segir það komi til greina að setja reglur um stæðir á sælgætisumbúðum, líkar þeim sem yfirvöld í New York hafa þegar samþykkt um drykkjarílát á gosi, til að draga úr neyslu. Þá telur hann þarft að verslanir endurskoði afslátt á sælgæti á laugardögum. Verslunin Víðir losaði sig við nammibarina í dag. 7.6.2012 19:00
Segir mótmælendur á fullu kaupi að klappa fyrir LÍÚ "Nú hafa útgerðarmenn siglt öllum sínum flota í land og stefnt öllu sínu starfsfólki á fullu kaupi til að standa þarna og hylla sig á Austurvelli,“ segir Ólína Þorvarðardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar. Hún var ásamt Einari K. Guðfinnssyni, þingmanni Sjálfstæðisflokksins, gestur í þættinum Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag. 7.6.2012 18:29
Brimborg átti ekki rétt á að skila lóðinni Hæstiréttur telur að Brimborg hafi ekki átt rétt á því að skila lóð sem fyrirtækið hafði fengið afhenta frá Reykjavíkurborg gegn endurgreiðslu lóðagjalda. Dómur Hæstaréttar um þetta var kveðinn upp í dag. Brimborg sótti 25. janúar 2006 um 33 þúsund fermetra lóð við Lækjarmel á Esjumelum í Reykjavík. Á fundi borgarráðs áfrýjanda 16. febrúar 2006 var samþykkt að úthluta stefnda lóðinni og honum tilkynnt það bréflega samdægurs. Þar var tekið fram að lágmarksgatnagerðargjald væri 113 milljónir. 7.6.2012 17:47
Fjögurra ára nauðgunardómur staðfestur Hæstiréttur staðfesti í dag fjögurra ára fangelsisdóm yfir tveimur erlendum karlmönnum fyrir hrottalega nauðgun við Reykjavíkurflugvöll í október á síðasta ári. Mönnum er gert að greiða fórnarlambinu 1200 þúsund krónur í miskabætur. 7.6.2012 17:45
Lánið ekki ólögmætt Enn einn gengislánadómur féll í Hæstarétti í dag. Þar komst dómstóllinn að þeirri niðurstöðu að þrátt fyrir að lántakendur hefðu fengið lánsfjárhæðina greidda inn á reikning sinn í íslenskum krónum væri engu að síður um lán í erlendum myntum að ræða, en ekki krónulán með gengistryggingu. Lánið var því ekki ólögmætt. 7.6.2012 17:39
Kveiktu á blysum á Austurvelli Enn er nokkur fjöldi fólks samankominn á Austurvelli þar sem samstöðufundur vegna fiskveiðistjórnunarfrumvarpsins og auðlindagjaldsfrumvarpsins fóru fram. Nú rétt fyrir klukkan fimm kveiktu menn á blysum til að minna á málstaðinn. Ein kona fékk sár á höfuðið, svo úr blæddi, þegar hún var að mótmæla. 7.6.2012 17:23
Gróðrarskúr loksins í Reykjavík Hlé varð á samfelldum níu daga þurrviðriskafla í Reykjavík í dag þegar regndropar tóku að falla laust fyrir klukkan fjögur en síðast rigndi að ráði í borginni fyrr hálfum mánuði. Úrkoman í Reykjavík mældist 0,5 millimetrar á síðustu klukkustund á mælum Veðurstofu, 7.6.2012 17:15
Ályktun samþykkt - vilja að frumvörpin verði dregin til baka Ályktun var samþykkt á mótmælum sjómanna og útvegsmanna fyrir stundu þar sem stjórnvöld eru hvött til þess að draga frumvörpin til baka og koma á viðræðum á milli málsaðila. 7.6.2012 17:07
Allri ábyrgðinni velt yfir á Byr Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri Byrs sparisjóðs og Ragnar Zophonías Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri voru fundnir sekir um umboðssvik fyrir að hafa veitt fyrirtækinu Exeter Holdings ehf. lán án fullnægjandi veða til að kaupa stofnfjárbréf í sparisjóðinum Byr. 7.6.2012 17:06
Segir það ígildi Hells Angels að efast um frumvörp ríkisstjórnarinnar "Það er ígildi Hells Angels að voga sér að efast um gildi frumvarpanna,“ sagði Ólöf Ýr Lárusdóttir, framkvæmdastjóri Vélfags á Ólafsfirði, en hún hvetur almenning til þess að kynna sér kvótafrumvörpin. Það hafi hún gert án aðstoðar LÍÚ eins og hún orðaði það sjálf. Hún sagði ennfremur að henni hefði brugðið við að sjá sama tóninn í öllum þeim umsögnum sem hafa verið gerðar um frumvörpin, "þessi frumvörp eru vanhugsuð og gerð í fljótfærni,“ bætti hún við. 7.6.2012 16:54
Óvíst um fordæmisgildi dómsins Ólafur Þór Hauksson, sérstakur saksóknari, var ekki búinn að fá dóm Hæstaréttar í hendur þegar Vísir náði tali af honum í dag. Jón Þorsteinn Jónsson, fyrrverandi stjórnarformaður Byrs, og Ragnar Z. Guðjónsson, fyrrverandi sparisjóðsstjóri, voru dæmdir í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir umboðssvik. 7.6.2012 16:44
Sjómenn byrstu sig við mótmælendur Smávægileg átök áttu sér stað á milli stríðandi fylkinga á mótmælum sjómanna og útvegsmanna á Austurvelli fyrir stundu. Þannig byrstu sjómenn sig við konu og Eiríkur Stefánsson, sem hrópuðu kröftuglega á meðan Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands, hélt ræðu. Sjómenn byrstu sig við þau og ýttu við þeim. 7.6.2012 16:30
Einar K.: Fiskveiðistjórnunarkerfið ekki mannréttindabrot Einar K. Guðfinnsson, fyrrverandi sjávarútvegsráðherra, fagnar þeirri niðurstöðu mannréttindanefndar Sameinuðu Þjóðanna að fiskveiðistjórnunarkerfi Íslendinga sé ásættanlegt. Áður hafði nefndin ályktað að kerfið bryti gegn mannréttindum en nú hefur málinu verið lokað. 7.6.2012 16:25
Vélarvana við Engey - aðeins nokkrum metrum frá strandi Um klukkan hálf tvö í dag barst beiðni um aðstoð frá vélarvana báti sem staddur var norðan við Engey. Björgunarsveitin Ársæll var kölluð út og fór þegar á staðinn á tveimur björgunarbátum. Einnig var Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins kallað út. Þegar björgunarsveitin kom að hafði bátinn rekið vestur fyrir eyjuna og var aðeins nokkra metra frá strandi. 7.6.2012 16:09
Fjögurra og hálfs árs fangelsi í Exeter-málinu Jón Þorsteinn Jónsson og Ragnar Z. Guðjónsson voru dæmdir í fjögurra og hálf sárs fangelsi í Hæstarétti í dag vegna Exeter málsins. Mál Styrmis var sent aftur í hérað. Héraðsdómur hafði sýknað alla mennina af ákærum en sérstakur saksóknari vísaði því frá. 7.6.2012 16:06
Segja vinnubrögð útgerðarmanna ámælisverð ASÍ telur vinnubrögð útgerðarmanna ámælisverð samkvæmt tilkynningu sem sambandið sendi frá sér. Þar segir að vinnustöðvun LÍÚ sé ólögmæt auk þess sem stéttarfélögum hefur verið meinaður aðgangur að fundum sem hafa verið haldnir með starfsfólki útgerðanna. 7.6.2012 16:06
Nokkur þúsund manns á Austurvelli - bein útsending á Vísi Áætlað er að nokkur þúsund manns séu komnir saman á Austurvelli þar sem samstöðufundur útgerðarmanna og sjómanna hefst á slaginu fjögur. Fulltrúar útvegsmanna, sjómanna og sveitastjórna á landsbyggðinni munu tala á fundinum. Smelltu á hnappinn horfa á myndskeið með frétt til að sjá útsendinguna. 7.6.2012 15:44
Ungar einstæðar mæður í mestum vanda Foreldrar sem þiggja fjárhagsaðstoð eru í meirihluta ungar, einhleypar konur og algengt er að þær hafi ekki menntað sig að loknum grunnskóla. Þetta eru niðurstöður rannsóknar sem Velferðarsvið Reykjavíkurborgar lét gera um aðstæður barnafjölskyldna í Reykjavík. 7.6.2012 15:43
Áhorfendapallar Alþingis lokaðir á meðan mótmæli standa yfir Lokað verður fyrir almenning á pöllum Alþingis þegar mótmæli útgerðarmanna og sjómanna standa yfir klukkan fjögur í dag. Þetta staðfestir Helgi Bernódusson, skrifstofustjóri Alþingis. 7.6.2012 15:14
Enskir embættismenn sniðganga EM Embættismenn í Bretlandi ætla ekki að mæta á leiki Englands á EM sem hefst í Úkraínu á morgun. Meðferðin á Júlíu Tymoshenko, mannréttindamálum og ótta við rasisma eru helstu ástæðurnar. 7.6.2012 15:07
Hjón ákærð fyrir að ræna apótek Ákæra gegnum hjónum var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í morgun en þau eru ákærð fyrir að hafa rænt apótek í febrúar árið 2009. Konan, sem er um fertugt, er ákærð fyrir að hafa farið inn í apótekið vopnuð hnífi og sprautu, með andlit sitt hulið. 7.6.2012 14:38
Starfsmönnum SÞ meinaður aðgangur Starfsmenn Sameinuðu Þjóðanna fá ekki að koma á vettvang þar sem árásir stjórnarhersins í Sýrlandi áttu sér stað í gær. 78 manns eru sagðir hafa látist í árásunum. 7.6.2012 14:34
Vísir í beinni frá Austurvelli Vísir mun sýna beint frá samstöðufundi sem fer fram á Austurvelli klukkan fjögur í dag. Á meðal þeirra sem Adolf Guðmundsson, formaður Landssambands íslenskra útvegsmanna og Árni Bjarnason, forseti Farmanna- og fiskimannasambands Íslands. 7.6.2012 14:33
70 skip í höfninni Síðustu skipin eru væntanleg inn í Reykjavíkurhöfn núna á þriðja tímanum, en búist er við því að skipin verði hátt í 70 talsins samkvæmt upplýsingum frá hafnsögumanni. 7.6.2012 14:00