Fleiri fréttir

Þrjátíu keyrðu ofhratt á Reykjanesbrautinni í dag

Þrjátíu ökumenn voru teknir fyrir ofhraðan akstur á Reykjanesbrautinni í dag, samkvæmt upplýsingum frá lögreglu, en þar er 90 kílómetra hámarkshraði. Á Facebook-síðu lögreglunnar segir: "Vonandi þurfum við ekki að hitta svona marga fyrir þessar sakir aftur.“

Gæti leitt til fækkunar ferðamanna

Steingrímur J. Sigfússon, efnahags- og viðskiptaráðherra, óttast að vandi evruríkjanna muni leiða til fækkunar ferðamanna hér á landi og versnandi viðskiptakjara fyrir íslensk fyrirtæki.

Tvö kísilver og tvær virkjanir í pípunum í Þingeyjarsýslum

Fyrirtækið Thorsil áformar þrjátíu milljarða króna uppbyggingu kísilvers á Bakka og stefnir nú í að tvær slíkar verksmiðjur taki samtímis til starfa við Húsavík eftir þrjú ár. Thorsil ætlaði upphaflega reisa verksmiðjuna í Þorlákshöfn og kaupa rafmagn af Orkuveitu Reykjavíkur og var samningsrammi undirritaður um verkefnið fyrir tveimur árum.

Rofar til í vatnsmálum í Reykholti

Gengið hefur verið frá öllum nauðsynlegum leyfum frá einkaaðilum vegna lagningar nýrrar vatnsveitu í Reykholtsdal. Gott vatnsból hefur fundist og áætlað að er að ljúka framkvæmdum næsta sumar.

Maggi kjúklingasúpa með núðlum innkölluð

Ölgerðin hefur í samráði við matvælaeftirlit Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur, ákveðið að innkalla Maggi kjúklingasúpur með núðlum ( 3 súpur í pakka) strikanúmer 2761010030019 sem seld er í Bónus, þar sem ofnæmis- og óþolsvaldar eru ekki nægjanlega vel merktir.

Ungir sjálfstæðismenn gagnrýna ummæli Ármanns

Týr, félag ungra sjálfstæðismanna í Kópavogi, gagnrýnir Ármann Kr. Ólafsson bæjarstjóra og oddvita sjálfstæðismanna í Kópavogi, fyrir þau ummæli sín að 23% hækkun á eigin launum og launum bæjarfulltrúa sé ekki launahækkun heldur leiðrétting.

Snjallsímaforrit getur bjargað lífi

Nýtt snjallsímaforrit sem gerir fólki kleyft að hafa samband við Neyðarlínuna getur bjargað mannslífum. Þetta segir Tómas Gíslason, aðstoðarframkvæmdastjóri Neyðarlínunnar. Með forritinu geta ferðalangar látið vita um nákvæma staðsetningu sína með því að smella á einn hnapp og þá er sambandi náð við Neyðarlínuna. Með GPS hnitum er hægt að staðsetja snjallsímann með 2 metra skekkju.

Atvinnuleysið á Íslandi lægra en í flestum evruríkjum

Skráð atvinnuleysi í maí var 5,6% og lækkar um 0,9 prósentustig á milli mánaða, samkvæmt nýjum tölum Vinnumálastofnunar. Spá stofnunarinnar fyrir júní er að atvinnuleysi fari undir 5% og verði á bilinu 4,6-5%. Atvinnuleysi á Íslandi er orðið með því lægsta í Evrópu, en meðalatvinnuleysi í evruríkjunum er um 11%. Atvinnuleysi í Bandaríkjunum er um 8%. Runólfur Ágústsson, stjórnarformaður Vinnumálastofnunar, segir að stærstan þátt í þessari lækkun eigi verkefnið vinnandi vegur, sameiginlegt átaksverkefni stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins um sköpun starfa. Einnig spili árstíðabundin sveifla þarna inn.

Efling: Klárt brot á finnsku stelpunni eins og hún lýsir því

"Eins og þessu er lýst þá er þetta klárt brot,“ segir Harpa Ólafsdóttir, forstöðumaður kjaramálasviðs Eflingar um málefni finnsku stúlkunnar Maiju. Hún réði sig á bóndabæ í gegnum Nordjobb sem herbergisþerna í ferðaþjónustuhlutann á bænum. Samkvæmt samningi átti hún að vinna á átta tíma vöktum og eiga tvo frídaga í viku.

Minnast 22. júlí í Vatnsmýrinni

Grunnur verður lagður að minningarlundi um fjöldamorðin í Ósló og Útey við Norræna húsið á morgun. Í kjölfar gróðursetningar trjáa í lundinum verður haldið í Norræna húsið þar sem norsku feðginin Siri og Erik Sönstelie kynna bók sína „Ég er á lífi, pabbi", sem fjallar um voðaverkin. Þau ræða síðan við Boga Ágústsson, formann Norræna félagsins í Reykjavík.

Hófu sumarvinnu í sól og blíðu

Um eitt þúsund ungmenni úr 9. og 10. bekkjum grunnskóla hófu sumarvinnu sína hjá Vinnuskólanum í gær og má með sanni segja að veðrið hafi leikið við þau.

Embættismenn pissi sitjandi

Vinstri flokkurinn í Sörmland í Svíþjóð leggur til að karlkyns embættismenn verði skyldaðir til að sitja þegar þeir kasta af sér vatni á salernum lénsþingsins.

Fóru í átta sjúkraflug - flugu alls í níu klukkustundir

Frá aðfaranótt sunnudags til aðfaranótt þriðjudags bárust Mýflugi átta sjúkraflugsbeiðnir, þar af bárust fjórar í gær, og höfðu því flugmenn Mýflugs ásamt sjúkraflutningamanni Slökkviliðs Akureyrar í nógu að snúast. Fyrst var heimferð með sjúkling frá Reykjavík til Akureyrar, áður en haldið var til Vestmannaeyja og flogið með sjúkling þaðan sem þurfti að komast undir læknishendur í Reykjavík.

Um 400 manns bíða afplánunar í fangelsi

Um 400 manns bíða nú afplánunar í fangelsi. Fjöldinn hefur aldrei verið meiri en nú, en í desember 2010 var hann 350. Fyrir sex til sjö árum voru á bilinu 50-60 manns að bíða eftir afplánun, segir Páll Winkel fangelsismálastjóri. „Þetta er bara staðreynd og þess vegna erum við alveg gríðarlega ánægðir með það að það eigi að byggja þetta nýja fangelsi og fjölga plássum," segir Páll í samtali við Vísi.

Maija segir engan misskilning í samskiptunum við bóndann

Finnska stúlkan Maija segir að enginn misskilningur hafi verið í gangi í samskiptum sínum við bóndann sem hún hætti að starfa fyrir eftir vikudvöl sem herbergisþerna í ferðaþjónustu hans. Þar að auki hafi allt traust hennar til bóndans verið horfið þegar hún fór af staðnum.

Barnaníðingurinn hefur ekki komið inn á fósturheimilið í tvö ár

"Við höfum kallað eftir upplýsingum frá fósturheimilinu og barnaverndarnefndum sem eiga hlut að máli, en eftir því sem við best vitum hefur maðurinn ekki komið þangað eftir sumarið 2010,“ segir Heiða Björg Pálmadóttir, lögfræðingur Barnaverndarstofu, um stöðu fósturheimilisins sem dæmdur barnaníðingur heimsótti í fyrrasumar.

Vaðlaheiðargöng fyrsta mál til umræðu

Stjórnarfrumvarp fjármálaráðherra um Vaðlaheiðargöng er fyrsta þingmál sem búið er að setja á dagskrá Alþingis í dag. Athygli var vakin á því í frétt á Vísi í gær að tilboð lægstbjóðanda í verkið, frá ÍAV og Marti, rennur út á fimmtudag.

Samskiptaleysi olli því að finnska stúlkan flúði vinnuna

Mál Maiju, finnsku stúlkunnar sem fór ósátt frá starfi á bóndabæ á Íslandi, skýrist fyrst og fremst af samskiptaleysi, segir Stefán Vilbergsson, verkefnastjóri Nordjobb á Íslandi. Vísir sagði frá málinu í morgun. "Mér finnst óeðlilegt að það hafi ekki verð haft samband við okkur við vinnslu fréttarinnar vegna þess að þetta horfir ekki við okkur

Samtök vistheimilabarna fordæma heimsóknir barnaníðings á fósturheimili

"Okkur er mjög brugðið að sjá þetta,“ segir Víglundur Þór Víglundsson, formaður samtaka vistheimilabarna, en sjálfur varð hann fyrir grimmu ofbeldi á Breiðavík þegar hann dvaldi þar sem barn. Samtök vistheimilabarna sendu frá sér ályktun seint í gærkvöldi þar sem þau fordæmdu ákvörðun fósturheimilis úti á landi sem leyfið barnaníðingi að umgangast börn sem þar voru í fóstri.

Vélarbilun í 12 tonna hraðfiskibát

Vélarbilun varð í gærkvöldi í 12 tonna yfirbyggðum hraðfiskibáti með þriggja manna áhöfn, þegar hann var staddur undan strönd Öræfasveitarinnar.

Bretar virðast á móti reglum

Ráðamenn í Bretlandi virðast hafa reynt markvisst að veikja eða koma í veg fyrir setningu sam-evrópskra reglugerða til að draga úr útblæstri gróðurhúsalofttegunda. Það sýna skjöl sem lekið hefur verið og breska blaðið Guardian segir frá.

Sigu með lamb úr Kaplagjótu

Tveir ungir björgunarsveitarmenn í Vestmannaeyjum komu lambi til bjargar síðdegis í gær. Lambið var í sjálfheldu í Kaplagjótu í Herjólfsdal.

Myndir af forseta teknar niður

Utanríkisráðuneytið hefur sent sendiráðum Íslands erlendis ábendingu um að þess sé gætt að myndir af Ólafi Ragnari Grímssyni, forseta Íslands, hangi ekki uppi á kjörstað í sendiráðum og á ræðismannsskrifstofum.

Misskilningur olli leyfisleysi auglýsinga

Vegagerðin hefur fjarlægt um 100 skilti sem komið var fyrir við fjölfarnar götur í Reykjavík og við þjóðvegi út úr borginni. Skiltin voru hluti af auglýsingaherferð Zo-On Iceland en ekki var sótt um leyfi fyrir þeim.

Alda hnakkastulda ríður yfir Suðurland

Innbrotafaraldur í hesthús hefur gengið yfir Suðurland að undanförnu og hafa að minnsta kosti fimm slík verið tilkynnt til lögreglu síðustu mánuði. Síðast á sunnudagskvöld var brotist inn í hesthús í Norðurtröð á Selfossi og þaðan stolið tveimur hnökkum og fleiri verðmætum.

Nóbelsverðlaunin lækkuð um 20%

Forráðamenn Nóbelsverðlaunanna hafa ákveðið að lækka peningagreiðsluna sem fylgir Nóbelsverðlaununum um 20% eða niður í 8 milljónir sænskra kr.

Kanna viðhorf til mismunandi kosningakerfa

Hugur íslenskra netnotenda til forsetaframbjóðenda er kannaður á nýrri kosningasíðu. Stjórnmálafræðingarnir Gunnar Helgi Kristinsson og Indriði H. Indriðason standa fyrir vefsíðunni.

Ari Trausti segist vilja vera ópólitískur forseti

Ari Trausti Guðmundsson forsetaframbjóðandi heimsótti nýverið Marel og kynnti helstu stefnumál sín. Ari Trausti er töluvert heimavanur í fyrirtækinu, vann í vetur myndskeið um það í tengslum við þáttaröðina Nýsköpun í iðnaði.

Dýpkunarskip fór síðast í apríl

Siglingastofnun býst við að Landeyjahöfn verði opin í allt sumar og að ekki þurfi að dýpka hana að ráði. Höfnin hefur verið opin síðan í apríl og þá fór dýpkunarskip þar síðast um.

Vinni reglubundið samræmda húsnæðisáætlun

Velferðarráðuneytið ætti að gera samræmda húsnæðisáætlun fyrir Ísland á fjögurra ára fresti hið minnsta. Í slíkri áætlun þyrfti að meta framboð íbúðarhúsnæðis samkvæmt skipulagsáætlunum sveitarfélaga. Þá þurfi áætlanir fyrir einstaka landshluta að vera í samræmi við líklega fólksfjöldaþróun, áætlaða atvinnuuppbyggingu og fleira sem líklegt er til að hafa áhrif á húsnæðisuppbyggingu.

Dregið úr dýravernd í frumvarpi

Dýralæknafélag Íslands mótmælir harðlega þeim breytingum sem gerðar voru í meðförum sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytisins á tillögum nefndar til lagafrumvarps um dýravelferð.

Leitast við að draga úr áhættu

lÁhersla er lögð á mataræði og næringarefni sem stuðla að því að draga úr áhættu á næringartengdum sjúkdómum í nýjum tillögum að Norrænu næringarráðleggingunum 2012 (NNR).

Sjá næstu 50 fréttir